Tíminn - 12.01.1961, Qupperneq 7

Tíminn - 12.01.1961, Qupperneq 7
T f MIN N, fimmtudaginn 12. janúar 1961. 7 Ástúðin. Ég ætla þó aö taka til með ferðar eina spurningu á list anum, sem einnig er á öðr- um lista og það mjög ofar- lega. Það er spurningin um ástúðina, sem nú er orðin vís indaleg spurning. Það getur ekki skaðað neinn að við ræð um hana og fús er ég að lilusta á hvað aðrir kunna þar til málanna að leggja. En gangur málsins hefur í stuttu máli verið á þessa leið: Fræðimenn hafa orðið að glíma við vanda sívax- andi fjölda uppleystra heim ila og vandamál svonefndra vandræðabarna. Rannsókn hefur leitt í ljós það, sem nú skal greina: Barninu hefur ekki verið sýnd nægileg ástúð. Og unglingurinn hefur ekki þá ástúð fengið í barn- dómi, sem nauðsynleg var til þess að gefa honum kjöl- festu í lífinu. Og önnur þessu skyld svör koma frá vísind- unum. Barnið hefur verið dregið á tálar; það hefur hvorki fengið ástúð né festu í uppeldinu. Nú er það orðið fullorðin manneskj a, hefur gengið í hjónaband, en hjóna bandið hefur farið út um þúf ur, með því að jafnvægi ekorti í tilfinningalífið. Ást- úðarleysið skapar hik og ör- yggisleysi, sem gengur frá einni kynslóð til. annarrar. Það kveður mjög við annan tón en þegar við heyrðum frá ýmsum vísindamönnum: Farið heilar fornu dyggðir. Ég fæ ekki að því gert, að mér finnst stundum svo sem hinir góðu fræðimenn tali eins og ást'úð fengist í plast- pokum í búð á næsta götu- horni, jafnvel við vægu verði. En ég er alveg sam- mála þeim í því að ástúð er nauðsynleg, hún er oft hið einasta tungumál, sem börn- in skilja. Og ég geri ráð fyrir því að margir góðir foreldrar myndu kaupa niðursoðna ástúð í dósum eða þurrkaða ástúð í plastpokum og gefa börnum sínum, ef hana væri að fá. En því er nú ekki að heilsa. Konfúsíus, hinn heiðni heimspekin'gur, sem lifði 5— 600 árum á undan Kristi, ger ir ráð fyrir því í einni af bók um sínum að engin móðir sé svo heimsk að hún viti ekki hvernig á að ala upp barn. Og hann gerir fastlega ráð fyrir því að karlar séu konum vitrari. Sú heimska, að börn séu ekki vel upp alin, ætti því ekki að geta átt sér stað. Og við, sem tilheyrum einni af gáfuðustu þjóðum heims- ins, getum alls ekki gert ráð fyrir heimsku hjá okkur á þessu sviði. Piltar og stúlkur, sem vilja læra að gera við ryksugur, þurfa að læra iðn sína í 4 ár, en alls ekki neitt til að stofna heimili og ala lítil börn upp. Ef þess væri þörf, þá hefði það komið í ljós og ríkið hefði vafalaust látið skrifa kennslubækur í þeirri grein eins og öðrum. Það er ekki fyrr en á skóla- skyldualdri að faglærðir menn eiga að taka við upp- eldi barnanna. Allt sem á undan fer „kunna foreldrarn ir. „Umskipfingar" Allir íslendingar kannast við sögur um börn, sem urðu um- skiptingar. Kjarninn í þessum sögum og grundvallarhugmynd var á þá lei'5 að börn, sem áður voru góð og þroskavænleg, ger- breyttust til hins verra og eðli þeirra virtist umskiptast bæði til sálar og líkama. Var huldufólki kennt um að hafa tekið hið upp- runalega barn o,g látið annað miklu verra barn í staðinn. Þess vegna varð sú trú ríkjandi, að ekki mætti skilja barn eftir eitt saman heima. Þetta var þó stund um gert, einkum til þess að losna við að lítið barn tefði frá verki. Voru börn jafnvel bund- in við rúmstokkinn og urðu viti sínu fjær of angist og hræðslu. Nú á dögum yfirgefa foreldrar stundum lítil börn til þess að geta skemmt sér fram efdr nóttu. Börnin eru að vísu ekki bundin. En þó verða þau fangar á bak við lokaða