Tíminn - 26.04.1961, Blaðsíða 1

Tíminn - 26.04.1961, Blaðsíða 1
Menn hafa haldið, aö synda- selur rfkisútvarpsins væri allur. Var það skoðun flestra, að það hefði verið hann, sem aflífaður var á Kolbeinshaus um daginn, svo hræðilega leikinn sem minn- isstætt mun. En nú glæðast vonir um, að syndaselurinn sé bráðlif- andi í bezta gengi . í þeirri trú brá Ijósmyndari Timans sér I gær niður á Skúlagötu og tók þar mynd af sprækum og kampa- kátum sel, sem var á sundi við Kolbeinshaus og mændi annað veifið löngunar augum upp i há- sallna, þar-sem sinfóníurnar eru varðveittar á plötum og böndum, Sigurður Magnússon ræðir við góða menn um áfengt öl og anda trú og ailt þar á milli, og Stefán Jónsson fræðir landslýðinn um flskinn. Handritafrum- varpiö í dag Ríkisstjórnin danska mun í dag leggja íram á þingi frumvarp um þá lausn ahndritamálsins, sem samkomulag hefur orð'ið um. Jafnframt mun frumvarpið verða sent Kaupmannahafnarháskóla til umsagnar. Talið er fullvíst, að frumvarpið hafi meirihlutafylgi á þingi Dana, og muni þar ekki einungis stjórnarflokkarnir og flokur Aksels Larsens veita því fylgi, heldur og ýmsir þingmenn úr stjórnarandstöðuflokk- unum, ?ótt aðrir séu því mjög andvígir. Við því má búast, að afgreiðslu frumvarpsins verði hraðað, og fyrirhugað mun að afhenda handritin á fimmtíu ára afmæli háskól- ans hér, 17. júní í sumar. ' Stórkostleg lausn Tíminn átti síðdeais í gær viðtal við Sigurð Nordal próf- essor um lausnina á handrita- málinu, sem nú stendur fyrir dyrum, en Sigurður Nordal hefur eins og öllum er kunn- ugt, verið manna mest viðrið- inn samkomulagsumleitanir við Dani um afhendingu hand- ritanna á undanförnum árum. Sigurður Nordal var mjög glaður yfir úrslitum málsins, SIGURÐUR NORDAL prófessor — segir SigurSur Nordal um handritamáliíi er fréttamaður Tímans heim- sótti hann, og kvað þetta stór- kostlega lausn á málinu. Eitt atriði sérstaklega hefuri gert þessa lausn mögulega, sagði- hann, ert það er, að handritin; sjálf hafa ekki lengur sama gildi ! til hversdagslegrar vísindalegrar i vinnu, sem fyrr. Þau eru ekki| lengur notuð til rannsókna, þar. sem miklu auðveldara er að lesa! ljósmyndir þær, sem með nýjustu, tækni er hægt að taka af þeim. Tilfinningamá! — Það gildi, sem handritin j sjálf hafa fyrir íslendinga fram-i ar öllu, er fólgið í því, að þetta j eru langmerkustu fornminjar þjóð arinnar og vitni um mesta menn- ingar-afrek, sem íslendingar hafa unnið nokkurn tíma. Handritin eiga sér ekki einungis sögulegt og bókmenntalegt gildi. Þau eru minnisvarði yfir fólk það, sem lét gera þessi handrit. Tökum bónd- ann í Viðidalstungu, sem lét rita hina miklu Flateyjarbók sem hluta af bókasafni sínu. Þá kost- uðu bækur ekki 200 krónur. Að þreyta laxinn lendingar hafa í þessum viðskipt- um beitt hemaðarlist laxveiði- mannsins. Þeir hafa þreytt Dani og þannig unnið stríðið á hinum alkunna þráa sínum. Aík lausn sem þessi er ekki unnin á einum degi, heldur hefur málinu þokað smátt og