Tíminn - 22.01.1961, Blaðsíða 2

Tíminn - 22.01.1961, Blaðsíða 2
2 TÍMINy,, smmudaggjn, 22.. SniHmgurinn (Framhald af 16. síðu). unum, er þar héngu á veggj- um, ásamt málverkunum. Sýningunni lauk á föstu- degi, og daginn eftir voru svik in afhjúpuS. Það gerði ungur listfræðingur, stúlka, sem sjálf hafði stjómað sjónvarps þætti um 6ýninguna. Vaknað hafði tortryggni hjá henni vegna ummæla, sem einhver úr samstarfshópi hins fallna snillings lét sér um munn fara. Eftir miklar eftirgrennsl anir tók-st henni að knýja fram þá játningu, að Bolus Krim hefði aldrei lifað, nema í hugarheimi þriggja málara, er í öndverðu höfðu fundið þennan náunga upp, sér til gamans. Þegar þeim tók að leiðast að dragnast með Bolus Krim, létu þeir hann deyja, En á þvi standa þeir fastara e nfótunum, að Bolus hafði samt verið annað og meira en auglýsingabrella — hann hafi lifað og starfað í vitund þeirra. En þá röksemdafærslu skilja ekki allir. Stofnun Jóns Sigurftssonar (Framhald af 1. síðu.) á laggimar íslenzka vísinda- stofnun, hliðstæða stofnun Áma Magnússonar í Kaup- mannahöfn, er verði miðstöð íslenzkra handritarannsókna og fræðilegs útgáfustarfs. Um þetta segir hann síðan: „Þess háttar stofnun er auð vitað hægt að setja á fót hve nær sem er, en ekki spillir, að í slíkt sé ráðizt á merkis degi og tímamótum í sögu þjóðarinnar, svo sem þegar Háskóli íslands var stofnað- ur. á aldarafmæli Jóns Sig- urðsspnar. — 17. júní 1961 er 150 ára afmæli Jóns Sigurðs- sonar. Þess vegna sýnist mér ekki fara illa á, að -einmitt þann afmælisdag verði slík visindastofnun sett á laggir og helguð minningu Jóns for- seta, nefnd Stofnun Jóns Sig urðssonar, eins og Stofnun Áma Magnússonar er kennd við annan kunnasta afreks- mann í íslenzkum fræðum“. L.Í.Ú. telur vinnu- stöðvunina ólöglega — og kærir til félagsdóms Landssamband ísl. útvegs- manna hefur fyrir hönd Út- vegsmannafélags Akraness kært Alþýðusamband íslands f.h. Vélstjóradeildar Verka- lýSsfélags Akraness fyrir fé- lagsdómi. Telja útgerðarmenn að ákvörðun verkalýðsfélags- ins að hefja ekki róðra jafn- gildi vinnustöðvun, Telja út- gerðarmenn aðgerðir verka- lýðsfélagsins ólögmætar og krefjast 200 þús. króna skaða bóta. 3. jan. s.l. samþykkti fund ur í vélstjóra og sjómanna- deild Verkalýðsfélags Akra- ness að hefja ekki róðra fyrr en náðst hafa samningar milli sjómanna og útgerðarmanna og lýsti yfir algjörri vinnu- stöðvun frá 15. jan. Þessi samþykkt var tilkynnt LÍÚ í bréfi 4. jan. LÍU mót- mælti þessari ákvörðun og Fuglar taldir (Framhald ar 1. síðu.) leyti, en á Suðumesjum munu að jafnaði koma 20—30 tegndir á hvern mann á svo sem 8—10 kíló- roetra strandiengju. Stærra svæði getur hver maður ekki kannað í svartasta skammdeginu, þegar ekki er nægjanleg dagsbirta nenia svo sem fimm klukkutíma. Að þess-u sinni mun Þorstemn Einarsson tii dæmis hafa séð 27 tegundir, eu samanlagður fjöldi fugla á leitarsvæði sama manns getur skipt þúsundum. Oft sjást ýmsir flækingar og fágætir fuglar í þessum lei'tum. taldi hana ólögmæta, vegna þess að vinnustöðvun þyrfti að boða með 7 daga fyrirvara. Verkalýðsfélag Akraness tel- ur hins vegar að það hafi ekki lýst yfir ólögmætri vinnu stöðvun. Vertíðarsamningarn ir hafi verið í gildi er sam- þykktin var gerð, og enginn háseti hefði þá enn verið lög skráður á Akranesbáta til línuveiða. Málið var þingfest