Tíminn - 06.01.1961, Blaðsíða 3
TÍMINN, föstudaginn 6. janúar 1961.
3
Horfur á sáttum í Belgíu
„Viðreisnin,, lögð til
hliðar um sinn
ÁriS 1960 er nýiega liðiS í ald-
anna skaut og 1961 tekið við. Okk
ur datt í hug aS ekki væri ófróð-
leg't að grafa upp bíla þá í Reykja
vík, er hafa númer samsvarandi
þessum ártölum og sjást þeir hér
að ofan. R-1960 er Hillman station,
eign frú Slgríðar Húnfjörð, Ing-
ólfsstræti 21 B. Búið var að taka
núrner af bílnum og leggja inn
hjá bifreiðaeftiriifinu, en Ijós-
myndarinn skauzt þangað og tók
af því myndl R-1961 er Chevrolet
sendiferðabíll við Nýju sendibíia-
stöðina. Bílnum ekur Gunnar
Hálfdánarson, Þvervegi 40, og
sést hann hér hjá „bíl ársins",
en dóttir hans, Arnfríður, er
skráður eigandi hans. (Ljósm.:
TÍMINN, I.M.).
Snjóflóð
í Dalsmynni
Nýlega féll snjóflóð í Dals-
mynni við Eyjaf jörð, milli bæj
anna Skarðs og Litlagerðis, og
teppti þar akveginn. Nokkr-
urn tíma um jólin, er Vaðla-
heiði varð ófær bifreiðum, var
farin leiðin um Dalsmynni, og
er svo jafnan gert, er þannig
stendur á, þótt sú leið sé nokk
uð lengri.
En í þetta sinn féllu einn-
ig nokkur fleiri snjóflóð í Dals
mynni, og vegna hættunnar,
sem af þessu stafaði, var ekki
lagt í að opna þann veg, held
ur var ýtt snjónum af vegin-
um yfir Vaðlaheiði. í fyrra-
dag og í gær var svo aftur
unnið að því með tveimur vél
ýtum að opna veginn um Dals
mynni. Var búizt við, að því
verki yrði lokið í dag. ED.
Kröfðust að Lumumba
yrði iátinn laus
Mannfjöldi safnaÖist a(S viíræíusta'Ö Hammar-
skjölds og Kasavubu. — Hermenn Mobutus
tvístruÖu honum.
Brussel/Leopoldv. 5.1. (NTB)
Allir Evrópumenn, sem síð-
ustu daga hafa verið hand-
teknir í Bukavo, höfuðborg
Kivuhéraðs hafa nú verið látn
ir lausir. Er þetta samkvæmt
skipun Ancient Kashamura,
sem er stuðningsmaður Lum-
umba og hefur nú öll völd í
Kivuhéraði.
Kashamura hefur lýst yfir
sjálfstæði héraðsins en er
reiðubúinn að ganga til sam
vinnu við Orientalehérað,
þar sem annar stuðningsmað
ur Lumumba, Gizenga, ræður
ríkjum. Kivuhérað hefur ver
ið nefnt kornbúr Kongo. —
Hammarskjöld ræddi við Kasa
vubu forseta í Leopoldville
í morgun að viðstöddum nokkr
um fulltrúum SÞ í landinu.
Hópur manna safnaðist fyrir
utan hús það, sem viðræðurn
ar fóru fram í og kröfðust
frelsis handa Lumumba. Her-
lið Mobutu ofursta hrakti fólk
þetta burtu með barsmíðum
og meiðingum. Herlið SÞ
horfði á aðfarirnar en hafðist
ekkert að.
Nígeríumenn í liði SÞ í
Kongó hafa fellt 14 Balabu-
menn í Katangahéraði eftirj
að þeir síðarnefndu höfðu ráð;
ist á lest og velt henni af spor i
inu. Lögðu Balabumenn á!
flótta eftir nokkra viðureign
og varð ekki mannfall í liði
Nígeríumanna. írskir hermen
sem sendir voru þeim til hjálp
ar, komust ekki alla leið vegna
skemmdarverka, sem Baluba
menn höfðu unnið á járn-
brautarteinunum.
Hersveitir Mobutus ofursta
reyndu að halda inn í Kivu-
hérað frá Ruanda-Urundi en
voru hraktar burtu af hersveit
úm héraðsins, sem eru vin-
veittar Lumumba. Einn Belgi
féll í þessum átökum.
Þá hefur stjórn Katanga-
héraðs neitað að taka þátt í
ráðstefnu stjórnmálaleiðtoga í
Kongó, sem hefjast á 25. jan.
að boði Kasavubu forseta. Seg
ir stjórn Katangahéraðs, að
þessi ráðstefna eigi að vera í
Elísabethville höfuðstað Kat-
anga og hefjast 15. janúar.
Þetta hafi áður verið sam-
þykkt og stjórn Katanga send
ir enga fulltrúa til Leopold-
ville 25. janúar.
Brússel 5.1. (NTB). Það hef-
ur verið tilkynnt í Brússel, að
Baldvin Belgíukonungui* hafi
komið því til leiðar eftir lang
ar viðræður við stjórnmála-
foringja, að hið umdeilda „við
reisnar“frumvarp ríkisstjórn
arinnar skuli lagt á hilluna
um skeið og athugað nánar.
Eyskens forsætisráðherra mun
hafa fallizt á, að vísa frumv.
að nýju til nefndar en það
þýðir, að ekki kemur til um-
ræðu né frekari atkvæðagr.
um það í þinginu fyrst um
sinn.
