Tíminn - 14.12.1960, Page 9

Tíminn - 14.12.1960, Page 9
TIMIN N, miðvikuðaginn 14. desember 1960. 9 Vinur minn, Sigurður Gunn (írsson, fyrver. skólastjóri í Húsavík, er seztur aö á Suð umesjum. Það var ekki sér- lega frumlegt tiltæki. Lengi, lengi hefi ég ætlað, œtlað að „senda honum tón- inn“ að skilnaði. En þegar leiðir skildi í sumar, brá ég mér á flakk — og allt flakk- líf hefnir sín á þeim, sem skyldum hafa að sinna, en skjóta á frest. Þess vegna verður tónninn nokkuð síð- sunginn. En geta skal þess, sem gert er. Svo merkan 20 ára starfs feril á Sigurður Gunnarsson að baki hér í Húsavík að þess ber að minnast með. viður~ Tcenningu og þökk. Vel man ég það, er fund- um okkar bar saman sumarið 1940. Satt að segja þótti mér þessi ungi kennari óvenju- lega glæsilegur maður — hár, þreklegur og fríður sýnum. Eftir nána kynningu og mik ið samstarf veit ég nú, að hans innri maður er ekki síð ur eftirtektarverður og mætur en hinn ytri. Hann er fjölgefinn maöur, bæði til anda og handar. Hver sem s&o er gefinn, á opna leið tll margs konar menn- ingarlegra áhugamála og við fangsefna. Ekki kæra allir sig um að ganga þá leið. Sigurð ur hefur gert það. Afburða~ maður er hann að starfs- áhuga og starfsorku. Fáir eru ljúfari og góð- gjarnari í umgengni og af- skiptum en hann. Helzt mætti það að finna, að honum væri ósýnt um eina tegund tillit- semi. Hann gerir háar kröfur til annarra um áhuga, fórn- fýsi og vinnuþol. Spauglaust er, eins og flestir skilja, að komast í hendurnar á slíkum mönnum, einkum ef þeir gera, eins og hann, hæstar kröfur til sjálfs sín. Þegar Sigurður var kvadd- Séra FriíSrik A. FriSrikssoh. Húsavík: Geta skað þess. sem gert er ur hér í sumar, flutti einn bezti vinur hans — einn sam starfskenna’rinn — ræðu og líkti honum við bónda þann, sem fer á fætur með hiú sín fyrir allar aldir og heldur beim við verk fram undir brúnamyrkur. Þetta var bæði í gamni og alvöru sagt. Eg get gert þá játningu, að eng j inn maður hefur átt drýgri bátt en hann í því, að full- klyfja mig bögglum annríkis. Annað mál er það, að mér hefur aldrei láðst að vera honum þakklátur fyrir það. Uppeldismálum hefur hann helgað líf sitt og krafta. Hag nýt fræðsla, samfara siðrænu kristilegu uppeldi. er hugsjón hans og markmiö. Þetta er bakgrunnur allra starfa hans — einnig þeirra, sem margir j mundu telja utan við skyldu i verksvið hans sem skóla- manns. Sigurður gerðist skólastjóri Barnaskóla Húsavíkur haust ið 1940. Kom þegar í ljós, að hann var starfsfús og stjórn samur skólastjóri. Hann setti reglur og fékk þeim hlýtt. Má í því efni benda t.d. á bætta umgengni nemenda um skóla húsið. Á skólaborðum, sem þá voru ný eða gerð sem ný, sést varla rispa eftir 20 ára notkun. Slíkt hefðu þótt fréttir í mínu ungdæmi. Samkennari segir: „Eg hefi engan mann þekkt, er opnari væri fyrir nýjungum í skóla- málum en S. G. Hann hefur viljað taka upp hverja þá nýja kennsluaðferð, sem til bóta mætti veröa. Eitt hans fyrsta verk var að efna hér til kennaranámskeiðs, og fékk til þess einn merkasta barna- kennara landsins, Aðalstein Sigmundsson. Það var sannar lega nýmeti, sem hann bar á borð. Upp úr þessu spratt m. a. vinnubókargerðin, sem á- vinningur hefur þótt að“. SIGURÐUR GUNNARSSON Stofnun Gagnfræðaskóla Húsavíknr var mikilvægt átak í skólamálum Húsavíkur. Þar vann Sigurður að með oddi og egg. Og ekki munu vera deild ar meiningar um það, að fyrst og fremst er það sívakandi á- huga og þrautseigju hans að þakka, að upp er risið það veg lega fræðslumusteri, sem nýi barnaskólinn á Húsavík er. Með slíkum ummælum er engri rýrð kastað á ágæta hlutdeild annarra manna í því stórátaki — alþingis- manns, bæjarstj órnar, bæjar verkfræðings o. fl. Vel var þetta viðurkennt í ræðum manna í haust, er nýja skóla húsið var vígt. Var Sigurður einn þeirra, er bæjarstjórn bauð sérstaklega til hátíða- haldanna.