í félags dómi á fimmtudag og mun koma aftur fyrir dóminn 26. þessa mán. Verkfalliim að Ijúka Brússel — NTB, 20. janúar. — Baldvin konungur ræddi i dag við ýmsa belgíska stjómmála menn um þá hörðu deilu, er hefur nú staðið í mánuö á milli ríkis'stjórnarinnar og stjórnarandstæðinga ’ um sparnaðaráætlanir stjómar- innar. Samtímis bárust frétt ir af þvl í dag, að verkfallið sé mjög i rénun, og standi það nú aöeins í takmörkuðum hluta Vallóníu, eða á þeim stöðum, þar sem jafnaðar- menn tafa tryggasta fylgið. — Samkvæmt fréttasendingum AFP er talið víst, að ekki líði nema fáir dagar, þar til á- standið verði með eðlilegum hætti. Æðarfuglar og veiðibjöllur Algengustu fuglarnir við strönd | ina um þetta leyti árs eru æðar- j fuglar og veiðibjöllur, en einnig' ei mjög margt máfa. Bjargfuglar eru á hafi úti, þar á meðal lunda- j stofninn, sem er stór. Þeirra gætir ekki að vetrinum. Inn til landsins er að sjálf-, sögðu mest af rjúpu. sé rjúnna-! stofninn á annað borð I nokkrum' tlcma. En á honum verða miklarj sveiflur sem kunnugt er. Frá Bindmdis- fálagi öknmaima Starfsemi Bindindisfélags ökumanna hefur legið nokkuð niðri almennt séð, siðustu mánuðina. Ástæðan fyrir þessu er einkum undirbún.ng- Ennfremur segir Þórhallur: „Nú vill svo til, að skjóta má annarri stoð undir þá hug mynd að setja á fót slíka vís indastofnun á næsta ári. Eft ir tæp þrjú ár, 13. nóv. 1963, er þriggja alda afmæli Árna Magnússonar. Það liggur í • augum uppi, að ætli núver- andi kynslóð íslendinga og Dana sér að leysa handrita- málið, er enginn dagur kjörn ari til að sjá þá lausn en fyrr greindur afmælisdagur, vænt anlegur Áma-hátiðardagur. íslenzk stjómarvöld hljóta að leggja á það höfuðáherzlu, að endurheimta hin fomu íslenzku handrit á þeim degi. En hitt er jafnaugljóst, að til undirbúnings og stuðn ings þeirri endurhemt, eiga þau engan styrkari leik en þann að setja upp þá vísincia stofnun, sem hér hefur verið rætt um“. Hér er augsýnilega um at- hyglisverðar tillögur að ræða og full ástæða til að þeim ~ X „A'*'---. ---- ~ Mikilsverður fróðleikur — Þessi árlega fugla'talning hefur gefið góða raun, sagði dr. Finnur Gnömundsson., er blaðið hringdi til hans I gær Með henni hefur fengizt mikill fróðleikur um fuglalíf hér á landi að vetrarlagi. Hún leiðir glöggt I ljós, hvaða fuglar eru hér árvissir, hverjir a.'gengir flækingar og hverjir koma við og við. Nú eru dr. Finni sem óðast að berast skýrsrar þeirra manna.sem tóku þátt i þessum sólhvarfaleit- um að fuglum, og mun hann síð- ar vinna úr þeim, svo sem 2ert et ár hvert. þegar öll kurl eru komin til grafar. Togarar leystir (Framhald af 1. síðu.) um' á sjóinn. í annan stað er þess' vænzt, að ráðstafanir vær, sem ríkisstjórnin gerir með bráðabirgðalögumttn fari «enn að koma útgerði’ini til góða. Verlð er að lagfæra Svalbak og Norðlendlng, og komast þeir ekki út fyrr en ur tryggingamálanna og starf-1 ið að lausn þeirra. Nú er starfsemi félagsins á ný aukin svo sem unnt er og eru ýms mál í deiglunni. Þá er þess að geta, að nú hefur BFÖ samið við Egil | Sigurgeirsson, hrl., um lög-' fræðilega þjónustu, sem veitt verður félagsmönnum ókeyp- is. Er þjónusta þessi i sam- bandi v£5 umferðamál, og verður hún nánar auglýst í UMFERÐ. Fríðindi þau, sem Bindindis félag ökumanna veitir nú þeg ar félögum sínum, og inni- falin eru I ársgjaldinu, eru þegar orðin, sem hér segir: 1. Tímaritið UMFERÐ. 