Tíminn - 06.11.1960, Side 3
TÍMINN, sunnudaginn 6. nóvember 1960.
3
>
Ríkisstjórnin hefur viö-
ræður við fulltrúa ASÍ
Nú mun reyna á „stefnu Morgunblaðsins”
í launamálum: Kjarabætur án verkfalla
Ríkisstjórnin hefur nú hafið
viðræður /íð verkaiýðssamtök-
in um ráðstafanir til að draga
úr kjaraskerðingunni. Er rík-
isstjórninni loks að verða
Ijóst, að hin mikla kjaraskerð-
ing launþega er ekki með
nokkru móti réttlætanleg og
fær ekki staðizt til lengdar.
Ber að fagna því að ríkis-
stjórnin hefjj viðræður við
verkalýðsfélögin um málið.
þessar viðræður ríkisstjórnar-
innar eru þvert ofan í yfir-
lýsta stefnu hennar í launa-
málum, en hún var sú, að rík-
isvaldið skyldi alls ekki hafa
afskipti af kjaramálum, þau
væru eingöngu mál atvinnu-
rekenda og verkalýðsfélaga.
Virðisf sf jórnin þv( að vitkast.
20. okt. síðastl. samþykkti
stjórn Alþýðusamb. íslands að
fara þess á leit við ríkisstjórn
ina að hún ræddi við fulltrúa
verkalýðssamtakanna um ráð
stafanir til að draga úr kjara
skerðingunni. Nú hálfum mán
uði síðar fór fyrsti viðtals-
fundurinn fram.
Stjórn Alþýðusambandsins
leggur áherzlu á eftirfarandi
ráðstafanir til að mæta kröf-
um verkalýðssamtakanna um
bætt kjör:
Stokkseyri, 3. nóvember. —
Kartöflurækt hefur lengi
verið Stokkseyringum veruleg
búbót. Nú hefur hnúðormur-
inn hins vegar tekið að herja
1. Almenn lækkun á vöru-
verði, m.a. með niðurfellingu
viðaukasöluskatts í tolli
(8,8%), lækkun aðflutnings
gjalda og ströngum verðlags
ákvæðum.
2. Lækkun útsvara af al-
mennum launatekjum.
3. Almenn lækkun útláns
vaxta.
4. Afnám ákvæðis laga, er
bannar að kaupgjaldssamn-
ingarnir séu tengdir verð-
lagi.
Aðrar ráðstafanir sem
verkalýðsfélögin kunna að
(Framhald á 2. síðu).
á kartöfluakrana og veldur
stórtjóni. Er útlit fyrir að
þorpsbúar verði neyddir til að
nema ný lönd fyrir kartöflur
sínar og reyna á þann hátt að
hlunnfara hnúðorminn.
Hnúðormurinn
aðsópsmikiEI
r ----------------
Morgunbl. fordæmir
frjálsa samkeppni
Telur lækkun milliliÖakostnaÖarins
glæpsamlega!
Morgunblaðið hefur nú fylgt eftir árás Alþýðublaðsins á Samband
ísl. samvinnufélaga og starfsemi þess í Bandaríkjunum. Gieypir
blaðið hráar fullyrðingar Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna um
„undirboð" SÍS á mörkuðum S.H. í Bandarikjunum. Sýna viðbrögð
Mbl. gjörla hve iaus er i reipunum hugsjón Sjálfstæðismanna um
hina frjálsu samkeppni.
SÍS hefur selt fiskafurðir sínar í Bandarikjunum í vaxandi mæli
og með góðum árangri. SÍS hefur tekizt að vinna nýja markaði með
, góðri skipulagningu á dreifingu og með lækkun reksturskosfnaðar.
Á þann hátt tekst að seija fiskinn á lægra verði. Er þessi árangur
SÍS lofsverður en ekki fordæmanlegur. Með lægra verði eykst
markaðurinn og okkur er mikii nauðsyn að geta aflað okkur öruggs
og hagkvæms markaðar í Bandaríkjunum.
