Tíminn - 26.04.1961, Page 9

Tíminn - 26.04.1961, Page 9
TIÍJittfíN, miðvikudagitm 26. apriL ,19g||u 9 „Það mátti ekki tæpara standa" Meginstarfsregla góSs frétta ritara er ósköp einföld í orði: vertu á undan hinum. í fram- kvæmd getur þó reglan orSið furðu flókin og margbrotin. En góður fréttaritari verður þó oftast á undan hinum, hvernig sem hann fer að því. Það er undir útsjónarsemi hans og viðbragðsflýti komið, hvernig hann leysir vandann hverju sinni. Geir Aðils er einn af þessum góðu fréttariturum og sannaði um daginn ágæti sitt þegar hann út- vegaði blaði sínu mynd af fyrstu mannverunni, sem lagði leið sína út í himinhvolfið, rússnesku hetj- unni Yuri Gagarin. Dagblöðin kosta kapps um að eiga í fórum sínum myndir af öllu því fólki, sem búast má við að skjóti upp kollinum í heimsfrétt- unum, þær eru tiltækar, þegar á þarf að halda. Rússar höfðu þó látið undir höfuð leggjast að út- býta myndum af geimfara sínum, áður en hann lagði upp í hina frægu ferð, og því hófst æðisgeng- ið kapphlaup blaða um heim all- an að krækja í mynd af mannin- um, sem fyrstur allra hafði litið jörðina augum utan úr geimnum. Hér varð Tíminn fyrstrar með myndina og það var eingöngu að Rætt við Geir Aðils, fréttaritara Tímans í Kaupmannahöfn þakka fréttaritara vorum í Kaup- manunahöfn, Geir Aðils. Geir er staddur hér í bænum þessa dag- ana, og við gripum tækifærið og spurðum hann um starfið, þó eink- um þetta síðasta afrek hans. Dag- inn, sem Ijóst varð, að Rússar hefðu sent mann í geimfari um- hverfis jörðina, varð uppi fótur og fit á ritstjórnarskrifstofum blað- anna. Ritstjórar Tímans fóra ekki varhluta af taugatitringnum. Þeir böggluðu saman hraðskeyti í suar- hasti til Geirs: VILTU SENDA MYNDIR UM GEIMFÖR RÚSSA STOP SVARSKEYTI TÍMINN. Svo var beðið með öndina í hálsinum. — Eg fékk þetta skeyti frá Tím- anum þegar klukkan var 10 mín- útur yfir 5 eftir hádegi að dönsk- um tíma, sagði Geir okkur þar sem við sátum í makindum og drukk- um kaffi inni á Mocca, ég þreif símann samstundis og spurðist fyrir um, hvort Kaupmannahafnar- blöðin hefðu fengið símsendar myndir úr geimförinni. Þegar ég hafði hringt í nokkra staði kom í Ijós, að örfá blöð höfðu komizt yfir mynd af geimfaranum sjálf- um, Yuri Gagarin. Þar á meðal var Politiken. Þar á ég góða vini, tók mér bíl í snatri og brunaði á skrifstofur Politiken. Þar fékk ég að vita, að þeir hefðu fengið mynd ina frá fréttastofu Associated Press, það var eina fréttastofan í Kaupmannahöfn sem hafði mynd ina. Eg skauzt út í bílinn aftur, lét hann aka mér sem óðast í bæki stöðvar Associated Press. Eftir talsvert þref féllust þeir á að selja mér eintak af myndinni og jafn- framt bað ég þá grennslast eftir því fyrir mig, hvort símasamband væri heim til íslands. Þeir fengu þau svör að enn væru nokkrar mínútur til stefnu. Eg fór í spretti niður á símstöð, lagði fram skil- ríki og bað um að myndin væri símsend þegar í stað. Til þess að ganga úr skugga um að allt færi að óskum, beið ég þangað til myndin var komin af stað. Og það mátti ekki tæpara standa, örfáum mínútum seinna var öllu síma- sambandi við fsland slitið, því nú tóku að streyma myndir og skeyti, frá Moskvu vestur um haf og London hafði varla við að anna I þessu öllu, því var lokað fyrir ís- [ land. En símasamband milli' Reykjavíkur og Kaupmannahafnar I er um London. Myndin, sem ég sendi, slapp í gegn á síðustu stundu og Tíminn var eina ís- [ lenzka blaðið sem gat birt mynd af Gagarin daginn eftir. — Það eru fleiri íslenzkir frétta-! ritarar í Kaupmannahöfn? — Já, Páíf Jónsson hefur lengi verið