Tíminn - 23.11.1960, Blaðsíða 11

Tíminn - 23.11.1960, Blaðsíða 11
T t MIN N, miffvikudaginn 23. nóvember 1960. II —.....................■■■■.............. ‘ .............................. i SJONVARP 00 LESTRARVENJUR Skáldsögurnar rykíalla í hillum bókasafna, en lest- ur fagbóka færist í vöxt. Lítil útián unglingabóka Lestrarvenjur ungs fólks hafa breytzt með tilkomu sjón varpsins. Skáldskapurinn er á und- anhaldi en í hans stað sækj- ast unglingarnir meir eftir fræðilegu lesefni Fagbæk- urnar vinna á með auknum kröfum um sérmenntun. Fleiri bækur um tækni og vísindi koma nú á markaðinn en nokkru sinni fyrr því þróun- in hefur skapað sívaxandi þörf fyrir þess háttar lesefni. Jafnvel hinar svokölluðu unglingabækur eru sífellt minna le.snar af unglingunum sjálfum. 1 unglingadeild aðal- bókasafnsins í Khöfn er helm- ingurinn barnabækur en hinn helmingur bókanna er líka til í deild fullorðinna. Þær bæk- ur sem sérstaklega eru ætl- aðar ungimgum má telja á íingrum sér Hin neikvæðu áhrif sjón- varpsins koma fram sem rén- andi útlán á bókum. í október lánaði unglingadeildin 3000 bindi, og það er minna en í sama mánuði í fyrra þótt ung- lingunum hafi fjölgað. Þessi breyting kemur mest niður á lestri þeirra bóka sem ætlaðar eru til skemmtunar. Það vinnst ekki tími til að lesa þessar bækur, og svo er held- ur ekki hægt að lesa meðan horft er á sjónvarpið þótt til séu unglingar sem halda því fram að lexíurnar séu auðmelt sri ef útvarpið gaular á með- an þær eru lesnar. Aftur á móti kemur það bóklestri til góða ef fjallað er um bækur í sjónvarpinu, og vekur eftxrspurn eftir bókun- um. Fyrir nokkru var ensk kvik- mynd „Trójuhesturinn“ sýnd í danska sjónvarpinu. Daginn eftir voru allar bækur á safn- inu, sem að einhverju leyti höfðu verið notaðar sem grundvöllur kvikmvndarinnar, lánaðar. (Úr Politiken.) t>essl drengur hefur ekkl tíma til að lesa skáldsögur. Hain les kennslubækurnar sínar og bækur um skák I Frfstundum. Þessi stúika leitar atS efni til stílageríar. Bækur fræ’ðilegs efms eru nú mest lesnar af ungu fólki. þar sem sjó:nvarpi$ hefur náí undir- tökunum. Lét ekki að sér hæða Larsen lét ekki að sér hæða. Hann var reklnn úr kommúnistaflokknum danska sem frægt yar orðið, en stofn aði eigin flokk og þurrkaði sinn gamia út í kosningunum, sem nú eru afstaðnar. Larsen fékk ellefu þing- menn kjörna. Þessi mynd var tekin af honum þegar hann var að labba á kjörstað til að greiða sltt atkvæðl. Fallnir fjalla- klifrarar Um 220 menn hafa farizt við klifur og príl í Ölpunum á þessu ári sam- kvæmt upplýsingum sem Associated Press hefur frá Alpaþjóðum. Tími 'jallaklifrara er nú liðinn en hann er úti ( fyrstu snjóum. f Ausíurríki fárust 74, í ítaliu 45, í Þýzkalandl 34 og f Frakklandl 18. í fyrra var tala látinna af sömu or- sökum 281 en árlð 1957 fórust 385 manns f Ölpunum. Reyndir fjallamenn segja að slys- in stafi mest megnis af þvf, að óvan- ingar taki ekki tlllit tll ráðlegginga um fjallgöngubúnað. Margir þessara manna voru ilia fataðir. Bönnuð birting greina um kon- ungsfjölskylduna Elísabet Englandsdrottning hefur unnið mál gegn þjóninum David J. Payne, se mnú verður meinað að birta opinberlega í Englandi greinar um þjónsvist sina hjá drottningar- mömmunnl og Margréti prinsessu. Payne, sem nú verður meinað að frönsk, þýzk og ftölsk blöð og sú fyrsta hefur þegar séð dagslns Ijós í frönsku blaði. Rétturinn bannaði honum birtingu á greinunum á Bretlandseyjum og sömuleiðis að opinbera þar á nokk- urn hátt kunnugleika sinn á brezku konungsf jölskyldunni. Tannkrems- auglýsing Hún er býsna skemmtileg myndin sú arna þó ekki sé klárinn frfður til munnsins þegar hann geiflar hann svona. Hann er þó bara að gelspa að því er virðist, og skyldi hann ekki mega það? Einhver hefur stungið upp á að tannkremsframleiðendur noti myndina til auglýsinga. Það gæti verið tilbreyting frá gömlu aug lýsingunum með tannburstabrosinu. « *

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.