Tíminn - 06.11.1960, Blaðsíða 12

Tíminn - 06.11.1960, Blaðsíða 12
12 T f MIN N, sunnudaginn 6. nóvember 1960. Agætur handknattleikur tékk- nesku meistaranna gegn Víkingi Tékknesku meistararnir í handknattleik Gottwaldov, 'éku sinn fyrsta leik í fyrra- kvöld gegn gestgjöfunum Vík- ing, sem styrktu lið sitt með þremur mónnum úr öðrum fé- lögum. Leíkurinn var mjög skemmtilegur fyrir áhorfend- ur lengi vel þvi Víkingum tókst vel upp í byrjun og héldu þeir lengi vei í Tékkana, en þegar liða tók a leikinn fór betri æfing Tékkarna að segja til sín og þeir skoruðu þá hvert markið á fætur öðru en Víkingum tókst aðeins að svara af og til. Það fer ekki á milli mála, að þetta tékkneska lið er eitt hið bezta í heiminum og í síðari hálf- leik sýndi liðið glæsilegan hand- knattleik, með hröðum skiptingum og markvissu spili á línu, sem varð til þess að Víkingsvörnin, sem allan fyrri hálfleikinn var mjög traust, varð að lúta í lægra haldi. Þegar Tékkarnir höfðu náð nokkr um mörkum yfir, varð leikur liðs ins allur miklu léttari og samleik- urinn árahgufsríkari, en það tók liðið talsvert langan tíma að venj- ast hinum erfiðu aðstæðum að Há- logalandi, en leikvöllurinn þar er sem kunnugt er alltof lítill. Víkingur byrjaði vel Það kom fljótt í ljós, að láns- mennirnir í Víkingsliðinu, Sól- mundur Jónsson, Val, í mar'kinu, Karl Jóhannsson, KR, og Pétur Antonsson, FH í framlínunni, féllu vel inn í liðið og Víkingur náði mjög árangursríkum leik til að byrja með. Karl Jóhannsson var bezti maðurinn á vellinum allan fyrri hálfleikinn, og tókst Tékkum seint að finna vörn gegn tilbreyt- ingaríkum leik hans. Svo fór að Víkingur skoraði þrjú mörk í leik- byrjun, án þess Tékkum tækist að svara fyrir sig. Karl skoraði fyrsta markið, Pétur annað og Karl þriðja og þegar um 10 mín. voru af leik skoraði Pétur fjórða markið, og enn höfðu Tékkarnir ekki komizt á blað. Á þessu tímabiii lék Víkings- vörnin taktískan varnarleik, með Pétur Bjarnason og Björn Krist- jánsson sem beztu menn, og þau tvö eða þrjú skot, sem komust í gegnum vörina, varði Sólmund- ur vel í markinu. En síðan fóru Tékkarnir að átta sig á hinum litla leikvelli og mörk in fóru að koma. Fyrsta mark þeixra skoraði Dolesal og strax á eftir bættu Bolos og Kostik tveim- ur mörkum við. Staðan var því 4—3 fyrir Víking. Kari Jóhannsson skor aði með stuttu millibili tvö mörk, svo að aftur varð þriggja marka munur. En fyrirliðinn og leikmað- urinn heimsfrægi, Riisa, skoraði nú tvö mörk og Sladek það þriðja og staðan var jöfn 6—6. En hann skoraði Karl fyrir Víking, en Kukla jafnaði fyrir' Tékka rétt fyrir hléið. YfirburSirnir koma í ijós Björn Kristjánsson skoraði fyrsta markið í síðari hálfleik en síðan náðu Tékkarnií álgerri yfir- hönd í leiknum og skoruðu átta mörk í röð án þess Víkingum tæk- ist að svara. Á þessu tímabili var leikur tékkneska liðsins mjög skemmti- legur á að horfa. Leikmennirnir juku mjög hraðann, án þess það hefði nokkur áhrif á samleikinn, og grip leikmanna voru ekki síð- ur örugg, þótt knötturinn gengi með ofsahr.aða milli leikmanna. Snögg upphlaup Tékkanna hvað eftir annað skildi Víkingsvörnina alveg eftir. Staðan var nú 15—8 fyrir Gottwaldov. Sigurður Bjarnason skoraði ann- að mark Víkings í hálfleiknum en mótstaða Víkings var þó að mestu búin. Knötturinn hafnaði með nokkuð jöfnu millibili í Víkings- markinu, en undir lokin bættu Karl og Pétur nokkuð markatöl- una með því að skora sín tvö mörk- in hvor. í Víkingsliðinu báru tveir menn mjög af, Karl Jóhannsson gaf Tékkunum ekkert eftir hvað knatt leikni og skothæfni snerti og hann var vissulega skemmtilegasti leik- maðurinn á vellinum. Karl nýtur (Framhaid á 15 síðui Björn Kristjánsson er kominn inn fyrir vörn Tékkanna og skorar fyrsta markið í síðari hálfleik. ■ii/l' /.rv'' ’ b'M'j ■ ’ ■ '.-■■■ •' 1 W" ’J ••:■-■ Kaupfélög og kaupmenn úti á landi Munið að gera jólapantanir yðar sem fyrst SINALCO SÓDAVATN APPELSÍN GRAPE FRUIT KJARNADRYKKIR PILSNER MALTÖL HVÍTÖL SPUR COLA GINGER ALE HI-SPOT LÍMONAÐI QUININE WATER ANANAS H. F. OLGERÐIN EGILL SKALLAS I

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.