Tíminn - 02.12.1960, Blaðsíða 11
| TÍMINN, föstudaginn 2. desember 1960.
11
Björn Jónsson verzlunarstjóri
— ekki gott a'ö segja hvernig þeir
hlutir velta fyrr en þar að kem,ur.
Bækur
á
jóla-
markaði
Nú fer a.8 verða jólalegt
að litast um í búðunum hérí
í Reykjavík því verzlunar-
stéttin fer að hlakka til jól-
enna löngu á undan börnun-
jm. Það getur þó varla talizt
umælisvert þótt slfks sjáist
n.erki um þessi mánaðamót,
en kaupmönnum er mislagið
að gæta hófs í þesum efnum
surr:.' hafa jafnvel ekki aet-
að stfíft sig um að hengja út
jólaskrautið snemma í nóv-
ember eða fyrr, þó eru þeir
í minni hluta — verzlunar
stéttinni ril lofs.
En nú finna allir á sér að
jólin nálg'ast. Það sést á birt
unni og þarf enginn að líta
í búðarglugga til að komast
að raun um það. Eigi að sið
ur fara menn nú hvað úr
hverju að hugsa fyrir jóla-
gjöfum og mun þá mörgum
sem fyrr verða tíðratað í
bókabúðirnar, því góð bók
er alltaf virðuleg jólagjof
og hentar hverjum marir
vel
Við skruppum niður i,
Hafnarstræti í fyrradag og|
litum inn í bókabúð Norðra, j
þó ekki í því skyni að kaupa
bækur, það verður að bíða,
heldur til að spjalla stund-
arkorn við verzlunarstjór-
ann, Björn Jónsson. Við tók
um hann afsíðis og báðum j
hann að segja okkur eitt-
hvað um bókasöluna.
— Það er náttúrlega erfitt
að segja nokkuð um hana á
þessu stigi málsins, svaraði
hann. Bækurnar eru ekki
allar komnar fram og sala
ekki hafin fyrir alvöru. Það
er rétt að byrja að hreyf-
ast, svona ein og ein bók.
Maður gerir ráð fyrir að sal
an muni ganga vel, en
glögga mynd hefur maður
ekki fengið af henni enn sem
komið er.
— Hvað heldurðu að kom-
. inn sé út mikill hluti þeirra
bóka sem væntanlegar eru
fyrir jól?
— Það er líka erfitt að
gera sér grein fyrir því.
Stærri forl' eru sennilega
komin með ó-aar bækur að
nokkuð miklu leyti, en svo
koma ýmsir einstakl., sem
gefa út eina og eina bók og
þar eru varla öll kurl komin
til grafar. Það mætti segja
mér að um það bil tveir
þriðju af þeim bókum, sem
eru væntanlegar fyrir jól
væru komnar á markað.
Þó vil ég ekki fullyrða slíkt.
— Þykir ekki heldur óvæn
legt að gefa út bækur þegar
liðið er nær jólum?
— Nei, algengast er aö
bækurnar komi ekki fyrr en
um mánaðamót nóvember-
desember. En það er óhætt
að segja að bækurnar hafi
komið með fyrsta móti í ár.
Það er óvanalega mikið af
nýjum bókum á markaði nú
þegar. — Aftur á móti er það
mjög óæskilegt að bækur
komi mjög seint., til dæm-
is viku fyrir jólin. Þær
bækur dragnast aftur úr í
jólasölunni eins og hdnar,
sem koma of snemma.
— Hvað um bókafjöldann,
núna samanborið við önnur
ár?
— Mér virðist ýmislegt
benda til að útgáfan verði j
nokkru minni en undanfarin
ár. Bókaútgáfa var óvenju- * 1
mikil í fyrra. Aftur á móti
urðu þá margir illa úti og
koma vafalaust ekki með
bækur í ár nema miklu færri
og sumir jafnvel alls ekki.
— Hvenær hefst jólasalan
fyrir alvöru?
