Tíminn - 17.12.1960, Blaðsíða 3
TÍMINN, laugardaginn 17. desember 1960.
3
Tvö börn undir
bíla í gærdag
Annað var komið 4
Fyrir skömmu var bent á
það hér í blaðinu, að stór-
hættulegt væri að láta ung
börn vera ein á ferli við um-
ferðagötur bæjarins, ekki
bvað sízt nú í skammdeginu
og misjafnri færð á götum.
í gær urðu tveir barnungir
drengir, annar fjögra ára en
hinn tveggja ára, fyrir bílum.
Sá fjögra ára var þá kominn
fjóra kíiómetra frá heimili
sínu, og þrátt fyrir eftir-
grennslanir lögreglunnar þar
á staðnum fannst enginn, sem
vandabuntíinn væri drengnum
eða vildi við hann kannast)
km heiman að frá sér
4 km að heiman
Rétt fyrir fj ögur í gær kom
\eppi akandi eftir Ægisgötunni til
suöurs, og fór yfir Vesturgötuna.
Rétt sem hann var kominn yfir,
kom 4 ára drengur hlaupandi frá
verzlun Silla og Valda og beint
fyrir bílinn. Þrátt fyrir að ökumað
ur hemlaði snarlega, var hann of
seinn, og drengurinn lá fyrir aftan
bílinn er hann nam staðar. Dr'eng-
urinn heitir Ásgeir Gunnarsson,
Sólheimum 27. — Hann var sem
sagt kominn 4 km. heiman að frá
sér. Þrátt fyrir miklar eftirgr'ennsl
anir lögreglumanna á staðnum,
fannst enginn, sem vandabundinn
væri drengnum. — Hann var flutt
ur á Landsspítalann, talinn meidd
ur innvortis og sjáanlega meiddur
á höfði.
Slysafaraldur
í Reykjavík
Það er full ástæða til þess að
vekja atihygli almennings á því, að
frá síðustu áramótum til þessa
dags, eru 1764 árekstrar í Reykja-
vík bókaðir hjá rannsóknarlögregl
unni í Reykjavíkð. Á sama tíma
í fyrra voru þeir 1755, en hinn 12
þessa mánaðar var einum færrr
árekstur skr'áður á árinu en í
fyrra. Hitt er þó enn verra, en það
er sú staðreynd, að í þessum mán-
uði hafa 15 manns slasazt í um-
ferðarslysum í Reykjavík, þar af
8 börn. Tíminn hefur áður bent
á það, að ennþá meiri nauðsyn er
til aðgæzlu allra aðila í umferðihni
í jólaösinni en endranær, og ekki
hvað sízt eru foreldrar alvarlega
varaðir við að láta böm sín vera
nokkurs staðar þar, sem hætta er
á slysum. Það er betra að halda
börnunum inni, þótt það vekr óá-
nægju þeirra, en að þurfa að vita
þau slösuð á sjúkrahúsi.
Robert Kennedy
dómsmálaráðherra
Kennedy skipar sííusfu embættin:
— og repúblikaninn Dillon íjármálarátSherra
metS samþykki Eisenhowers og Nixo'ns
Washington—NTB, 16.12.
John Kennedy skipaði í dag
Douglas Dillon í embætti fjár-
málaráðherra í hinni nýju
stjórn sinni, sem við tekur 20.
janúar. Samtímis tilkynnti
Kennedy, að bróðir hans,
Robert Kennedy myndi verða
dómsmálaráðherra hinnar
nýju stjórnar.
Byron White verður skipaður
aðstoðardómsmálaráðherra, en
hann er lögfræðingur í Denver.
Með útnefningum þessum má
segja, að hin nýja ríkisstjórn
Bandaríkjanna sé fullskipuð.
um í ríkisstjórn Eisenhowers og
er meðlimur republikanaflokksins,
andstöðuflokks Kennedys. Robert
Kennedy er aðeins 35 ára að aldri,
stjórnaði kosningabaráttu bróður
síns frá upphafi og þykir frábær
skipuleggjari. Það hefur aldrei
gerzt fyrr í sögu Bandaríkjanna, að
forseti hefur skipað bróður sinn
í embætti ráð herra. Annars var
Robert Kennedy vel þekktur áður
en hann hóf störf fyrir bróður
isinn, því að þjóðarfrægð vann
hann sér fyrir nokkrum árum er
hann var lögfræðilegur ráðunaut-
ur þingnefndar er rannsakaði spill
ingu í bandarískum verkalýðsfélög
um.
