Tíminn - 08.12.1960, Side 3
ur ríki kalla herlið sitt
eim trá Kongó
— eftir handtökuna á Lumumba
þjark í öryggisráðinu
mikiti
N%v York, Leopoldville—
NTB, 7.12. — Ástandið í
Kongó er enn aS komast á
nýtt og ef til vill alvarlegra
stig en nokkru sirtni fyrr Á
sama tíma sem Zorin, aðalfull
trúi Rússa hjá S.Þ. lagð: fram
tillögu á fundi öryggisráðsins
á þá leið, að herlið Mobutos
yrði afvopnað og Lumumba
falin stjórn landsins, bárust
í dag þær fregnir til New
York, að stjórnir nokkurra
þeirra ríkja er herlið hafa í
Kongó á vegum S.Þ. hafi á-
kveðið að kalla lið sitt heim
eftir handtökuna á Lumumba
og hina nýju þróun málanna
í þessu landi ringulreiðar-
innar.
Aðalmálgagn egypsku stjórn
arinnar skýrði frá því í dag,
Samningur við
Tékkóslóvakíu
Hinn 16. nóvember s.l. var
undirritaður í Prag nýr við-
skiptasamningur milli íslands
og Tékkóslóvakíu og gildir
hann í þrjú ár, til 31. ágúst
1963, en vörulistar, sem jafn-
framt var samið um, gilda í
eitt ár frá 1. sept. 1960 til 31.
ágúst 1961.
í samningnum er gert ráð fyrir
sölu til Tékkóslóvakíu á frystum
íiskflökum, frystri og saltaðri síld,
fiskimjöli, lýsi, niðursoðnum fisk-
aíurðum og ýmsum öðrum afurð-
um svo sem húðum, görnum, osti,
kjöti og ull. Á móti er gert ráð
fyrir kaupum á ýmsum vöruteg-
undum frá Tékkóslóvakíu, svo
sem vefnaðarvörum, skófatnaði,
gieri og glervörum, ýmiss konar
éhöldum, vélum, bílum, járn- og
stálvörum, sykri og ýmsum fleiri
vörum.
Jafnframt viðskiptasamningnum
var undtrritaður nýr greiðslu-
samningur milli landanna sem
gildir til 31. ágúst 1961 en fram-
lengist eftir það sjálfkrafa um
eití ár í senn, ef honum er ekki
sagt upp með þriggja mánaða
ivrirvara.
Af íslands hálfu önnuðust samn
ingagerðina þeir dir. Oddur Guð-
jónsson, Pétur Pétursson, forstjóri,
B.iörn Tryggvason, skrifstofu-
stjóri og Ami Finnbjörnsson,
framkvæmdas'tjóri.
U taniríkisr áðuney tið,
Reykjavík, 7. desember 1960.
að ríkisstórnin hefði kallað
heim herlið sitt í Kongó —
í ljós hefði komið að S. Þ.
hefðu gengið erinda heims-
valdasinna þar I landi og ekki
lyft litla fingri til að aðstoða
Lumumba gegn _ skrílherliði
Mobutus ofursta. í blaðinu er
ráðist harðlega á Eisenhower
og Hammarskjöld, og eru
báðir sakaðir um linku í
Kongómálinu. — Ríkisstjórn
Ceylon tilkynnti einnig í dag,
að herlið hennar í Kongó yrði
senn kallað heim, sama gerði
ríkisstjórn Júgóslavíu, og
búizt er við, að Ghanastjórn
tilkynni bráðlega, að herlið
hennar verði enn fremur kall
að heim.'
Bréfaskriftir Títós
Óstaðfestar fregnir herma,
að Tító hafi ritað Nehrú, Sek-
ou Toré, Nkrumah og fleiri
leiðtogum hlutlausra ríkja,
bréf og beðið þá um að draga
herlið sitt heim frá Kongó í
mótmælaskyni við handtöku
Lumumba. Edward Kennedy
og tveir bandarískir öldunga-
deildarþingmenn ræddu í dag
við Dayal fulltrúa Hammar-
skjölds í Kongó — á meðan
,fundur þeirra stóð yfir urðu
þeir vitni að því að stuðnings
maður Lumumba réðst á
stuðningsmann Kasavubu og
urðu mikil átök. Bandaríkja-
mennirnir munu ræða við
Kasavubu á morgun, en síðan
halda blaðamannafund.
Þjark í öryggisráðinu
| Zorin aðalfulltrúi Rússa, sem
situr í forsæti á fundum ör-
yggisráðsins þessar vikurnar,
(Framhald á 15 siðujj
í'|111 , i
Um svipaö’ leyti og fyrsti snjórinn féll hér á landi, gerði bylgusu útl i
Danmörku. Snjórinn varð ekki mlkill, en nóg til þess að vegir urðu hálir
og margir bílar lentu í árekstrum og skurðum þess vegna. Þessi mynd er
þaðan og sýnir einn bílinn í skurði.
