Tíminn - 02.12.1960, Side 6

Tíminn - 02.12.1960, Side 6
6 T f MIN N, föstudaginn 2. desember 1960. ING Þjóðin verður að gera framkvæmda Herra forseti! Við höfum átta þingmenn úr Framsóknarflokknum.leyft okkur að flytja á þskj. 92 til- lögu til þingsályktunar um undirbúning löggjafar um framleiðslu- og framkvæmda- áœtlun þjóðarinnar. Vil ég nú leyfa mér að gera grein fyrir þessu máli og þeim ástæðum, sem við flm. teljum vera til þess að taka upp þá starfsemi, sem hér er um að ræða. Hér í höfuðstaðnum eru í smíðum tvö stórhýsi — á veg- um íslenzkra aðila í heilbrigð ismálum, Landsspítalinn nýi og bæjarspítalinn í Fossvogi. Vinna við þessi hús bæði var — að mig minnir — hafin samtímis vorið 1953. Þau eiga að hafa rúm samtals fyrir 400 sjúklinga. Nú, eftir 7 ár, virð- ist hvortveggja framkvæmd- in eiga langt í land. Segjum, að þeim verði báðum lokið að fullu eftir 8 ár — sem raunar mun ekki verða — og komi þá að notum samtímis. í níu ár er þá búið að verja til þessara tveggja nauðsynja-fram- kvæmda, hvorrar fyrir sig, nokkrum tugum milljóna. Þetta fé hefur verið lagt fram smátt og smátt, og engin króna kemur að notum fyrr en eftir 8 ár. Ef annaðhvort húsið hefði verið látið sitja fyrir, hefði það verið fullgert eftir, segjum 4 ár. Þá var hægt að byrja á hinu, og það hefði með því móti komið j afn snemma að notum og það nú gerir. En með því að kljúfa verkið, hefir þjóðin verið án eins fullkomins sjúkrahúss með 200 sjúkrarúmum í 4 ár, sjúkrahúss, sem hún hefði getað haft til afnota þennan fjögra ára tíma án þess, að það hefði nokkurn auka- stofnkostnað í för með sér. — Hér er um að ræða annars vegar framkvæmd tveggja aðila, sem stefna að sama marki án samvinnu um ár- angur, hinsvegar um fram- kvæmdaáætlun, sem þjóðfé- lagið hefði haft hag af. Ég tek þetta aðeins sem dæmi, en þau eru fleiri. Og nú munu menn bæta við: Þetta sama á sér stað um vegagerð og hafnargerð. — Eitthvað kann að vera til í því, en þar er þó sá munur á, að vega- og hafnarfram- kvæmdir koma yfirleitt að nokkru gagni jafnóðum og þær eru gerðar. Ég skal nefna fleiri dæmi, sem koma þessu máli við: Fjölskylda verður að fresta byggingu íbúðarhúss, þegar það er komið undir þak, sakir fjárskorts. Byrjar aftur eftir 1—2 ár. í þessi 1—2 ár glatar hún vöxtum af fé sínu, og í landinu er þeirri eða þeim í- búðunum færra í 1—2 ár. Bóndi, sem gæti heyjað fyrir 200 ám og hirt þær, hefir ekki nema 100, af því hann vantar stofnfé til að auka bústofn- inn. Að þessu er tjón bæði Framsöguræða Gísla Guðmundssonar í neðri deild 23. nóv. s. 1., um bingsályktunartillögu Framsóknarmanna, um undirbúning löggjafar um framleiðslu- og framkvæmdaáætlun þjóðarinnar. - fyrir þjóðfélagið og bóndann. Byggðarlag fer í eyði aí því, að höfn vantar eða veg, og áunnin verðmæti eyðileggj- ast. Kannske hefði það ekki farið í eyði, ef menn hefðu vitað, að von væri á höfninni eða veginum eftir 2—3—4 ár eða svo, og því mætti treysta. Ég hefi stundum verið að fara yfir aðalmanntalið frá 1950. Siðan er margt breytt. En þó er það enn íhugunar- efni, sem þar stendur. Þar stendur m. a., að 9,7% af þjóðinni stundi eða hafi framfæri af fiskveiðum — fiskverkun þá auðvitað ekki meðtalin — og að nærri eins margir, eða 9,1% af verzlun, 14,2% stunda eða hafa fram- færi af þjónustustörfum svo- nefndum. Þá eru taldir opin- berir starfsmenn, skemmti- kraftar o. fl. Ég ætla ekki að ræða þessar tölur, en þjóðin gerir lítið til að skipuleggja vinnuafl sitt, gerir sér sem slík yfirleitt ekki nákvæma grein fyrir, hvernig hún ver kröftum sínum. Hún gerir sér sem slík heldur ekki nægilega grein fyrir, hvernig hún geti eða vilji verja kröftum sín- um og fjármunum á komandi árum eða hve mikið fé sé hægt eða hagkvæmt að fá að láni hjá öðrum, og til hvers á hverjum tíma, eða hverja greiðslumöguleika erlend lán geti skapað. Ég minnist þess, og við minnumst þess sjálfsagt fleiri, að á stríðsárunum voru margir þeirrar skoðunar, að saltfiskur væri úr sögunni