Tíminn - 27.01.1961, Side 6
6
TÍMINN, föstudaglnn 27. janúar 1961.
Guðmundur Arascm, hrepp
stjóri á Illugastöðum á Vatns
nesi, andaðist að heimili sínu
15. þessa mánaðar.
Hann fæddist á Illugastöð
um 1. ágúst 1893 og var því 67
ára er hann lézt. Foreldrar
hans voru hjónin Auðbjörg
Jónsdóttir og Ari Ámason. —
Auðbjörg var dóttir Jóns
bónda Ámasonar á Illugastöð
um og konu hans, Agnar Guð
mundsdóttur bónda og skálds
á Illugastöðum, Ketilssonar.
— Ari, faðir Guðmundar, var
sonur Áma bónda á Sigríðar
stöðum í Vesturhópi, Arason
ar bónda á Neðri-Þverá í
sömu sveit, Eiríkssonar, Skúla
sonar á Laugalandi í Reyk-
hólasveit, Eiríkssonar heyr-
ara í Skálholti og prests í
Saurbæ í Eyjafirði og konu
hans, Helgu Björnsdóttur
prests á Miklabæ í B)öndu-
hlíð, Skúlasonar prests í Goð
IVI I N N I N G:
Guðmundur Arason,
hreppstjórl, lllugastöðum
ið 1913. Fjórum árum síðar
tók hann við búi á Illugastöð
um af foreldrum sínum. Vorið
1919 kvæntist hann frænd-
konu sinni Jónínu Gunnlaugs
dóttur frá Geitafelli, Skúla-:
sonar. Börn þeirra eru tvö: I
Hrólfur, heima á Illugastöð-
um, og Auðbjörg, húsfreyja á
Syðri-Þverá í Vesturhópi, gipt
Jóhannesi bónda Guðmunds-
syni.
Á Illugastöðum hefur sama
ættin búið í 133 ár. Guðmund
ur Ketilsson fluttist þangað
árið 1828, bjó þar til 1853 og
átti þar heima til æviloka,
dölum, Magnússonar prests á 1359. Kona hans hét Auðbjörg
Mælifelli og konu hans, Ing- j jóelsdóttir. Dóttir þeirra, Ögn
unnar Skúladóttur frá Eiríks toyrjagj búskap í sambýli við
etöðum, en kona Skúla á Ei
ríksstöðum og móðir Ingunn
þau 1849, með manni sín-
um, Jóni Árnasyni. Bjuggu
ar var Steinunn Guðbrands-; þau ^ Illugastöðum til 1875
dóttir biskups á Hólum Þor
lákssonar. — Var Guðmund-
ur Arason þannig 11. maður
frá Guðbrandi biskupi.
Auðbjörg, móðir Guðmund
ar, var tvígipt. Fyrri maður
hennar var Jakob Bjarnason,
SigurðssQnar bónda og skálds
í Katadal, Ólafssonar. Byrj-
uðu þau búskap á Illugastöð
um 1875. Jakob fórst í fiski-
róðri haustið 1887. Börn hans
og Auðbjargar, sem upp kom
ust, voru fjögur, og er nú eitt
þeirra á lífi, Jakob skipstjóri,
lengi búsettúr í Neskaupstað.
— Eftir fráfall Jakobs Bjarna
sonar hélt Auðbjörg ekkja
hans áfram búskap á Illuga-
stöðum og giptist að nokkr
um árum Jiðnum seinni manni
sínum, Ara Ámasyni, Var
Guðmundur einkabarn þeirra.
Guðmundur ólst upp hjá
foreldrum sínum á Illugastöð
um. Innan við tvítugsaldur
fór hann í bændaskólann á
Hólum og lauk þar námi vor
er Auðbjörg dóttir þeirra og
fyrri maður hennar, Jakob
Bjarnason, byrjuðu búskap á
jörðinni, eins og áður er um
getið.
