Tíminn - 27.01.1961, Síða 5

Tíminn - 27.01.1961, Síða 5
TÍMINN, föstudaginu 22. janúar 1961. 5 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN. Framkvæmdastjóri: Tómas Arnason. Rit- stjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb.), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason Fulltrúi rit- stjórnar: Tómas Karlsson Auglýsinga- stjóri: Egill Bjarnason — Skrifstofur í Edduhúsinu — Simar: 18300—18305 Auglýsingasími: 19523 Afgreiðslusími: 12323. — Prentsmiðjan Edda h.f. y_________________________________________ ■■ ■ ■ Lánstraustið Ef litið er yfir málflutning stjórnarliðsins nú og fyrir ári síðan, þá kemur það næsta glöggt í ljós, að vart stendur nú steinn yfir steini af því, sem þeir sögðu þá. Svo gersamlega hefur allt það, sem þeir sögðu í fyrra, hrunið til grunna. Þeir sögðu, að „viðreisnin“ mynui bæta hag atvinnu- veganna, auka sparifjársöfnunina, gera greiðslujöfnuð- inn við útlönd hagstæðan o. s. frv. Allt hafa þetta reynzt falsspádómar. Þá töluðu þeir um greiðsluhalla við útlönd sem hinn stórfelldasta háska, enda þótt hann stafaði af öflun láns- íjár til framleiðsluaukningar. Nú seg]a þeir, þegar fyrir liggja tölur um hinn mikla greiðsluhalla seinasta árs að hann sé í stakasta lagi, því að hann stafi af skipa- og flugvélakaupum. Þannig má rekja þetta nær endalaust áfram Að sinni verður þó látið nægja, að bæta við einu dæmi enn. í fyrra deildu ráðherrarnir hart á vinstri stjórnma fyrir það, að hún hefði tekið alltof mikið af lánum. Nú er hins vegar komið annað hljóð í strokkinn: Vinstri stjórnin hafði ekki nægilega mikið lánstraust. Svo er bætt við: Lánstraustið var alveg þrotið. þegar vinstri stjórnin fór frá völdum, en var endurreist með „viðreisninni.“ í næstu andránni er svo sagt: Nær allur greiðsluhalli áranna 1959 og 1960 stafar af lántökum vegna fram- kvæmda, sem búið var að semja um áður en núv. ríkis- stjórn kom til valda, einkum þó í tíð kratastjórnarinnar 1959. M. ö. o.: Vinstri stjórnin skyidi við lánstraustið í ekki lakara lagi en svo, að næsta ríkisstjórn gat stofn- að til lántaka, sem nálgast munu emn milljarð króna' Þannig gildir það um allan málflutning stjórnarliðs- ins, að eitt rekur sig á annars horn. Sannleikurinn er sá, að vinstri stjórnin hafði nægi- legt lánstraust og það hafði kratastjórnin einnig. . Við- reisnin“ þurfti því ekkert lánstraust að endurreisa. Það sjá líka allir, að hinn mikli greiðsluhalli á síðastl ári, er síður en svo líklegur til að styrkja lánstraustið, heldur mun miklu fremur veikja það. En þrátt fyrir þessar staðreyndir, hamra nú Ólafur Thors og Gylfi Þ. Gíslason á því, að stjórnin hafi enuur- reist lánstraustið! Það er nú seinasta hálmstrá þeirra. Þegar Gylfi þagði Af hálfu ráðherranna hefur verið talsvert flaggað með því, að fyrir hafi legið á síðastl. vetri þær yfir- lýsingar frá erlendum fjármálamönnum og fjármála- stofnunum, að íslendingar hefðu hvergi neitt lánstraust erlendis, nema breytt yrði um efnahagsmálastefnu og „viðreisnin“ tekin upp. í umræðum, sem nýlega fóru fram á Alþingi, beindi Þórarinn Þórarinsson þeirri fyrirspurn til Gylfa Þ. Gísla- sonar, sem hafði hampað þessu í ræðum sínum, hvaða erlendir fjármálamenn og fjármálastofnanir hefðu gefið þessar yfirlýsingar. Gylfi svaraði spurningunni fyrst út í hött, en þegar spurningin var endurtekin, tók hann þann kost að svara ekki. Það skyldi aldrei vera, að þessar yfirlýsingar, sem