sem ein af aðalútflutnings- vörum íslendinga. Nú vantar saltfisk til að fullnægja eft- irspurninni. Þess má líka minnast, að stundum hafa verið uppi háværar raddir um offramleiðslu á kjöti og mjólk. Nú er sýnt, að þessi framleiðsla þarf að aukast mjög á komandi árum til neyzlu innanlands og allar líkur eru til þess, að hag- kvæmt verði, að kjöt haldi á- fram að vera útflutningsvara. Hér er enn eitt dæmið um nauðsyn þess, að gera sér grein fyrir því, sem framund- an er. Fyrirhyggjusamir einstakl- ingar gera oft áætlun fram í tímann um atvinnurekstur sinn og framkvæmdir. Bæjar- og sveitafélög gera nú yfir- leitt fjárhagsáætlun fyrir eitt ár um tekjur og gjöld sin og fyrirtækja sinna, þótt sú á- ætlun sé að vísu stundum nokkuð lausleg. Alþingi sem- ur fjárlög fyrir eitt ár i senn. En fjárlögin eru áætlun um rekstur ríkissjóðs og rekstur ríkisfyrirtækjanna, jafnframt því sem þau fela í sér ákvarð- anir, sem hafa lagagildi. En mörg fyrirtæki og margir ein- staklingar láta sjálfsagt undir höfuð leggjast að gera slíkar áætlanir, sem því nafni gætu nefnzt. Og um starfsemi þjóð- arinnar í heild hafa slíkar á- ætlanir fram í tímann al- mennt ekki verið gerðar. Á vegum ríkisins hefir þó í seinni tíð nokkrum sinnum verið stofnað til áætlunar- geröar af þessu tagi, en í hvert sinn á takmörkuðu sviði, a. m. k. í reynd. Stund- um hefir þá verið um það að ræða að gera tillögur um lausn mála, sem fólu J sér nokkra áætlun. Það er bezt að segja það eins og það er, að bæði hjá þingmönnum og rík- isstjórnum hefir oft komið fram talsverður áhugi fyrir því, að setja á laggirnar áætl- unarstarfsemi, en löngum hefir minna orðið úr en skyldi og stundum ekki mikil alúð við það lögffag fara ej^ þeim áætlunum, seih gerðar hafa verið. Hugmyndir manna um gildi áætlana af þessu tagi virðast oft hafa verið fremur óljósar. Þó kosn- ar hafi verið og skipaðar nefndir til að gera áætlanir, hefir árangurinn yfirleitt orðið nokkuð í molum. Þó hygg ég, að sú áætlunarstarf- semi, sem átt hefir sér stað, hafi orðið til gagns og geti orðið til gagns fyrir þá, sem við hana fást eftirleiðjs. Skipulagsnefnd atvinnu- mála, sem svo var nefnd, var skipuð af rikisstjórninni árið 1934, og mun hafa starfað um tveggja ára skeið. Hún gaf út árið 1936 mjög ýtarlega grein- argerð, meira en 500 bls. að stærð í stóru broti, sem átti að vera I. bindi nefndarálits, en síðara bindið var aldrei prentað, og veit ég ekki, hvort handritið hefur geymzt. Þessi nefnd fékk sér til ráðuneytis sænskan hagfræðing, Lind- berg að nafni, og gerði hann allmargar ritgerðir fyrir nefndina, sem fyrirhugað var að prenta í II. bindi. — Einn af nefndarmönnunum, Arnór Sigurjónsson, gaf út árið 1939 bók, sem nefndist: „Hvernig skal byggja landið?“ og má segja, að þar sé um áætlanir að ræða. í erindisbréfi nefndarinnar dags. 20. ágúst 1934, var henni meðal margs annars falið að ,,koma fram með, að rann- sókn lokinni, rökstuddar til- lögur og sem nákvæmastar á- ætlanir um aukinn atvinnu- rekstur, framkvæmdir og framleiðslu í landinu“. í 1. bindi nál. eru líka margar til- lögur, sem styðjast við áætl- anir, sem nefndin gerði. Væri freistandi að ræða það efni, og bera saman við það, sem gerzt hefir síðan. En rit þetta er merk heimild um ýmislegt í þjóðarbúskap fslendinga fyrir aldarfjórðungi og um á- hugamál manna og fyrirætl- anir á þeim tíma. Árið 1942 kaus Alþingl milliþinganefnd í raíorku- málum. Sú nefnd átti m. a. að gera tillögur um fjáröflun til „að byggja rafveitur í því skyni að koma nægilegri raf- orku til ljósa, suðu, hitunar og iðnrekstrar í allar byggðir landsins á sem skemmstum tíma“. Samkv. ályktun Al- þingis um þetta mál, átti j afnframt að rannsaka, „hvernig auðveldast sé að fullnægja raforkuþörf lands- manna, hvarvetna í landinu". Þessi raforkumálanefnd gerði allsherjar rafvæðingaráætlun og áætlun um að tengja sam- an orkuver í ýmsum lands- hlutum með háspennulinum. Upp úr þessu var sett raforku- löggjöf. Ég kem að þessunv