Tíminn - 31.05.1961, Qupperneq 2

Tíminn - 31.05.1961, Qupperneq 2
T í MIN N, miðvikudaginn 31. maí 1961 Hnippingar við skreið- artrönur á Álftanesi Vinna tuttugu kvenna stöfivuft Síðdegis í gær stöðvuðu verkfallsverðir allmargar kon-j ur, sem unnu við skreið fyrir Tryggva Ófeigsson útgerðar-1 mann. Voru konurnar að stafla og taka niður úr trönum suður á Álftanesi á félags- svæði Hlífar í Hafnarfirði. Ólafur, bróðir Tryggva, hafði sjálfur ekið konunum í lokuð- j um bíl á vinnustað og hafði eftirlit með verkinu. hafði verið fest rammgerð járn- keðja og henni vandlega læst, svo aðgangnr var síður en svo auð- veldur. Frá hliðinu er töluverður spölur að trönunum og sást ekki til kvennanna, fyrr en að var kon^ ið. Voru þá sumar uppi í trönum að taka niður fisk, en aðrar inni í skemmu. Þar voru einnig tveir vörubílar frá fyrirtækinu og að auki lokaður sendiferðabíll, sem konurnar höfðu verið fluttar í. Við erum ekki í verkfalli Allmikið hark varð við skreiðar skemmuna, en þó fór svo eftir nokkurt þóf, að Ólafur breiddi saman segli'n, ásamt föruneyti sínu, og fylgdu verkfallsverðir kvenfólkinu í bæinn. Læst járnkeðja v Um fjögurleytið í gær barst verkfallsvörðum njósn um að kon ur væru í skreiðarvinnu á veg- um Tryggva Ófeigssonar suður á Álftanesi. Fóru fimm verkfalls- verðir frá Dagsbrún í Reykjavík og fengu liðsauka og leiðsögu- frá Hlíf í Hafnarfirði, enda var málið báðum aðilum jafnskylt. Konurnar voru að störfum á fé- lagssvæði Hlífar, en voru hins veg ar allar úr Reykjavík. Blaðamað- ur frá Tímanum var með í för- inni. Syæð'i það, sem trönurnar og skemman er' á, er vandlega afgirt suður í Álftaneshrauni og ekki hægt að komast að því nema á einn veg. Þar milli hliðarstólpa Hermann Guðmundsson, for- maður Hlífar, hafði forystu fyrir verkfallsvörðum og skipaði kon- unuiR strax að leggja niður vinnu. Ekki vildu þær hlýða því f fyrstu og var ekki trútt um, að sumar hinar stæðilegustu byggjust til varnar með þorskhausa að vopni. Kváðust þær vera í sínum fulla rétti, „við erum ekki í neinu verk falli,“ hrópuðu sumar þeirra, höfðu skreiðina á lofti og létu ó- friðlega. Varð nú hið mesta stapp um nokkra stund og vildu ekki allar hætta vinnu. Hermann Guðmundsson kvað starf þeirra vera ólöglegt, þar sem þær væru á félagssvæði Hlífar og ynnu að auki karlmannsverk að nokkru leyti. Svöruðu þær því til, að karlmenn hefðu aldrei unnið með þeim. En samkvæmt reglum er upphenging og niðurtaka skreið ar talin karlmannsverk. Ólafur Ófeigsson sá nú sitt óvænna og tók það til bragðs að halda aftur af liði sínu, en þó urðu enn nokkr ar orðahnippingar. ECvæði ort Jóni Sigurðssyni verða gefin úf Ijósprentuð AB gefur út „Hirðskáld Jóns Sigur<Sssonar“ — Mynd af málverki af Jóni eftir Ásgrím Jónsson, sem ekki hefur áður komiÖ fyrir almennings- sjónir Nálægt 17. júní gefur Al- menna bókafélagið út bók, sem nefnist Hirðskáld Jóns Sigurðssonar. Uppistaða bók- arinnar eru kvæði, sem Jóni Sigurðssyni voru flutt hér af ýmsum skáldum, er hann kom heim til þings fyrr á árum. Dr. Sigurður Nordal hefur séð um útgáfu bókarinnar og ritar for- mála. Kjarni þessarar bókar eru 30 kvæði flutt Jóni Sigurðssyni eð'a sungin fyrir minni hans í veizlum, sem honum voru haldnar. Kvæðin eru ljósprentuð og líta því ná- kvæmlega eins út f bókinni og þeg ar veizlugestir höfðu þau sér- prentuð í höndum. Ýmis stórskáld f bókinni er m.a. Leiðaljóð Jónasar Hallgrímssonar eins og hann