Tíminn - 17.12.1960, Blaðsíða 8

Tíminn - 17.12.1960, Blaðsíða 8
8 TÍMINN, laug'ardaginn 17. desember 1960. Sextugur í dag: Karl Hjálmarsson kaupfélagsstjóri á Hvammstanga Aldarfjórðungsaf- mæli Lögreglufél. ELINBORG LÁRUSDÓTTIR: SOL I HADEGISSTAÐ „Eg held að ég hafi ekki í mörg ár lesíð eins skemmti- lega sögu sem þessa. Hvergi gætir mælgi. Hvergi of eða van. Oft hefur skáldkonunni tekizt vei í fyrri bókum sín- um og oft miög vel, en samt finnst mér þess’ skáldsaga bera langt af öllum fyrri skáldsögum hennar . “ Þorst. M. Jónsson í Tímanum 15.12. 1960. Samvinnuhreyfingiii á íslandi hefur átt því láni að fagna, að eiga jafnan á að skipa mörgum mikil- hæfum forystumönnum. Einn úr þessari vösku sveit, Karl Hjálmars son, kaupfélagsstj'óri á Hvamms- tanga, er 60 ár'a í dag. Karl er fæddur að Ljótsstöðum í Laxárdal í Suður-ÞingÖyjarsýslu, sonur Hjálmars Jónssonar og Ás- laugar Torfadóttur frá Ólaísdal. Snemma hleypti Karl heimdrag anum og fór í Eiðaskóla. Upp úr því í Samvinnuskólann og lauk þaðan burtfararprófi. Frá þeim degi hefur Karl helgað samvinnu- félögununj krafta sína og enginn meðalmaðúr reynzt í þeixri þjón- ustu. Hann starfaði fyrst hjá Kaup félagi Borgfirðinga í Borgarfirði eystr'a en gerðist kaupfélagsstjóri á Þórshöfn 1930. Þaðan fluttist hann að Hvammsstanga og hefur veitt forstöðu Kaupfélagi Vestur- Húnvetninga frá því 1947. Af þeim mönnum, seim voru kaupfélagsstjórar 1930 er Karl einn af þremur, sem enn eru við þau störf, og segir það sína sögu. Á hann því, jafnframt sextugsafmæl- inu jþrítugsafmæli sem kaupfélags stjóri. í starfi sínu hefur Karl reynzt hvort tveggja í senn mikill fram- kvæmdamaður og hagsýnn að sama skapi. Undir forystu hans beitti Kaupfélagið á Þórshöfn sér’ m.a. fyrir að koma upp frystihúsi og að útvega fiskflutningaskip til þess að koma ísuðum fiski á er- lendan markað. í stjórnartíð Karls hefur Kaupfélagið á Hvamms- tanga komið upp mjög myndar legu húsi yfir verzlunarrekstur sinn og byggt mjólkurbú. Mun starfa Karls lengi gæta í viðkom andi byggðarlögum. Karl Hjálmarsson er tvíkvænt ur. Var fyrri kona hans Halldóra Ásgrímsdóttir, Norðmýlmgur að ætt. Hún andaðist 1936. Síðari kona Karls er Þórdís Ingimars dóttir frá Þórshöfn. Karl Hjálmarsson er drengskap armaður mikill svo sem hann á kyn til, hver's manns hugljúfi, list elskur með afbrigðum, ánægjuleg ur félagi og nýtur trausts og vin- sælda allra þeirra, er af honum hafa kynni. Samvinnumenn munu í dag senda honum hlýjar og hljóð ar þakkir fyrir störfin í 30 ár og VesturHúnvetningar vænta þess, að mega njóta fylgdar hans og for sögu enn um mörg ár. 75 ára í dag: Skarphéðinn Sigurðsson bóndi, Minna-Mosfelli Sú er venjan að geta manna að nokkru við sér'stök tækifæri. Og það því fremur, sem meiri tilefni eru að. Mörgum þykir þetta góður siður, — nema þá helzt þeim, sem fyrir því verða hverju sinni. En víst er, að þetta getur verið nokk- urs virði fyrir seinni tíma, ef rétt er frá sagt og öllu stillt í hóf. — En svo er um suma menn, að þeim er óljúft að þeirra sé að nokkru getið, á opnum vettvangi