Tíminn - 02.12.1960, Side 7

Tíminn - 02.12.1960, Side 7
7 TÍMINN, föstudaginn 2. deseniber 1960. 27. nóv. það ár. Um það segir í 2. gr. laganna: „Hlutv.erk þess er að búa til heildaráætl- un, fyrst um sinn miðaða við næstu fimm ár, um nýsköpun íslenzks þjóðarbúskapar. Skal þar áætlað, hver atvinnu- tæki, byggingar og annað þurfi til sjávar og sveita til þess, að allir íslendingar geti haft vinnu við sem arðbær-' astan atvinnurekstur, svo og hvernig bezt væri fyrir komið innflutningi fáanlegra tækja og efnis á næstu árum með það fyrir augum, að hagnýta sem bezt auðlindir landsins. Þá skal nýbyggignaráö gera á- ætlun um, hvar tækin skuli staðsett og tillögur um bygg- ingar og aðrar framkvæmdir í því sambandi". Nýbyggingaráði voru jafn- framt falin önnur verkefni, sem lítið áttu skylt við áætl- anagerð, og hafa eflaust haft truflandi áhrif á áætlunar- gerðina. Svo fór, að hin fyr- irhugaða 5-ára áætlun um það, sem kallað var „nýsköp- un þjóðarbúskaparins", var aldrei birt — og mun ekki hafa verið samin. En mér er tjáð, að gerð hafi verið og vélrituð fiskveiðaáætlun og áætlun um flutning milli ís- lands og annarra landa og að skipakaup eða skipasmíði hafi átt að byggjast á þessum áætl unum, ennfremur skipasmíða áætlun og mannaflaáætlun í sambandi við aukningu skipa- flotans. Fjárhagsráð tók við af ný- byggingaráði árið 1947. Það var föst stofnun, sem starfaði fram á árið 1954, að ég ætla. í fjárhagsráði voru gerðar fjárfestingaráætlanir fyrir eitt ár í senn og sömuleiis gjaldeyrisáætlanir, bæði fyrir eitt ár í senn og sömuleiðis tíma, eins og yfirleitt mun hafa tíðkazt í gjaldeyris- nefndum. En um áætlanir lengra fram í tímann mun ekki hafa.verið að ræða. Atvinnumálanefnd ríkisins, sem svo hefir verið nefnd, var kosin á Alþingi árið 1955 til að „gera tillögur um eflingu núverandi atvinnuvega og nýjar atvinnugreinar til fram leiðslu- og atvinnuaukningar og hagnýtingu náttúruauð- æfa landsins". Henni var m. a. einnig ætlað að gera tillög- ur um samræmingu ýmis- konar rannsóknarstarfsemi, og mun hún hafa haft sam- ráð eða samvinnu við rann- sóknarráð ríkisins. Atvinnutækjanefnd var skipuð af ríkisstjórninni haust ið 1956 til þess að gera tillög- ur í atvinnumálum, einkum í þeim landshlutum, er þar væru verst á vegi staddir, og fjallaði hún í reynd aðallega um atvinnulíf við sjávarsíð- una. Nefndin afgreiddi vorið 1958 þrjár áætlanir til rikis- stjórnarinnar, miðaöar við þessa landshluta. Skýrslur hennar um atvinnuástand og aðstöðu til atvinnureksturs í bæjum og þorpum á Norður, Austur- og Vesturlandi voru prentaðar árið 1958 og sams konar skýrslur um bæi og þorp á Suðurlandi árið 1959. Nú undanfarin ár héfir verið unnið að 10 ára áætlun um hafnarframkvæmdir í landinu skv. ályktun Alþingis 26. marz 1958. Þá þykir mér ástæða til að vekja athygli á því, að árið 1950 var á vegum Stéttarsam- bands bænda samin 10 ára á- ætlun um fjárfestingu land- búnaðarins, þ. e. um bústofns aukningu, ræktun, byggingu útihúsa og íbúðarhúsa, véla- og verkfærakaup o. fl. þ. h., svo og um lánsfjárþörf land- búnaðarins á sama tíma og um aukningu á framleiðslu landbúnaðarvara til útflutn- ings. Þessa 10 ára áætlun samdi Bergur Sigurbjörnsson, viðskiptafræðingur, fyrrv. al- þingismaður „í samráði við og með aðstoö“ formanns Stétt- arsambandsins og nokkurra annarra nafngreindra manna, sérfróðra um þau efni, sem á- ætlunin fjallar um. Ekki er mér fullkunnugt um, að hve miklu leyti hlutaðeigandi að- ilar hafa haft þessa áætlun til hliðsjónar, eftir að hún var gerð. Hún mun þó hafa verið allmikið notuð og endurnýj- uð, t.d. í sambandi við lán- tökur erlendis. Þessi áætlun var birt í Árbók landbúnaðar- ins árið 1951. Nú þegar áætl- unartíminn er liðinn, er næsta fróðlegt að bera hana samán við það, sem skeð hefir í fjárfestingarmálum land- búnaðarins á árunum 1951— 60. Eg vek athygli á því, að hér er um framkvæmdaáætl- un