Tíminn - 08.12.1960, Side 16
Ungur póstmaður stal 25 þús.
krónum frá starf sbróður sínum
Stórfelldur póstþjófnatiur upplýstur í Danmörku:
Ey'Öslusemi hans og einkennisklætSna'Öur kom
lögreglunni á spcriÖ eftir hinn úthugsafta
verknaí
Óvenju djarft rán var ný-
lega framið í Danmörku er
póstmöppu með verðmætum
að upphæð 25 þús. dönskum
krónum var rænt úr póstbif-
reið í Frede á meðan að póst-
mlðurinn, sem ók bifreiðinni
gekk inn i pósthús staðarins.
Þegar þótti fullvíst, að þjófn-
aður þegsi hefði verið vel skipu-
lagður og að einhver kunnugur
hefði verið þar að verki. Ránið
var framið 2. desember s. 1. og
siðan hefur ránsmannanna verið
leitað og málið rannsakað niður
1 kjölinn með þeim árangri að í
fyrradag játaði 21 árs gamall póst-
rnaður Kurt Jörgensen á sig ránið
skömmu eftir að hann háfði verið
hækkaður í tign, en hafði áður
ekið á þeirri póstleið er ránið
var framið á.
Búningurinn átti að skýla
Kurt Jörgensen var klæddur
fcinum rauða búningi danskra póst
manna er hann framdi þjófnaðinn.
Ætlaði hann, að það myndi auð-
velda honum verknaðinn, enginn
tæki eftir því þó að einkennis-
klæddur póstmaður færi með póst
poka — en það var þó einkennis-
klæðnaðurinn, sem varð til þess
að koma upp um hann að lokum.
Jörgensen fékk hugmyndina um
að fremja þennan óvenjulega
þjófnað eftir að hann hafði sjálfur
ekið á þessari leið vitandi um þá
fjármuni er póstmennirnir höfðu
oít með í förum. Hann vissi, að
hægt var að komast inn um bak-
dyrnar á póstbifreiðinni með þeim
lykli er bifreiðarstjéirinn skildi
oft eftir í framhurðinni — sem
hann þó ekki mátt gera og hann
vrssi einnig að á föstudögum flutti
pósturinn mestu fjármunina, viku
legan elli- og ör'orkulífeyri.
Eftirför í myrkri
Síðari hluta föstudagsins 2. des-
cmber tók hann sjálfur bifreið á
ltigu í Lyngby, en þar á hann
heima og ók í myrkrinu í humátt
á eftir póstbifreiðinni. Er hún
r,<m staðar við Amalienvej faldi
Jórgensen sína bifreið þar skammt
frá og beið í myrkrinu þar til.bif-
reiðarstjórinn fór út — og skildi
lykilinn eftir í bílhurðinni. Og á
svpstundu opnaði hann afturhurð-
ina og greip hinn innsiglaða sekk
með 25 þús. kr. verðmætum í —
20 þús. kr. í peningum og 5 þús.
í tékkum og skuldabréfum, og
snaraðist með fenginn í bifreið-
ina, sem beið hans þar skammt
frá. Síðan ók hann til Fiskebæk,
rauf innsiglið og tók 20 þús. krón-
ernar, en stakk sekknum með af-
gangnum inn í heysátu á rannsókn
arstöð — síðan ók hann heim til
Lyngby og faldi peningana á ýms-
im stöðum í bænum, en tók að-
e,ns 3000 sjálfur.
Tvær bifreiSar í takinu
En þá var það sem hann gerði
það sem varð til þess að koma
upp um hann. Þó að hann hefði
sjálfur leigubifreið til umráða —
að vísu án bifreiðarstjóra — tók
b.ann sér aðra leigubifreið — í
þetta sinn með bílstjóra og bað
hann að aka sér til Kaupmanna-
hafnar. Enn klæddist Jörgensen
hinum rauða einkennisklæðnaði
og var bersýnilega mjög taugaó-
síyrkur. Bílstjórinn, sem ekkert
vissi þá um ránið veitti taugaó-
styrkleika Jörgensens athygli og
furðaði sig á þessu ferðalagi póst-
mannsins — auk þess vissi bíl-
stjórinn að Jörgensen hafði tekið
aðra bifreið á leigu^ sem hann
skildi eftir í Lyngby. f Höfn náði
Jörgensen póstmaður í kunningja
s;nn og a.ftur var ekið til Lyngby.