Guðmundur Arason átti
heima á Illugastöðum alla
minningum og heimildum um
líf og starf manna á fyrri tím
um. Minnist ég þess t.d. að
á næstliðnu sumri flutti hann
mjög glögga frásögn af stofn
ævi og var tengdur þeim stað un búnaðarfélagsins í Kirkju
traustum böndum. Hann fet-
aði í spor feðra sinna við end
urbætur og búskap á ættar-
jörð sinni. Þar byggði hann
stórt íbúðarhús úr steinsteypu
fyrir rúmum 30 árum. Illuga
staðir eru hlunnindajörð, og
hefur Guðmundur og fjölsk
ylda hans unnið vel að varð-
veizlu þeirra gæða, um leið
og þaú hafa að öðru leyti hald
ið við búrekstri á jörðinni á
traustum grunni. Af ræktar-
semi við forfeður sína og jörð
ina varðveitti Guðmundur þar
gamlar minjar og muni og
merkilega ættargripi. Hann
var fróðleiksmaður og áhuga-
samur um að bjarga frá
gleymsku og glötun gömlum
ÞAKKARAVÖRP
Hjartanlega þakka ég öllum þeim vinum mínum
fjær og nær, sem með gjöfum, skeytum og heim-
sóknum glöddu mig á 70 ára afmæli mínu 14.
þ. m. — Guð blessi ykkur öll.
Sigurður Friðbjörnsson,
Neskaupstað.
MóSir mín og amma
Konkordía Stefánsdóftir
andaðist aö heimili okkar 25. janúar.
Björg SigurSardóttir, Margrét Sigurðardóttir.
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
Guðrúnar Guðmundsdóttur
frá Þrúðardal (Þuríðardai).
Sérstaklega þökkum við frændum og vinum fyrlr ómetanlega
hjálp síðasta spöiinn.
Guð blessi ykkur öll.
Vandamenn.
hvammshreppi á öldinni sem
leið, og rakti sögu þess í ræðu,
er hann flutti í afmælishófl
félagsins.
Guðmundur gegndi mörg-
um trúnaðarstörfum fyrir
sveit sína og sýslu. Mun hann
einhvern tíma hafa haft á
hendi flest þau opinberu
störf, sem sinna þurfti i sveit
arfélaginu. Lengi hefur hann
verið hreppstjóri og sýslu-
nefndarmaður. Öll þau störf,
sem Guðmundur tók að sér,
rækti hann af alúð og reglu
semi hins trausta manns.
Hann var ágætur ræðumað-
ur og vel ritfær. Hann var óá-
deilinn; dró fremur fram
betri hliðina í umræðum um
menn og málefni og vildi leysa
mál með sátt og samkomulagi.
Heimili þeirra Guðmundar
og Jóninu á Illugastöðum hef
ur verið mikið risnu- o^
greiðaheimili. Er það góð
frægt sem slíkt víðar en þa:
ÞAÐ SEM GUÐ HEFUR
SAMEINAÐ
„Heiðraði dr. Ég ætla að voga
að senda yður fáeinar línur, af
því þér skrifið svo mikið um ást-
arhugsjón og hversdagsást, eins og
þér nefnið það. Ég vil nú segja:
Ást er aldrei hversdagsleg. Hún
ei alltaf óvenjuleg og á vissu stigi
dálítið brjálsemiskennd.
En erindi mitt var annað. Mér
finnst þér gleymið atriði, sem er
mjög mikilvægt: Hjónavígslunni
og þýðingu hennar fyrir ást og
tryggð. Þessi gleymska yðar er
alveg í samræmi við þá virðingu,
sem hjónavígslan nýtur nú. En
mér er þetta hjartans mál. Þegar
ég var ung stúlka, hugsaði ég mér
h.tónavígsluna sem hátíðlegustu
stund í lífi manns og konu.
Þetta er kafli úr bréfi til þátt-
arins „þekktu sjálfan þig“, sem dr.
Matthías Jónasson skrifar í Vik-
una. Þar er fjallað um hjónavígsl-
una og fordæmi prcstamna.
í héraðinu. Á síðari árum, eft
ir að bifreiðum varð fær veg
ur um Vatnsnes, hafa margir
ferðamenn lagt leið sína
kringum Vatnsnesfjall, til að
njóta náttúrufegurðar þar.
Mjög margt af því ferðafólki
hefur komið að Illugastöðum,
notið þar rausnarlegra veit-
inga og skemmtunar af við
ræðum við húsbóndann og
húsfreyjuna, sem alltaf gáfu
sér tíma til að sinna gestum
•sínum. Öllum þeim mörgu,
sem þangað hafa komið, mun
heimilið minnisstætt og hús
bændurnir þar. — Á Illuga-
stöðum hafa líka verið tíðir
fundir og samkomur Vatns-
nesinga, þegar þeir hafa kom
ið saman til að ræða um við-
fangsefni daglegs lífs eða til
að skemmta sér. Stóð heimil
ið þeim ætíð opið til mann-
fagnaðar og fundarhalda.
