Tíminn - 08.12.1960, Blaðsíða 11

Tíminn - 08.12.1960, Blaðsíða 11
N N, fimmtudagLnn 8. descmber 1960. 11 Ný, glæsileg endisrminningabók Þetta eru endurminningar eins af þekktustu skurð- læknum Þýzkalands. Hann er nú 68 ára að aldri. — í þess- um endurminningaflokki hefur Setberg áður gefið út bæk- urnar „Líknandi hönd", „Albert Schweitzer" og „Abra- ham Lincoln". Það er óvenjulegt að skurðlæknir lýsi svo afdráttarlaust og opinskát' starfi sínu og viðfangsetnum sem dr. Killian gerir í þessari minningabók sinni. Hér er lesandanum opnaðar dyr að hinum hvítu salarkynnum skurðstofunnar. En höfuðprýði þessarar bókar er mannúð og mannskilningur þess hjarta, sem undir slær. — Og svo er bókin ■ frábærri þýðingu Freysteins Gunnarssonar skóla- stjóra. Doktorsritgerð um Hómersþýðingamar í gær kom út á vegum bóka úfgáfu Menningarsjóðs bók um Hómersþýðingar Svein- bjarnar Egilssonar eftir Finn- boga Guðmundsson, magister. Er þetta mikið verk, hálft fjórða hundrað blaðsíðna og er rit gerð, sem hann hyggst verja til doktorsnafnbótar. Mun vörnin sennilega fara fram í janúar. í formála segir Finnbogi, að r’itgerð þessi sé endurskoðun og framhald athugana hans á Hómers þýðingum, er hann hafi gert á námsárum í Háskólanum, enda hafi aðalritgerð hans til lokaprófs fjall að um þessi fræði ,eða feril þýð inganna, en Sveinbjörn vann að Hómersþýðingum annað veifið í 33 ár. Segist Finnbogi einkum hafa unnið að ritgerðinni eftir 1956. Segist hann helga ritið foreldrum sínum og hafi reynt að vinna verk ið í fróðleiksanda föður síns og af bjartsýni móður sinnar. Höfund ur lýkur formála sínum með þess um or'ðum: „Hómersþýðingar Sveinbjarnar Egilssonar eru óþrotleg náma, er freistar manna því meir, sem neð ar dregur í hana. Er sú von mín að lokum ,að sá fróðleikur um þýð ingarnar og þau dæmi, sem hér eru saman komin, megi reynast góður grundvöllur frekar’i rann sókna á þeim í framtíðinni." Kaupi brotaiárn og rrálma — Hæsta verð Arinbii'rn Jónsson Sölvhóisgötu 2 .áður Kola verzl Sig Olaíssonar) simi 11360 Lögmannafélag islands Aðalfundur í félaginu verður haldinn föstudaginn 9. des. 1960, kl. 5 síðdegis í Tjarnarcafé, uppi. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Borðhald eftir fundinn. Stjórnin SÓLGRJÓN fnnihalda rfkulega cggjahvftuefni, efnnig kalk, járn og fosfór og *vo B-vítamín- allt nauðsynleg efnl líkamanum, fyrir eldri og yngrl. Munið að diskur af SÓLGRJÓNUM og skyri, hrært saman í hæfilegum hlut föllum, hefir að geyma Ys af daglegri eggjahvítuefna þörf barnsins. Byrjlð daginn vel, neytið grauts úr Sólgrjónum, eða hrærings, því SÓLGRJÓN og skyr eiga mjög vel saman. Ljúffengt bragð fínsaxaðra'ÍÓLGRJÓNA og skyrbragðlð blandast á hinn bezta hátt og hraeringurinn verður mjúkur og bragðgóður. NEYTIÐ SÓLGRJÓNA sem veita ÞREK og ÞRÓTT. TILKYNNING Nr 29/1960 Verðlagsnefnd hefur ákveðið, að framvegis sé ó- heimilt að selja vöru hærra verði eftir almennan lokunartíma verziana. í söluturnum og öðrum slíkum sölustöðum er því ekki heimilt að selja vöru hærra verði en í al- mennum verzlunum, og gildir þetta jafnt um öl og gosdrykki, sem aðrar vörur. nema um viður- kennda veitingastaði sé að ræða. Reykjavík, 5. des. 1960 Verðlagsstjórinn Tilkynning Ákveðið hefur verið að gjaldeyris- og/eða inn- flutningsleyfi útgefin af Innflutningsskrifstofunni verði ekki framJengd um næstu áramót. Ný leyfi verða gefih út í stað þeirra, sem háð eru ákvæðum um greiðslufrest, eða aðrar sérstakar ástæður eru fyrii hendi. Umsóknir þar um skulu hafa borizt bönkunum fyrir 10. jan. 1961. LANDSBANKI ÍSLANDS VIÐSKIPTABANKI ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.