fyrir Morgunblaðið. Við er- um miklir mátar við Páll, með okk ur er ágæt samvinna þrátt fyrir samkeppnina. Við erum heiðar- legir keppinautar. — Hafa erlendir blaðamenn í Kaupmannahöfn ekki með sér samtök? — Jú, það era sterk og áhrifa- rík samtök, svarar Geir Aðils, ég hef um tíu ára bil verið félags- bundinn, eitt árið sat ég í stjórn félagsins. Þá var ég fréttaritari Ríkisútvarpsins. Mánaðarlega sitj i um við fundi með utanríkisráð- herra Danmerkur og ýmsum öðr- um merkum mönnum, það er okk- ur mikill stuðningur að fá tæki- færi til að spjalla við þessa menn. — Þú stundar aðra atvinnu jafn hliða fréttaritarastörfunum? — Já, ég hef sjálfstæðan at- vinnurekstur í miðbæ Kaupmanna- hafnar, hann er eiginlega fólginn í því að greiða fyrir íslenzkum ferðamönnum og kaupsýslumönn- um. Ég útvega þeim ýmsar vörur (FramhaJd a i3 siðu.i að það er komið af sund. Það er nú svo. Ég eT svo gamall í hett- unni, að í stafrófskverinu mínu var tvenns konar æ. Það var sem sé gerður grein armunur á því, hvort æ- hljóðið var hljóðvarp af á eða ó (mál — mæla; hól — hœla). Þetta hvarf svo burt þegjandi og hljóðalaust. Og engum dettur nú í hug, að við þurfum að skrifa tvenns konar æ vegna upprunans. Hvers vegna þurfum við þá að rita tvenns konar i vegna upprunans. Ég skal þó játa, að til eru ein rök, og að- eins ein, sem mæla gegn því að sleppa y. Útlit prentaðs máls mundi breytast nokk- uð. Og ég verð að viður- kenna, að mér er það ekki með öllu sársaukalaust. En ef einhver gæti reiknað út, hve miklar og dýrar fórnir eru færðar á alltari þessa útlits, þá held ég menn færu a.m.k. að hugsa sig um. Hefði y-hljóðið verið horf ið úr málinu, þegar Ari fróði og aðrir hófu að rita á móð urmáli sínu, þá hefði sá staf ur aldrei verið notaður í Is- lenzku. Nú segir kannski einhver: „Þú vilt þá bara, að við för- um að hljóðrita málið“. Nei, langt í frá. Úr því yrði tóm- ur hrærigrautur og vitleysa. Ég vil t.d. ekki, að við ritum hefna með b né hefndi með m eða hafa með v. Formælendur núgildandi stafsetningar segja: „Það er vel hægt að kenna sæmilega greindum unglingum þessa stafsetningu". En þetta eru engin rök. Ef við sleppum z og tvöföldum samhljóða á undan þriðja samhljóða, þá mundi sparast mikill tími, og það verða þessir sömu formælendur að viðurkenna. Og ég kem að því bráðum, til hvers ég vil nota þann tíma. Og ungir nemendur mundu losna við mikið ang- ur og erfiði. Það er líka hægt að kenna sæmilega greindum unglingum meira eða minna hrafl í latínu — eða sanskrít — en eru það rök fyrir þvi, að öllum ung- lingum skuli kenndar þess- ar ágætu tungur? Við þurfum líka að hafa það í huga, að þegar staðið er of lengi gegn breyting- um sem eru í aðsigi og hljóta að koma, þá geta breyting- arnar orðið meiri en æski- legt er, þegar þær skella yfir. Þetta er lögmál, sem gildir á öllum sviðum, eins og kunnugt er. En nú kem ég að því, sem í raun og veru átti að vera aðalatriði þessa greinar- koms. Það er fjarstæða að hanga í fyrndum stafkrókum, en hugsa ekkert um framburð- inn, hvernig sem hann af- skræmist. Afleiðingin verður sú, að bilið breikkar stöðugt milli framburðar og staf- setningar. Allir kannast við hljóð- villurnar i—e, u—ö og hví- líkur ófögnuður þær hafa verið um langt skeið. En menn sögðu ekki: „Þetta hlýtur að flæða yfir allt landið. Bráðum segja allir venur í staðinn fyrir vinur, og þá er ekki um annað að gera en að skrifa venur“. — Nei, þetta sögðu menn ekki. í stað þess var ráðizt á þess ar hljóðvillur, og nú erum við komin vel á veg með að útrýma þeim. En nú er önnur hljóð- villa, sem veður