Tíminn - 17.12.1960, Blaðsíða 5

Tíminn - 17.12.1960, Blaðsíða 5
D TÍMINN, laugardaginn 17. desember 1960. Útgetandi: FRAMSÖKNARFLOKKURINN. FramJfvæmdast.ióri: Tómas 4rnason Kit- stjórar Þðrarmn Þórannsson 'áb i, Andrés Knstjánsson Fréttastjóri Tómas Karlsson. Auglýsingast.1 Egill Bjarnason Skriistofur i Edduhúsinu — Símar 18300 18305 Auglýsingaslmi 19523 Afgreiðslusimi: 12323 — Prentsmiðjan Edda h.f Bandamennirnir frá sumrinu 1958 Þegar stjórnarliðar Komast í mest þrot við að verja „viðreisnina“, er það ein helzta þrartalending þeirra að halda því fram, að vinsiri stjórnin hafi skilíð svo illa við, að óhjákvæmilegt nafi verið að gera einherjar ne.vð- arráðstafanir líkt og .,vðreismna“ Fyrir stjórnarliða eru þessar fullyrðingar hins vegar haldlitlar, því að fyrir liggur vitnisburður hagfróðustu manna þeirra um það, að þetta er blekking ein. Sjálf- stæðisflokkurinn lét nefnilega hagfræðinga sína gera út- tekt á fjárhagsástandinu í desember 1958 begar Ó'afi Thors var falin stjórnarmyndun eftir fall vinstri stjórn- arinnar. Hagfræðingar ílokksins skiluðu ýtarlegu áliti og voru niðurstöður þeirra kunngerðar í ytirlýsingu er Sjálfstæðisflokkurinn lét birta í Mbi Niðurstöður beirra eru þær, að ekki þurfi annað en að taka aftur viðbórar- kauphækkunina, er vai knúin fram sumarið 1958, til þess að atvinnuvegirnir geti gengið hallalaust, án nýrra skatta, og kaupmáttur launa haldist eins og hann var fyrir umrædda kauphækkun, en hann var þá 10—12% meiri en hann er nú, í þessu sambandi er ekki ófróðlegt að rifja það upp, hverjir stóðu að þessan viðbótarkauphækkun, því að merkilegar nýjar upplvsmgar hafa nýlega komið fram varðandi það efni. í efnahagslöggjöfinm. sem var sett vorið 1958 var ákveðin nokkur kauphækkun strax til þess að mæta þeim verðhækkunum, or hlytust af löggjöfinm. Vissir aðilar töldu þetta hins vegar ekki nægilegt og Deittu sér því fyrir meiri kauphækkun, og lókst að koma henni fram. Það hefur að vísu ailfaf verið kunnugt, hvaða aðilar þetta voru, en þó hefur það aldrei verið upplýst betur en í umræðunum, sem fóru fram á Albingi í fyrrakvöld. Einar Olgeirsson var að tala og kenndi hann vissum sér- fræðingi um fall vinstri stjórnarinnar. Ólafur Thors greip þá fram í fyrir Einari og spuröi hvort annar mað- ur væri ekki sekari um fall vinstri stjórnarinnar. Jafn- framt benti Ólafur á Einar. Einar svaraði jafnharðan og hvað það rétt, að hann hefði haft talsverða samvirmu við Sjálfstæðismenn og vissan hluta Alþýðuflokksins sumarið 1958 um að knýja fram kauphækkun, er bessir aðilar hefðu þá talið réftmæta. Ólatur þagnaði og setti hann rauðan við þessar upplýsingar Einars. En það var þessi kauphækkun, sem varð vinstri stjórninni að falli. Vegna hennar þurfti að gera ráðstaf- anir haustið 1958 er ekki náðist samkomulag um Ól- afur Thors hafði það upp úr samstarfinu við Einar 01- geirsson sumarið 1958. hann stefndi að. Er hann hef- ur ekki látið þar numið staðar að taka aftur umrædda kauphækkun, heldur tekið miklu meira. Það ástand. sem vinstri stjórnin skildi v'ð, var ems og áður