Klukkan rúmlega tvö í gær varð
tveggja ára barn, Grettir Ingi Guð
mundsson, til heimilis að Fálka-
götu 20, fyrir bíl móts við Dun-
'haga 18. Bílistjórinn mun (hins
vegar ekki hafa oi’ðið þess var, að
bíll hans fór yfir drenginn, og ók
því þurt. Verið var að taka bílinn
af stað, er þetta varð. Drengurinn
var fluttur í Landakotsspítalann
viðbeinsbrotinn og mikið skr'ámað-
ur á andliti. Ekki er nákvæmlega
Ijóst, hvernig það atvikaðist að
hann varð undir bílnum, en á
smekknum á smekkbuxum hans
voru greinileg för eftir hjól bíls-
ins.
Talstöðvar hjá
Bæjarleiðum og
Hreyfli s.f.
í 'gær tóku bifreiðastSSyarnar
Bæjarleiðir og Hreyfill talstöðvar í
notkun í nokkrum bifreiðum sínum.
Nýjung þessi er enn á byrjunarstigi,
og vantar mikið á að talstöðvar séu
komnar í alla bíla þessara stöðva. í
tilefni af þessum áfanga buðu for
ráðamenn stöðvanna blaðamönnum
á sinn fund. Því miður verður fásögn
af þessu að bíða vegna rúmleysis í
blaðinu, en væntanlega verður hægf
að birta hana á morgun.
Frá Alþingi
(Framhald af 7. síðu).
á þessu ári. Var þá gefin út
skipun um, að helmingur
þeirrar innstæðuaukningar,
sem verða kynni hjá nefnd-
um innlánsstofnunum, skyldi
afhendast seðlabankanum til
geymslu. Enn fremur skyldi
sama gilda um innlánsdeildir
kaupfélaga, samkvæmt heim-
ild, sem núverandi stjórnar-
flokkar beittu sér fyrir og
komu inn í lögin á þessu ári.
Með fjárheimtunni frá við
skiptabönkunum, sparisjóðum
og innlánsdeildum, eru lagðar
hindranir í veg einstaklinga
og félaga, sem þurfa að afla
lánsfjár til atvinnurekstrar
og framkvæmda. Til þess að
ryðja þeim hindrunum úr vegi
þarf að nema úr lögum heim
ildina til fjárheimtunnar.
Það er tillaga mín, að frum
varpið verði samþykkt með
þeim breytingum, sem hér
hafa verið nefndar. Breyting
artillögurnar flyt ég á sérstöku
þingskjali.
Alþingi, 15. des. 1960.
Skúli Guðmundsson.
Tillögur um bráöabirgöalagfæringu á launum
opinberra starfsmanna;
12. og 13. flokkur
falli niður og laun
barnakennara hækki
Fullfrúar stjórnarandstöð-
unnar í f járveitinganefnd þeir
Halldór E. Sigurðsson, Garð-
ar Halldórsson, Halldór Ás-
grímsson og Karl Guðjónsson
flytja breytingartiilögur við
frumvarpið til fjárlaga fyrir
1961 um bráðsbirgðabreyt-
ingu og lagfæringu á launa-
kjörum opinberra starfs-
manna. Eru tillögurnar sniðn-
ar eftir tillögum, sem þing
starfsmanna ríkis og bæja
samþykkti í haust og ítrekað-
ar voru með einróma sam-
þykkt í stjórn B.S.R.B nú
fyrir skömmu, en í stjórninni
sitja, m.a, tveir af þingmönn-
um stjórnarliðsins þeir Ólaf-
ur Björnsson og Sigurður
Ingimundarson.
Breytingartillaga þessi er eins
og fyrr segir aðeins um bráða-
birgðabreyting og lagfæringu, en
kveður ekki á um almenna launa-
liækkun. Lagt er til að tveir
r.eðstu flokkarnir á launalögunum
falli niður, þ.e. 13. og 14. launa-
fiokkur. Laun í þessum flokkum
eru svo lág, að þau geta ekki tal-
izt mannsæmandi. í 13. fl. eru
bjTjunarlaun 3.196,52 á mánuði en
hámarkslaun 3.959,52 eða árslaun
47.514,25.
