Tíminn - 12.11.1960, Qupperneq 6
T f MIN N, laugardaginn 12. nóvember 1960.
Ráðstefna kaupstaða mótmælir
skerðingu á 12 mílna landhelgi
Þann 9. sept. s.l. var hald-
inn fulltrúafundur samtaka
kaupstaSanna á Vestur-, NorS
ur- og Austurlandi í Gagn-
fræðaskó'anum á Siglufirði
kl. 16,45. Fundinn sóttu full-
trúar frá Akureyri, Húsavík,
ísafirði og Siglufirði. Formað-
ur samtakanna, Magnús Guð-
jónsson frá Akureyri setti
fundinn og bauð fulltrúa vel-
komna.
Er formaður hafði flutt skýrslu
si’órnarinnar um störfin á síðast
iiðnu ári, las gjaldkerinn, Ásgrím-
ur Hartmannsson upp endurskoð-
aða reikninga er sýndu skuldlausa
eign samtakanna kr. 23.688,50 og
voru reikningarnir samþykktir
samhljóða.
Þá fór íram kosning manna í
atvinnumálanefnd, fjárhagsnefnd
og allsherjarnefnd. Að því loknu
voru lagðar fram tillögur og bar
stjórnin meðal annars fram tillögu
varðandi benzín- og bifreiðaskatt,
aðra varðandi arð af landshapp-
drættum s. s. DAS, enn aðra um
landsútsvör og einnig tillögu um
breytingu á útsvarslögum. Þá bar
sljórnin einnig fraro tillögu um
löggæzlu, tillögu um atvinnuleysis
tryggingar og loks frumvarp til
sveitarstjórnarlaga er fram hefur
komið á Alþingi og var því vísað
til Alls'herjarnefndar Urðu tals-
verðar umræður um þessar tillög-
ur allar.
Næsta dag var fundi fram haldið
og gengið til dagskrár. F. h. at-
vinnumálanefndar flutti Jóhannes
Stefánsson dllögu um að fram færi
ýtarleg athugun á síldveiðum og
iónaði í sambandi við sumarsíld-
ira sérs'takiega. Var skorað á Al-
þingi að skipa nefnd í því máli
og enn fremur benti fundurinn á
nauðsyn þess að komið verði upp
fieiri söltunarstöðvum fyrir Aust-
urland. Var tillagan samþykkt
með öllum greiddum atkvæðum.
Framsögumaður ailsherjarnefnd-
ar, Árni Þorbjörnsson frá Sauðár-
króki, flutti tillögu í sambandi við
frumvarp til sveitarstjórnalaga.
Jónas Guðmundsson ræddi um
lagafrumvarpið og taldi rétt að
fundurinn mælti með samþykkt
írumvarpsins. — Þá lagði fram-
sögumaður nefndarinnar fram til-
lögu um að ríkið tæki að sér að
greiða löggæziumönnum utan
Heykjavíkur laun bó þannig að
bæjarfélögin greiddu fyrst um
smn allt að einum fimmta hluta
launanna. Jafnframt fólst í tillögu
hans að athugun færi fram á því
hvort ekki myndi unnt áð sameina
löggæzlu og tollgæzlu í því skyni
.ið nýta betur starfskraftana. Urðu
talsverðar umræður um málið og
var samþykkt tillaga þess efnis að
ríkissjóði bæri að greiða allan
kostnað við löggæzlu i landinu
Þá flutti framsögumaður alls-
herjarnefndar tillögu um Lands-
happdrætti og er álitið í tillögunni
að eðlilegt og æskilegt sé að þau
landshappdrætti sem eru starf-
rækt skv. sérstökum lögum og nú
verja ágóða sínum til framkvæmda
í einum kaupstað, færi út starf-
stmi sína til annarra landshluta.
Var sú tillaga samþykkt með öll-
um atkvæðum.