segir þannig, að það var hægt samkvæmt mati óvinveittustu hagfræðinga, að tryggja áfram sama kaup- mátt launa og var fyrir umrædda kauphækkun en kaup- máttur þeirra var þá 10—12% meiri en hann er - dag. Viðskilnaði vinstri stjórnarinnar verður því síður en svo kennt um þá miklr kjaraskerðingu. er nú hefur átt sér stað. Hún rekur rærur til þess að stórgróðamenn- irnir hafa fengið fulla uppskeru af bandalagínu frá sumrinu 1958, en hlutur launafólkstns hefur- orðið stór- felld kjaraskerðing. Stigii Halldór Stefánsson: Sagan af manninum, sem steig ofan á höndina á sér. Heimsknngla, Reykjavík 1960. Söguefni Haildórs Stefánssonar er nógu forvitnilegt: hvað verður um mann, sem ratar í þá ógæfu að stíga ofan á höndina á sér? Þetta er næstum háð eina, sem sagt vérður nýrri skáldsögu hans til verðugs lofs, enda er lesandi litlu nær um úrlausn þessa máls að bókarlokum, hins vegar býsna þreyttur. Það er því miður ekki vegna fyrirferðar bókarinnar eða af því að húr, knýi ti. svo örðugr ar hugarstarfsemi; hún er bara leiðinleg. Helgi Jón heitir maðurinn, sem verður fyrir þessu leiðinlega slysi, og hann heldur því vandlega leyndu bókina á enda hvernig hann bar sig til við það, bæði fyrir öðru sögufólki og lesandanum. Hins vegar ratar hann í ýmsar raunir af oessu tilefr.i og segir mest af þeim í fyrra parti bókar- innar, sem gerist í lítt skilgreindu sjávarþorpi þar sem söguhetjan er upprunnin. Helgi Jón hrökklast úr atvinnu sinni vegna handar- meinsins og- það er gert gys að honum, hann fer einförum og er stúrinn unz hann finnur ofur'litla huggun í faðmi traustlegrar ekkju og þar kemur að hann gerir henni barn. Ekkjan á unga dóttur, Siggu, sem dreymir um að gerast dans- mær og einhver lauslegur tauga- titringur hefst milli þeirra ung- mennanna. Þarna segir enn frem- ur af formanni Helga Jóns og konu hans, höltum skóara og fleira þorpsfólki, uppruna Helga Jóns hjá heldur leiðinlcgum foreldrum og frá góðum kennara, sem sagði b á hön börnunum sannleikann um bylting una í Rússlandi, fór í fjallgöngu með kvenmanni og var fyrir þessi glöp gerður brottrækur úr þorp- inu. í seinna parti tekur Helgi Jón sig upp og fei suður til Reykjavíkur, og er úr því ekki minnzt á handarmeinið góða. í Reykjavrk kemst hann í tæri við ýmsan vafalýð, braskara smáa og stóra, smyglara og þjófa, kynn- ist sömuleiðis nokkrum verkamönn um, félögum sínum, sem er þó lítt lýst, lendir með þeim í bíl- slysi og hittir hrekkjótta stúlku, sem telur honum trú um að hann sé dauður og kominn á annað plan. Hann vinnur ýmsa vinnu, ræðst á Keflavíkurflugvöll og stendur í smyglflutningi þaðan, hættir því og hefur þá dregið saman hundrað þúsund krónur, dreymir um að taka barn sitt og ekkjunnar Guð- nýjar til sín, ræðst í íbúðarkaup (sem geta allt eins reynzt tómur prettur og fjárfletting), fær sér ráðskonu — auðvitað ekkju —- og fer að vitja barnsins. Ekkjan vill þá sízt láta barn sitt, Sigga er fermd og hætt við dansinn, þau kveðjast, hann stendur einn eftir og ætlar víst suður — til hinnar ekkjunnar. Þannig fer þá fyrir manni, sem stígur