Tíminn - 26.01.1961, Síða 2

Tíminn - 26.01.1961, Síða 2
2 TIMIN N, fimmtudaglnn 26. janúar 3L9fiJ. Kasavúbú og Tshombe fallast sáttir í faðma Forsetnisi botSar breytingar á innanlandsmálum í anda Tshombe Leopoldville 25.1. (NTB) f dag setti Joseph Kasavubu forseti ráS- stefnu 500 leiðtoga í Kongó hér í borg. Ekki eru þar þó fulltrúar frá Orientale og KívúhéruSum, sem bæði eru á valdi fylgismanna Lúmúmba. Sömuleiðis hefur stjórn Tshombe í Katangafylki ekki sent fulltrúa á ráðstefnu þessa. í setningarræðu sinni sagði Kasavúbú forseti m.a.: Þessi ráð- stefna ar aðeiþs undirhúningur ■aV ráðstefnu leiðtoga Kongó, sem haldin verður í næsta mánuði. Nú sjö mánuðum eftir að Kongó Sjóræningjarnir (Framhald af 1. síðu.) um borð í Santa María, er skipið var s-tatt á Karíbahafi. Þetta er 20 þúsund smálesta farþegaskip r.ieð 370 manna áhöfn og 600 far- þegar eru með skipinu — mest auðkýfingar víðs vegar að úr heimi. Uppreisnin var gerð með þeim hætti, að 70 vopnaðir menn undir forystu Galvao, fyrrum of- ursta í her Portúgal, komu um borð í skipið og þóttus-t vera far- þegar, en þegar skipið var komið á haf út; drógu menn þessir fram vopnin og yfirbuguðu áhöfnina. Leiðtogi uppreisnarmanna, Gal- vao, er mikill andstæðingur Sal- azar einræðisherra í Portúgal. Hann segir skipið tekið í nafni ar.dspyrnuhreyfingar gegn Salazar, en leiðtogi þeirrar hreyfingar sé Delgado herforingi, sem var í framboði gegn Salazar við síðustu kosningar í Portúgal. Segir Gal- vao, að Delgado sé hinn rétt- k.-örni forseti landsins, en Salaz- a) hafi náð völdum með kosninga- falsi. Galvao segir skipið tekið til þess síðar að flytja með því inn- rásarmenn til Portúgal. Ránið löngu ráðgert í dag heyrðist til Galvao um loftskeytastöð Santa Maríu. Sagði uppreisnarforinginn m.a., að hann myndi aldrei láta skipið af hendi, og vonlaust væri að veita hon- um eftirför. Yrði það gert, myndi hann sökkva skipinu með öllu innanborðs. Sagðist hann viljla undirstrika þá ábyrgð, sem menn tækju á sig, ef þeir reyndu að taka skipið. Galvao segist vera reiðubúinn að setja farþegana í land í einhveiri hlutlausri höfn, ef öruggt sé, að skipið verði ekki af honum tekið. Þá segir Galvao, a£ öllum líði vel um borð, og þar gangi allt eins og það á að vera. Delgado sá, sem fyrr er nefnd- ur og nú er landflótta í Brasilíu, sagði í Sao Paulo í dag, að taka Santa Maríu hefði verið á döfinni allt frá því i apríl í fyrra. Sagðist hann sjálfur standa á bak við þessar aðgerðir. Sföustu fregnir: Bandaríski sjóherinn segir, að Santa María sé nú um 1500 km austur af Trinidad. Portúgalir eru þeirrar skoðunar, að skipinu sé stefnt til eyja undan vestur- stönd Afríku. Hafa Portúgalir mikinn viðbúnað og hafa sett á flot öll sjófær herskip sín til þess að reyna að fanga skipið. Stjórn Portúgals hefur beðið Frakka um að framselja skipið, ef það komi til hafnar á frönsku yfirráðasvæði. Sams konar beiðni hefur verið send stjórnum Breta og Bandaríkjanna. fékk sjálfstæði, er málum lands- ins komið í mikið óefni. Verk- efni þessarar ráðstefnu og þeirr- ar. sem saman kemur í febrúar, er að finna lausn á þeim vanda. sem ríkir í málum Kongó. Kong- óska þjóðin verður að nýju að hefja baráttu fyrir velmegun sinni og skapa sér virðulegan sess meðal frjálsra og fullvalda þjóða. SAMKOMULAG? Forsetinn sagði, að fylkjaskipt- ingin í landinu væri skringileg og í engu samræm við óskir og þarf- ir þjóðarinnar. Sagði hann, að taka þyrfti fylkjaskipunina til ná- ltvæmrar athugunar. Forsetinn sagði, að hann væri hlynntur því, að einstök fylki fengju verulega sjálfsstjórn um eigin mál, en margt yrði þó að vera sameigin- legt s. s. hermál. Stjórnmálafréttaritarar í Leop- oldville túlka ræðu forsetans 'á þá lund, að hann vilji ná sam- komulagi við stjórn Tshombe í Ifatanga. Bendir og flest til þess nú, að sætlir muni takast milli stjórnarinnar í Leopoldville og