Tíminn - 14.12.1960, Page 5
TÍMINN, miðvikudaginn 14. desember 1960.
útgetandl: FRAMS0KNARFLOKKURINN.
P’ramKvsemdastióri Tómas 4rnason Kit
stjórar Þórarinn Þðrarmsson 'áb i. Andrés
Kristiðnsson Fréttastióri Tómas Karlsson
Augiysingast.i Egill Biarnason Skritstotur
i Edduhúsinu - Stmar 1831)1) 18305
Auglýsingastmi 19523 Afgreiðslusimi:
12323 — Prentsmiðian Edda h.f
Sjóðurinn galtómi
og fleytifuiii
Það er ekki ósennilegt, að útflutningssjoðurinn eigi
eftir að verða talinn merkilegt fyrirbært ísienzkum
stjórnmálum. Sjóðurinn nefur nefnilega á síðari mrsser-
um ýmist verið sagður galtómur eða fleytifullur af pen-
ingum á sama tíma, allt eftir því, hvort betur hefur hent-
að valdhöfunum í það og það skiptið.
í októbermánuði 1959 eða rétt fyrir kosningarnar,
sem fóru fram þá, lýsti þáverandi forsætisráðherra, Emil
Jónsson, yfir því, að sjóðurinn væri fullur ar peningum
og hefði hagur hans aldre* staðið með meiri blóma. Mán-
uði seinna lýsti Ólafur Thors, sem þá var nvorðinn for-
sætisráðherra, yfir því, að sjóðurinn væri mik'.u minna en
galtómur, heldur vantaði i hann hundruð milljóna Þetta
gjaldþrot útflutningssjóðs var svo notað sem höfuðrök-
semd þess, að óhjákvæmilegt væri að gerbreyta um
stefnu og láta „viðreisnina“ leysa útflutningssjóðskerfið
af hólmi.
Þegar „viðreisnarlöggiöfin“ var sett, var halhnn á
útflutningssjóði talinn svo mikill að nauðsynlegt var talið
að leggja á 5% útflutmngsgjald í 1—2 ár til greiðslu
á þessum halla. Mánuði seinna var hins vegar komizt að
þeirri niðurstöðu, að 2Vh % myndi nægja. Meira þyrfti
nú ekki til að jafna hallann, en minna mætti það hins
vegar ekki vera.. Svo mikill væri hallinn á sjóðnum.
Nú nokkrum mánuðum seinna er það svo upplýst, að
sjóðurinn sé ekki aðeins hallalaus. heldúr ráði hann yfir
fjármagni, er nægi til að greiða um 120 millj. vátrygg-
ingargjöld útgerðarinnar á þessu ári
Séu þessar seinustu upplýsingar réttar. þá er það ber-
sýnilegt, að hagur útflutmngssjóðs hefur verið mjög sæmi
legur á síðastl. hausti og allar upplýsmgar, sem þá voru
gefnar um hina lélegu afkomu hans og notaðar voru tii að
réttlæta „viðreisnina“ hafa verið tilbúningur einn. Þetta
er augljós sönnun um. að þess var ekki minnsta þörf að
gera þær kjaraskerðingarráðstafanii sem felast í „við-
reisninni“, heldur hefði mátt tryggja neilbrigðan rekstur
atvinnuveganna og losna við uppbótarkerfið i áföngum,
án nokkurrar teljandi kjaraskerðingar.
,,Viðreisnin“ var þvi vissulega ekKi gerð af nauðsyn.
Tilgangur hennar var ekki að koma atvinnuvegunum á
nýjan traustan grundvöli. enda hefur grundvöllur beirra
aldrei ótraustari verið en nú. Tilgangurinn var að kutna
hér á þjóðfélagi hinna ,góðu, gömlu daga“ — þjóð*élagi
hinna fáu ríku og mörgt, fátæku. Það skýr^" nú alltaf
betur og betur.
Hver var ráðherrann?
í aðsendri grein, sem birtist í Alþbl í gær, segir m. a.:
„Og nú kaupum við 40 millj. kr. togarabákn enda þótt
hver heilvita maður hafi tyrir löngu séð, að rekstur slíkra
skipa er fyrirfram dauðao.æmdur“.
Fróðlegt væri, ef Alþbl. vildi upplýsa, hvaða ráðherra
það var, sem lét ríkið ábvrgjast þesst togarakaup — og
ekki virðist vera heilvita að dómi þessa greinarhöfundar
blaðsins.