--------- Svo vökull og virkur sem hann hefur verið um skyldu- störf og skólamál, þá fer því fjarri, að áhugi hans hafi ein skorðast við þau — nema þá óbeinlínis. Með aðstoð samkennara sinna hefur hann haldið uppi unum, þvi nær frá byrjun veru sinnar hér, og er það orð ið mikið starf. Frá upphafi hefur Kirkjukór Húsavikur átt í honum ákaflega þarfan liðs mann. (S. er söngvinn — hef- ir hljómfagra bassarödd). Fyr ir 10 árum var sunnudaga- skóli Húsavíkursafnaðar stofn aður, mjög að áeggjan Sigurð ar, og hefir það varla komið fyrir síðan, að hann væri þar ekki sóknarprestinum til að- stoðar. Um líkt leyti gekkst hann fyrir stofnun Bama- verndarfélags Húsavíkur, og hefir verið llfið og sálin i starfi þess. í árslok 1955 var honum fal in formennska sóknarnefndar og rækti hann það hlutverk af sínum alkunna áhuga og skyldurækni. Beitti hann sér fyrir ýmsum góðum málefn- um, og hafði til þess fullt traust og góða samvinnu sókn arnefndar. Skrúðhús kirkjunn ar var stækkað, snyrtingu kom ið fyrir í kjallara ,undirbúin kaup á pípuorgeli, mjög vönd uð girðing sett um kirkjulóð- ina og gerð af henni skipulags teikning. í tvö sumur — og lengur þó — vann hann kaup laust að myndun og fegrun þessarar lóðar. Árangurinn af því áhugastarfi kom furðu fljótt. í ljós. Þess mun ekki langt að bíða, að lóðin verði verulegt bæjarprýði. Sumarið 1957 var veglega haldið 50 ára vígsluafmæli Húsavíkurkirkju. Var það vel til fallið, því hún hefur fram að þessu verið talin ein af til- komumeiri kirkjum landsins — reist af miklum stórhug fá menns og fátæks safnaðar. Átti Sigurður frumkvæði að því, að á þessu afmæli tók söfnuðurinn (eða sóknar- nefndin fyrir hönd safnaðar ins) ákvörðun um tvennt — að taka upp árlegan kirkju^ag og að stofna œskuiýðsfélag kirkjunnar. Kirkj udagurinn hefur verið haldinn 3 ár í röð og tekizt vel. Á kirkjudeginum sl. vor var sýndur helgileikurinn „Bartímeus blindi“, eftir séxa Jakob Jónsson. Þótti það flest um mikið í fang færzt — öðr um en Siigurði. Búninga þurfti að útvega frá Reykjavík. Sýn ingin fór fram í kirkjunni við mikla aðsókn og vakti hrifn ingu. (Njáll B. Bjamason, kennari, fór með hlutverk Bartímeusar). Æskulýðsfélagið er enn í mjr.idun, þótt stofnað sé. Von andi nær það vexti og þ'roska. Kirkjulega æskulýðshreyfing in er ung með þjóðinni, en hefur miklu hlutverki að gegna. Smám saman ryður hún sér til rúms og öðlast reynslu, form og festu. Sigurður hafði mikinn á- huga á að reist yrði hér safn aðarhús, þ.e. hús fyrir æsku lýðsstörf, söngævingar, þama spumingar o.fl., sem kirkjan er ekki hentug til, þótt ágæt sé. En áður en þvi máli væri Eramhaid á 13 síðu. einkennir þessa nýríku tíma. Allt frá hinum hæstu stöðum til hinna lægstu. Fátæktin er stundum meiri og betri uppalandi en auð- legðin, þótt uppeldi hennar sé stundum of dýru verði keypt. Það hneykslast vafa- laust margir á þessari full- yrðingu, en lítum á sö-runa. Hvaðan hafa þau komið flest eða öll mikilmenni heimsins, brautryðjendur á ýmsum sviðum, andlegir eða ver- aldlegir leiðtogar. Munu þeir ekki flestir hafa komið úr stéttum hinna fátæku? Og hvers vegna? — Þeir þurftu að temja sér sjálfs- afneitun og sjálfsaga í upp vextinum. Það var ekki allt rétt upp í hendur þeirra. Auðvitað er fátæktin öðr um þræði mikið böl, og eng inn óskar eftir henni, en þó stendur hitt óhaggað, að miklir peningar eru „valt- astir vina“. Á allra síðustu áratugum hafa skapazt nýj ar eyðsluvenjur. Eg á ekki við það, að með bættum hag almennings getur hann veitt sér meiri lífsþægindi en áð- ur og lifað meira menningár lífi, heldur