stjórnin vitnar svo oft í, séu alls ekki til eða gefnar af mönnum, sem ekkert þekkja til íslenzkra efnahagsmála og ekki gátu fellt neina dóma um lánstraust íslands? Gylfi er ekki vanur því að láta spurningum ósvarað, ef hann getur svarað þeim. ERLENT YFIRLíT Deila Ben - Gurions við Lavon Leiíir hún til stjórnarkreppu og öngþveitis í lsrael? UM NOKKURT skeið hefur staðið yfir deiia innan ríkis- stjórnarinnar í fsrael, sem tal- in er vel geta leitt til pólitísks öngþveitis í landinu. Um hiíð virtist hún geta leitt til þess, að Ben-Gurion legði niður stjórnarforustu og mikill klofn ingur skapaðist í flokki hans, sem er langstærsti og áhrifa- mesti flokkur fsraels. Þessu hefur nú verið afstýrt um sinn, en þó sennilega ekki nema til bráðabirgða. Flokkur Ben-Gurions, Mapei, er róttækur jafnaðarmanna- flokkur. Hann hefur verið helzti stjórnarflokkurinn alla tíð síðan ísrael var sjálfstætt ríki, en hafði áður um langf skeið verið stærsti stjórnmála- flokkur landsins. Ef hann klofn aði, og flokksbrotin tækju upp fjandsamlega afstöðu hvort gegn öðrum, myndi veiða mjög örðugt að mynda starfhæfa stjórn í ísrael og myndi það mjög getað lamað mótstöðu- þrótt þessa nýja ríkis gegn hin- um hatrömmu andstæðingum, Aröbum, er umkringja það á allar hliðar. UMRÆDD DEILA rekur ræt ur sínar alllangt aftur í tímann. Egyptum tókst sumarið 1954 að handsama njósnara, sem ríkis- stjórn ísraels hafði sent til Egyptalands. Bersýnilegt var, að einhver mistök höfðu átt sér stað í varnarmálaráðuneyti ísraels og þau orðið njósnur- unum að falli. Talsverð gagn- rýni beindist gegn Pinhas La- von, sem þá var varnai'mála- ráðherra og einn hinna fáu forustumanna Mapai-flokksins, sem þorði að standa upp í hár- inu á Ben-Gurion. Niðurstaðan varð sú, að Lavon lagði niður i'áðherrastarf, en gerðist aftur framkvæmdastjóri verkalýðs- sambands ísraels, Histadrut. Mál þetta féll samt ebki,niður, heldur hefur stöðugt verið unn ið meira og minna að rannsókn þess undanfarin ár'. Að lokum var skipuð sérstök rannsóknar- nefnd undir forustu dómsmála- ráðherrans. Sú nefnd komst að þeirri niðurstöðu, að Lavon yrði ekki á neinn hátt sakfelld- ur fyrir handtöku njósnaranna. Samkvæmt því ákvað ráðherra- fundur, sem haldinn var um miðjan seinasta mánuð, að láta málið gegn Lavon endanlega falla niður. Ben-Gurion var í fríi, þegar stjórnin tók þessa ákvörðun, og brást hinn reiðasti við. f fyrstu hótaði hann með því að segja af sér og biðjast lausnar fyrir stjórnina. Síðar féll hann frá því, en neitaði hins vegar að ■sitja á ráðuneytisfundum með- an þessi ákvörðun stjórnarinn- ar stæði óbi’eytt. Eftir miklar , samn’ngaumleitanir hefur nið- urstaðan orðið sú, að mál La- , Ben-Gurk>n vons skuli tekið fyrir að nýju af nefnd, sem sé skipuð innan Mapaiflokksins, og hefur hún þegar verið skipuð. Með henni virðist Ben-Gurion stefna helzt að því að gera Lavon flokks- rækan, ef hann getur' ekki klekkt á honum með öðru móti. Lavon hefur mótmælt því, hvemig nefndin er skipuð. jafnhliða því, sem hann hefur neitað að segja af sér sem framkvæmdastjóri fyrir Hista- drut. TALIÐ ER, að tvennt vaki fyi'ir Ben-Gurion með þessari baráttu gegn Lavon. Annað sé það að tryggja sér full völd í Mapai-flokknum og geta m. a. þannig ráðið eftirmanni sínum. Innan flokksins er talsverð and staða gegn Ben-Gurion og hef- ur Lavon verið helzti leiðtogi hennar. Hitt er það, að Ben- Gin’ion er talinn .vilja draga