Tíminn - 27.11.1960, Blaðsíða 2
2
T í MIN N, sunnudaginn 27. nóvember 1960.
Rökþrot stjórnar-
ílokkanna
(Framhald af 1. síðu).
verk undanhaldið í landhelgismál
inu er, svo að blátt áfram er ekki
hægt að mæla því bót eða rök
styðja það.
Spurningu þeirri, sem þjóðin
bjóst við, að stjórnarflokkarnir
reyndu að svara í þessum umræð-
um, og áttu heimtingu á að þeir
reyndu að svara, er enn ósvarað
með öllu, og hún er þessi:
Hvaða gildar ástæður eru
fyrir þessu undanhaldi og
flótta í íandhelgrsmálinu?
Það sást ekki örla á þessum á-
stæðum í ræðum Bjarna eða Guð-
mundar, svo að þjóðin sannfærðist
enn betur um að þær eru ekki til.
Þá kom það einnig skýrt
fram í þessum umræðum, hvern-
ig ótti flóttaflokkanna við kjós-
endur knúði þá 1958 til þess að
dragnast í fylkingu þeirra, sem
báru májið fram til sigurs, og þá
um leið er mönnum það ljósar
en áður, að það getur aðeins
bjargað málinu nú að skapa sams
konar ótta hjá stjórnarflokkun-
um, ótfca við nógu hiklausa af-
stöðu almennings í málinu. Þess
vegna verður þjóðin að rísa gegn
flóttamönnunum I máli þessu og
stöðva för þeirra með samstilltu
átaki.
Jólakort barnanna
(Framhald af 16. síðu).
að einhverju ieýti síðari hluta
vetrar, og verður bFrjað á blást-
urshljóðfærum. Síðar þegar fjár-
hagur batnar, verður haldið áfrafh
og næst eftir blástuishljóðfærun-
um koma strengjahí.ióðfæri.
Sölusýning?
Blaðamenn fengu einnig að
skoða þær hugmyndii sem næstar
þóttu ganga hinum útvöldu að gæð
um, og mun hfaa verið erfitt að
velja og hafna, þvi sumar hug-
myndirnar voru beinlínis stórkost
legar. Og iangt mál yrði að telja
þær allar upp hér, og birtum við
þess í stað eina hugmyndina hér
á síðunni. Eins og giöggt má sjá,
hafa jólasveinar nú tekið hina
nýju geimferðatækni í sína þjón-
ustu, en ekki má gleyma hreindýr-
inu, þótt farið sé með geimflaug-
um um loftin. — Sá er þetta rit-
ar vill beina því th Hljóðfæra-
kaupasjóðs skólans, hvort ekki
væri ráð að láta börnin fullgera
þessar hugmyndir og fleiri siíkar,
og halda síðan sölusýningu á ár-
argrinum, íii ágóða fyrir sjóðinn.
sh.
Me'nderes
(Framh. af 16 siðul.
Menderes kvað það rétt
vera, að hann hefði notað fé
úr sjóðnum, en laun hans
hefðu verið það lág, að þau
hefðu tæpast hrokkið fyrir
ýmsum nauðsynjum, endla
hefði hann haft stórt heim-
ili. Að auki hefði verið ráð
fyrir því gert, að sjóðinn ætti
að nota í þágu embættisins,
m.a. fyrir risnu og til þess
að greiða morgunmat er hon
um var færður á skrifstofun
í vinnutímanum.
Flokksstarfið úti álandi
Fundur Framsóknarfélags Akraness
Framsóknarfélag Akraness heldur almennan flokksfund
í Félagsheimili templara í dag kl. 3,30.
Fundarefnið verSur: Fjármál Akraneskaupstaðar og hin
nýju viðhorf í málefnum hæjarir.s Framsögumaður
Daníel Ágústínusson.
Allir stuðningsmenn Fi amsóknarflokksins velkomnir
Framsóknarvist á Akranesi
Framsóknarfélag Akraness heldur skemmtísamkomu í
Félagsheimili templara f kvöld og nefst hún
kl. 8.30.
Spiluð verður Framsóknarvist og dansað. Aðgöngumíðar
verða seldir á sama stað milli kl. 4 og 5 í dag og
við innganginn, ef eitthvað verður óselt.
Öllum heimill aðgangur
Kópavogur
Aðalfundur Framsóknarfélags Kópavogs, verður hald-
inn í Kársnesskóla, miðvikudaginn 30. nóv kl. 8,30 e.h.
Frosthætfa
Þeir, sem eiga garðmat og annað, sem skemmzt
getur af frosti, liggjandi í vcruafgreiðslu vorri,
eru hér með aðvaraðir um frosthættuna og beðnir
að sækja vörur sínar strax á mánudagsmorgun.
Skipaútgerð ríkisins
'V*V*V»V‘V>V*V»V'V*V*V*V*V*V‘V*V*W»V*V‘V*V*V»V*V*V‘V‘'\
SÍMI 35390
V*V*V*V'V*V*V*V*V*V*V‘VVV*V*V‘V‘V
SÍMI 35390
súkkulaúi!
Nf KJÖRBUÐ
Höfum opnað kjörbúð með nýlenduvörum fisk og kjötvörum
að Gnoðarvogi 46
KJÖRBÚÐIN VOGAVER
ÞAKKARÁVÖRP
Hjarfanlega þökkum við ykkur öllum, sem auðsýndu okkur sam-
úð og kaerlelka við andlát og útför elginmanns míns og föður okkar,
Sigfúsar H. Bergmann
fyrrverandi kaupfélagsstjóra frá Flatey, Breiðafirði.
En sérstakar þakkir færum við forstiórum og samstarfsmönn-
um hans hjá Olíufélaginu H/F.
Emilía Bergmann,
Jónina Bergmann, Hallbiörn Bergmann.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarþel
við andlát mannsins míns,
Gnoðarvogi 46
Góð hílastæði
Gnoðarvogi 46
Góð bílastæði
V»V»V*V‘V»V»V»V‘V‘V‘V‘V‘V*V»V»V‘V‘V*V‘V»V‘V* »
DR. ÞORKELS JÓHANNESSONAR
háskólarektors.
Hrefna Bergsdóttir.