— Ekki fyrr en komið er
nokkur framyfir þessi mán-
aðamót. Fram að þeim tíma
kaupir fólk meira fyrir sjálft
sig eina og eina bók, sem það
hefur beðið eftir með ó-
þreyju. En um jólasölu er eins
og jafnan allt í óvissu á þess
um tíma, ekki gott að segja
hvernig þeir hlutir velta fyrr ;
en þar að kemur. Það hefur j
verið anzi mikill samdráttur;
í verzlun á þessu' ári, al- i
mennt. Mjög áberandi að!
fólk hefur minna fé handa j
á milli og horfir þá frekar
í hverja krónuna. Þess vegno.
má gera ráð fyrir samdrætti
á þessu sviði sem öðrum
sviðum verzlunarinnar.
-unfíK* Hvaö er starfsfólkið
margt hér í bókabúðinni?
— Við erum fjögur að öll
um jafni. Um jólin bætum
við starfsfólki við. Tíminn
Hún gaumgæfir bókina.
verður að skera úr um það
hvað sú þörf verður mikil,
en ég geri ráð fyrir að við
verðum sex til sjö í mestu
jólaösinni.
— Og veitir þá ekki af?
— Ja, það vona ég að
minnsta kosti.
Athyglisverður þáttur í
endurreisn hestamennsku
Skemmtileg strákasaga?
Annað hefti tímarits Landssam
bands hestamannafélaga er nýkom
ið út og er vandað að efni eins og
l. hefti tímaritsins, sem út kom í
sumar. — í þessu nýja hefti er
m. a. skemmtileg frásögn frú Guð
rúnar Daníelsdóttur (Daníelsson-
; ar) frá uppvaxtarárum hennar og
j samskiptum föður hennar við
; hesta sína.
Gunnar Bjamason og Vignir Guð
I mundsson segja frá „sólskinsdög-
j um hjá þýzkum hestamönnum" í
skemmtilegum frásögnum frá veru
sinni í Þýzkalandi og Hvítasunnu-
mótinu í Schliichtern síðastl. sum-
ar. Eru þessar frásagnir allrar at-
hygli verðar og líklegar til að vekja
áhuga margra á þvi markverðasta
í hestamennsku Þjóðverja. — Verð
ur e. t. v. seinna að þessu vikið
nánar. — „Gamlar myndir“ eru
birtar þarna af útför Sigurðar
Gíslasonar lögregluþjóns, sem var
kunnur hestamaður á Suðurlandi
og víðar á sinni tíð. Eru þessar
myndir og eins þær, sem komu í
1. heftinu skemmtilegt innlegg í
sögu liðins tima og æskilegt að
fram verði haldið á þeirri braut.
BST Erásagnr um fjórðungsmót hesta
niannafélaganna á Sauðárkróki og
í Borgarfirði eru í þessu hefti,
ásamt frásögn af kappreiðunum,
| sem haldnar voru í sambandi 'við
I fjórðungsmótin.
„Um Gjallai'brú“, minningarorð
' um Stúart Mclntosh dýralækni,
J sem fórst í Brúará síðastliðið sum-
í ar, eftir Vigni, og um æskuna og
j hestinn skrifar Björn M. Halldórs-
| son eftir tektarverða grein, sem
j gefur manni tilefni að spyrja eins
I og Björn: „Skynlaus skepna. Hvað
er það“?
Þórður Kristleifsson segir frá
horfnum góðhestum. Páll dýra-
læknir skr'ifar um meðferð og hirð
ingu hesta, sérstaklega um helti.
Margt fleira er í ritinu, m. a. grein
um skeið eftir ritstjórann og hesta
vísur, sem er fastur' liður í hverju
hefti. — Ritstjóri Hestsins okkar
er Vignir Guðmundsson blaðamað-
ur, en með honum eru í ritnefnd
Matthías Matthíasson, Einar G. E.
Sæmundsson og Jón Brynjólfsson.
— Útgáfa þessa tímarits er' athygl-
isverður þáttur í endurreisn ís-
lenzkrar hestamennsku og mætti
ætla að rit sem þetta verði mörg-
um aufúsugestur. Ætti það að
verða metnaðarmál öllum hesta-
mönnum og hestaunnendum að
i gera útbreiðslu þeirra eigin tíma-
rits sem mesta, og veg þess sem
stærstan. — Ritið er þess vert.
G. Þ.