að ræða en ekki fram- leiðsluáætlun, þ. e. a. s. áætl- un um framléiðslu landbúnað- arafurða, nema að þvi er varðar aukniAgu á útflutn- ingi þessara vara. Þó má segja, að i bústofnsáætlun- inni felist einnig a. m. k. laus- leg áætlun um framleiðsluna. Árið 1954 var stofnað til þess með lögum, að gerð væri 10 ára áætlun um rafvæðingu landsins. Jafnframt var lög- fest útvegun lágmarksfjár- magns til áætlunarinnar, 250 millj. króna, og upphæð hvers árs á þessu 10 ára tímabili. Framkvæmdaáætlunin skyldi síðan samin, er nægileg sér- fræðileg athugun lægi fyrir. Á sínum tíma var svo þessi framkvæmdaáætlun samin fyrir tímabilið 1954—63, og sundurliðuð eftir árum. í sambandi við undirbúning i fjárlaga, — sem ég veik að áðan, — hafa hinar sérstöku stofnanir ríkisins gert áætl- anir til eins árs í senn um starfsemi sína, sem auðvitað eru á mjög afmörkuðum svið- um. Þá munu sumar þeirra, t. d. landssíminn, hafa gert framkvæmdaáætlanir fyrir nokkur ár í senn. Á vegum Framkvæmda- banka íslands hefir um nokk- urt árabil verið unnið að skýrslu- og áætlanagerð, og hefir hagdeild bankans haft það verk með höndum. Hér mun vera um að ræða ýmsar framkvæmda- og framleiðslu áætlanir til skamms tíma, svo og skýrslur um þjóðartekjur. Þetta verk mun öðrum þræði hafa verið unnið vegna þátt- töku fslands í efnahagssam- vinnu Evrópu og að einhverju leyti við hana miðað. Ég hefi talið það sjálfsagt og ómaksins vert að rifja upp fyrir háttv. alþingismönnum, að vísu mjög lauslega það, sem gerzt hefir í þessum málum. Þetta stutta yfirlit sýnir, að GÍSLI GUÐMUNDSSON allmiklu starfi hefir á undan- förnum áratugum verið varið til að gera sér grein fyrir verkefnum framtíðarinnar, og að í því sambandi hefir oft verið um að ræða áætlunar- gerð á takmörkuðu sviði, þó að form þeirrar áætlunar- gerðar hafi sjaldnast verið með föstu sniði. En þessi starfsemi hefir verið í brot- um, samhengi vantað, til- gangurinn oft ekki svo ljós sem skyldi. Nefndir hafa ver- ið settar á laggirnar, verkefni þeirra ákveðin, oftast hér á Alþingi, með skyndisamþykkt um, án þess að þær hafi verið eins rækilega undirbúnar og vera þarf, ef áætlunarverkið á að koma að fullum notum. Við flutningsmenn tillög- unnar teljum, að hér eigi nú að verða breyting á, og að nauðsnlegt sé að gera sér grein fyrir, hvernig vinna beri að áætlunum og hver megin- tilgangur áætlunargerðar eigi að vera. gerir tillögur sínar um, hvern ig áætlunin skuli samin. í fyrsta lagi það, að framleiðslu og framkvæmdir þurfi að miða við vöxt þjóðarinnar. í öðru lagi við það, að þjóðin verði á framfaraleið. í þriðja lagi, að þjóðin þurfi að byggja land sitt, að jafnvægi eigi að vera í byggð landsins. Nefndinni er ekki ætlað að gera áætlanir. Henni er ekki ætlað að starfa langan tíma. En við teljum að áætlunargerð um þessa meginþætti þjóðar- búskaparins sé svo vandasöm og svo mikið undir henni komið, að áður en byrjað er að vinna að henni, eigi að setja um það sérstaka löggjöf, hvernig hún eigi að vera og hvernig að henni skuli unn- ið. Við teljum vafasamt, að það sé á færi Alþingis nii að setja slíka löggjöf. Þess vegna þurfi að skipa nefndina til að undirbúa löggjöfina. Það mál þarf að ræða við sérfróða menn hér- á landi, hagfræð- inga, og svo er fyrir að þakka, að við eigum nú orðið mörgum vel lærðum hagfræðingum á að skipa, sem einmitt á því sviði geta orðið að miklu liði. En það er líka full ástæða til þess, að nefndin kynni sér á- ætlanagerð með öðrum þjóð- um, ekki sízt hjá þeim þjóð- um, sem mesta reynslu hafa á þessu sviði. Það þarf ekki að þýða, að við teljum æski- legt að taka upp stjórnarfar þeirra éða vinnulag að öðru leyti. Og þó að reynt sé, að fá þjóðarheildina til að vinna eftir áætlun eða með hliðsjón af áætlun, þarf það ekki að hafa í för með sér, að innleiða almennt sérstök rekstrarform í atvinnulífinu, t. d. rikis- rekstur. Áætlun um fram- leiðslu og