Lögreglan kemst á sporið
Er lögreglan eftir ránið sendi
aítur og aftur frá sér tilkynningu
þ-ar sem hún bað menn um að
skýra frá allri grunsamlegri eyðslu
semi mundi bifreiðarstjórinn í
Lyngby eftir hinu furðulega ferða-
iagi hins einkennisklædda póst-
þjóns til Kaupmannahafnar — og
lögreglan var strax komin á sporið.
Með leynd fylgdi hún Jörgensen
C'.tir og rannsakaði nákvæmlega
live miklu hann eyddi — en Jörg-
cnsen lifði hátt næstu dagana
ertir þjófnaðinn — eftir nokkura
daga eftiiför var Jörgensen hand-
tekinn og rannsóknarlögreglan
lcgði þá skjöl á borðið er sönn-
uðu, að umræddur póstmaður
hefði eytt meira fé á fáum dög-
um en hann nýlega hafði fengið
útborgað. Og eftir nokkurra klst.
yfirheyrslur játaði Jörgensen póst
ur á sig verknaðinn. sem hann
(Framhald á 2 síðu)
278. blað.
Fimmtudaginn 8. desember 1960.
Haukur syngur
fjögur ný lög
— og Simbi sjomaður ferðast út um allan heim
Út eru komnar tvær nýjar
hljómplötur sungnar af okkar
vinsæla Hauki Morthens. Út-
gefandi er nýtt hljómplötu-
fyrirtæki, Faxafón. Þá er þess
að geta að Odeon hefur gefið
út Simba sjómann á ensku
fyrir heimsmarkaS.
Á þessum tveimur nýju plötum
eru alls fjögur lög, Með blik í
auga eftir O. Guðmundsson við
texta eftir Þorstein Halldórsson,
Síldai'stúlkan eftir óþekktan höf-
und, við texta eftir Árna Björns-
son, Gústi í Hruna eftir óþekktan
höfund, og loks Fyrir átta árum
eftir Einar Markan við texta eftir
lómas Guðmundsson.
Gamalt revíulag
Sennilega kannast ýmsir við
hann Gústa i Hruna, en þetta lag
var í revíu nokkurri sem hér var
leikin fyrir svo sem tuttugu árum.
Ekki er vitað um höfund þessa
ágæta lags, en upphaflega var
það samið sem vals, en á plötunni
syngur Haukur það í nokkuð öðr-
um dúr!
,tSimbi" á heimsmarkað
Simbi sjómaður gerir nú víð-
reist, en hið heimsþekkta plötu-
iyrirtæki Odeon hefur gefið lagið
ut á plötu, sem ætluð er heims-
markaðinum. Á enskunni heitir
lagið Lonesome Sailorboy Hitt
lagið á plötunni heitir Black Ang-
Haukur Morthens heldur hér i
fyrsta eintakinu af Simba sjómanni
— á íslenzku. Myndina tók Ijósm.
blaðslns i Kaupmannahöfn í fyrra.
ei. Þess má geta að þessi plata er
þegar komin til landsins og er
seld í Fálkanum.
Góð upptaka
Það er hin kunna hljómsveit
Jörn Grauengárds, sem leikur
með Hauki á þessum nýju plötum.
Grauengárd hefur einnig útsett
(Framhald á 2. síðu)
Þegar er hinn 21 árs gamli póstmaður hafði játað á sig verknaðinn, var farið með hann .
:.■> hann faldi póstmöppuna. Á myndinni til vinstri er verið að fara með hann inn
í aðalstöðvar lögreglunnar — á myndinni til hægri sést . : i sekkinn, sem fannst í heysátc