Tíminn - 25.03.1961, Qupperneq 6
te
TÍMINN, laugardaghm 25. marz 196L
Ég híttf tvo kunningja mfna1
niSur í Austurstræti.
— Hvert ert þú aS æða?
spyr annar.
— Ég ætla að finna Ferða-
málafélagið. svara ég.
— Er það ekki löngu dautt?
segir hinn.
— Það er þá a. m. k. aftur-
gengið, ar>za ég — og þar með
skildi með okkur.
En ég sannfærðist brátt um
það, þegar ég fór að hlusta á
Gísla Sigurbjörnsson, For-
mann Fe^ðamálafélagsins,. jð
þarna voru engar vofur á fe’-ð
heldur b'óðlifandi félagsskap-
ur áhugatr.anna, sem eru þess
fullvissir, að hægt er að gera
Kálfastrandarvogar viS Mývatn — paradís
húsln nær fullskipuð í sumar.
ferðamanna. Mývetnsku gisti-
Ferðamannaland
framtíðarinnar
Gengið á fund Ferðamálaféiagsins
Vænta má þess, að hingað
jkomi í vor víðfrægur þýzkur
i kvikmyndatökumaður til þess
: að taka landkynningarmynd
ísland að einhverju eftirsótt-j
csta ferðamannalandi heims-
byggðarinnar, ef rétt er á máí-
um haldið.
Gísli Sigurbjömsson byrj-
aði á því, eftir að rennt hafði
verið í kaffibollana, að af-
henda fréttamönnum álits-
gerð mikla, sem franskux
ferðamálasérfræðingur, er
hér var á ferð í fyrra, Geoges
LeBec að nafhi, hefur samið.
Ekki er unnt að rekja hér ýt-
arlega þessa ekýrslu en hún
verður að sjálfsögðu kynnt
öllum þeim, sem fyrir ferða-
lögum útlendinga standa á
þessu landi.
Sex ferðamannasvæði
En í stuttu máli leggur
Frakkinn það til, að byggð
verði upp 6 „ferðamanna-
svæði“ á landinu. Þau eru:
Reykjavík og nágrenni, Þing
vellir og Hveragerði, Vestm.-
eyjar, Búðir á Snæfellsnesi,
Mývatn og nágrenni og mið-
hálendið sunnanvert, milli
Langjökuls og Vatnajökuls.
En við þurfum að byrja á
þvi að búa okkur undir að
geta hýst þá ferðamenn, sem
hingað vilja koma, Við þurf
um að eiga ráð á 600 gisti-
rúmum í Reykjavík í stað 320,
sem nú eru fyrir hendi. Á
Þingvöllum þarf að koma
gistihús með 40 rúmum, í
Hveragerði með 20, í Vesrt-
mannaeyjum með 50, við Mý
vatn hús með 40 rúmum og
á Búðum með 30 rúmum. Ým
iss konar aðstöðu annarri
þarf og að koma upp á þess-
um stöðum, sem gerir ferða
mönnum eftirsóknarvert að
dvelja hér, svo sem möguleik-
um á að fá leigða báta til
veiða og siglinga, íþróttavöll-
um t.d. fyrir golfleik, það þarf
að vera unnt að fá leigða
hesta til styttri ferðalaga,
litla flugvelli vantar við Mý-
vatn, á Búðum og háendinu,
svo eitthvað sé nefnt af því,
sem brýnast er að byrja á.
Varasamt er að auglýsa ís-
land svo mjög sem eftirsókn
arvert ferðamannaland fyrr
en við höfum möguleika á að
taka á móti mörgum gestum.
Vonbrigðum megum við ekki
valda.
Aldrei fleiri fyrirspurnir
Njáll Símonarson lét þess
getið, að ísland væri nú kom
ið inn á ferðaáætlanir allra
helztu ferðaskrifstofa Evrópu
og stórum meira væri nú um
farmiðapantanir til íslands
og fyrirspurnir um það en
nokkru sinni fyrr. Gstihúsin
við Mývatn væru þegar að
me'Stu upppöntuð fyrir sum-
arið og aðallega af erlendum
ferðamönnum. Allar líkur
bentu til, að við gætum ekki
sinnt öllum þeim fyrirspurn-
um, sem berast myndu frá
erlendum ferðamönnum í
vetur.
Maðurinn minn
Kristinn Magnússon
Þingholtsstræti 23,
andaðist að heimili sínu aðfaranótt 24. marz.