framkvæmdir þjóð- arinnar getur verið ríkis- rekstraráætlun eins og hún er í sumum löndum. En hún get- ur alveg eins verið áætlun um einkarekstur eða blandaðan rekstur. Það er hægt að gera áætlun um þróun atvinnu- greinanna í slíkum rekstri, og það er hægt að stuðla að því á ýmsan hátt, að einstakling- ar og fyrirtæki hafi eðlilega hliðsjón af gerðri ðætlun, þjóðaráætlun eða landsáætl- un, sem miðuð er við, að þjóð- inni fjölgi, að hún haldi á- fram á braut framfaranna og að byggð haldist yfirleitt um iand allt. í tillögu þeirri, sem fyrir liggur, á þskj. 92, er gert ráð fyrir, að skipuð verði 5 manna nefnd, bankastjóri Fram- kvæmdabankans og einn maður, tilnefndur af liverjum þingflokki. Verkefni þessarar 5-manna nefndar á að vera að undirbúa löggjöf um það, hversu semja skuli fyrir ár hvert og fyrir nokkur ár í senn áætlún um framleiðslu og framkvæmdir í landinu. Samkvæmt tillögugreininni er nefndinni ætlað að hafa þrjú sjónarmiö í huga, er hún Það sem fyrir okkur flm. vakir, er að athugaðir verði möguleikar á því að gera áætl anagerð að föstum lið í starf semi þjóðfélagsins, að ekki verði látið nægja eins og hing aö til að setja á laggirnar nefndir, sem starfa tímabund ið á takmörkuðu sviði án sam hengis. Það er vandaverk að ákveða, hvernig slíkri starf- semi skuli hagað, svo að gagn verði aö. Trúlegt er, að ríkis- stofnun þurfi að hafa stjórn þessa verks. En það er áreið- anlega heppilegast, að fleiri komi til, samtök fyrirtækja, at vinnustéttir, bæjar- eða hér- aösstjórnir, ríkisstofnanir o.fl. En ákveða þarf, hvað hverjum skuli ætlað að vinna og hvern ig áætlunarefnið verði saman dregið. í sambandi við sjíka áætlanagerð þarf að skapast þjóðaráhugi á uppbyggingu framtíðarinnar, heilbrigður þjóðarmetnaður, heilbrigður metnaður stétta, atvinnu- greina og byggðarlaga í þá átt að láta ekki sinn hlut eftir liggja við að efla þjóðarbú vort og gengi þelrra, sem í landinu búa. í tillögunni, sem fyrir ligg ur, er gert ráð fyrir fram- leiðsluáætlun og framkvæmda áætlun fyrir ár hvert og lengri tíma. En það er ekki nóg að tala um áætlanir. Menn verða að gera sér grein fyrir, um hvaö áætlanir eigi að vera. Á þessar tvær áætlanir viljum við benda sem megin- þætti. En það kemur af sjálfu sér, að éf unnið er að slíkum áætlunum, munu fleiri áætlan ir koma til, eins og vikið er að í greinargerðinni. Það þarf að gera áætlun um yinnuafl þjóðarinnar á hverjúm tíma, um fjármagn og gjaldeyri, neyzluáætlun o.fl. Um það ræði ég ekki nánar á þessu stigi, enda skortir mig til þess sérfræðilega þekkingu að leggja á ráðin um það efni. Þar þurfa hagfræðiiígarnir að koma til sögunnar. Naúðsynlegt er að gera sér grein fyrir því, að áætlanir, eins og hér er aðallega um rætt, framkvæmda- og fram- leiðsluáætlun, hvort sem hún nær langt eða skammt fram í tímann, er hægt að gera á tvennan hátt fyrst og fremst. Það er hægt að gera líkinda- áætlun, eins konar veðurspá, þar sem dregnar eru líkur af reynslu og reynt að gera sér grein fyrir, hvað gerast muni, án þess að sá aðili, sem áætl- unina gerir, ætli sér sjálfur aö hafa á það veruleg áhrif eða gerir tillögur um ráðstaf- anir. En það er líka hægt að gera frumkvæðisáætlun, áætl un, sem að meira eða minna leyti er byggð á tillögum þeirra, sem áætlunina gera. Þarna mundi vinnubrögðum verða hagað nokkuð eftir stjórnarstefnunni á hverjum tíma. Þaö, sem fyrir okkur flm. vakir, kemur fram í orða lagi tillögunnar á þskj. 92. En jafnvel þótt aðeins sé farin hin fyrri leið, að eingöngu sé um líkindaáætlun að ræða, hefur hún eigi að síður mikil vægu hlutverki að gegna. Það mætti líkja slíkri áætlun við vörður á fjallvegi, þar sem ó- kunnugir eiga leið um. Áætlun af hinu taginu, frumkvæðis- áætluninni má e.t.v. fremur líkja við það, þegar verkfræð ingur markar fyrir nýjum vegi. Eg veit, að margir hafa ver Framhald á 13. síðu.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.