og sízt af öllu að nokkurt lof sé á þá borið, þótt ástæða sé til. Og svo er um þann mann, sem hér verður nokkuð sagt frá, en hann er Skarphéðinn Sigurðsson, bóndi á Minna Mosfelli í Mosfellssveit, sem er 75 ára í dag. — Skarpbéðinn er Mýramaður að uppruna, fæddur að Heyholti í Borgarhreppi 17. desember 1885. Hann ólst upp þar vestra og var m.a. samfleytt í 14 ár hjá hinum kunna norðanpósti Jóni Jónssyni í Galtarholti. Á þeim árum var Skarphéðinn oft í póstferðum með Jóni, en það voru á stundum erfið ferðalög og slarksöm, sérstaklega á vetrum, sem r'eyndu mjög á dugn að og harðfylgni manna. Segir nokkuð af þessum ferðum í „Sögu landpóstanna“. — Hingað suður fluttist Skarp- héðinn 1915 með Jóhanni Eyjólfs syni alþm. frá Sveinatungu, og var hjá Jóhanni fyr'stu búskaparár hans í BrautarholtL Þaðan fór hann að Vífilsstöðum til Þorleifs Guðmundssonar, sem þá var bú- stjóri þar, — og það olli straum hvörfum í lífi hans. Svo hefur Skarphéðinn látið ummælt, að vera sín á Vífilsstöð- um hafi verið á við gott búnaðar- námskeið eða öllu heldur verulegt búnaðarskólanám, því þar hafi hann öðlazt þá þekkingu á vali og meðferð búfjár, sem hann hafi búið að síðan. — Telur hann Þor- leif hafa verilð afburSamann í öllu, er að búskap laut, og auk þess sérstakan mannkostamann, sem mikill ávinningur var að kynn ast. Vera Skarphéðm á Vífilsstöð- um varð honum líka að öðru leyti til varanlegrar hlífshamingju, því þar kynntist hann sinni ágætu konu Karínu Guðmundsdóttur í Urr’iðakoti, Jónssonar frá Setbergi, Guðmundssonar. Þau eíga 3 upp- komna syni, og eru 2 þeirra en'n heima. — Katrín er afburða húsmóðir og mannkostakona, sem hefur ver- ið manni sínum samhent í öllu því ,sem ger't hefur heimili þeirra umtalað og rómað. — Eftir tveggja ára veru á Vífilsstöðum réðist Skarphéðinn til Eggerts Briem í Viðey og var hjá honum í mörg ár. Eggert bjó þá stórbúi í Viðey, en hafði hyggt 40 kúa fjós í Reykjavík, — svo- nefnt Br'iemsfjós, sem margir muna, — og hafði kýrnar þar á vetrum. Hafði Skarphéðinn alla umsjá með kúnum og sölu mjólk- urinnar öll árin, sem hann var hjá Briem. Síðan tók Skarphéðinn Við eyna á leigu og bjó þar miklu búi í mör'g ár. Hafði hann um eitt skeið yfir 50 nautgripi í Viðey, auk sauðfjár og hrossa. Vorið 1937 fóru þau hjónin al- farin úr Viðey og fluttist að Minna Mosfelli í Mosfellssveit, og þar hafa þau húið síðan. — Ýmsum þótti það hæpinn bú- hnykkur að flytja með 30 kýr og annan fénað úr Viðey á miklu minni og ýrari jörð, sem lítil lífc- indi virtust til að gæti framfleytt stórbúi, a.m.k. ekki fyrst í stað. | En þetta tókst, — og betur en efni (Framhald á 11 síðu) í dag, 16. des. á Lögreglu- félag Reykjavíkur 25 ára af- mæli, en félagið var stofnað þann dag 1935. Félagsmenn eru nú 165 og hefur féiagið unnið að ýmsum málum, jafnt innan lögreglunnar sem utan. í tilefni afmælisins kvaddi stjórn félagsins fréttamenn á sinn fund, og skýrði Erlingur Pálsson, yfirlögregluþj., sem gegnt hefur formennskn í fé- laginu í tvo áratugi, frá starf semi félagsins fyrr og síðar. Frumkvæðið að