Samkeppnin við eriend fyrirtæki á Bandaríkjamarkaði veldur því
að SÍS hefur Iagt ríka áherzlu á að gera dreifingarkerfi sitf sem
hagkvæmast og lækka reksturskostnað á allan hátt. Þannig birtast
kostir hinnar frjálsu samkeppni, markaðsverð verður með sem
lægstri álagningu neytandanum í hag. í hlnni hörðu samkeppni
leitast fyrirtækin við að auka framleiðslu sína, lækka kostnaðar-
liði og gera dreifinguna sem ódýrasta. Á þann hátt er unnt að lækka
verðið, án þess að gæði minnki og hagnaður framleiðandans skerð-
ist og jafnframt sfórauka markaðinn. Framleiðandinn getur með
auknum markaði selt fleiri framleiðslueiningar og þannig raunveru-
lega aukið hagnað sinn. — Þetta eru kostir hinnar frjálsu samkeppni
og neytandanum er hún ómetanleg. Morgunblaðið hefur sagf Sjálf-
stæðisflokkinn eina stjórnmálaflokkinn, sem viljað hefur stuðla að
frjáisri samkeppni. Það situr því illa á aðalmálgagni flokksins að
gera svo hatrammar árásir á þessa höfuðhugsjón sína. Afhjúpar
blaðið þar, hvað gæðingasjónarmlðið stendur miklu ofar en stefnan,
því að
1. SÍS greiðir sjómönnum sama verð fyrir fiskinn og Söiumið-
stöðin.
2. SÍS skilar jafn miklum gjaldeyri tii bankanna, ef ekki meiri
fyrir hvert útflutt fiskkíló og Sölumiðstöðin.
3. Gæði þess fisks, er SÍS selur í Bandarikjunum eru sizt minni
en hjá Sölumiðstöðinni.
4. SÍS hefur aukið og bætt markað fyrir íslenzkan fisk í Banda-
ríkjunum.
Að þessum atriðum athuguðum ætti Mbl. að sjá, að það er að
kasta hugsjónum sínum fyrlr róða og verður uppvíst að dæmafáu
ofstæki, ef það heldur áfram árásum á fisksölu SÍS í Bandarikj-
unum. —t.
Fremur illa horfir hér með
kartöfluræktina, sem annars
hefur verið allveruleg. Hnúð-
ormurinn hefur lagt undir sig
gömlu garðlöndin og verður
varla undan því vikizt að
brjóta ný lönd til kartöflu-
ræktarinnar, eigi hún ekki að
leggjast niður.
Rófurnar skepnufóður
Gulrófnauppskera var á-
gæt hér í haust en sölutregða
þjarmar nú mjög að þeirri
ræktun og er ekki útlit fyrir
annað en mikið af rófunum
verði notað til skepnufóðurs.
Til skamms tíma ráku
flestar eða allar fjölskyldur
hér einhvern smábúskap og
hefur verið reynt að stuðla að
því að það gæti haldist. Nú
hefur hins vegar sú starfsemi
dregist saman hjá almenn-
ingi því niðurgreiðslurnar
gera það að verkum, að betur
borgar sig að kaupa landbún-
aðarafurðir en framleiða þær
sjálfur.
Skortir fjölbreytni
Héðan rær nú einn bátur
með línu. Má kalla að hann
afli sæmilega eða frá 3—6
tonnum í róðri. Skapar verk-
un aflans töluverða atvinnu
við hraðfrystihúsið auk þess
sem þar er nú unnið að hum
arnum frá sumarvertíðinni.
Þá hefur og verið unnið að
endurbótum á bryggjunni og
var orðin á því brýn þörf. Enn
má nefna að nokkuð hefur
verið starfað að holræsagerð
í þorpinu og er það verk unn
ið í áföngum eftir því, sem
aðstæður leyfa.
Þrátt fyrir allt er útlit fyrir
að ativinna verði hér naumast
næg fram að vertíð eða næstu
(Framhald á 2. síðu).