Dráttarvélin valt
— ökumaöur slapp
Búðardal, 7. des — f fyrri-
nótt kom það fyrir vestur í
Dölum, að dráttar\él rann út
af vegi og valt alveg yfir sig.
Ökumanninum tókst þó að
iosa sig af vélinni í tæka tíð
og slapp ómeiddur. Vélin
mun hins vegar hafa be.vglast
eitthvað, en þó miklu minna
en við mátti búast.
Vestur í Haukadal í Dalasýslu
var starfsmaður kaupfélagsins í
Búðardal á ferð á dráttarvél í
fyrrinótt. Nokkui nálka var á veg
inum, eins og oft vill verða að
vetrarlági og skipíi ‘ þáð engum
tíigum að á einum svellbunkanum
tók vélin að renna svo ekki varð
við neitt ráðið. Ökumaðurinn sá
þegar hvað verða vildi og fékk
með snarræði srtokkið af vélinni
én hún rann út af veginum og
valt yfir sig. Maðurinn slapp ó-
meiddur og má það mikil mildi
teljast, en vélin mun hins vegar
hafa skemmzt eitthvað en þó von-
um minna.
Dráttarvélaslys alltíð
Dráttarvélarslys eru tekin að
gerast alltíð hérlendis hin síðari
ár en þó e.í.v. ekki fleiri en við
n.á búast þegar þess er gætt. hvað
margar vélar eru urðnar í eigu
landsmanna og á fæstum þeirra
hús né nokkuð annað, sem verða
má til hlífðar ökumanni, ef útaf
ber.
St. Þ.
Kommúnistar styðja Nato!
„Litli-McCarthy“ á Mbl. ortSínn alblindur í
ofstækinu — Sér alls statSar rautt
SvartleiSari Mbl. i gær er góð sönnun þess, hve McCarthylsminn
er orSlnn svæsinn og blindur á MorgunblaSlnu undlr forystu „Lltla-
McCarthys". „Llfli-McCarthy" gerir betur en aS kippa ( kynlð —
hann er tvímælalaust orðinn föðurbetrungur. — Það þarf að visu
að ganga iangt í ofstækinu tli að skjóta hinum fræga og stóra
MeCarthy heitnum ref fyrir rass. Á blómatímum hans í Bandaríkjun-
um voru saklauslr borgarar ofsóttir og útskúfaðlr úr samfélaginu
og stimplaðlr kommúnlstar jafnvel fyrir það eitt að þeir höfðu í
fyrndlnnl átt kunningja með róttækar skoðanir. Menntaðir og gáf-
aðir borgarar með sjálfstæðar skoðanir, sem höfðu ef til vill leyft
sér að halda því fram, að ríkistryggingar og sjúkrasamlög væru til
fyrirmyndar, voru stimpiaðir kommúnistar og fjandmenn Bandaríkj-
anna. — Síðar var reyndar viðurkennt í Bandaríkjunum að McCarthy
hefði verið sturlaður og nú er sá höfðingi kominn til feðra sinna
og McCarthy-isminn hefur verið kveðinn niður í Bandaríkjunum. —
En nú er nýr „spámaður" komlnn fram á sjónarsviðið, „Lltli-
McCarthy" á Morgunblaðinu. Hann segir í gær að það stoði ekkert
fyrir Framsóknarmenn að lýsa því yfir að þeir styðji NATO og séu
fylgjandi vestrænu samstarfi og fordæmi alheimskommúnismann,
— þeir eru alveg jafnmiklir kommúnistar fyrir það, seglr „Lltli-
McCarthy". Byggir hann þá skoðun sína á því, að í leiðara TÍMANS
í fyrradag segir, að það sé skoðun Framsóknarflokkslns enn elns
og hún hefur ætíð verið og skýrt mörkuð að hér skuli ekki vera
erlendur her á friðartímum. Það hefur elnnig verið skoðun Sjálf-
stæðisflokksins og Alþýðuflokksins. Nú virðist vera komlð annað
hljóð í strokkinn: Herinn á að vera hér um aldur og ævi, hvernig
sem málum sklpast.
Að dómi „Litla-McCarthys" á Mbl. er hver sá, sem leyfir sér að
láta í Ijós sjálfstæða skoðun sína og óbifandi sannfæringu, sem ekki
kemur heim vlð sjúklegan og þrælslundaðan þankagang hans sjálfs,
kommúnisti, — hann er kommúnisti, um það þarf engum blöðum
að fletta. Ástandið er meira eð segja orðið svo slæmt, að það styður
skoðun „Litla-McCarthys" um „kommúnistaorðið", ef „kommúnist
inn" segist vera fylgjandi þátttöku í NATO!
Innbrot í Austurstræti
f fyrrinótt var brotizt inn í verzl.
