Tíminn - 08.03.1961, Blaðsíða 12
12
TlMIWN, mBMtaiaagtim 8. mm BHft.
R.ITSTJORI: HALLUR SIMONARSON
Unglingaiið sigr-
aði með 56 gegn 47
Á mánudagsbvöld fór fram
að Hálogalandi stórlezkur í
körfuknattleík millz tveggja
úrvalsliða, 19 ára og yngri;
og 20 ára og eldri.
Yngri mennimir byrja að
skora og er Guðmundur þar
að verki, Lárus jafnar fyrir
lið sitt en Árni skorar 3 stig
í röð fyrir unglingaliðið og
fjör færist í leikinn. Liðin
skiptast á góðUm upphlaup-
um, sem venjulega enda með
körfukotum. Áttu ungling-
arnir mun skemmtilegri leik,
voru þeir liprari og hreyfan-
legri. En hitt liðið lék nokkuð
þröngt.
Hálfleikurinn endaði með
27—24, ungl. í vil, sem segja
má að væru nokkuð réttlát
úrslit.
Síðarz hálfleikur.
Eldraliðið virðist hafa end-
urnýjazt í hléinu, því að þeir
byrja síðari hálfleik af miklu
fjöri, en körfuskot nýtast illa
og smám saman jafnast leik-
urinn á ný.
Nokkur harka færist í leik-
inn, og verður nokkuð, þóf á
leikvelli. En ungu mennirnir
ná sér upp úr dvalanum og
sækja mjög að körfu andstæð
inganna, og um miðjan hálf-
leikinn hafa þeir náð 9 stiga
forskoti, sem þeir halda til
leiksloka, og endatölur verða
56 stig gegn 47. Réttlát úrslit!
Segja má að sigur unglinga
liðsins hefði getað orðið meiri
ef körfuskot heppnuðust bet-
ur. T.d. Einar Matthíasson
hitti mjög illa, var sífellt
skjótandi, en skoraði aðeins
17 stig. Birgir (Árm.) átti
ágætan leik, 10 stig, en hitti
heldur ekki nógu vel. Bezti
maður liðsins var Þorsteinn
Í.R.), byggði leikinn mjög vel
upp og skoraði sjálfur 13 stig.
stig.
Hitt úrvalsliðið náði aldrei
verulega góðum leik, léku nokk
uð þröngt og skýrt, en bezti
leikafli liðsins var fyrst í
fyrri hálfleik. i
Beztu menn voru Kristinn
(ÍS). 9 stig og Lárus (Árm.)
7 stig, og má það heita lítið
skorað hjá Lárusi, sem vana-
lega skorar 14—20 körfur í
leik.
Sem sagt leikurinn hefði
getað orðið mikið betri, og
gáfulegra væri að koma á
öðru hraðkeppnismóti, en leik
eins og þessum. ,
í hléi milli hálfleika var
var sýnt júdó, sem glímu-
flokkur úr Ármanni sýndi.
Vakti sýning þessi geysi-hrifn
ingu og var júdó-mönnum vel
klappað lof í lófa fyrir góða
sýningu. SÁ.
Meistaramót
i körfu-
knattleik
Keppt verðui í eftirtöldum
fiokkum:
Meistarafl. karla: 19 ára og eldri.
IJ fl. karla- 17 og 18 ára
III. fl. karia: 14, 15 og 16 ára
IV fl. karla: Yngri en 14 ára
Meistarafl. kvenna: 17 ára og eldri
Ii. flokki kvenna: 16 ára og yngri
Ennfremur verður keppt í I.
flokki karia ef næg þátttaka fæst.