málum síðar. Árið 1943 kaus Alþingi milliþinganefnd til þess að „gera áætlanir og tillögur um framkvæmdir í landinu, þeg- ar stríðinu lýkur“. Sú nefnd lét m. a. gera skýrslur um skiptingu þjóðartekna eftir atvinnuvegum, en ekki var sú skýrsla prentuð. Nefndin gerði líka áætlun um bygg- ingu íbúðarhúsa ’að stríðinu loknu, og er sú áætlun prent- uð í riti um byggingármála- sýninguna í Reykjavík 1944. Nefnd þessi var lögð niður, þegar nýbggingaráð tók til starfa 1944, og mun það hafa tekið við skjölum hennar og gögnum. Nýbyggingaráð, sem svo var nefnt, var skipað af ríkis- stjórninni árið 1944, og starf- aði til 1947. Um það voru sett sérstök lög á Alþingi, nr. 62 a ýo*nwm v&ft g j&mum v&fi Cóndi á Suöurlandi leit inn tll min í fyrradag og var töluvert þung- 1 orður. Hann sagði m. a.: „ÉG SÉ ÞAD í MORGUNBLAÐINU,' að þelr láta mikið af því þar, hve miklð sé talað á Suðurlandi um einhvern ólestur í sambandi við I Mjólkurbú Flóamanna. Ég kannastj ekki við þetta, miklu fremur að, talað sé um stórhug og myndarskap þar. En það er talað um ýmislegt fleira á Suðurlandl. T. d. er nú mjög rætt um nýfallinn hæstarétt ardóm, sem Hákon Guðmundsson raktl ýtarlega og vel í þætti sínum í útvarpinu nýlega. Þetta mál reis út af því, að fang- ar frá Lltla-Hrauni voru í afréttar- för með gæzlumönnum og struku, en komu síðar niður í Hreppa og stálu jeppabifreið, sem þeir óku til Reykjavíkur og stórskemmdu, er lögreglan elti þá. Tjón bóndans var um 20 þús. kr. en hann fær það að engu bætt. MENN MINNAST t. d. á það á Suð- urlandi núna, hvort málalyktir hefðu kannske ekki orðið á annan veg, jafnvel seftur gerðardómur í málið, ef eigandi jeppans hefði ver ið Ingólfur Jónsson, ráðherra. Hon j um tókst betur að fá „skaða" sinnj af völdum ríkisins bættan. Mönnum þykir þessi dómur um jeppann í andstöðu við alla réttar- vitund manna, hvað sem um laga- bókstaf er að segja. Séu lögin svona þarf áreiðanlega breytingar við. Rikið tekur sér vald til þess að láta fangagæzluna fara fram með miklu frjálslegri hætti en venju lega fangavist, af þesari ráðstöfun ríkisins og beinum afskiptum lög reglunnar í eltingarleik, hlýzt stuldur og tjón á bifreið. Dómarar komast hins vegar að þeirri niður stöðu, að rikið sé alls ekki skaðá bótaskylt, heldur verði eigandi jeppans að bera allan skaða. Þetta er fráleitt og neðan við allt venju legt ’réttarsiðferði f viðsklptum MENN BERA ÞETTA GJARNAN saman við brúna á Rangá hjá Hellu. Þar bregzt ríkið betur við. Þar er brú flutt til um hundrað metra, og sú ráðstöfun ríkisins er talin valda eignatjóni hjá verzlun armanni, sem byggt hafði við gömlu brúna. Þó er enginn skipulagsupp dráttur eða skjalfest heit af hálfu rikisins um að brúin skuli um alla framtíð vera á gamla staðnum. Samt er þetta tjón metlð bótaskylt á hálfa milli'1 - eru því að velta því fyrir sér hvernig farið hefði ef svo hefði viljað fil, að einkabtll Ingólfs á Hellu hefði ver ið stolið, þegar strokufangarnir komu af fjalli. ÞAÐ ER NÚ MJÖG RÆTT um það á Suðurlandi, sagði sunnlenzki bóndinn, að fyrst ríkið beri enga ábyrgð á þeim föngum sinum, sem það lætur lifa i allmiklu frjálsræði austur þar, né tjóni, sem hlýzt af eltingarleiknum, sem stafar af þess ari lauslegu gæzlu, sé alveg óbú andi við það fyrir Sunnlendinga, að hafa hælið þarna og eiga sifellt yfir höfði sér tjón, á lífl eða eign um, hvers konar slys og annan ágang, án þess að hafa nokkrar vonir um bætur af hálfu ríkisins. Er jafnvel talað um, að fáist ekkl annar og siðmannlegri réttargrund völlur í þessum málum, eigi Sunn lendingar ekki annan kost en safna undirskriftum um það, og láta for ystumenn sína fylgja því fram, að hælið verði tafarlaust lagt niður á þessum stað og fært út fyrir f jórð ungsmörkin, hvort sem elnhverjir fást þá fúsari til þess en Sunnlend ingar að taka á sig áhættuna". Þetta sagði sunnlenzki bóndinn, og mál hans virðist á miklum rök um relst. — Hárbarður.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.