glugga í lokuðum hús- um ef þau vakna. Gefur stundum að líta slíka fanga í okkar höfuð- borg, knýjandi á kaldar rúður og kveinandi í angist og ótta Séra Jóhann Hannesson vegna þess að þau eru yfirgefin. Geta þeir, sem fram hjá ganga, ekkert við slíku gert, þar sem hús eru lokuð. Auðvitað geta börn stundum verið alein að skað lausu og verða að venjast á það. En þau mega ekki finn.a til þess að menn vilji svíkja þau og yfir- gefa þegar þau þurfa á hjálp og samfélagi manna að halda. Umskiptingiir nútíma menn. ingar eru kallaðir vandræðabörn. Við eru hættir að kenna huldu- konum um eðlisbreytingu barna. Stundum vitum við að breyting- in stafar af sjúkdómi og er þá erfitt úr að bæta. En við menn höfum nú tekúð við hlutverki hludufólksins. í styrjöldum ger- um við börn að umskiptingum í stórum stíl, en einnig í daglegu lífi með fávizku og ástúðarleysi, illu fordæmi, slæmum sögum og kvikmyndum, með brennivíni og svalli, illyrðum, bölvi og ragni — og stundum með venjulegri leti og sérhlífni. En við getum líka notað uppeldisfræðina til þess ef við viljum það við hafa. Agaleysí og hik Til hefur verið sú tízka í upp- eldismálum að aldrei megi banna börnum neitt. Við trúum ekki á boð og bönn, segja menn. Sumir foreldrar hafa haft með sér börn sín í heimsókn til annarra. Þar hafa börnin rifið sundur bækur og blöð, brotið og skemmt, en foreldrarnir aðeins horft á og ekkert aðhafst af því þeir gengu með þá fræðilegu dellu að börn- um mætti ekki banna neitt. Þetta og annað eins er afskræmd ástúð og uppskeran er sú að börn og foreldrar gera vini sína að óvin- um að ástæðulausu. Sama verð- ur ofan á í viðskiptum barnanna við önnur börn því að börnin búa sjálf til siðalögmál, sem þessi börn hinna sérvitru foreldra verða einnig að hlýða. í sjálfu þjóðfélaginu bætast jafnan við ný boð og bönn, umferðarreglur, varúð í meðferð véla, hreinlætis boðorð og hin sígilda nauðsyn að taka tillit til annarra og virða þeirra rétt. Það er ekki ástúð, heldur ástúðarleysi að halda börnum niðri í fávizku um rangt og rétt, cðlileg og nauðsynleg boð og bönn. Þjóðfélagsfræðin hefur slegið því föstu að þar sem saman fer hæfileg festa og eðli- leg ástúð og hjartahlýja, eru minnst vandræði í upeldinu. En boð og bönn mega ekki hanga í lausu lofti þegar siðgæði er kennt. Þau verða að vera rök- studd og skýrð við barna hæfi. Því boð og bönn eru ekki í aug- um barua kjarni málsins né sjálft siðalögmálið, heldur eru þau táknmyndir þess og oft að- eins táknmyndir heilbrigðrar skynsemi, en þó ekki skynsemin sjálf. En skynsemin verður að kunna að nota þessar táknmynd- ir. Kúgun Við skulum ekki gleyma hon- um Jóni litla, enska drengnum. Hann var spurður að heiti og svaraði þá: „Eg heiti Jón gerð- ekki“. Allan daginn heyrði hann sagt við sig: „Jón, gerðekki þetta“, svo að hann hélt að „gerð ekki“ væri hluti af nafninu sínu. prófessor: Þannig er ástúðinni einnig af- neitað, oft einfaldlega með leti, svo að umskipti verða á eðbs- fari barnsins. Barnið verður kúg- að og ófrjálst þar sem það er tjóðrað með fávíslegum boðum og bönnum. Það er skemmst fi’á því að segja að í öllum menningarlönd- um er til nóg af vel unnum og vönduðum fróðleik um heimilis- SÍÐARI HLUTI líf og uppeldi stálpaðra barna. Eg geri ráð fyrir því að nokkuð af hinu bezta í þessum efnum sé til á íslenzku, enda væri ann- að óskiljanlegt í hinu mikla bókaflóði og straumi milljóna- tuga áf ki'ónum, sem varið er til uppeldismála af ríki og einstakl- ingum. Mér eru þó þessar bæk- ur ekki