L.H. Muller í Austurstræti. Þjófurinn
braut þar upp hurðir, hellti úr skúff
um á gólfið. Ekki hafðist annað upp
úr krafsinu en nokkrar krónur í
skiptimynt. Þá var reynt að fara inn
í verzlunina sjálfa en ekki tókst það.
í léiðinni kom þjófurinn við á lög
fræðiskrifstofu Gústafs Ólafssonar i
sama húsi. Var þar brotin læsing á
hurð og rótað i hirzlum en engu
stolið.
Kvikmyndavél o fl. stoliS
Aðfaranótt þriðjudags var brotizt
inn í Kr. Kristjánsson h.f. við Suður
landsbraut. Þar voru stungnar upp
fjórar hurðir, skápar og skúffur.
Urðu af þessu talsverðar skemmdir.
Stolið var kvikmyndatökuvél, raf
magnsrakvél, verkfærum, auglýsinga
bíllíkönum og 400 krónum í pening-
um.
Drukkinn bílstjóri eltur
Laust fyrir miðnætti í fyrrakvöld
varð árekstur á horni Laugarnesveg
ar og Laugalæks. Annar ökumaður
inn, sem talinn var hafa valdið
árekstrinum, nam ekki staðar, held
ur forðaði sér. Var bílnum veitt eft
irför og er komið var að mótum
Laugarness og Kleppsvegar, lenti bíll
flóttamannsins á Ijósastaur og kastað
ist síðan út af veginum. Va>r bíllinn
óökufær eftir þessa útreið. — Af
ökuþórnum er það að segja, að hann
sparn hælum í rass og hugðist forða
sér á hlaupum. Þeir, sem eltu, voru
þó greinilega meiri hlauparar og
hann hafi verið undir áhrifum og
er málið í rannsókn.
Datt á götu, meiddist
í baki
Kl. 14,45 í gærdag datt kona fyrir
utan Bjömsbakarí I Aðalstræti. Kvart
aði hún um eymsli í baki og var fiutt
á slysavarðstofuna. Konan heitir Sig
ríður Ottósdóttir.
Árekstur á Hlemmi
Kl. 9,20 í gærmorgun varð árekst
ur á Hlemmtorgi. Annar bíllinn snögg
bakkaði og lenti á leigubíl, sem
hafði numið staðar fyrir aftan.
Skemmdir urðu nokkrar á leigubíln
um.
Keí jurnar slógust í VW
Kl. 10,40 í gærmorgun vildi það
til, er vörubíll var að fara inn í stæði
við Laugaveg 15, að keðjur á aftur
hjóli bílsins slógust í frambretti á
Volkswagen, sem þarna var. Beygl
aðist brettið eitthvað.
Haríur árekstur
Kl. 11,45 varð harður árekstur
milli tveggja fólksbíla á mótum
Ægisgarðs og Tryggvagötu. Allmikl
ar skemmdir urðu á báðum bílunum.
Snerist i hálfhring
Kl. 13,10 varð harður árekstur
milli Skoda og Buick á mótum Bar-
ónsstígs og Eiríksgötu. Við árekstur
inn snerist Skodinn í hálfhring á
götunni. Skemmdir urðu mikiar,
I einkum á Skodanum.
Enn einn áreksturinn
þar....
Kl. 14,12 varð enn einn árekstur-
inn á gatnamótum Ægisgötu o-g
Öldugötu. Lenti þar saman Opel
Caravan og Volga fólksbíl. Nokkrar
skemmdir urðu á Opelnum. Árekstr
ar hafa verið tíðir á þessum stað.
Árekstur á Steindórsplani
Um fjögurleytið í gær varð árekst
ur á bílastæði Steindórs við Hafnar-
stræti. Skemmdir urðu litlar á bílum
þeim, sem hlut áttu að máli.
Hálka og aftanákeyrsla
Kl. 16,15 varð árekstur milli pickup
bíls og oríuflutningabíls á Laugalæk
við Laugarnesveg. Lenti olíubíllinn
aftan á pickupbílnum. Mikil hálka
var þarna á götunni.
Kranabí!) rakst á
„strætó“
Kl. 16,42 var kranabíll á ferð á
Laugavegi, rétt austan Nóatúns.
Rakst hann þá utan í strætisvagn,
sem var á austurleið. Skemmdir urðu
óverulegar.
Mikil hálka krefst varútSar
Ilvorki meira né minna en átta
árekstrar höfðu átt sér stað í Reykja
vík um sexleytið í gærkveldi. Margir
I árekstranna urðu beinlínis vegna
: hálkunnar, sem var mjög mikil á
J götum bæjarins í gær. Ekki verður
, ofbrýnt fyrir ökumönnum að taka
tillit til aðstæðna og aka varlega í
hálkunni. Það getur firrt bæði þá
j og aðra tjóni.