Tíminn - 23.11.1960, Blaðsíða 1

Tíminn - 23.11.1960, Blaðsíða 1
Í65. tW. — 44. árgangur. Miðvikudagur 23. nóvember 1960. Drjúgar dag- tekjur stráka Fyrir nokkru kom móðir með 8—9 ára scn sinn til rannsóknarlögreglunnar í Reykjavík, vegna þess að hún nafði fundið ógrynni af alls kyns ritföngum í fórum hans. Var þar um að ræða sjálfblek- unga, kúlupenna, blýanta, yddara, strokleður o. s. frv., verðmæti alls rúmar 2000.00 kr. Piltungur var tekinn til yfir- heyrslu, og kom í Ijós, að hann hafði ásamt jafngömlum félaga sínum gengið eina dagstund í 4—5 (Framhald á 2. síðu). 200 hámer- ar til Ítalíu Patreksf jarðarbátar halda áfram að fá hámeri, og er þetta mikil uppgripaveiði að verðmæti. Einn daginn komu 3—4 bátar með samtals 26 há- merar, tveir voru með smar níu hvor. Þar hafa nú borizi á land sam- tals 230 hámerar 200 þeirra verða r.ú á næstunni sendar til ftalíu á markað. Hver einstakur fiskur gtrir til sjómanna um 1000 krón- ur og er því hér um ekki lítið verðmæti að ræða í fiski, sem löngum hefur verið talinn hinn versti ódráttur. S. J. Þessir piltar hér á myndinni eru byrjaSlr að safna sér í áramótabrennu og hlaða köst sinn á túninu vestan Kaplaskjólsvegar. Myndin var tekin í fyrradag, en síðan er okkur tjáð, að óvinveittir flokkar úr öðrum götum hafi skorið upp herör og ráðizt að kestinum og leikið hann grátt, en vér trúum ekki öðru en Vesturbæingar hafi fleiri gamla siði i heiðri og láti þessa ekki óhefnt. (Ljósm.: TÍMINN KM). Sögulegur bæjarstjórnarfundur á Akranesi: Gamla óreiðustefnan komin í öndvegi á Akranesi aftur í fyrrakvöld var haldinn bæjarstjórnarfundur s Akranesi og varð hann allsögulegur og stóð í níu klukkustundir. Bæjar- stjórnarfundur hefur ekki verið haldinn þar í rúmar sjö vik- ur, þrátt fyrir ákvæði um mánaðarlega fundi. Á fundi þess- um fór bæjarstjórnarmeirihlutinn hinar mestu hrakfarir. Samþykkfi hann að svipta Daníel Ágústínusson, bæjarstjóra, launum frá uppsagnardegi — Einnig var rætt um fjármál bæjarins, gatnagerð, bæjarúfgerðina, launamál bæjarstjóra og loks var kjörinn bæjarstjóri. Fjármál Upplýst var á fundinum, að öll lán Akraneshafnar, sem fallið höfðu í gjalddaga eftir 1. sept. s. 1. níu talsins, væru öll komin í van- skil, þar af eitt við Habag í Þýzka- landi. Er hér um mjög alvarlegan álitshnekki að ræða fyrir bæinn í Kristján Thorlacíus kosinn form. BSRB Þingi Bandalags starfs- manna ríkis og bæja lauk kl. 4 í fyrrinótt Á síðasta fundin- um var m. a. afgreidd ályktun um launamál opinberra starfs- manna og loks fór fram stjórn- srkosning. Var Kristján Thor- lacius kjörinn formaður Banaslys í Eyjum Síðdegis í gær varð það sorglega slys í Vestmannaeyj- um, að stúlkubarn á þriðja ári, Ingibjörg Guðmundsdóttir að nafni, drukknaði í tjörn skammt frá heimih sínu Nánari atvik voru þau, að mað ur að nafni Guðjón Björnsson átti leið framhjá Vilpu, sem er tjarn- arpollur, fornt vatnsból Eyja- skeggja, sem nýlega hefur verið gerð hleðsla í kr'ingum