uppi. Þar á ég við' hv—kv-hljóðvilluna. En það bregður svo undar- lega við, að það er eins og mönnum finnist sjálfsagt að láta þessa hljóðvillu flæða yfir og horfa á það með velþóknun. Það lítur helzt út fyrir, að menn vilji ekki blaka við henni, af því að hún eigi sinn vöxt og við gang í göfugri landshluta en hin. Sunnlendingar, Aust- firðingar og^ aðrir, sem sögðu venur og segja sumir enn, því miður, þeir eru aldrei montnir af þessari hljóðvillu sinni. Þeir reyndu heldur að draga fjöður yfir hana og skömmuðust sin fyrir hana. En þeir, sem eru haldnir kv-hljóðvillunni virð ast margir vera hreyknir af henni, og það gerir málið óneitanlega erfiðara. En til hvers höfum við almenna skólaskyldu og móðurmálskennslu í öllum skólum, ef við eigum að láta það afskiptalaust, að málið villist af réttri leið á þró- unarferli sínum. Það er ó- heillaþróun, ef hljóð hverfa úr málinu og renna saman við önnur hljóð. Við það skapast nýir erfiðleikar í stafsetningu, nema henni sé þá breytt jafnframt. En við getum þá ekki lengi stært okkur af því, að við höfum varðveitt hina fornu tungu Norðurlanda. Slík málspjöll, hvenær sem þau láta á sér bóla, eigum við að koma i veg fyrir, áður en það er um seinan. Hefði almenn skólaskylda á borð við það, sem nú er, verið á 15. og 16. öld, þá hefði y-hljóðið sennilega aldrei horfið úr málinu, a. m.k. hefði verið óþarfi að láta hv hverfa alveg í fram- burði og fara svo eftir nokk- ur ár að skrifa kv í staðinn. Þegar kvalir fara að synda um í sjónum, og við losnum samt ekki við kvalir í tönn- um eða öðrum limum, þá verður orðinn úr því afleit- ur grautur. Ég skil ekki þá menn, því að mér er ekki grunlaust um, að þeir séu til, sem dett ur í hug, að við hættum kannski eftir fáein ár að skrifa hv, en vilja halda í y til eilífðar. Tímann, sem fer í að kenna z og tvöfaldan sam- hljóða, eigum við að nota til að kenna þeim að bera fram hv, sem kunna það ekki. Og þetta má ekki drag ast. Það verð'ur að koma öll- um Norðlendingum og öðr- um, sem bera fram kv í stað inn fyrir hv, í skilning um, að þetta er hljóðvilla eins og það er hljóðvilla að segja venur í staðinn fyrir vinur. Það var líka hljóðvilla að segja i fyrir y, þegar sú breyting var að fara fram. Og hvað geta margar hljóð- breytingar komið fram, ef ekkert er gert til að koma í veg fyrir þær? Ef norðlenzku skáldin geta ekki stuðlað hv á móti hv eða h, og kv á móti kv eða k, eins og þau stuðla t á móti t, en ekki t á móti k, þá verða þau bara að yrkja eintóm atómljóð, en slík afturför mundi vera þeim ósamboðin. Enginn mun bera á móti því, að málið er fyrst og fremst hljóðin, en stafkrók arnir eru búningur málsins. Og að leggja eingöngu rækt við búninginn, en gleyma alveg kjarnanum, er vægast sagt mikil skammsýni. Stefán Sigurðsson KæríJur fyrir njósnir Karlsruhe 24.4. (NTB) Hinn 61 árs gamli vestur-þýzki jafnað- armaður, Alfred Frenzel, hefur nú verið kvaddur fyrir rétt í Karls ruhe ákærður fyrir að hafa út- vegað tékknesku leyniþjónustunni hernaðarleg leyndarmál. Ákæran er á þá leið, að Frenzel, sem verið hefur þingmaður frá því 1953, hafi njósnað fyrir Tékka frá því í apríl 1956 þar til í október í fyrra, að hann var handtekinn. Mál Frenzels var mikið rætt í blöðum u mallan heim, er upp komst um njósnir hans í fyrra. Var jafnvel talið, að Frenzel hefði komið svo mikilvægum upp- lýsingum til Tékka og þar með til Rússa, að Vestur-Þjóðverjar neyddust til að gerbreyta hern- aðaráætlunum sínum, enda táti þingmaðurinn sæti í hermálanefnd þingsins í Bonn.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.