Tshombe. Á það er meðal annars bent, að fyrirhuguð er nú stofn- nn sameiginlegs herafla þeinra Kasavúbú, Tshombe og Kalonji fvlkisstjóra í námuríkinu í Kasai. A her þessi að halda niðri stuðn- ingsmönnum Lumumba, KosningaríBelgíu í marz Brussel 25.1. (NTB) Kosn- ingar verða látnar fram fara i Belgfu I marz n.k sennilega fyrir páska. Frá þessu skýrði Roger Motz foringi frjáls- lyndra í Brussel í dag. Sagði Motz, að eftir viðræður frjáls- lyndra við Gaston Eyskens forsætisráðherra og flckk hans — kaþólska — hsfði verið ákveðið að efna til þing- kosninga í landinu sennilega 26. marz n.k. Ráðgert er, að áður en kosn- ingar þessar fara fram, muni belg íska þingið samþykkja „viðreisn- ar“-frumvarp ríkisstjórnarinnar, en út af því spunnust hin miklu verkföll í landinu svo sem kunn- ugt er af fyrri fréttum. Fyrir bíl í fyrradag varð lítil stútka fyrir strætisvagni á Reykjanesbraut skammt frá Shell. Hún skrámaðist eitthvað í andliti, en meiddist ekki frekar. London 25.1. (NTB) — Haft er eftir nokkuð áreiðanlegum keimildum, að Nikita Krústjoff forsætisráðheira Sovétríkjanna muni halda til New York í marz- byrjun n.k. til þess að vera við- staddur, er allsherjarþing SÞ tek- Manni bjargað (Framhald ar 1. síðu.) þegar gert viðvart. Kom það á vettvang, og var maðurinn fluttur í slysavarðstofuna. Eldurinn var kæfður, en miklar brunaskemmdir urðu í herberg- inu, og eyðiiögðusrt flestar eigur leigjandans af eldi og reyk. Talið er, að e.t.v. hafi kviknað í út frá vindlingi, en málið er þó ekki kannað til hlítar. Af manninum er það að segja, aö hann var talinn úr lífshættu í gær, en til öryggis fluttur á sjúkra hús. Mun hann hafa andað að sér rpiklum reyk. Arabar kalla heim hermenn Leopoldville (NTB). Stjórn arabíska sambandslýðveldisins hefur ákveðið að kalla heim hermenn sína í gæzluliði SÞ í Kongó. Hammarskjöld aðal- ritara SÞ hefur verið tilkynnt þessi ákvorðun og hann beð- inn að sjá svo um, að her- mennirnir geti farið frá Kongó fyrir lok þessa mán- aðar. Stjórn Arabiska sambands lýðveldisins tók þessa ákvörð un á skyndifundi í Kairó í morgun. Segir, að S.þ. hafi al- gerlega brugðist hlutverki sínu í Kongó. Af þeirri ástæðu muni stjórn Arabiska sam- bandslýðveldisins þegar kalla heim hermenn sína i land- inu. Jafnframt er því lýst yfir, að stjórn Arabiska sambands lýðveldisins styðji Patrice Lumumba, hinn fangelsaða forsætisráðherra, og sé reiðu búin að veita honum herstyrk ef svo þyki henta. Datt og meiddist á andliti Laust eftir klukkan hálf- fjögur í gær varð það slys í frystihúsinu ísbirninum. að færeysk stúlka, sem þar vinn ur, datt á gólf og meiddist eitt hvað í andliti. Sjúkrabíll flutti hana á slysavarðstof- una. Gamanleikur I fyrrakvöld var frumdýndur’ | í samkomuhúsinu á Akureyri gam anl-eikurinn Vængstýfðir englar. Menntaskólanemendur sýna s'jón- leik þennan. Þetta er skemmtileg-! ur leikur, yfir sýingunni fjörugur og ferskur blær, og þetta gengur glaðlega fyrir sig eins og vant er um sýningar menntaskóknem- enda. ED. ui til starfa að nýju. Talið er fullvíst, að Krustjoff mun ireyna í ferð þessari að ná talj af hinuin nýja forseta Banda- ríkjanna, John F. Kennedy, sem um þessar mundir ræðir utanríkis mál við heiztu ráðgjafa sína. Krústjoff til New York í marz n.k.? Kennedy ræddi við ráðherra Washington (NTB) — Kenn- edy Bandaríkjaforseti hefur rætt við þá Rusk, utanríkis- ráðherra, McNamara, land- varnaráðherra, McGeorge Bundy, sériegan ráðherra um öryggismái landsins og fleiri háttsetta embættismenn um sambúðina milli Bandaríkj- anna og Sovétríkjanna. Krustjoff, fors.ráðh. hefur átt tveggja stunda viðræður við ambassador Bandar. í Moskva, Thompson, og sendi hinn síðarnefndi skýrslu til stjórnarinnar í Washington þegar á eftir. Talið er, að Krustjoff hafi óskað eftir fundi með Kennedy sem allra fyrst. Annars hefur ekkert verið látið uppi við blaðamenn um skýrslu