Tíminn - 26.01.1961, Page 5
TÍMINN, fimmtudaginn 26. janúar 1961.
5
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
Framkvæmdastjóri: Tómas Amason. Rit-
stjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb.), Andrés
Kristjánsson, Jón Helgason Fulltrúi rit-
stjómar: Tómas Karlsson Auglýsinga-
stjóri: Egill Bjamason. — Skrifstofur
í Edduhúsinu. — Símar: 18300—18305
Auglýsingasimi: 19523 Afgreiðslusími:
12323. — Prentsmiðjan Edda h.f.
Kjarahætur sjómanna
Hinir nýju samningar, sem hafa náðst milli bátasjó-
manna og útgerðarmanna eftir 10 daga verkfall, er mikill
sigur fyrir þá fyrrnefndu. í flestum aðalverstöðvum munu
kjör bátasjómanna batna um 15—25%, þegar miðað er
við síðastl. ár. í þessum útreikningum er bæði tekið til-
lit til hækkunar aflahluta og hækkunar fiskverðs, en fisk-
verðið til sjómanna, sem var lögbundið allt seinasta ár,
hækkar nú verulega. Þá bafa sjómenn fengið ýmis hlunn-
indi önnur, t. d. fellur niður öll þátttaka þeirra í útgerðar-
kostnaði, kauptrygging hækkar um 9% á sumar- og
haustvertíð, og eftirleiðis mun þeim jafnan tryggt sama
fiskverð og útgerðarmönnum.
Þessar auknu kjarabætur til sjómanna eiga ekki að
þurfa að hafa þau áhrif, að hagur útgerðarinnar versni,
miðað við seinasta ár. Vegna lækkunar þeirrar, sem orð-
ið hefur á vöxtum, lækkar bæði útgerðarkostnaðurinn
nokkuð og fiskvinnslustöðvar greiða hærra fiskverð en
í fyrra. Þá benda allar fregnh’ af erlendum mörkuðum
til þess, að útflutningsverðið muni fara hækkandi. Af-
komuhorfur hjá útgerðinni eru því batnandi framundan.
Fyrir útgerðina er það áreiðanlega ávinningur, að
heildarsamningar hafa nú náðzt, í stað þess að áður giltu
sérsamningar fyrir nær hverja verstöð. Þetta leiddi af
sér óeðlilegt kapphlaup og ringulreið, sem er nú von-
andi úr sögunni.
Ánægjulegast hefði verið, að sjómannasamningarn-
ir nýju hefðu getað náðst án þess að verkfall hefði þurft
að koma til. Mikil verðmæti hafa að sjálfsögðu farið for-
görðum vegna þess, að nær allur flotinn var stöðvaður
meðan á verkfallinu stóð. Auk þess dró yfirvofandi verk-
fall víða úr róðrum áður en til þess kom. Vafalaust nem-
ur það tap, sem þannig hefur orðið til ,tugum'milljóna
króna í erlendum gjaldeyri. Það, sem mestu olli um þess-
ar tafir, var sú afstaða rikisstjórnarinnar, að hún hvatti
útgerðarmenn til þess að semja ekki um neinar hækkan-
ir. Útgerðarmenn hættu þó fljótlega að fara eftir þess-
um ráðleggingum og gengu til móts við sjómenn á eðli-
legan hátt. Þessvegna hafa nú náðzt farsæl málalok.
Þetta mætti hins vegar vera til eftirbreytni framveg-
is. Atvinnurekendur ættu ekki að óþörfu að láta etja sér
út í verkföll, þótt einhverjir valdamenn hvetji til þess.
Það er betra að taka sanngjarnt tillit til verkafólksms,
eins og útgerðarmenn hafa gert.
Cyifa ilia þakkað
Alþýðublaðið hælir mjög Birni Pálssyni í gær fyrir
ræðu, sem hann flutti nýlega á Alþingi. Blaðið segir að
málflutningur Björns hafi verið sérlega sanngjarn og
réttmætur. í þessari ræðu sýndi Björn m. a. fram á, að
sá eini ráðherra, er hefði tekið þátt í þessum umræðum,
Gylfi Þ. Gíslason, hefði farið með algerléga rangar töl-
ur um vaxtamálin og allt það, sem hann hefði sagt um
greiðsluhallann væri hrein og bein endaleysa. Með því
að lýsa samþykki sínu á ræðu Björns, tekur Alþýðub:að-
ið að sjálfsögðu undir-þessi ummæli hans um málflutn-
ing Gylfa.
Mbl. hælir einnig ræðu Björns og gerir engar athuga-
semdir við ummæli hans um Gylfa. Það eru því harla
litlar þakkir, sem Gylfi fær hjá stjórnarliðinu fyrir það
að vera þó eini ráðherrann, er reyndi að réttlæta „rið-
reisnina“.
Fólk, sem talað er um
f íveimur forsetakosningum í
Bandaríkjunum leiddu þeir
Eisenhower og Adlai Stevenson
saman hesta sína og kepptu um
æðsta embætti landsins. Eisen-
hower sigraði glæsilega í bæði
skiptin vegna þeirrar lýðhylli,
er hann naut sqm gamall hers-
höfðingi, en utan Bandaríkj-
anna hefur víðast verið litið
svo á, að forusta Stevensons
myndi hafa reynzt Bandaríkjun
um heppilegri en forusta Eisen-
howers á undanförnum árurn.
Óhætt má segja, að á þessum
tíma hefur enginn Bandaríkja-
maður notið slíks álits utan
Bandaríkjanna og Stevenson.
Nú er skipt hlutverkum hjá
þeim Eisenhower og Stevenson.
Eisenhower er nú orðinn
óbreyttur borgari og seztur að
á búgarði sínum í Gettysburg,
þar sem hann hyggst að eyða
seinustu árum ævinnar. Steven-
son hefur hins vegar tekið við
aðalfulltrúastarfi Bandaríkj-
anna hjá Sameinuðu þjóðunum
og fær nú tækifæri til þess að
láta áhr'ifa sinna gæta á vett-
vangi aiþjóðamálanna. Því hef-
ur verið fagnað viðast í heim-
inum, að Stevenson skyldi taka
við því starfi, því að Bandarík-
in eigi ekki völ á öðrum betri
manni til þess að vera fulltrúi
þeirra þar.
Líklegt þykir, að Stevenson
myndi ekki hafa tekið við þessu
staifi, nema hann fengi að ráða
nokkuð miklu um stefnu Banda
ríkjanna á vettvangi S. Þ. Það
er og talið líklegt, að hann
muni heldur kjósa að víkja úr
starfinu en að framfylgja ein-
hverju því, sem hann telur
ekki rétt.
Stevenson var í góðu skapi,
er blaðamenn ræddu við hann
á mánudaginn, en neitaði að
svara spurningum fyrr en á
blaðamannafundi í dag.
Stevenson fyrrr framan aðalanddyrið á Höll S. Þ., er hann kom
þangað slðastl. mánudagsmorgun til að afhenda Hammarskjöld
embættisbréf sitt.
Eisenhower á morgungöngu hjá búgarði sínum í Gettysburg síðastl. laugardag eða daginn eftir að
iiann lét af forsetastörfum.
/
'/
'/
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
/
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
/
'/
J
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
/
)
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
/
/
/
/
/
/
'/
/