smátt áfram á mörgum| árum. Fyrst í stað tóku Danir ekki í mál, að þetta deiluefni væri I einu sinni tekið til umræðu. Handritin meira en eign — Eg minnist þess, ag vetur-j inn 1953—1954 komumst við þaðj (Framhald á 2. síðu), I Þeir róta ! I síldinni ! i Rétt fyrir kl. 10 í gærkvöldi; fréttist til síldarbátanna undir Jökli. Þeir voru þar í vaðandi síld,1 og voru mörg skipin komin með'| góðan afla. Eldborgin var komin með 14—1500 tunnur, en ekki var nákvæmlega vitað um magnið í ! hinum. Síldin or líkust Norður- | landssíld, stór cg falleg, en ekki er vitað um fit'.imagnið. Hún er — Þessi sextán ár, sem ég hef verið viðriðinn þetta mál, hafa verið langt og harðsótt stríð. ís- stygg, en næst þó. Bátar rákust á á Selvogsbanka Þorlákur II frá Þorlákshöfn laskaði skutinn á Hásteini II frá Stokkseyri Frá fréttaritara Tímans á Stokkseyri Fyrrihlufa dags í gær varS árekstur milli tveggja fiski- báta á Selvogsbanka, og skemmdist annar þeirra nokk- uð, svo að hann tefst frá veiS- um um tíma af þeim sökum. Bátarnir, sem þarna áttu hlut aS máli, eru Hásteinn II frá Stokkseyri og Þorlákur II frá Þorlákshöfn. Hér var um ein- stakt óhapp aS ræSa, og eru slíkir atburSir fátíSir, sem betur fer. Báðir bátarnir voru á siglingu milli netatrossa á miðunum, og stefndi Þorlákur skáhallt fyrir Há- stein. Þegar hann átti skammt eftir ófarið að Stokkseyrarbátnum, hægði hann ferðina og hugðist sveigja aftur fyrir hann. En ferð- in var of mikil, og lenti Þarlákur aftan á Hásteini af allmiklum krafti. Hásteinn brotnaði töluvert ofan til á skutnum. Meðal annars brotn- uðu þrjár stunnur — en svo nefna sjómenn uppistöðurnar fyrir ofan þilfar. Klæðningin rifnaði, og kem- ur sjór inn í báti'nn, ef um ein- hverja ágjöf er að ræða. Þorlákur virtist óskemmdur. Stefnið á hon- um þoldi höggið, og geta menn velt því fyrir sér, hvort nafn hins helga biskups hafi orðið til hlífðar. ViSgerS í Eyjum Hásteinn II hélt þegar til heima- hafnar við Stokkseyri og losaðl sig við þann afla, sem innanborðs var. Hélt báturinn síðan til Vestmanna- eyja, þar sem viðgerð mun fara fram. Talið er, að viðgerð muni ekki taka lagnan tíma. Þess má geta, að á vertíðinni í fyrra, varð Hásteinn II einnig fyrir óhappí. Slitnaði skipið upp af legunni, og eftir þá björgun tók viðgerð í Vestmannaeyjum hálfan mánuð. Verða nú teknar skýrslur um at- burðinn, en sjópróf verða látin fara fram, ef eitthvað ber á milli. B.T. Það er venjan, að hundar séu meiri nytjadýr til sveita en sjávar. Hér sjáum við samt sjóhund, útvörð á hafinu. Hann heitir Ægir, enda er hann á varðskipinu Ægi, eign eins háseta á því. Þegar Ægir siglir um fiskislóðirnar I lelt að brotlegum togurum, vappar hvutti um þilfarið, íbygginnn á svip, öllum til heilla. Og þegar miklir at- burðir gerast, fyliist hann spenningi eins og aðrir. Hér sjáum við svipinn á honum eftir eltingaleikinn við togarann frá Hull á dögun- um. (Ljósmynd: TÍMINN — GE).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.