til að varð veita staðinn, sem talinn er merk- ur i sögu Eyjanna. Hann sá barnið við tjörnina og skipaði því heim til sín. Eftir stundarfjórðung átti Guðjón aftur leið hjá. Kom hann þá auga á eitthvað í tjörninni, og fann þar barnið meðvitundarlaust á grúfu í vatninu. Náði hann þeg- ar í bíl og var stúlkan flutt í sjúkrahús á örskammri stund. Lífg unartilraunir í fjórar klukkustund- ir báru ekki árangur. Foreldrar barnsins eru Laufey Sigurðardótt- ir og Guðmundur Jóelsson, Háa- garði í Eyjum. Tjörnin Vilpa er rétt hjá Vilboi'garstöðum, sem er forn bústaður, að því er sagnir herma. Krlstján Thorlacius Bandalagsins fyrir næsta kjörtímabil, Efnahagsóstj órn ríkisstjórnarinn ar hefur að sjálfsögðu krenkt mjög kosti opinberra starfsmanna, sem flestra annarra landsmanna. Taldi þingið að ekki yrði hjá því komizt að opinberir starfsmenn færu fram á allverulegar launahækkanir og er talið líklegt að þær geti ekki numið minna en 20—25%. Fól þingið stjórn Bandalagsins að láta fara fram athugun á því, hversu miklu næmi sú kjararýrnun, sem launþegar hefðu orðið fyrir að und anförnu og byggja síðan á þeirri athugun kröfur um launabætur. Stjórnarkosning Stjórnarkosning fór þannig, að formaður, sem kosinn var sérstak lega, var kjörinn Kr'istján Thor- iacius en aðrir í stjórn eru: Júlíus Björnsson, varaform., Andrés Þormar, Eyjólfur Jónsson, Guðjón B. Baldvinsson, Magnús Eggerts- son, sr. Gunnar Árnason, Teitur Þorleifsson og Sigurður Ingimund arson. Varastjórn skipa: Einar Ólafs- son, Jón Kárason, Þorsteinn Ósk- arsson og Haraldur Steinþórsson. mörgum lánsstofnunum og láns- traust bæjarins í yfirvofandi hættu. Samþykkt var að taka -700 þús. kr. amerískt vörukaupalán. Jafn- framt var lýst yfir, að stærstu lán unum yrði velt yfir á ríkissjóð, en hann er í ábyi’gð fyrir sumum þeirra. Var það sérstaklega harm- að, að ríkissjóður skyldi ekki vera í ábyrgð fyrir öllum lánum hafn- arinnar og hægt að velta sem mestu yfir á hann, og hælt sér af því. Hins vegar kom það fram, að til 1. sept. hefðu ellefu lán verið gjaldfallin og öll greidd skilvís- (Framhald á 2. síðu). Sementsverksmiðjan lánar sement til 15 ára með 6% vöxtum Á fundi bæjarstjórnar Akraness í fyrrakvöld skýrði Hálfdán Sveinsson, bæjarstjóri, frá því að Sementsverksmiðja ríkisins hefði lofað Akranesbæ sementi tSl gatnagerðar, sem greitt yrði á 15 árum með 6% vöxtnm með gjalddaga í júní. Sennilega hcfur stjóm Sementsverksmiðjunnar farið út í þessa lánastarfsemi vegna þess samdráttar, sem nú hefur orðið á sementsmarkaðnum vegna „viðreísnar" ríkisstjórnarinnar Vafalaust munu aðrir viðskiptamenn verksmiðjunnar hyggja gott til þess og óska eftir því að notfæra sér þessa góðu greiðslu- skiimála og hagstæðu vaxtakjör. Einkum munu menn telja vaxta- kjörin góð miðað við þær vaxtagreiðslur, sem menn verða nú að inna af hendi af viðskipta- eða byggingalánum. æiSSBErosnzXSQKMSS]! , bls. 7

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.