Tíminn - 23.04.1961, Page 14
n
TÍMINN, laugarJaginn 22. aprfl 1961,
— Og lét Faversham hana
fá hlutverkið?
Garvin hló stuttlega.
— Eftir að hafa séð and-
lit hennar, myndi Roy hafa
gefið henni tunglið. Veslings
Roy, hann var svo veikur fyr
ir fallegum konum. Hann
leit hálf óttasleginn á þá.
— En í hamingju bænum
nefnið þetta ekki við frænku
mína. Það er henni viðkvæmt
mál. Þegar öllu er á botn
hvolft var kona Roys dóttir
hennar.
— Nei, auðvitað ekki, sam-
sinnti Clive hugsi. Hann
sneri sér og leit spyrjandi á
Mark, sem enn sat sem fast-
ast.
Nafn Sonju hafði verið
nefnt og það varð honum
ærið umhugsunarefni. Og
hann taldi sig hafa komið
auga á ýmsa hluti. Hafði Fav
ersham ráðgert að láta Sonju
taka sæti Loru, þegar hann
hefði losað sig við hana? Og
hafði Mollie Faversham upp
götvað það? Hafði hinni
ósvífnu athugasemd hennar
um „þessar laglegu stúlkur"
verið beint jafnmikið að
Sonju og að Loru? Hvers
vegna hafði Garvin sagt það
yrði óþolandi fyrir Sonju að
hitta Loru nú? Hafði öllum
verið ljóst hvað Faversham
hafði í hyggju og hafði Hast-
ings verið mjög andvígur
þeim áhuga, sem Roy Favers
ham hafði sýnt konunni, sem
hann hugðist kvænast?
— Hvað er að þér, Mark?
Ertu fallinn í trans?
Rödd Clives vakti hann af
heilabrotum sínum og hann
leit ögn rlnglaður á þá. — Ég
var bara að hugsa um, hvers
vegna frú Charles er ekki
líka mótfallin að fá Sonju
hingað, fyrst hún er á móti
Loru.
Garvin fölnaði af bræði.
— Hvað eigið þér við? Og
hvers vegna í ósköpunum
ætti hún að vera á móti að
Sonja kæmi? Sonja myrti
ekki Roy.
— Nei, svaraði Mark kulda
lega. — En ég gæti trúað að
hún hafi verið ástæðan fyrir
því að hann var myrtur! Þér
heyrið að það eru ekki allir
trúaðir á að um slys hafi ver
ið að ræða, bætti hann við og
reis á fætur.
Garvin horfði höggdofa á
þá. — Ég vona þið ætlið ekki
að láta þær hugmyndir koma
fram í kvikmyndinni! Að Lor
elie hafi skotið Roy af yfir-
lögðu ráði! Það er mann-
skemmandi.
Og án þess að biða eftir
svari, þaut hann eins og kólf-
ur út.
Clive starði furðulostinn á
Mark.
— Ertu búinn að missa vit-
ið?
— Hvemig stendur á þvi
þú vissir ekki að Sonja og
Tom Hastings voru gift?
spurði Mark. — Þú talaðir
við hana líka?
— Hvernig átti ég að vita
það? Ég hitti hana í búnings
herbergi hennar, þegar ég
var búinn að tala við Hast-
ings. Hann nefndi það ekki
einu orði....og ekki hún
heldur... .og hún notar lista-
mannsnafn sitt.
— Skilurðu hvaða þýðingu
þetta getur haft? spurði
Mark alvarlegur. Ef hún hef-
ur verið væntanleg ástmær
Faversham?
— Þá myndi Hastings hafa
haf t horn í síðu hans....!
— Já. Hvernig var hún?
spurði Mark og gekk til dyra.
Clive yppti öxlum.
— Ósköp simpil kynbombu
týpa! Alls ekki eftir minu
höfði. En kannske sumum
finnist hún falleg. Ekkert
annað en augu og varir og
vaggandi mjaðmir.
Þeir gengu út úr „Kross-
gátunni" og yfir að „ítalska
húsinu“ og sáu Garvin
nokkra metra á undan sér.
— Hvað kom eiginlega fyr-
ir Mollie Faversham? spurði
Mark lágróma.
— Hún framdi sjálfsmorð.
— Ég veit það.... en hvern
ig? Hvað gerði hún?
— Kastaði sér út um svefn
herbergisgluggann.
Mark sneri sér skelfdur að
honum.
— HÉR?
Clive kinkaði kolli.
— Hamingjan góða! Það er
kynlegt að frú Charles getur
búið hér.
— Finnst þér í rauninni
ekki enn kynlegra að dóttir
hennar skyldi fremja sjálfs-
morð? Syrgði hún virkilega
svona innilega mann eins og
Faversham var? Hvað held-
urðu að henni hafi fundizt
um hina fögru Sonju?
Mark kipptist við.
— Áttu við... .heldurðu að
hún hafi líka verið myrt?
Clive þrýsti armlegg hans
í viðvörunarskyni og hann sá
að Garvin hafði snúizt á hæli
og kom í áttina til þeirra. And
lit hans var afmyndað af
ofsalegri bræði og hann gekk
framhjá þeim án þess að
segja nokkuð.
Clive leit rannsakandi á
eftir honum.
— Þú virðist hafa hrætt
hann eftirminnilega. Mér
þætti gaman að vita hvers
vegna.
— Heldurðu í rauninni að
Mollie Faversham hafi verið
myrt? endurtók Mark.