stofnun fé- lagsins átti Magnús Eggerts- son, núverandi varðstjóri í rannsóknarlögreglunni. Var haldinn fundur að tilhlutan hans 3. des. 1935, og félagið síðan formlega stofnað 14. des. sama ár. Fyrstu stjórn félagsins skip uðu: Formaður Jakob Björns son, ritari Matthías Svein- björnsson, féhirðir Björn Vig- fússon, meðsjórnendur Jón Jónsson og Geir Sigurðsson. Formennsku í félaginu hafa gegnt síðastliðin 25 ár eftir- taldir menn: Jakob Björnsson 12 ár, frá 1935—1937, Magnús Eggertsson 1 ár, 1938, Hall- grímur Stefánsson 1 ár, 1947, Kristinn Helgason, 1 ár, 1954; j Erlingur Pálsson 20 ár. — Núverandi stjórn skipa: For- : maður Erlingur Pálsson; rit- ari Þórður Kárason; gjaldkeri Bogi J. Bjarnason; varaform. Óskar Ólason; meðstjórnandi Páll Eiríksson. Lögreglusjóður Fyrsta mál stjórnarinnar var að koma á nýrri reglu- gerð um niðurröðun auka- vinnu hjá lögreglunni. Lög- reglunni var kunnugt um, að sjóður hafði verið stofnaður með kansellíbréfi frá 8. júní 1811, er nefndur var Lögreglu sjóður, og nam á 4. þús. krón- ur. Hafði sjóður þessi verið lítt ræktur og aldrei komið lögreglunni neitt að gagni. Gerði félagið kröfu til að fá umráð sjóðsins í sínar hend- ur og fékk því framgengt. Þegar Kristján konungur X. heimsótti landið í síðasta skipti árið 1936, stofnaði hann lögreglusjóð fyrir löareglu Reykjavíkur, gaf stofnfé í sjóðinn og lét semja fyrir hann skipulagsskrá. Lét kon ungur þess getið, að þetta væri gert af sinni hendi í þakk lætis- og virðingarskyni fyrir framúrskarandi góða frammi stöðu lögreglunnar við heim- sókn hans. Eftir að lögreglan fékk umráð yfir gamla sjóðn um, var hann lagður við hinn nýstofnaða sjóð og hefur nú þegar inni að halda álitlega fjárupphæð. Sérstaða lögreglumanna Lögreglufélagið stofnaði sinn eigin slysa- og sjúkra- sjóð árið 1945. Stofnfé sjóðs- ins, kr. 1.000,00 gaf Steingrim ur Guðmundsson, prentsmiðju stjóri, lögreglufélaginu sem heiðurslaun fyrr vasklega framgöngu, þegar kviknaði í prentsmiðjunni Gutenberg 2. ágúst 1944. Bæjarstjórn Rvík- ur gaf kr. 10.000,00 í sjóðinn á 20 ára afmæli félagsins. Lögreglufélagið hefur ætíð látið kjarabótamál lögreglunn ar til sín taka og beitt sér fyrir því, að fá viðurkennda sérstöðu lögreglustarfsins. Þá hefur verið fyrir forgöngu Lög reglufélagsins gerð sérstök samþykkt um laun fastráð- inna lögreglumanna Reykja- víkur. Einnig hefur Lögreglu félagið fengið viðurkenningu ríkisstjórnarinnar og bæjar- stjórnar Reykjavíkur sem sjálf stæður samningsaðili í kjara málum sínum. Menningarmál Margs konar menningar- mál hefur Lögreglufélagið beitt sér fyrir, svo sem auk- inni menntun og utanförum lögreglumanna, haldið uppi og styrkt karlakór, sem sung ið hefur venjulega á árshátíð um lögreglunnar, haldið söng skemmtanir í Reykjavík og víða út á landi og tekið þátt í Norðurlanda kórsöngsmóti lögreglumanna við góðan orð stír í Stokkhólmi. Árið 1944, í janúar, tók lög reglufélagið opinbera afstöðu til stofnunar lýðveldis á ís- landi með aðalfundarsam- (Framhald á 10. síðu).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.