Fyrir hönd vandamanna
Guðrún Einarsdóttir
Karl Kristjánsson
húsvörður Menntaskólans i Reykjavík,
andaðist í Bæjarspítalanum aðfaranótt fimmtud. 23. þ.m.
ir.
Dýrlegt að dvelja á Hoffelli
LeBrec bað um að fá að
dvelja tíma á afskekktum
sveitabæ, sagði Gísli. Við send
um hann austur að Hoffelli-
Hann var yfir sig hrifinn af
dvölnni þar og aðbúnaði öll-
um. Mér finnst vert að geta
þess, sagði Gísli ennfremur,
að bændastétt landsins hefur
verið í fararbroddi í gistihúsa
málum. Raunverulega var
það eins konar bændaflokk-
ur, sem á sínum tíma átti
megin þáttinn í þvi að koma
upp Hótel Borg, bændur eru
megin stofninn í þeim sam-
tökum, sem byggt hafa Hótel
KEA og Bifröst í Borgarfirði,
og nú erú þeir að koma upp
hvorki meira né minna en 90
gistiherbergjum í Bændahöll
inni.
Margt fleira sagði Gísli og
félagar hans, sem ekki er rúm
til að rekja hér nú en von-
andi tefcsrt þeim að vekja þjóð
ina til skilnings á því, að við
eigum ómetanlegan dýrgrip
til þess að laða að ferðamenn,
þar sem ísland er og á því
veltur aðeins, hvort við reyn
umst menn til þess að færa
okkur það í nyt.
Stjórn Ferðamálafélagsins
í skipa nú: Gísli Sigurbjörns-
son, formaður, Agnar Kofoed
Hansen, varaform., Eggert P.
Briem, Njáll Símonarson. Lúð
víg Hjálmtýsson og Ásbjörn
í Magnússon.
ssnaran ■■ m
Til solu
sláttuvél hliðartengd, kíl-
plógur og sekkjalyfta á
Fordson Major. — Gamla
verðið.
Fordumboðið:
SVEINN EGILSSON h/f
Laugavegi 105', sími 22466.
Jaröarförin auglýst síðar.
Guðrún Benediktsdóttir
Hulda Karlsdóttir
Benedikr Valgeirsson
Auglýsið í Tímanum
Heimkomustef til Þor-
steins frá Gilhaga
Fyrir nokkru andaðist Þorsteinn
Magnússon frá Gilhaga í Skaga-
firði. Hann var búsettur í Rvík hin
síðari ár en mun hafa óskað þess
að fá að leiðarlokum að hvíla í
faðmi Skagafjarðar, og því voru
jarðneskar leyfar hans fluttar þang
að til greftrunar. Gamall vinur
Þorsteins, Jón Jónsson á Bessastöð-
um í Sæmundarhiíð, mælti svo við
heimkomu hans í Skagafjörðinn:
Hann elskaði og dáði sína sveit,
en sveitin reyndist honum ekki góð.
Því fór það svo, að lífsins langa
slóð
lagðist í burt frá þessum kæra reit.
Annarleg sför'f á annarlegri slóð,
allt var þar rækt með þolgæði
og dyggð.
Á hann skein mild í annarlegri
byggð
annarleg sól, er var hans börnum
góð.
Um vorkvöld tíðum raulaði hann
rótt —
og röddin varð þá stundum björt
og heit —
um goðheimafjöll og gróðurprúða
sveit,
glampandi haf og sólskinsbjarta
nótt.
Hjá eru liðin öll hans æviél
og ekkert framar vinnur honum
grand.
Nú er hann fluttur í sitt óskaland.
Allt er þá gott, er sögu lýkur vel.
Jón Jónsson, Skagfirðíngur.
Félagsfundur
verður haldinn í Iðhó sunnudag 26. marz kl. 2
e. h. — Dagskrá: Samningarnálin.
Félagsmenn reu beðnir að fjölmenna.
Stjórnin.
Bankarnir verða
iokaðir laugardaginn
1. apríi 1961
Athygli skal vakin á þvi a3 víxlar sem falla
þriðjudaginn 28. marz verða afsagtiir mið-
vikudaginn 29, marz séu beir eigi greiddir
fyrir lokunartíma bankanna þann dag.
LANDSBANKl ÍSLANDS
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
ÚTVEGSBAN&I ISLANDS
IÐNAÐARBANKI ÍSLANDS HF.
VERZLUNARSPARISJÓÐURINN