— Ég trúi því að minnsta
kosti ekki að hún hafi framið
sjálfsmorð af sorg eða sökn-
uði....af hræðslu, ef til vill
.... eða kannske hún hafi
haft samvizkubit....
— Samvizkubit?
Sunnudagur 23. apríl:
8,30 Fjörleg músik fyrsta hálftíma
vikunnar.
9,00 Fréttir.
9,10 Vikan framundan.
9,25 Morguntónleikar.
11,00 Fermingarguðsþjónusta í Hall
grímskirkju (Prestur: Séra
Jakob Jónsson. Organleikari:
PáH Halldórsson).
12,15 Hádegisútvarp.
13,00 RfkjitS og einstaklingurinn, —
flokkur útvarpserinda eftir
Bertrand Russell; IH: Eftirlit
og framtak og einstaklings- og
þjóöfélagshyggja (Sveinn Ás-
geirsson hagfræðingur þýðir
og flytur).
14,00 Miðdegistóhleilgair: Útdráttur
úr óperunni „H trovatore" eft
ir Verdi. — Þorsteinn Hannes-
son skýrir. verkið.
15.30 Kaffitíminn:
a) Jan Moravek og félagar
hans leika. b) André Previn
leikur ; píanó með hljómsveit.
16.30 Veðurfregnir. — Endurtekið
efni: a) Dr. Steingrímur J.
Þorsteinsson próf. flytur er-
indi um Shakespeare og ísl.
bókmenntir (Frá 31. f. m.). b)
ítalski drengurinn Robertino
syngur (Frá 11. þ. m.).
17.30 Barnatími (Hrefna Tynes kven
skátaforingi). Frásagnir — við
töl — sögur — söngur.
18.30 Miðaftanstónleikar: Filharmon
íusveitin i New York leikfur
tvö tónverk eftir William Schu
mann.
18,55 Tilkynningar.
19,20 Veðurfregnir.
19,30 Fréttir yg íþróttaspjali.
20,00 Einsöngur: Bandariska söng-
konan Martina Arroyo syngur.
Harry L. Fuchs leikur undir
á píanó (Hljóðr. á söngsk. i
Austurbæjarbíó 18. þ. m.).
20,35 Eyðimörk og Dauðadalur, —
ferðaþáttur frá Bandaríkjun-
um (Þórður Kárason iögreglu-
þjónn).
21,00 Frá tónl'istarhátíðinni í Salz-
burg 1960.
21.10 Á förnum vegi (Jón Sigbjörns
son og Stefán Jónsson sjá urr
þáttinn).
22,05 Danslög. (Kl. 23,00 verðui
felld þar inn lýsing Sigurðai
Sigurðssonar á hluta af úrslit;
keppni íslandsmótsins í hanc'
knattleik, milli FH og Fram)
01,00 Dagskrárlok.
Mánudagur 24. apríl:
8,00 Morgunútvarp.
2,00 Hádegisútvarp.
3,15 Búnaðarþáttur: Um æðarvarp;
síðari hlu-ti (Gísli Vagnsson
bóndi á Mýri í Dýrafirði).
13.30 „Við vinnuna": Tónleikar.
15,00 Miðdegisútvarp.
18.30 Tónleikar: Lög úr kvikfmynd-
um.
19.30 Fréttir.
20,00 Um daginn og veginn (Páll
Sveinsson sandgræðslustjóri).
20,20 Einsöngur: Sigurður P. Jóns-
son frá Sauðárkróki syngur.
Við píanóið: Fritz Weisshappel
20,40 Leikhúspistill (Sveinn Einars-
son fií. kand.).
21,00 íslenzk tónlist „Vita et mors"
(Líf og dauði), streiifejakvart-
ett eftir Jón Leifs.
21.30 Útvarpssagan: „Litli-Brúnn og
Bjössi“ eftir Stefán Jónsson;
I. (Gísli Halldórsson leikari).
22,00 Fréttir og veöurfregnir.
22.10 Hljómplötusafnið (Gunnar
Guðmundsson).
23,00 Dagskrárlok.
GISLAVED - HJÓLBARÐAR
900x20
1000x20
1100x20
BÍLABÚÐ SÍS
KATE WADE:
LEYNDARDÓMUR
23 Italska hússins
EIRÍKUR
VÍÐFÖRLI
Hvíti
hrafninn
72
Ra-gnar kreppti reiður hnefana,
þegar hann sá, að konungurinn
kom honum enn einu sinni að
óvörum. — Þú skalt ekki láta þér
detta í hug, að þú fáir hvíta hrafn
inn. Ég fann hann fyrst. Þú færð
ekki að fara inn í borgina. Eiríkur
horfði kuldalega á hann. — Farðu
frá Ragnar, sagði hann. — Þessi
maður er að deyja. Ragnar star'ði
með galopnum munni á Bryan. —
Þú getur farið inn fyrir, en hann
verður eftir hjá mér, sagði hann.
— Ragnar rauði, farðu frá. Það er
konungur þinn, sem skipar fyrir!
sagði Eiríkur fastmæltur. — Þessi
maður deyr, ef hann fær ekki
hjálp. — Hlustið ekki á -hann, æpti
Ragnar reiður. — Ráðist á þá! —
Jæja þá, Ragnar, greip Eiríkur
fram í fyrir honum. — En þá S'kul
um við berjast um hann sjálfir en
ekki fórna blóði annarra fyrir
hégómagirnd þína!