mjög úr völdum Histadrut og til þess , þurfi hann að ryðja Lavon úr vegi. Lavon Histadrut eða Alþýðusam- band ísraels má með sanni kall ast ríki í ríkinu. Það á langa sögu að baki og myndaði um langt skeið aðalkjarnann í þjóð frelsissamtökum Gyðinga í Palestínu. Ben-Gurion var þá einn af leiðtogum þess. Það hefur látið fjölmargt annað en verkalýðsmál og stjórnmál til sín taka, m. a. tekið alls konar atvinnurekstur í sínar hendur. Það rekur nú orðið svo mörg atvinnufyrirtæki, að efalaust er talið, að það sé langstærsti atvinnuveitandinn í fsrael. Það gefur auga leið af fram- ans'ögðu, að Histadrut er mjög áhrifamikið, og Ben-Gurion, sem er manna ráðríkastur, kann því illa að það skuli vera í höndum andstæðings hans í flokknum. í SEINNI TÍÐ hefur Ben- Gurion ekki farið neitt dult með það, að hann teldi Hista- drut vera orðið alltof áhrifa- mikið, enda enn rekið á sama grundvelli og áður en fsrael varð sjálfstætt ríki. Á meðan sjálfstæðisbaráttan stóð yfir, hafi ekkj verið óeðlilegt, að það annaðist ýmsa stai'fsemi utan eiginlegs starfssviðs síns, en aðstæður væru allt aðrar eftir að ísrael kom til sögunn ar. Meðal þess, sem Ben-Gurion hefur gagnrýnt Hisfadrut fyiir, er hin nána samvinna þess við amerísk verkalýðssamtök. Ben- Gurion segir, að þetta torveldi Histadrut að ná samvinnu við verkalýðssamtökin í Afi'íku, en ísraelsmenn leggja mikið kapp á að vingast við svertingjaþjóð- irnar þar. f framhaldi af þessu hefur Ben-Gurion talað heldur óvægilega um Gyðinga í Banda ríkjunum, og m. a. komizt svo að orði, að þeir^ Gyðingar, sem ekki vilji búa í ísrael, geti ekki talizt sannir Gyðingar. Lavon og fylgismenn hans hafa m. a. svarað þessum ásök unum Ben-Gurions með því, að góð samvinna við Bandaríkja- menn sé ekki aðeins eðlileg, heldur lífsnauðsynleg fyrir ísrael. Enn er það ekki séð, hvei’nig deilu Ben-Gurions og Lavons lyktar. Vel getur svo farið, að hún leiði ti] stjórnarskipta. Mapai-flökkurinn hefur ekki meirihluta á þingi og verður því að hafa samvinnu við aðra flokka um stjórn. Tal'ð er. að sumir þessara flokka vilji gjarnan losna við Ben-Gurion sem forsætisráðherra, því að hið mikla fylgi, er Mapai nýtur, byggis't ekki sízt á persónuleg- um vinsældum hans. Sumir bessara flokka virðast a. m. k. frekar hallast að Lavon en Ben- Gurion í umr'æddum átHkum. Þ. Þ. Útlit er fyrir, að aðgerðir Sam-| einuðu þjóðanna í fræðslumálum Kongó muni bera góðan árangur. Að vísu er þetta starf á byrjunar- stigi, en í skýrslu frá aðalbæki- stöðvum S.Þ. í Leopoldville er lýst bjaitsýni. Er þar greint frá starfseminni í 12 héruðum Kongó í nóvembermánuði s.l. og náði hún til: Landbúnaðar, samgangna, kennslumála, fjármála, utanríkis- verzlunar, heilbrigðismála, ré'tar- fars, atvinnumála, nátúi’uauðlinda, stjórnar opinberra mála, m.a. lýð- hjálpar o- fl. 1 Viöreisnarstarf S.þ. í Kongó Er fullyrt, að á ýmsum sviðum hafi orðið framfarir, sérstaklega hvað viðkemur fjármálastjórn. Á mörgum sviðum sé hins vegar ekki hægt að búast við neinum framför- um fyrr en kyrrð hafi skapazt í stjórnmálaheiminum og stjórnar- völd landsins geti innt starft sitt af hendi með eðlilegum hætti. Til þjálfunar' og menntunar Kongóbúum hafa S.Þ. látið til sín taka í fjölmörgu og annað hvort stutt innfædda til námsf útlöndum eða komið á fót fræðslumiðstöðv- um í landinu sjálfu. (Frá Upplýsingas'krifstofu S.Þ. í Khöfn.)

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.