ERLENT YFIRLlT
Mikið atvinnuleysi í Kanada
Diefenbaker boíiar ráðstafanir gegn erlendu einkatjármagni
EKKERT land vestan tjalds
býr nú við eins mikið atvinnu-
leysi og Kanada. í lok október-
mánaðar nam tala atvinnuleys-
ingja þar 370 þús. eða 6% af
vinnufæru fólki í landinu. Allar
horfur eru taldar á því, að at-
vinnuleysið muni halda áfram
að vaxa yfir vetrarmánuðina og
tala atvinnuleysingja geta kom-
izt upp í 600—700 þús.
Af hálfu stjórnarandstæðinga
í Kanada hefur því verið haldið
fram um nokkurt skeið, að fjár-
málastef na ríkisstj órnarinnar,
en íhaldsmenn hafa farið með
völd í Kanada síðan 1957, myndi
leiða til vaxandi samdráttar og
atvinnuleysis. Hagfræðingar
stjórnarinnar hafa hins vegar
haldið því fram, að ástandið
myndi brátt lagast af sjálfu sér,
ef hið opinbera væri ekki með
neina sér'staka íhlutun. Á síðast
liðnu ári spáðu þeir því, að fjár-
hagsástandið myndi fara batn-
andi á árinu 1960. Reynslan
varð á aðra leið, því að atvinnu
leysingjar voru 62% fleiri í
október 1960 en í október 1959.
SEINAST í október fóru fram
aukakosningar í fjórum kjör-
dæmum í Kanada. Úrslitin urðu
þau, að íhaldsflokkurinn tapaði
miklu fylgi í þeim öílum og
missti tvö þingsæti, annað til
Frjálslynda flokksins, sem er
helzti stjórnarandstöðuflokkur-
inn, og hitt til nýstofnaðs verka
mannaflokks. Úrslit þessi urðu
til þess, að Diefenbaker forsæt-
isráðherra kallaði þingið sam-
an mun fyrr en ráðgert hafði
verið og hafa atvinnuleysismál-
in verið helzta viðfangsefni
þess síðan það kom saman.
Stjórnin hefur boðað margar
ráðstafanir til úrbóta, sem síðar
verður nokkuð vikið að.
Eitt hið athyglisverðasta,
sem hefur komið fram í þessum
umræðum, er sú skoðun Diefen-
baker's forsætisráðherra, að
efnahagserfiðleikar Kanada
stafi ekki að óverulegu leyti af
þvi, að erlent einkafjármagn
eða nánara sagt amerískt einka-
fjármagn ráði orðið alltof miklu
í kanadisku atvinnulífi. Áður
hafði James Coyne, aðalbanka-
stjóri þjóðbankans, haldið þessu
sama fram. Báðir halda þeir þvi
fram, að alltof mörg kanadisk
fyrirtæki lúti erlendri stjórn,
sem miði rekstur þeirra meira
Ritfregn: Elinborg Lárm>-
dóttir: Sól í hádegisstað.
Horfnar kynslóðir I. Saga
frá 18 öld. Bókaútgáfan
Norðri, 1960.
DIEFENBAKER
við hagsmuni sína en hagsmuni
Kanpda. Coyne fullyiðir t. d.
hiklaust, að ekkert frjálst land
hafi leyft erlendu einkafjár-
magni að ná eins miklum ítök-
um á atvinnulífi sínu og Kan-
ada. Þetta hafi skekkt uppbygg-
ingu atvinnulífsins og þar gætt
meira og minna annarlegra
sjónarmiða. Hin erlendu yfirráð,
sem hér ræðir um, byggjast á
því, að auðfélög og auðmenn í
Bandaríkjunum hafa lagt fé í
fyrirtæki í Kanada og náð þann-
ig tökum á þeim. Slík fjárfest-
ing bandarísks einkafjármagns
i Kanada er nú talið nema allt
að 16 billjónum dollara. Eigend
ur þessa fjármagns vilja að
sjálfsögðu fá góðan arð af fé
sínu og flytja hann úr landi. Af
þeim ástæðum hefur þessi fjár-
festing óhagstæðari áhrif á þjóð
arbúskap Kanada en erlent láns
fé, sem Kanadamenn tækju
sjálfir til eigin fyrirtækja, og
borguðu með venjulegum vöxt-
um og afborgunum.