hitt, að tak- mörkin á milli þarfa og ekki þarfa verða sífellt ógleggri, einkum hjá börnum og ungl ingum. Það sem þau leyfðu sér við og við fyrir nokkr- um árum er að verða að daglegri þörf í dag. Reyk- ingavenjan meðal unglinga og jafnvel barna er t.d. allt- af að færast neðar og neðar. í þéttbýlinu blasa freisting- amar við í hverri búðar- holu. Auk sælgætisins eru nú teiknimyndaheftin, leik aramyndir eða ísinn, sem búa mætti til úr heila jökla og hvað það nú heitir allt saman, sem börn eyða í stór fé að ógleymdum kvikmynda húsunum. Það er einkenni tímanna að láta sem minnst á móti sér. Þama fylgist því tvennt að: Óskynsamleg meðferð fjármuna — sóun verðmæta — og sú skapgerðarveiklun, sem felst í því að láta und- an öllum löngunum sínum. Þetta er ekki gott uppeldi. Of mikið meðlæti og und- anlátssemi veldur linku í skapgerðinni -- linku í þjóðaruppeldinu. Er ekki ein mitt hér að finna ástæðuna til þeirrar spillingar, sem viss hluti æskunnar er hald inn í dag, sem birtist í drykkjuslarki og afbrota hneieð? — Örlög ráðast heima. — Vis hinir eldri gefum alltaf tóninn. Við leggjum grund- völl þeirra lífsvenja, sem börn okkar temja sér, annað hvort með fordæmi eða meiri og minni eftirláts- semi við óskir og duttlunga barna og unglinga, eða blátt áfram af meira og minna af skiptaleysi af bömunum, sem leiðir til sjálfræðis þeirra, sem enginn veit hvar endar . Fyrir skömmu kom til mín áhyggjufull móðir. Hún sagði eitthvað á þessa leið: „Drengurinn minn hefur nú verið í skóla í 9 ár. Hann er nú á togara. Þegar hann kemur í land hefur hann ekki áhuga fyrir neinu öðru en bílferðum og áfengi. Guð hjálpi mér ef hin bömin mín eiga eftir að ganga þessa sömu braut.“ „Hann hefur verið í skóla í níu ár“, sagði hún. Var þetta áminning til skólans? hafði skólinn ekki gert það, sem honum bar? Kannski? En hafði heimilið gert það? í minni bernsku og æsku var arður sumarsins líf fólks ins, líf vetrarins. Þetta var nálega lögmál — stálhart lögmál. Og hamingjan hjálpi þeim, sem sóaði sumrinu. Hve margir skyldu þeir vera nú, sem skila sumarkaup- inu sínu beina leið, eða eftir krókaleiðum, í áfengisverzl un ríkisins? Það er meiri vandi en margur heldur að umgang- ast peninga. Það er því aldrei byrjað of snemma á að kenna börnum gildi þeirra og meðferð. Peningar geta valdið meiri spillingu en flest annað, en fyrir peninga má aftur afla sér geysilegra verðmæta menntunar og menningar, alls konar efna hagslegra verðmæta — ör- yggis og farsældar. Skólarnir hafa kannski gert of lítið til að ala bömin upp í þessum efnum, en með starfsemi sparifjársöfnunar innar, sem nú hefur starfað í fimm ár í flestum bama- skólum landsins, er hafin merkileg tilraun til að sinna þessu uppeldi veru- lega. Ef foreldrar um allt land, og þó einkum í þétt- býlinu, vildu nú með skiln ingi og lagni taka þarna í sama streng — og reyna t.d. að beina öllum þeim fjár- munum, sem nú fara fyrir sælgæti og alls konar mun- að, inn á sparifjársöfnun ina, væri mikill sigur unn- inn. Fjöldi foreldra hlýtur beinlínis að gefa börnum sínum meira og minna af peningum til sælgætiskaupa og kaupa á erlendum teikni myndabókum, sem vægast sagt eru ekki allar fyrir böm. Það er ákaflega mein laust að gefa börnum ein- stöku sinnum aura til að kaupa eitthvað til bragð- bætis, en mér þykir sýnt, að þar sé nú farið langt út fyr ir hæfileg takmörk. Og það verður að segja, að slíkar lífsvenjur í bemsku eru hin ar háskasamlegustu fyrir framtíðina. Það getur eng inn „lifað hátt“ í bernsku og æsku án þess að bíða tjón af. Hið einfalda og ó- brotna líf verður á allan hátt giftudrýgra. Því fylgir jafn an heilbrigður og eðlilegur þroski.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.