Þá lýsti framsögumaðurinn til-
iögu þar sem fulltrúafuindurinn
telur bráðabirgðabreytinguna á út-
svarslögunum til töluverðra bóta
og með lögfes'tingu þeirra hafi
verið komið til móts við margra
ára kröfur samtaka sveitarfélaga
um heimild til að leggja á
veltuútsvör, lögfestingu
grunnútsvarsstiga, samræmingu á-
lagningarreglna o. fl. Jafnframt
f.utti Bjarni Þórðarson frá Nes-
kaupstað viðaukatillögu þar sem
harmað var og átalið harðlega að
sú hagsbót sem hlutdeildin í sölu-
skattinum átti að vera fyrir sveit-
arfélögin skuli að engu gerð með
hækkuðum útgjöldum vegna stór-
aukins kostnaðar við framkvæmd-
ir sveitarfélaga og rekstur þeirra
og fyrirtækja þeirra. Eftir all-
iniklar umræður um málið var
samþykkt að vísa tillögunum báð-
um til frekari athugunar for-
manna alisherjarnefr.dar og fjár-
hagsnefndar.
Þá flutti Matthías Bjarnason frá
ísafirði tillögu um að sveitarfé-
lógum verði veitt hlutdeild í
benzín- og bifreiðaskatti allt að
25% í samræmi við bílaeign hvers
béraðs og verði fé þessu eingöngu
varið til gatnagerðar úr varanlegu
efni.
Einnig flutti Matthías tillögu
þar sem talið var að hraða bæri
endurskoðun laga um atvinnuleysis
tryggingu. Vildi hann láta lækka
framlög til atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs og einnig að sveitarfé-
lög fengju fulltrúa í stjórn sjóðs-
íns. Jafnframt vildi Matthías
hækka atvinnuleysisbætur.
Framsögamaður meirihluta at-
vinnumálanefndar, Jóhannes Stef-
ánsson frá Neskaupstað lagði fram
tillögu varðandi landhelgismálið
par sem motmælt var hvers konar
samningaviðræðum við brezk
síjórnarvöld um íslenzka landhelgi.
.,Telur funaurinn að ekki komi til
greina nein breyting á 12 mílna
Þskveiðilandhelginni umhverfis
landið allt“ sagði í tillögunni. —
Bjarni Þórðarson frá Neskaupstað
fiutti tillögu þar sem lögð var rík
áherzla á að í engu mætti hvika
fiá 12 mílna landhelgi umhverfis
landið allt og engri erlendri þjóð
yrði veitt ceins konar fiskveiði-
réttindi í tslenzkri landhelgi. Til-
lsgan var samþykkt með 12 at-
kvæðum á móii 11.
Loks var samþykkt að næsti
fundur samtakanna yrði á Húsavík
cg var síðan gengið til stjórnar-
kosninga. í. aðalstjórn hlutu þeir
kosningu Matthías Bjarnason,
Rögnvaldur Finnbogason og Jó-
hann Hermannsson. Endurskoðend
ur voru kosnir Sigurður Guðjóns-
son og Jón Ingimarsson. f lokin
bað Jónas Guðmundsson samtök-
inum blessunar og síðan sleit
fundarstjóri fundi.
Matrósaföt
frá 2--8 ára
Stakir kragar og flautu-
snúrur
Drengjajakkaföt frá 6—14
ára
Drengjapeysur — drengja-
buxur
Buxnaeíni, alull. kr. 180 m
Sokkabuxur, krepsokkar,
nælonsokkar saumlausir,
allt me5 gömlu verði.
Pattons ullargarnið margir
litir og tegundir.
ÆSardúnssængur
æðardúnn — hálfdúnn
Sendum gegn póstkröfu.
Vesturgötu 12 Sími 13570
MÉR HEFUR BORIZT BRÉF FRÁ
„Bankaviðskiptamanni". Þar segir:
„Mér telst svo til, að bankar og
útibú þeirra, að meðtöldum spari-
sjóðum, séu a.m.k. 13 í Reykjavík.
Allir eru þessir bankar, útibú
þeirra eða sparisjóðir á Laugaveg-
inum og í Austurstræti, eða við
næstu hliðargötur. Það er orðið
stutt að bregða sér í banka fyrir
þá, sem staddir eru innan Hring-
brautar og Snorrabrautar í Reykja-
vík. Höfuðstaðurinn er orðinn
mikil bankaborg, og mun vafasamt
að nokkur borg eða borgarhluti í
heiml búi betur í þessum efnum,
nema vera kunni Wail Street í New
York.
En úthverfin í Reykjavík eru
bankafátæk. T.d. Kleppsholtið, og
byggðin í Réttarholtinu, að ekki sé
minnzt á Kópavoginn. Fjölmargir
bæir og byggðir úti á landi eru
einnig fátækir að bönkum.