Báðir leggja þeir Coyne og
Diefenbaker áherzlu á, að
Kanadamenn verði að leggja
áherzlu á það í vaxandi mæli
að byggja upp eigin fyrirtæki,
er séu óháð erlendu einkafjár-
megni. Annars bíði Kanada ekki
annað en að verða efnahagslegt
leppríki Bandaríkjanna. Diefen
baker hefur nýlega boðað ráð-
stafanir til að draga úr áhrifum
erlends einkafjármagns í land-
inu, en hins vegar ekki tilgreint
nánara enn hverjar þær muni
verða. Ameríska vikuritið
„Newsweek" spáir því, að þær
muni beinast gegn óeðlilegum
yfirráðum bandarísks fjármagns
yfir kanadiskum náttúruauðlind
um og fyrirtækjum.
VAFALAUST er það rétt hjá
þeim Coyne og Diefenbaker, að
hin miklu ítök bandarísks einka
fjármagns í Kanada eiga drjúg-
an þátt í þeirri óáran atvinnu-
lífsins, sem hefur orsakað at-
vinnuleysið. íhaldssöm stjómar
stefna, sem Diefenbaker hefur
fylgt, verður þó ekki hvítþveg-
in af því að eiga einnig sinn þátt
í atvinnuleysinu. Stjórnin hefur
tr'eyst alltof mikið á það, að allt
myndi lagast af sjálfu sér, að-
eins ef ríkið héldi að sér hönd-
um. Þess vegna er nú komið
sem komið er.
Sitthvað bendir nú til þess,
að Diefenbaker ætli að breyta
hm stefnu. Hann hefur boðað
ýmsar r’áðstafanir gegn atvinnu-
leysinu, t. d. að auka bankalán
til minni iðnfyrirtækja, auka
lán til íbúðabygginga. auka op-
inber framlög til ýmissa verk-
legra framkvæmda o. s. frv.
Þá hefur Diefenbaker gert
ýmsar ráðstafanir, sem eiga að
sýna að Kanada haldi þrá't fyrir
allt sjálfstæði sínu gagnvart
Bandaríkjunum. Hann hefur ný
lega látið hermálaráðherra
víkja, sem var talinn hafa sýnt
Bandaríkjamönnum of mikla
undirgefni, og hann hefur hald
ið áfram vinsamlegum og vax-
andi viðskiptum við Kúbu,
þrátt fyrir deilur Castr'ös og
Bandaríkjastjórnar.
Flestum blaðamönnum, sem
hafa ritað nýlega um þessi mál,
kemur þó saman um, að erfitt
muni fyrir Diefenbaker að
halda velli í næstu kosningum,
nema honum takist áður að
vinna bug á atvinnuleysinu.
Þ. Þ.
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
/
'/
'/
)
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
j
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
/
'/
'/
'/
'/
‘/
'/
'/
Jónas Þorbergsson:
Sól í hádegisstað
ELINBORG LÁRUSDÓTTIR
Nýkomin er á markaðinn
þessi 22. bók skáldkonunnar
Elínborg'ar Lárusdóttur: Róm
an um horfnar kynsló'öir 18.
aldar. Af efni bókarinnar verö
ur ráðið aö hún hefst á önd-
verðri öldinni, um þær mund
ir er Hörmangarafélagiö
danska er í bezta gengi aö
þrúga og arðræna íslend-
inga og Skúli landfógeti hefst
handa um baráttu sína gegn
hinum hötuðu arðræningj-
um einokunarverzlunar Dana
á landi hér, þegar saman
fara harðindi og verzlunar-
áþján, sem hrekja fjölda
manna á vergang og til hung
urdauða.
Þó er þessi ömurleiki ekki
í fyrirrúmi, heldur baksvið
skáldverksins. Porsvið sög-
unnar er rausnarheimili Há-
konar ríka í Dal, viðureignar
hans við sýslumann héraðs
ins, ófyrirlátssemi hans á aðra
hönd en rausn hans og dreng
lyndi á.hina. Heimili Hákonar
og Þuríðar verður möndull
sögunnar, það sem af er. Mörg
önnur heimili koma við sögu
því misfarir í ástum er meg
inuppistaða. Stefán, sonur
hjónanna í Dal og Beta, fóst
urdóttir þeirra eru þar í fyrir
rúmi og valda meginspurn-
ingum lesandans, en örlög
CFranihald a 13 siðui.