ofan á höndina á sér: hann lendir upp í til ekkju. Kannski er tilætlan höfundar að þetta verk hans sé tekið sem saga af ungum manni á tímamótum, manni, sem losnar úr tengslum við uppruna sinn og rétt heimkynni op ratar á villigötur framandi ómenningar, flækist í net klækja og pretta og á sér ekki afturkvæmt þaðan, stendur uppi snauður að lokum og hefur misst allt yndi sitt: mikil harmsaga nýrra tíma á íslandi! Með talsverðum góðvilja má ef til vill finna sitthvað, sem d sér bendir í þessa átt, eða eitthvað svipaða, í verkinu. En ef svo er, — skelfing hefur þá tekizt iUa til. Saga Helga Jóns er ekki harm- saga og heldur ekki farsi, þótt efniviðurinn gæti virzt þénlegur til slíks. Hún er eiginlega hvorki fugl né fiskur, skortir alla sam- tengjandi hugmynd, allt, sem haldi henni uppi og Ijái verkinu skáldleg an þrótt. Höfundi hefur með öllu mistekizt að gæða höfuðpaurinn sjálfan, Helga Jón, lífi og litum, hann skortir með öllu skáldlegt gildi. Ævintýri hans heima og syðra eru aðeins flöt frásögn hé- gómlegra atvika, sem ekkert býr undir, söguna skortir alla dýpt og alla hæð. Örlög Helga Jóns eru varla trúverðug og þaðan af síður táknræn fyrir eitt eða neitt, aðeins hláleg. Sama er að segja um annað sögufólk, þótt af sumu þeirra sé brugðið upp ekki ólaglegum svip- myndum, þá helzt ekkjunni Guð- nýju og Villu, borgarstúlku í kana bisniss. Þessar persónur eru dregn ar gamalkunnum dráttum og aðr- ar í enn rikara mæli: níðskældinn skóari, forstokkaður klerkur, raup ar.di og slarnfenginn braskar'.verka maður með sterklegar vinnumerkt ar hendur. Og stílsmáti höfundar hæfir verki hans vel, hann er grár, Hatur, ósögulegur þó ekk með öjIu laus við tilfyndni á stöku stað. „En allar þessar minningar voru svo undarléga fjörefnalausar" seg ir á einum stað í bókinni, og þau orð má herma upp á hana sjálfa: hana skortir öll pau fjörefni, sem gera bók að skáldverki. Það er kannski illgirnislegt, en mér liggur rið að segja það Hall- dór Stefánsson hefði betur stigið ofan á höndina á sér áður en hann tók að skrifa þessa bók. Ó. J. Sjálfsævisaga mikils söngvara Fjodor Sjaljapin: Sjaljapin segir frá, Sjálfsævisaga. Maja Baldvins þýddi. Akureyri — Kvöldvökuútgáfan. 1960. í sveitaþorpi skammt frá stór- borginni Kasan, þar sem stórfljót- ið Volga beygir til suðurs, er hinn heimsfrægi söngvari og leikari, Fjodor Sjaljapin fæddur árið 1873. Sjálfsævisaga hans, sem Kvöld- vökuútgáfan á Akureyri hefur ný lega sent frá sér, nær frá bernsku og æskuámm hans fram að alda- mótum, en þá er hann búinn að fá viðurkenningu sem mikill söngvari og leik'ari í heimalandi sínu. Sjaljapin er alinn upp við fá- tækt og misskilning. Faðir hans var fær skrifstofumaður, en eyddi oft miklum hluta mánaðarkaups síns í fyllirí. Sjaljapin segir frá því, að eitt sinn er faðir hans kom heirn eftir rúmlega tveggja daga drykkju, og kona hans spurði hann grátandi: „Hvar fáum við nú í matinn“? en faðir hans öskr- ar: „Haltu kjafti! Farðu til fjand- ans! Láttu mig í friði! Þú kvelur mig og særir. Ég geri ekkert ann að en þræla og strita. Ég