Tíminn - 27.01.1961, Side 1
Áskriftarsíminn er
1 2323
22. fl>L — 45. árgangur.
íslendingar eru mikil ökuþjóS,
enda streyma bílarnir jafnt og
þétt til landsins. Myndin hér aS
ofan er af bílakössum inni við
Suöurlandsbraut, þar sem um
tvö hundruö bílar bíða afgrelðslu.
Þetta eru Moskovitsch-bílar, og
mun meirihluti þeirra þegar seld-
ur, að þvl er blaðinu hefur verið
tjáð.
í þessari árgerð er stærri gír-
kassi en verið heíur og fjórir
gírar áfram. Auk þess er vatns-
kassahh'f öðru visl en verið hef-
ur.
Rússneskur verkfræðingur frá
bíiasmiðjunum hefur verið hér á
landi í vetur til þess að kynna
sér, hvernig bíiarnir endast á ís-
lenzkum vegum. Ljósmynd: TÍM-
INN, KM.
15 metra öldur við
veðurskipið India
Föstudagur 27. janúar 1961.
FEugsamgöng-
ur tepptust
vegna veðurs
Heita má að allt innanlands
flug hafi legið niðri vegna
veðurs í gær. Ein flugvél fór
þó til Akureyrar og átti að
fara þaðan til Þórshafnar og
Kópaskers. Flugvélin tepptist
á Akureyri. og var verið að
binda hana niður, er blaðið
hafði tal af afgreiðslu Flugfé-
lagsins á Akureyri.
45 hnúta hliðarvindur var á
(Framhald á 2. síðu.)
Versta veður af suðaustri
gekk yfir Reykjavík í gær, og
komst veðurhæðin í 12 vind-
stig í hryðjum. Um fimmleyt-
ið í gærdag hafði veður heldur
lægt, og hið versta var um
garð gengið. 13 vindstig voru
á Stórhöfða í Vestmannaeyj-
um klukkan tvö í gærdag, og
15 metra háar öldur við veð-
Geitur í svelti
í klettum á Austfjörðum
Þetta er að vísu ekki höfðingi hjarðarinnar, sem hefst við í klettunum í
Barðsneshorni En þetta er eigi að síður myndarlegur hafur — og án efa
fótfimur. (Ljósmynd: Óskar Sigvaldason.)
Undanfarið hafa sjö geitur
gengið sjálfala í Barðsnesi
sunnan Norðfjarðarflóa. Þær
eru þarna í klettum, þar sem
mjög torsótt er að þeim. Mögu
leikar á beit á þessum stað
eru mjög litlir, og er reyndar
| viðbúið, að einhver jar geit-
anna hafi þegar látið lífið af
völdum illviðra, ef ekki sultar.
Tildrög þessa mál em þau, a5
eigandi geitanna, Skarphéðinn
Stefánsson, fluttist í sumar búferl-
um frá Reyðarfirði til Neskaup-
staðar. Hafði hann með sér geitur
sínar, sjö að tölu. Fór hann með
geitur’nar á eyðibýli sunnan Norð-
fjarðar, sem heitir Barðsnes, og er
á norðurströnd samnefnds skaga,
er afmarkar Norðfjarðarflóa að
sunnan og austanverðu.
Leitarmenn fundu þær
Þarna héldu geiturnar sig allt
sumarið og langt fram á haust. Af
einhverjum ástæðum dróst, að eig-
andi vitjaði geitanna, og þegar átti
að sækja þær, voru þær horfnar.
Fjárleitamenn í eftirleitum urðu
síðan varir við þær. Voru þær
komnar utar í nesið, út með firð-
inum, og þar munu þær enn vera,
(Framhald á 2. síðu.)
urskipið India, um 500 km
suSur af Dyrhólaey.
„Þetta er eins og vetrarveður
geta orðið“, sagði Jónas Jakobs-
son, veðurfræðingur, er blaðið
hafði tal af honum laust eftir kl.
fimm í gær.
Loftvogin snarféll
Veðri þessu olli lægð, sem um
hádegisbilið í fyrradag var suð-
austur af Nýfundnalandi og þá
ekki beysin. Síðari hluta dags í
fyrradag fór lægð þessi að færast
í norðaustur, dýpkaði hún þá og
færðist öll í aukana. Um klukkan
tvö í gærdag var hún 300 km.
suður af Vestmannaeyjum, farin
að hægja á sér og orðin mjög djúp,
(^ramhald á 2. siðu.)
Sauðburður
í janúar
Það bar til tíðinda á bæn
um Syðstu-Mörk í Vestur-
Eyjafjallahreppi s.l. sunnu-
dag, að f jögurra vetra göm-
ul ær, efgn Sigríðar Ólafs-
dóttur, bar tveimur lömb-
um. Annað lambið er sér-
staklega vænt og fallegt,
en hitt í meðallagi. Ærin
var lamblaus í fyrravor.
Er hér um að ræða fátíðan
atburð, enda þótt aukizt
hafi á síðari árum að ær
taki upp á því að bera á
annarlegum tímum árs.
— P.J.
Grimsbyáskorun í fiskveiíideilunni:
Samninga eða
herskipavernd
Khöfn í gær — einkaskeyti
til TÍMANS: Danska útvarpið
skýrði svo frá í dag, að brezk-
ir fiskimenn hafi á fundi í
Grimsby í gær samþykkt á-
skorun til brezku ríkisstjórn-
arinnar, varðandi fiskveiði-
deilu íslendinga og Breta.
Segir þar m.a., að ríkisstjórn-
inni beri annað hvort að leita
eftir endanlegri lausn á deil-
unni eða hefja fiskveiðarnar
við ísland á nýjan leik undir
herskipavernd.
Formaður félags yfir-
manna á Grimsbytogurum
tilkynnti ríkisstjórninni sím
leiðis samþykkt fundarins og
lagði á það áherzlu, að vor-
vertíðin væri senn framund-
an, en það væri langfengsæl-
asta vertíðin, sem brezkir
sjómenn hefðu nógu oft
orðið að fara á mis við síð-
ustu árin. Aðils.
■SDHHEflBBBMHHttHHuól