Þegar sími var fyrst lagður
um Vatnsnes var sett landsím
stöð á Illugastöðum og er hún
þar enn. Fyrir allmörgum ár-
um er kominn sími á alla bæi
í sýslunni, og á Illugastöðum
er afgreiðslustöð fyrir bæ-
ina á Vatnsnesi. Hafa þau 111-
ugastaðahjón innt þar af
höndum mikilsverða þjónustu
fyrir nágranna sína með sér-
stakri lipurð og umhyggju.
Og með mörgu móti hafa sveit
ungamir notið góðvilja þeirra
og fyrirgreiðslu í ýmsum
efnum.
Guðmundur á Illugastöðum
naut að verðleikum mikilla
og almennra vinsælda hjá
sveitungum sínum. Kom það
m.a. glöggt fram fyrir nokkr
um árum á sextugsafmæli
hans, þegar hreppsbúar fjöl-
menntu heim til hans, færðu
honum heiðursgjafir og dvöld
ust þar lengi dags, ásamt
mörgum fleiri afmælisgestum,
í góðum fagnaði og við höfð
inglegar móttökur þeirra 111-
ugastaðahjóna.
Síðast sá ég Guðmund Ara
son heima hjá mér 10. októ-
ber sl., þar sem hann flutti
mér hlýjar afmæliskveðjur.
En síðasta samtal okkar átti
sér stað í síma 1. þ. m. Þá
hringdi hann til mín, en það
hafði hann oft gert áður um
áramót. Skiptumst við þá á
nýárskveðjum og hann sagði
mér fréttir úr sinni sveit. Kom
mér þá síst í hug að hann
ætti aðejis eftir hálfsmánað-
ar dvöl i þessum heimi.
Jarðarför Guðmundar Ara-
sonar fer fram í dag að Tjörn
á Vatnsnesi. Með virðingu og
þökk er þar kvaddur merkur
maður, vel metinn og vinsæll
sveitarhöfðingi. Fólkið á
Vatnsnesi, þar sem hann lifði
og starfaði alla ævi, hefur
mis'st mikið við fráfall hans.
En mestur er missirinn eftir-
lifand konu hans og bömum
þeirra.. Þeim sendi ég einlæg
ar samúðarkveðjur.
Skúli Guðmundsson.
Kveðja:
Ragnheiður Grímsdóttir
frá Kirkjubóli
Nú eru liðin þrauta árin þín
og þreyttum gott að hvílast, vina mín.
Á síðasta beði sefur þú nú rótt,
ég segi vina, þökk, og góða nótt.
Ég man þig unga, alltaf varstu hlý
og enginn skuggi huga þínum í.
Þú vildir þinna vina gleðja lund,
svo varstu fram að þinni hinztu stund
Þú komst hér inn og léttir mína lund,
við lifðum aftur saman glaða stund.
Varst flutt í stól, gazt ekki komizt ein,
þó enn þín gleðisól 1 heiði skein.
Þig langaði að líta þína sveit,
nú lifir þú í fegri blómareit
Ég bið, að þú um Ijóss- og dýrðarlönd
"ért leidd af Drottins sterku kærleiks hönd.
Guðrún GuSmundsdóttir,
frá Melgerði.
• V v.-vv
Lister
dieselrafstöð
til sölu, 12 ha 650 snún-
inga með 6 kw rafal. Upp-
lýsingar gefur Magnús Síef-
ánsson, Kalastöðum, sími
um Akranes.
1
(Dáin 9. jan. 1961).
Hverfur að hinzta beði,
hún sem bar hreinan skjöld,
kross lífs og kvöl með gleði,
kvíðalaust síðsta kvöld.
Þjónusta þín var iðja,
það var og Herrans starf,
því næst að bíða og biðja;
blessun munt hljóta í arf.
Vertu sæl systir kæra,
síðasta kvcðjan er:
Lausnarans lífssól skæra
lýsi og íylgi þér.
Systkinin.