Cæ'c SF/i
S. I. föstudagskvöld frumsýndi Þjóðleikhúsið gleðileikinn Georg Dandin
eftir Moliére. Sýningin fór vel fram og voru leikendur og leikstjóri hylltir
í leikslok. Leikstjórn Hans Dahlin er mjög listræn í alla staði. Mikið er
af léttum dönsum og söngvum, sem falla vel inn í heildarsvip leiksins. —
Næsta sýning verður í kvöld. Myndin er af Bessa Bjarnasyni (i hinum
fótfima þjóni) og Rósu Sigurðardóttur í þjónustustúlkunni.
Víðtækar varúöarreglur í
umferöinni á Keflavíkurvelli
MeS þaS fyrir augum a3
forSa slysum og bjarga martns-
lífum eru nú gerSar víStækar
ráSstafanir á Keflavíkurflug-
velli meS tilliti ti! þess aS nú
fer sá tími í hönd, þegar myrk-
ur og hálka geta gert alla um-
ferS háskalegri en ella
Þeir Benjamín Willis for-
ingi varnarliðsins hér og
Björn Ingvarsson löreglustj. á
Keflavíkurflugvelli vinna að
framkvæmd þessara ráðstaf
ana.
Bifreiðar munu verða skoð-
aðar og sömuleiðis munu öku-
menn gangast undir nákvæma
skoðun. Athugun fer fram á
ástandi veganna og fjallað
verður um íslenzk umferðar-
lög. Sérstakar ráðstafanir
verða gerðar við skóla og ann
ars staðar, þar sem börn eru
á ferð. Þeir Willis og Björn
hafa báðir kornið fram í sjón
varpi á Keflavíkurflugvelli og
hvatt jafnt íslenzka sem
bandaríska ökumenn að vera
virkir þátttakendur í þessum
ráðstöfunum svo að þær megi
takast sem bezt.
Slys eru því miður alls stað
ar þekkt fyrirbæri, sagði Will
is. Bæði í bandarískum og ís-
lenzkum umferðarlögum er
gert ráð fyrir hámarkshraða
svo og öðrum takmörkunum
við vissar aðstæður. Algerlega
er bannað að aka undir áhrif
um áfengis. Öllum þessum
reglum verður nú stranglega
fylgt eftir.
Björn sagði í ræðu sinni, að
ökumenn á Keflavíkurflug-
velli hefðu yfirleitt sýnt mikla
aðgæzlu við akstur en aldrei
væri góð vísa of oft kveðin
og aldrei væri varúðarinnar
meiri þörf en einmitt yfir vet
urinn. Björn sagði öll umferða
lög að því miðuð, að umferðin
gæti gengið þannig fyrir sig,
að ekki hlytust slys af. Hér
væri enginn grudvallarmunur
eftir löndum.
Björn hvatti, sem Willis,
alla ökumenn til þess að ger
ast virkir þátttakendur 1 þess
um ráðstöfunum, enda gæti
það orðið til þess að koma i
veg fyrir þá hræðilegu atburði
sem því miður gerast of oft
á vegunum.
Pampichler stjórnar
Sinfóniuhljómsveitinni
Sinfóníuhljómsveit íslands
heldur tónleika í ÞjóSleikhús-
inu á þriðjudagskvöld 8- þ m.
kl. 20.30. Stjórnardi á hljóm-
leikunum verður Paul Pamp-
ichler, en sinleikari rússneski
fiðlusnillingurinn Rafael Sob-
olevsky.
Á efnisskránni verður svita'
nr. 4 fyrir kammerhljómsveit
eftir Stravinsky, fiðlukonsert
eftir Katchaturinan og sin-
I fónía nr. 4 í b-dúr eftir Beet-
|hoven.
Páll Pampichler hefur dval
izt erlendis sl. ár og fullnum-
að sig í hljómsveitarstjórn á
tónlistarháskólanum í Ham-
borg. Kennari hans þar var
Wilhelm Buckner-Ruggeberg,
en hann hefur dvalizt hér og
fært upp tónverk. í bréfi til
Jóns Þórarinssonar, framkv.-
stjóra Sinfóníuhljómsveitar-
innar, hefur Bukner-Rugge-
berg borið mikið lof á Pamp
ichler og talið hann hafa
mikla hæfileika til hljómsv.-
stjórnar.