Seinniparts dags var svo
hætt hinni almennu umræðu
um „viðreisnina" á þingi en
tekið til við að ræða um ein-
stakar greinar þess en þær
eru 162 talsins. Urðu nokkr-
ar umræður um í hverri röð
greinarnar skyldu ræddar. Ey
skens forsætisráðherra sam-
þykkti að lokum tillögu jafn
aðarmanna um aukafund síðd.
á morgun en fyrripart dags
verður rætt um 60 mikilvægar
breytingartillögur við „við-
reisnina". Þrátt fyrir stífni
sína er talið að Eyskens hafi
fallizt á þessar breytingar sem
byggðar eru á tillögum kat-
ólska verklýðssambandsins.
Menn telja það og vita á gott
að Eyskens skyldi samþykkja
kröfu jafnaðarmanna um
aukafundinn á morgun. Ætla
menn, að samkomulag það,
sem nú virðist vera að nást
með stjórnmálaforingjum geti
þýtt endi á verkfallinu strax
í byrjun næstu viku. Á
Enn átök og mótmælagöngur
í dag fóru um 1000 verkfalls
menn í Brússel að þinghúsinu
og settust þar flötum beinum.
Kom til átaka við lögregluna
og voru nokkrir verkfalls-
menn handteknir. Verkfalls-
menn héldu síðan til aðal-
stöðva jafnaðarmanna í borg
inni. Þar flutti Joseph Stevens
Sáttafund
ur í dag?
Ljóöasafn Tómasar kemurOt
á sextugsafmæli hans í dag
Skáldið dvelst nú suður á Spáni
einn af leiðtogum jafnaðar-
manna ræðu og kvað verklýðs
félag sitt hafa skorað á verk-
fallsmenn utan Brússel að hóp
ast til borgarinnar að morgni
og taka þátt í öflugum kröfu
göngum í borginni.
Lítil vinna er enn við höfn
ina í Antverpen. Miklar kröfu
göngur voru þar í dag. Sömu
sögu er að segja frá Liege.
Þar særðust lögreglumenn í
viðureign við verkfallsverði.
Stjórn Belgíu telur að verk
fallsmönum fari stöðugt fækk
andi og í dag voru fleiri stræt
isvagnar á ferð en undan-
farna daga. Því er neitað að
Eyskens hafi boðið jafnaðar
mönnum aðild að ríkisstjórn
inni, sömuleiðis því, að kon-
ungur hafi haft í hyggju að
kalla Paul Henry Spaak til
þess að reyna að koma á sátt
um.
Adenauer 85
ára í gær
Sáttarsemjari ríkisins, Torfi
Hjartarson, hélt samninga-
fund með samninganefnd sjó-
mannasamtakanna og fulltr,
útvegsmanna í Alþingishúsinu
i fyrrakvöld. Stóð fundurinn
fram á nótt.
Á fundinum skýrðu aðilar
sjónarmið sin fyrir sáttasemj
ara. Samningan. sjómanna-
samtakanna lét einnig í Ijós
vilja til að lækka nokkuð
vissa liði í samningatilboði
sínu. Sögðust fulltrúar útv,-
manna myndu taka það til at
hugunar. Næsti fundur með
deiluaðilum verður sennilega
haldinn í dag.
| Tómas Guðmundsson, skáld
! er sextugur í dag, og er pess
j minnzt með grein inni í blað;
inu. í tilefni sextugsafmælis
Tómasar gefur Helgafell út
heildarútgáfu af Ijóðum hans,
og mun hún væntanleg á {
markað í dag.
Nefnist bókin Ljóðasafn. og!
er nokkuð á þriðja hundrað j
blaðsíður. Eru í safninu öll
Ijóð úr bókum Tómasar — Við ,
sundin blá; Fagra veröld; j
Stjörnur vorsins og Fljótið'
helga, en auk þess ljóðabálk'
urinn Mjallhvít, sem ekki hef'
ur komið í Ijóðabókum hans!
áður, l
Kristján Karlsson, ritstjóri,
ritar langan inngang um j
Tómas, og er sú ritgerð nin j
merkasta. Útgáfan öll er hin j
vandaðasta.
Þrettándagleði í
Aíðaskálanum
Skíðafæri er nú gott á Hell
isheiði, og í kvöld verður mik
ið um dýrðir í Skíðaskálanum
í Hveradölum í tilefni af þrett
ándanum, meðal annars blys-
för skíðamanna og kvöldvaka.
Konrad Adenauer
— kanzlari Vestur-Þýzkalands
Bonn 5.1. (NTB) Konrad
Adenauer kanzlari Vestur-
Þýzkalands varð 85 ára í dag.
Heillaóskir hafa borizt til
hans hvaðanæva úr heimin-
um í dag, m.a. frá Krustj-
off, Eisenhower, MacMillan og
Nehru að ógleymdum Sir Win
ston Churchill og Jóhannesi
páfa 23.
Adenauer hafði opinbera
móttöku í Schamburghöllinni
í dag og streymdi þangað mik
ill fjöldi gesta og árnaði kanzl
aranum heilla á þessum tíma
mótum. Ludvig Erhard efna-
hagsmálaráðherra flutti ræðu
og sagði, að Adenauer verð-
skuldaði þökk vestur-þýzku
þjóðarinnar. Adenauer hefði
með dugnaði sínum og vizku
skipað Vestur-Þýzkalandi á
bekk með frjálsum þjóðum
heims.
Adenauer sagði í dag, að
framundan væri erfitt ár fyr
ir Vestur-Þýzkaland og enn
sem fyrr þyrfti sterkar taug
ar og mikla þolinmæði til að
mæta þeim erfiðleikum.