þykist eiga fyrir því að fá mér í staup- inu endrum og eins“. Faðir Sjalja- pins barði hann oft, lét hann fara að vinna strax og hann megnaði nokkuð, vildi gera úr honum iðn- aðar'mann, en skeytti ekkert um, þótt þeir, sem drengurinn vann hjá, færu illa með hann. Iðnaðar-, mennirnir drukku á tyllidögum, svo að þeir vissu ekki sitt rjúkandi ráð. Eitt sinn vann Sjaljapin slag hörpu í kappdrætti, en hann þráði að læra að syngja og spila á hljóð færi. Foreldrar hans lokuðu slag- hörpunni og bönnuðu honum að koma nærri henni, nema þegar hann var veifcur, þá fékk hann að sofa ofan á henni í stað þess að sofa á gólfinu. Skammir fékk hann og hjá föður sínum fyrir áhuga hans á söng. Hann komst þó í barnaskóla og gekk námið ágæt- lega. En yfirleitt voru bernskuár hans ömurleg. Foreldrar hans flæktust með hann til Suður-Rúss- lands, og að því kom að hann varð að fara að heiman til þess að létta á heimili foreldranna, og að síð- ustu varð móðir hans að gerast betlari, til þess að hún og maður hennar gætu dregið fram lífið. Sjaljapin ferðast borg úr borg, stundum taka söng- og leikflokkar hann og fær lítilsháttar kaup, því að hæfileikar hans duldust þeim ekki. Þess á milli var hann atvinnu laus, oft soltinn, klæðlítill og í lélegu húsnæði. Hann segir frá daglegu lífi fólksins, er hann kynntist, og menningarstigi þess. Einstaka menn eru honum góðir og oft er hann fyrirlitinn, sem auðnuleysingi og flækingur. Hann lendir í ástarævintýrum, fer Ul OF SEINT, ÓÐINSHANI heitir ný ikáldsaga eftir Suður Afríku rithöfundinn Alan Paton í býðingu Andrésar Björnssonar gefin út af Isa- toldarprentsmiðju. Sagan gerist í litlum bæ í byggðum Búanna á Transvaal- hásléttunni, og kynþáttavandamál- ið er rauði þráðurinn í sögunni, og mikil örlög spinnast af járn- keisar'aborgarinnar við Nevafljút, og varð óperusöngvari við keisara lega leikhúsið. Ekki líkaði honum þar vel að öllu leyti. „Reyndar hef ég aldrei orðið var við góðan fé- lagsskap í nokkru þjóðleikhúsi", segir hann. Við listdómarana féll honum ekki heldur: „Annars held ég að gagnrýni og mannvonzka fari oftast saman“, segir hann. Árið 1898 kvongast hann ítalskri dansmeyju, sem hafði hrifið hann nokkru áður við fyrstu sýn. Hann var óperusöngvari í Moskvu er brúðkaupið fór fram, erfiðleikar æskuáranna að baki og hann við- urkenndur í heimalandi sínu sem mikill listamaður. Úr því barst frægð hans til annarra landa, en þá sögu segir ha-nn ekki í þessari bók. Æskusaga Sjaljapins sannar hinn forn-íslenzka málshátt: „Þótt náttúran sé lamin með lurk, íeitar lögum Búanna, sem kv-eða svo á, að enginn hvítur maður megi snerta svaria konu, né hvít kona þýðast svartan ma-nn. Áður hefur komið út í ís- lenzkri þýðingu bókin Grát ást- kæra fósturmold eftir Alan Paton. mikil og góð skáldsaga. Þessi síðari skáldsaga höfundarins er mjö af sama bergi br-otin og vafalítið engu áhrifaminni. Bókin er um 220 blaðsíður að stærð o? frá- gangur vandaður. hun út um síðir“. Þorsteinn M. Jónsson. Ný Suður-Afríku skáldsaga

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.