kunnar frá síðari árum og ég styðst nálega eingöngu við erlendar heimildir. II. UPPLAUSN TRÚARLÍFSINS Snúum okkur nú að hinu aðal- vandamálinu: upplausn hlns trú- arlega lífs. Það er samband milli hennar og upplausnar heimilis- lífsins. Mörg sterk öfl hafa hér unnið sitt verk á þessu sviði, bæði utan og innan. Þjóðfélags- fræðin greinir fjöldamör'g trúar- siðgæðileg bönd, sem eru brost- in eða eru í þann veg að bresta. Við gætum talið þau upp hér, en það yrði of mikið af kirkjusögu- legum fróðleik, sem ekki snertir tilveru almennings beinlínis nú á dögum. Annars gildir að mörgu leyti hið sama um trúarbrögð ut- an kristindómsins að þau eru að leysast upp. Búddhadómur, Hind úadómur og frumstæð trú Afríku manna eru öll á þessari leið, sömuleiðis kristindómur mótmæl enda í mörgum löndum. Minnst gætir upplausnar í kaþólsku kirkjunni og í sumum greinum Múhameðstrúar. Að ytri upp- lausn trúarbragðanna vinna and- stæðingar og andstæð öfl, sem hefur orðið afar mikið ágengt Qg geta víða hrósað sigri. En að hinni Innri upplausn vinna sjálf- ir játendur og fylgjendur trúar- bragðanna, jafnvel guðfræðingar og prestar, vitandi og óafvitandi. Að vísu stendur mótmælenda kir'kjan með miklum blóma í sumum löndum og eykur jafnvel fylgi sitt. Vakningar myndast og þær ganga yfir löndin og endur- nýja kirkjulífið. í öðrum löndum hefur kirkjan ekki af neinu slíku að segja og ekki verður annað séð en að upplausn trúarlífs og kirkjulífs sé í fullum gangi. Sú saga er svo löng og flókin að henni verða ekki gerð skil í þessu sambandi. Við verðum að stytta okkur leið með því að nota hina sósíológísku aðferð og virða fyrir okkur sjálf fyr'irbæri upplausnar innar, þar sem við sjálfir stönd- um. Menn vona að kristin kirkja miðli mönnum af hinum eilífu lindum Guðs ástar og náðar, kærleiks og sannleika. Oft bregst kirkjan þó þessu hlutverki. Það sem krlstinn maður vill með því að þjóna Guði, er bæði að færa honum þakklæti og tilbeiðslu í orði og verki og þiggja þær gjaf- ir, sem hann vill gefa. Nú fær hinn kristni maður þetta í guð-, spjalli, pistli og sálmasöng og! síðast en ekki sízt, heilagri kveld i máitíð. En þegar að ræðunni, kemur, vill sambandið oft slitna. Ég man t. d. eina guðsþjónustu fyrir langa löngu hér á landi. I Þar voru fáir menn úr stórum | söfnuði. Það, sem eftir varð — j í vitund minni og er enn, var ekkert annað en nöldur prestsins yfir því hve illa menn sóttu kir'kju. Ég hefði heldur viljað að einhver náungi hefði kastað í mig aukataði, eins og menn köstuðu í Hjálpræðisherinn hér forðum, þegar hann kom til fs-! lands. Ég hefði heldur viljað verða fyrir slíkum óþægindum, en að sitja undir slíku nöldri! prests yfir þeim fáu sálum, sem | komu þó í þetta Guðshús. Og fjöldi manns sýndi þessa sömu tilfinningu í verki blátt áfram með því að sækja mjög illa kirkju, þótt þeir gerðu sér ekki grein fyrir ástæðunni. Hér er eitt upplausnareinkennið: Menn vilja ekki taka við því, sem kirkj an réttir að þeim. Það er stund- um fyrir neðan allar hellur. I huga mínum hef ég boiið þetta saman við einn helgidags- morgun í Englandi. Gestgjafi minn sagði: Ef þú vilt komast að í kirkjunni, þá skalt þú fara á fætur kl. rúmlega sjö og reyna að komast í messuna kl. 8. Það eru tvær aðrar messur fyrir há- degi í þessari kirkju, önnur kl. 7, hin kl. 10,30, en vonlítið að fá sæti á þeim. En kl. 8 er lág- messa og þá kemst þú líklega að. Ég fór og það var lágmessa með altarisgöngu og kirkjan var troð- full. Rétt hjá var önnur kirkja, ekki