í 14. fl. eru byrjunarlaun
2.806,42 á mán. en hámarkslaun
3.578,00 eða 42.936,25 í árslaun. —
Ef tillagan nær samþykki fara
þeir, sem nú þiggja laun, samkv.
13. og 14. fl. í 12. fl., en þar eru
hámarkslaun 4.356,19 á mán. eða
52.274,25 í árslaun.
Þá er einnig lagt til að opin-
btrir starfsmenn hækki um einn
launaflokk eftir 10 ára starf.
Sumir opinberir starfsmenn
hækka um launaflokk eftir vissan
árafjölda, en hér er lagt til að
það taki til allra opinberra starfs-
manna. — Reykjavíkurbær hefur
tekið þessa reglu upp og er eðli-
legt að ríkisstaifsmenn njóti þess
einnig.
Þá leggja þeir til að laun barna
kennara verði hækkuð um 8%.
Yrði. það til samræmingar við
iaunakjör gagnfræðaskólakenn-
ara. Kennaraekla er nú mikil í
landinu og stafar hún af hinum
bágu launakjörum kennara Laun
eru svo lág að menn sækja ekki
í stéttina, hverfa að öðrum störf-
um arðvænlegri. Víða horfir til
algjörra vandræða vegna kennara-
‘ skorts. Haildór E. Sigurðsson
mælti fyrir þessum breytingartil-
lógum. Sagði hann að þessar til-
lcgur væru miðaðar við, að bæta
úr brýnustu þörfinni og lagfæra
það sem ekki væri hægt að kom-
ast hjá. Sagðist hann vona að
þessar hógværu tillögur fyndu
hljómgruna meðal þingmanna,
enda væri ástæða til að ætla það,
þar sem tveir af þingmönnum
stjórnarliðsins hefðu staðið að
samþykkt sams konar tillagna í
stjórn B.S.R.B. nú fyrir skömmu.
Dillon repúblikani
Douglas Dillon hefur um sjö ára
skeið gegnt mikilvægum embætt-
Stéttarsamband
bænda hundsað
í frumvarpi ríkisstjórnarinnar 1
um að 2M>% útflutningsgjaldið |
renni upp í greiðslu á vátrygging-j
ariðgjöldum bátaútvegsms er jafnj
framt kveðið á um að af afgangsfé
útflutningssjóðs skuli renna í rík
issjóð og verða ráðstafað í þágu
landbúnaðaæins „samkvæmt á-
kvörðun ríkisstj órnarinnar". Út-
flutningsgjaldinu er varið til vá
itiryggimgariðlgjialdanna að beiðni
og að fengnum tillögum L.f.Ú.
Skúli Guðmundsson flutti breyt-
ingartillögur við frumvarpið um'
að afgangsfénu, sem eftir í út-
flutningssjóði kynni að vera og
innheimt hefur verið af útflutn-
ingi af landbúnaðarafurðum, skuli
ráðstafað samkvæmt tillögum
Stéttarsambands bænda. Má það
telja eðlilega og réttmæta tillögu
til samræmingar þar sem hluta
sjávar’útvegsins af gjaldinu er var
ið eftir tillögum L.Í.Ú.
Breytingartillaga þessi var felld
af stjór’narliðinu við atkvæða-
greiðsluna eftir 2. umr.
Uppreisnin bæld niíur
Fraimháld af 1. síðu.
ust til Djiboti í kvöld er það haft
eftir landstjóranum í Harrar-fylki,
að uppreisnarmenn hafi nú verið
gjörsigraðir, sumir þeirra hafi
verið fangelsaðir, en aðrir hafi
lagt á flótta. Allt verði nú senn
með kyrrum kjörum í Addis Ab-
eba og skv. sömu fregnum er við
því búizt að keisarinn flytji út-
varpsræðu til þjóðarinnar þegar
er hann kemur til höfuðborgar-
iimar.
Enn óvissa
í tilkynningu, sem keisarinn lét
fara frá sér í Líberíu í dag, sagði
m.a. að haun væri þess fullviss,
a^ ástandið kæmist í eðlilegt horf
innan skamms.
Það er skoðun sérfræðinga og
fréttamanna í London, að ljóst sé
a'ö stór hluti af her Etiópíu og
fiugliði hafi reynzt keisaranum
hollur, en staðan sé þó mjög ó-
liós. Ljóst sé einnig, að sambands
ríkið Eritrea hafi frá því að bylt-
ingin var gerð ekki sýnt neinn
biibug á hollustu sinni við keis-
arann.