2. Smá slysatryggingar í ákveðn um tilfellum. 3. Eitt lögfræði legt viðtal í vissum tilfellum. 4. Sértryggingar fyrir bíla frá og með 1. ma.í n.k. og innan skamms einnig á fjölmörgum öðrum sviðum. | -- Sálmabók og biblía á færeysku Um þessar mundir er unn ið að því af kappi að binda inn tuttugu þúsund eintök af færeyskri kirkjusöng- bók — hinni fyrstu, er Færeyingar fá á sínu máli. Hún var prentuð í Þórs- höfn, en bundin í Kaup- mannahöfn og í herini eru 430 sálmar. Þegar þessu verk er lok ið, verður hafizt handa um útgáfu biblíu á færeysku. Bilaðar taugar „Ár og síð ég er í voða”, mættu Alsírbúar segja. Fimmt án ára drengur, franskur, var að leik með félögum sínum í grennd við járnbrautarstöð ina í Algeirsborg með krakka byssu.. Lögregluþjónn sá drenginn taka byssuna upp úr vasa sínum og skaut hann umsvifalaust til bana með skammbyssu sinni. Lögreglan ætlaði að þagga þetta mál niður, eins og títt er um hneykslismál í Alsír, og ritskoðunin kom fyrst í staö í veg fyrir, áð nokkurs væri minnzt á þennan atburð. Blöð í París komust samt á snoðir um hann og birtu frásögn. Sala þeirra blaða hefur verið bönnuð í Alsír. Nú hefur lögregluþjónninn samt verið ákærður. v. \ Bátar í höfn ekki veíðiveður Síldveiði var ekki teljandi í gær. . Akranessbátar lágu allir í höfn, nema tveir rek- netabátar, sem höfðu fengið tregan afla, 6 og 11 tunnur síldar. Sunnan eða suðaustan kaldi var á miðunum. Eftir hádegið I gær' hafði blaðið spurnir af, að einhverjir fóru út, a. m. k. Víðir II og Jón Garðar, sem létu úr höfn í Sandgerði, þrátt fyr'ir mjög vafasamt veiðiveður. Víðir II kom inn I gærmorgun með 670 tunnur og Guðbjörg 131, báðir til Sandgerðis. Aflinn var saltaður og frystur. Keflavíkurbát ar' lágu allir í höfn síðdegis, en vafalítið var talið, að þeir myndu láta úr höfn, þegar er þeir fréttu um einhvern afla hjá þeim, er úti voru. í fyrradag kom togarinn Neptúnus inn eftir 40 klst. útivist ,með 730 tunnur sem veiddust í síldarvörpuna sem verið er að gera tilraunir með. Bjórinn kl. 2 í dag í dag kl. 2 verður almennur um- r'æðufundur í Sjálfstæðishúsinu á vegum Stúdentafélags Reykjavík- ur. Rætt verður um bjórinn. Frum mælendur eru þeir Benedikt Bjarklind stórtemplar og Friðfinn ur Ólafsson forstjóri. Öllum er heimill aðgangur að fundinum meðan húsrúm leyfir. • W iVX*-V^* W ViX'*V*V»X«X«Xi-' Framkvæmdastjóri Okkur vantar framkvæmdastjóra fyrlr Bifreiða- og vélaverkstæði, svo og varahlutabúð. — Upp- lýsingar um fyrn störf og kaupkröfur sendist skrifstofu félagsins sem fyrst. Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki Ibúð til leigu íbúð, 2 herbergi og eldhús til leigu nú þegar, fullorðið fólk gengur fyrir Fyrirframgreiðsla eftir samkomulagi. Tilboð leggist inn á afgreiðslu blaðsins fyrir þriðjudagskvöld, merkt ,.Góð íbúð“. ÞAKKARÁVÖRP Innilegar þakkir til allra, sem hjálpuðu mér á sjöunda tuginn með heimsóknum, góðvild og gleði, gjöfum, kveðjum og orðsins list. Eiríkur Stefánsson Hjartans þakkir fyrlr auösýnda samúð og vlnáttu vlð fráfall elgin- konu mlnnar og móður okkar, Ragnhildar Pjetursdóttur, Hátelgl. Reykjavík, 22. janúar 1961. Halldór Kr. Þorsteinsson, Ragnhildur Halldórsdóttir, Kristín Halldórsdóttlr, Guðný Ó. Halldórsdóttir. -•-’jí* T—m-X.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.