Þátttökutiikynningar skulu hafa
Landsleikir í handknattleik
Hér á eftír fer skrá yfir landsleiki íslen/ka landsliðslns * karla-
flokki, og eru þá ekki leikir í heimsmeislarakeppninm, sem nú
stendur taldir með. Leikirnr þrír í Magdeburg 1958 voru Iiður
í heimsmeistarakeppninni, sem þá fór fram:
Ár Staður Lönd Úrslit
15.2 1950 Lundi ísland — Svíþjóð 7:15
19.2 i950 Kaupmannahöfn ísland — Danmörk 6:20
23.5 1950 Reykjavík ísland — fcinnland 3: 3
27.2 1958 Magdeburg ísland — Tékkóslóvakía 17:27
1.3 1958 Magdeöurg ísland — Rúmenía 13:11
2.3 1958 Magdeburg ísland — Ungverjaland 16:19
12.3 1958 Oslo ísland — Noregur 22:25
9.2 1959 Oslo j ísland — Noregur 20:27
12.2 1959 Slagelse ísland — Danmörk 16:23
14.2 1959 Borás ísland — Svíþjóð 16:29
Alls 10 Ieikir, 1 heima, 9 erlendis, unnii 1, jafntefli 1, tapaðir
8, skoruð mörk 136 gegn 199. Einn liúfcur var háður utanhúss,
gegn Finnum 1950, en hinir allir innanhúss.
torizt skrifs'tofu íþróttasambands
íslands, pósthólf 864, Reykjavík,
fyrir 12. marz 1961 ásamt upp-
lýsingum um aldur, hæð, þyngd,
leikmannu í meistaraflokki.
Körfuknattleiksráð Rvíkui
Bókaútsala
Opna í Keflavík útsólu á
ódýrum bókum. Nánar aug-
lýst s’ðar.
Stefán Guðjónsson
fornbókasali.
Útsaian
2 dagar eftir.
Drengjajakkaföt
Stakin- drengjajakkar
Telpukápur
Telpudragtir
Drengjapeysur
Náttföt
Nylonsokkar
Karlmannasokkar
Buxnaefni kr. 165.00 m.
Skyrtuefni kr. 50 00 m
Kakí-vinnubuxur kr 125.00
STÓRKOSTLEG
VERÐLÆKKUN
Knattspyrnufélagið Valur hélt afmælishóf í Sjálfstæðishúsinu s. I.
laugardag — en félagið verður 50 ára hlnn 11. mai næstk., á upp-
stigningardag — en félagið var einmitt stofnað á þeim degi fyrir
50 árum. Fjölmenni var í hófinu, sem fór mjög vel fram. Aðalræð-
una flutti Sveinn Zoega, formaður Vals, en meðal annarra, sem
tóku til máls, voru menntamálaráðherra, Gylfi Þ. Gíslason, borgar-
stjóri, Geir Hallgrímsson, forseti ÍSÍ, Benedikt G. Waage, svo og
ýmsir forystumenn fþróttahreyfingarinnar og forystumenn Vais.
Val bárust ýmsar fagrar gjafir í tilefni afmælisins. Veizlustjórl var
Einar Björnsson. Valur hefur látið gera heiðursmerki i tvelmur
gráðum, og voru ýmsir forystumenn Vals sæmdir Valsorðunni í
hófinu, svo og allir stofnendur Vals, sem á lífi eru. Nánar verður
sagf frá hinu merka starfi Vals í 50 ár hér á síðunni, þegar að sjálf-
um afmæiisdeginum kemur. Myndin hér að ofan er tekin í hófinu.
Veizlustjóri, Einar Björnsson, er að kynna atriði, og sést kona hans
til vinstri. Lengst til hægri er menntamálaráðherra Gylfi Þ. Gísla-
son og frú hans. Ljósmynd: Ingimundur Magnússon.
ÆSKULÝÐSSAMBANDS ÍSLANDS
2. þing
verður háð í Reykjavík 25. ug 26 marz n.k
Nánar auglýst síðar.
Björgvin Guðmuncisson, formaður
Magnús Óskarssob, ritari
REMINGTON er mest.notaffa
raf magnsrakvélin.
Málflutningsskrifstofa
Málflutningsstörí tnnheimta,
fasteignasala. skipasala.
Verð kr. 1734.00 - 2094.00
og 1271.00
Sencjum gegn póstkröfu um
allt land.
PENNAVIÐGERÐIN
Vonarstræti 4, Reykjavík.
Jón Skaptason hrl.
Jón Grétar Sigurðsson. lögfi.
Laugavegi 105 (2 hæð)
Sími 11380.
Húseigendur
Geri við og stillí olíukvnd-
ingartæsi Viðgerðir á =ils
konar neimilistækjum Mý-
smíði Látið fasmann ann-
ast verkið Sími 24912.