eins vel sótt. Hverfið var miklu minna en Reykjavík og kirkjur fleiri og allir komu gang andi. Þrátt fyrir þessa gífurlegu aðsókn kvartar enska kirkjan yfir upplausnar ástandi í trúmál um landsmanna. En þátttöku í kirkjulífi og vinnubrögðum öll- um er ekki hægt að líkja við neitt, sem við þekkjum hér á landi. Það eru svo gerólíkir heim ar eins og væri um annan hnött að ræða í andlegum efnum. Stundum berast til eyrna okk- (Framhald á 13. síðu.) Upplausn heimilis lífs og trúarlífs A víðavangi Falleg taia 500 Blaðið Dagur á Akureyri segir svo um áramótaræðu Ólafs Thors forsætisráðherra: „í áramótaboðskap forsætis- ráðherra var margt athugavert. M. a. vafðist það fyrir honum að skýra það, hvers vegna „viðreisn- in“ brást. Þó brá hann upp töium og sagði, að verðfall og aflabrest- ur hefðu orsakað 500 milljón króna rýrnum á útflutningsverð- mætum, er næmi nálega 3 þús- und krónum á hvert mannsbarn í landinu. En forsætisráðherra láðist að geta þess, við livað hann miðaði þessar 500 milljónir. Líklegt er, að hann miði við næsta ár á und- an, eða grípur hann þetta hrein- lega úr lausu lofti? Um verð- fallið er það að segja, að það var kunnugt áður en „viðreisnin“ fór af stað og meira að segja rætt á siálfu Alþingi, svo að ekki verður því um kennt. En hváð þá um aflabrestinn? Báta- fiskur varð meiri en áður, síldin i meðallagi, miðað við nokkur síðustu ár, en togaraafli mun minni. Um útflutningsverðmæti ellefu fyrstu mánuði þessa árs segir Hagstofa íslands þetta: Þau voru 82 millj. kr meiri en árið 1959 miðað við núverandi gengi. — Samkvæint þessu hefur forsætisráðherra ekkj farið með réttar tölur. Honum hefur fatazt um 582 milljónir í reikningi sín- um, nema hann noti einhverjar þær samanburðartölur. sem hann nefnir ekkj hverjar eru. Þetta þarf nánair skýringar við. Svo bregftast krosstré sem ö'nmir tré í síðasta tölublaði Austra segir svo m. a.: „Stefna núverandi ríkisstjórnar er við það miðuð að hlynna að hinum fésterku í þjóðfélaginu, en láta þá, sem efnaminni eru heltast úr lestinni í hópi atvinnu- rekenda. Einn hinna fésterku, sem auð- vitað er á grænni grein hjá stjórnarvöldunum, er Einar Sig urðsson, — sem nefndur er hinn ríki. Hann hefur lengi keppt að því að komast til mannaforráða og ieitað ákaft eftir liylli Austfirð- inga. f því sambandi hafa Sjálf- stæðismenn talið, að þessi at- hafnamaður lyfti svo hátt merki einkaframtaksins, að honum væri flestir vegir færir. Fyrir hálfu öðru ári, — þ. c. þegar Sjálfstæðisflokkurinn hafði völdin, en Alþýðuflokkurinn skipaði sætin í ráðlicrrastólun- um, — var sarnið um smíði iog- arans Sigurðar, sem er einn hinn stærsti og fullkomnasti togari i eigu íslendinga. Einar ríki var auðvitað í náðinni hjá þeim sem úrslitum réðu við veitingu inn- flutningslcyfa og cignaðist penn- an togara. Þetta glæsilega skip hljóp af stokkunum í sumar og sigldi fyrst í íslenzka liöfn í sept- ember s. 1. Hinn 30. nóvember sl. birtist auglýsing . Morgunblaðinu nm að\þessi togari sé til sölu og það áréttast með feitletraðri grein i blaðinu. Ástæða er til að spyrja hvað valdi. Hér er að verki maður, sem njóta mun tarusts stjórnar- flokkanna sem fyrirmyndar mátt- arstólpi og ætti ekki síðm að gegna því hlutverki, þegar ríkis- stjórnin hefur komið á hinum ,‘,nýju þjóðfélagsháttum“. Má rekja orsakir þessa til „viðreisn- arinnar"? Er merki einkafr;.m taksins að falla úr höndum at- hafnamannsins? Svo bregðast krosstré sem önnur tré.“

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.