Samráð við Eisenhower
Kennedy tilkynnti sjálfur skipanir
þessar og skýrði frá því um leið,
að á morgun myndi hann tilkynna
um útnefningu póst- og símamála
r'áðherra, en þá ætlar hann sér að
vera kominn suður til Florida.
Upplstý var í Washington í dag,
að útnefning Dillons hefði verið
gerð í samráði við þá Nixon og
Eisenhower og þykir þetta benda
til þess, að Kennedy vilji sýna, að
hann vilji hefja stjórn sína yfir
flokkspólitískar línur — annar re-
pulikani gegnir ráðherraembætti í
stjórn hans, hinn nýskipaði land-
varnaráðherra McNamara.
Veitt landvist
(Framhald af 1. síðu).
flóttamanna. Er í samningi þess
um kveðið á um aS aðildarríkin
skuli láta flóttamönnum, sem
dvelja löglega í viðkomandl ríki,
í té ferðaskilríki. — Eins og
fram kom í frétt hér í blaðinu í
gaer, sagði Klatt að hann hefði
áhuga á að dveljast hér í 2 ár
eða svo, og halda síðan til V.
Þýzkalands eða Bandaríkjanna.
Þegar að því kemur mun Klatt,
eftir þessu að dæma, ferðast á ís
lenzkum ferðaskilríkjum.
Keflavíkurvegur
Framhald af 1. síðu.
or ekki reynzt kleift að fá upplýs-
Ingar um málið.
Loks auðnaðist að toga þessar
upplýsingar fram, en Gunnar Thor
oddsen fjármájaráfflierra svaraffi
þessu á Alþingi í gær eftir aff Ey-
steinn Jónsson hafffi ítrekaff fyrir-
spurn til ráðherrans um málið.
Sagffi Gunnar aff ríkisstjórnin
myndi ta.ka lán til framkvæmclar-
innar af þeim innstæffum, sem
Bandaríkin eignast hér vegna sölu
á vörum hingaff samkvænit hinum
svokölluffu „PL—480“ lánum.
Me'ðvitundarlaus í ána
(Framh af l síffu).
og í ána. Krap var í ánni. Haföi
bílstjórinn fengið rothögg áður
en hann kastaðist út og lá hann
ósjálfbjarga og meðvitundar-
laus í krapelgnum í ánni.
Farþegi í framsæti kastaðist
einnig út og lenti undir bílnum
og lá þar ósjálfbjarga.
Bjargaði félögum sínum
Þriðji maðurinn sat í aftur-
sæti jeppans. Komst hann út og
dró bílstjórann meðvitundar-
lausan upp úr ánni. Telur lækn
irinn á Hvammstanga að bíl-
stjórinn hefði ugglaust drukkn-
að þarna á ánni, ef ekki hefði
komið til aðstoð piltsins. — Síð
an tókst honum að lyfta bílflak
inu ofan af þeim, sem undir því
lá, og bjarga honum.
Fluttir til Fornahvamms
Nokkru siðar bar þarna að
flutningabíl frá Skagafirði á
suðurleið og flutti hann þre-
menningana til Fornahvamms.
Um það leyti sem komið var þang
jað, komst bílstjórinn til meðvit
jundar. Hringt var til læknisins
j á Hvammstanga og kom hann
! að vörmu spori. Voru þremenn-
ingarnir síðan fluttir í sjúkra-
húsið á Hvammstanga um
kvöldið. Tveir þeirra liggja þar
enn, en bílstjórinn hélt heim-
leiðis í dag. Mun hann hafa
fengið snert af heilahristing. Af
hinum tveimur er það að segja,
að sá sem varð undir bílnum, er
bringubeinsbrotinn, tognaður á
handlegg og öxl, og auk þess
marinn víða. Sá, sem sat í aft-
ursætinu og bjargaði báðum fé-
lögum sínum, liggur einnig á
sjúkrahúsinu, skorinn á fæti og
víða illa marinn.
Bíllinn er talinn gerónýtur og
er það mál manna, að sjaldan
eða aldrei hafi þeir séð bíl jafn
illa leikinn. Bílnum var náð úr
gilinu í gær og var hann fluttur
áleiðis norður. — J.J.