Thompson, en það er fyrst og fremst hún. sem Kennedy hefur haft til með- ferðar í samvinnu við ráð- herra sína í dag. Frá Aljiingi (Framhald af 7 síðu). Sjálfstæðismenn hefðu við af greiðslu fjárlaga fellt tillögur Framsóknarmanna um hækk un atvinnuaukningarfjár. — Það væri undarlegt, að þeir menn, sem áður hafa flutt frumvarp um sama efni sjálf ir, skuli nú flytja þingsálykt unartillögu um það efni. Sigurður Bjarnason sagði að því aðeins væri hægt að auka atvinnu og framleiðslu úti um landið að höfuðbja.rg ræðisvegunum væri komið á heilbrigðan grundvöll. Sigurvin Einarsson kvaðst sammála um að það væri nauð synlegt að koma atvinnuveg unum á heilbrigðan og örugg an grundvöll, en eru þeir það nú? Eru þeir nær því að vera það en þeir voru fyrir ári síð an og er nokkur von til þess að þeir verði það nokkurn tíma, ef sömu stefnu er fylgt? Sagði Sigurvin að stuðnings- menn stjórnarinnar tækju nú li;laí[siiiiílaskólinn ■■■ Munið íélagsmálaskólann í kvöld kl. 8,30 í Framsókn- arhúsinu. Páll Þorsteinsson alþingismaður og Örlygur Hálfdanarson fulltrúi leið- beina um byggingu ræðu. Þátttakendur geta enn kum- izt að. ætíð orðið fyrirvara varðandi viðreisnina........ef viðreisn in heppnast. Viðreisnin hef- ur fengið að standa í friði fyrir Guði og mönnum í heilt ár og þetta „ef“ er orðið nokk uð hvimleitt. Gísli Jónsson kvaddi sér hljóðs og vakti umræður um frumvarp í þessa átt, sem hefði dagað uppi á þinginu 1956. Sagði Gísli að Fram- sóknarmenn hefðu drepið mál ið þá, því að þeir hefðu hleypt í gegn breytingartillö'*”’--' fi*á kommúnistum, sem gerði það að verkum að Ólafur Thors taldi sig ekki geta fylgt mál- inu. Gisli Guðmundsson sagði að það frumvarp hefði reyndar breytzt í meðförum þingsins, en breytingarnar hefðu verið til bóta að sínu áliti, þótt þær hafi ef til vill orðið til þess að Sjálfstæðismenn trpvgtu sér ekki til að fylgja málinu. Sagðist Gísli ekki sjá hvað fyr ir flutningsmönnum þessara þingsályktunartillögu vekti, því tillagan væri eins konar dagskrártillaga við frumvarp það um sama efni, er væri til meðferðar í efri deild. Það væri annað þingið, sem það frumv. væri flutt á og áður hafa verið flutt frumvörp er gengu í sömu átt m.a. af flutn ingsmönnum þessarar þings- ályktunartillögu, og málið ætti því að vera orðið það und irbúið og hugsað af þingmönn um að engin ástæða væri að draga það enn von úr viti með samþykkt þessarar þingsálykt unartillögu. Urðu enn nokkur orðnsHno'i milli þeirra nafna, Gisla Guð mundssonar og Gísla Jónsson ar um málið. Hannibal Valdi marsson lauk umræðunni og sagðist vilja taka undir það sem Sigurvin hefði sagt að bað færi illa saman slíkur tillögu flutningur og fylgispekt við viðreisnina, því að einn þátt- ur viðreisnarinnar væri m. a. sá að draga fé utan af lands byggðinni í frystihús Seðla- bankans í Reykjavík. Þá sagð ist hann vilja leiðrétta það í sambandi við frumvarpið 1956, að það hefðu ekki verið kommúnistar sem báru fram breytingartillögurnar heldur Alþýðuflokksmenn, en hann hefði þá fylgt Alþýðuflokkn- um að málum. Dagskrá DAGSKRÁ efri delldar Alþingis fimmfudaginn 26. jan. 1961, kl. U/2 mlðdegis. Lögskráning sjómanna, frv. — 1. umr. DAGSKRÁ neðri deildar Alþingis fimmtudaginn 26. jan. 1961, ki. V/2 miðdegis. 1. Siglingalög, frv. — 1. umr. 2. Sjómannalög, frv. — 1. umr. 3. Varnir gegn útbreiðslu jurta- sjúkdóma, frv. — 1. umr. 4. Fjárreiður Sölumiðstöðvar hrað- frystlhúsanna, þáltill. — Ein umr. Flokksstarfift í bænum Kópavogur Aðalfundur fultlrúaráðs Framsóknarfélaganna í Kópavogi verður haldinn í kvöld fimmtudaginn 26 janúar í Kársnesskóla kl. 8,30 e.h. — Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. AÐALFUNDUR FUF í KEFLAVÍK Aðalfundur FUF i Keflavík verður haldinn mánudaginn 30. janúar n.k., kl. 9 e.h. í Ungmennafélagshúsinu, uppi. Fundarefni: Venjuleg

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.