MÉR VERÐUR OFT hugsað til þess,
hvort ekkt sé nokkur ofrausn að
þessum vel búnu og snoturlegu
bankahúsum öllum á þessum litla
bletti i Reykjavík, og hvort banka-
mergðin sé ekki í öfugu hiutfalli
við ríkidæmí þjóðarinnar.
En raunar var það þó ekki það,
sem ég ætlaði að ræða um fyrst og
fremst í þessu bréfi. Mér kom það
sem sé í hug, að undarlegt megi
það virðast, að þrátt fyrlr alia
þessa banka og aukna þjónustu
þeirra, skuli enginn einasti þeirra
eða útibú þeirra hafa drifframtak
til þess að opna afgreiðslu klukkan
9 árdegis. Það eru þó fjölmargir,
sem liggur oft og einatt mjög á að
komast í banka á sama tíma og
búðir og skrifstofur eru Opnaðar í
bænum.
Það er verið að hvetja menn sí
og æ til þess að taka daginn
snemma en draga störf sín og er-
indrekstur ekki fram á kvöld. Það
er verið að skamma fólk fyrir að
láta samkomur standa fram eftir
nóttu. Nú er hafin lofsverð byrjun
til að breyta þessu, og sé ég t.d. að
Ferðafélag íslands hefur ákveðið
að byrja samkomur sínar fyrr á
kvöldi og Ijúka þeim á miðnætti.
Þetta er gott fordæml, sem ýmsir
mættu fylgja.
NÚ ÆTTU BANKAR OG RÍKIS-
SKRIFSTOFUR að hefja sinn hlut
til vegs með því að opna klukkan
níu að morgni, að minnsta kosti
einhver útlbú bankanna svo að fólk
eigi greiðan aðgang að bönkum.
Raunar ættu sumar búðir og ein-
hverjir bankar að opna klukkan
átta. Ungum börnum er ætlað að
koma i skóla klukkan átta, og því
ættu búðlr ekki að gera verið opn-
ar frá þeim tíma, og raunar af
greiðslur banka og margar skrif
stofur einnig.
Bankaviðskiptamaður."
Hjólbarðar
fyrirliggjandi í eftirtöldum stærÖum:
PIRELLI:
1100x20
1000x20
900x20
BARUM:
1100x20
1000x20
825x20
750x20
700x20
650x20
600x20
900x16
500x16
Gúmbaröinn h. f,
Brautarholti 8 — Sími 17984.
Sníðið og saumið
sjálfar eftir
Frímerkjasafnarar
Evrópumerkin 1.960 t'rá 19
löndum fyrirliegjandi,
Otvegum einnæ eldn Evr-
ópumerki.
J Agnars
Frfmerkjaverzlun s/f,
Box 356 Bevkjavík
Athygli er vakin á hví, að óheimilt er að hefja
rekstur matvinnsiustaða, matvöruverzlana, veit-
ingahúsa, brauðgerðarhúsa, snyrtistofa og annarr-
ar þeirrar starfsemi, er feliur undir Xm., XV.,
XVI., XVII. og XVIII. kafla Heilbrigðissamþykktar
fyrir Reykjaík, fyrr en leyfi heilbrigðísnefndar er
fengið til starfseminnar.
Enn fremur skal bent á, að leyfi til slíkrar starf-
semi er bundið við nafn þess aðila, er leyfið fær.
Þurfa því nýir eigendur að fá endurnýjuð eidri
leyfi, sem veitt kunna að hafa verið til starfsem-
innar.
Umsóknir skutu sendar á þar til gerðum eyðu-
blöðum, er fást í skrifstofu borgarlæknis.
Þess má vænta að rekstur þeirra fyrirtækja, sem
eigi er leyfi fyrir, skv. framanrituðu, verði
stöðvaður.
Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur
X •v . VV*X*X*V* •'W*
ÞAKKARAVÖRP
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem glöddu mig
með heimsóknum, gjöfum c.g skeytum á sjötíu
ára afmæli mínu. — Lifið heil.
Ólafur Ólafsson,
Króki.
Systir okkar,
Dagmar Þorbjörg Camilla Bjarnarson,
kennarl,
andaðist 11. þ. m.
GuSrún Bjartmarz,
Stefán Bjarnarson.