sjálfur les prófarkir af þeim og landar hans í Höfn fengu þau í hendur í veizlu, sem haldin var 29. apríl 1845, þremur vikum áður en Jónas lézt. Kvæðin eru ort af 12 skáldum á 33 ára tímabili. Skáldin eru bessi: Jónas Hallgrímsson, Finnur Magnússon, Gísli Thorarensen, Benedikt Gröndal, Gísli Brynjólfs- son, Jón Thoroddsen, Steingrímur Thorsteinsson, Matthias Jochum- son, Brynjólfur Oddsson, Gestur Pálsson, Indriði Einarsson og Bjöm M. Olsen.. Málverk eftir Ásgrím Fremst í bókinni er mynd af málverki, sem Ásgrímur Jónsson málaði af Jóni Sigurðssyni 1911. Það ár var efnt til samkeppni um málverk af Jóni og skiluðu þeir Þórarinn B. Þorláksson og Ásgrím ur sinni rmyndinni hvor. Mynd Þór arins hangir nú í sal Menntaskól- ans í Reykjavik, og þekkja hana allir af ótal eftirprentunum og myndum. Mynd Ásgríms er í eigu Ólafs Thors Jorsætisráðherra, og hefur hann góðfúslega gefið leyfi til þess að mynd af málverkinu verði birt, en það hefur ekki áður komið fyrir almennings sjónir. Þeir, sem þekktu Jón Sigurðsson, þar á meðal Indriði Einarsson, hafa allir lokið upp einum munni um það, að þessi mynd væri sér- staklega lík honum, eins og hann var. Litbrá mun ljósprenta kvæðin, og eins og fyrr getur, er bókar þessarar von nálægt 17. júní næst komandi. Konurnar gerðust þó ögn blíð- ari á manninn og voru það eink- um hinar yngstu, sem ekki mót- mæltu, heldur lögðu strax niður vinnu. Fór svo að lokum, að allt endaði í mesta bróðerni, konurnar settust upp í græna sendiferða- bílinn, sem mest líktist afdönkuð- um lögreglubíl, og tóku loforð af Ólafi að fá kaup til klukkan sjö, enda þótt þær hefðu orðið að leggja niður vinnu. Sú er einna harkalegast hafði veitzt að verk- fallsvörðum var meira að segja orðin það stéttvis undir lokin, að hún lét £ ljós álit sitt á tilboði at- vinnurekenda handa verkakonum: „Þafj má skera okkur á háls, áður en við þiggjum þær hundsbæt- ur.“ KEA 75 ára Kaupfélag Eyfirðinga á Ak- ureyri heldur 74. aðalfund sinn í dag og á morgun. Fé- lagið verður 75 ára á þessu ári, og verður þess án efa minnzt á aðalfundinum. Kaup- félagið hefur gefið út mjög vandað tölublað af „Félags- tíðindum" sínum í tilefni af afmælinu. Ný kjörbúð Kaupfélag Arfirðinga opnaði í gær fjórðu l^lEbúð .sína^á Akur- eyri. Er hún í Ránargötu 10, þar sem áður var útibú fyrir matvöru- sölu. Deildarstjóri er Kristján Ólafsson. Viðskiptin í kjörbúðun- um sýna glögglega, að þetta er langvinsælasta formið á smásölu- verzlun, a. m. k. með vissar vöru- tegundir. Verkfallið út um þúfur í S-Afríku NTB—Jóhannesarborg, 30. maí. Verkfall blökkumanna í Suður-Afríku, sem boðað var til 1 mótmælaskyni við kyn- þáttastefnu ríkisstjórnarinnar og stofnun lýðveldis utan brezka samveldisins, virðist hafa farið algerlega út um þúfur. Þátttaka varð aldrei almenn í v'erkfallinu, en vinna lá þó að mestu niðri í Jóhann- esarborg í gær. f fréttum frá Jóhannesarborg segir, að flestir blökkumenn þar hafi farið til vinnu sinnar í dag, og strætisvagíiar, sem troðfullir voru af verkamönnum, hafi haldið uppi venjulegum ferðum. Sama er að segja um önnur samgöngutæki, og er ekki annað að sjá, en að verkfallið hafi algerlega runnið út í sandinn. En ástæðan fyrir því er m. a. talin vera misklíð meðal verkfallsmanna sjálfra, en margir þeirra óttuðust grimmilegar ráð- stafanir ríkisstjórnarinnar, ef þeir tækju ekki upp vinnu að nýju. Kennaraskdlan- um sagt upp — í síðasta sinni í gömlu húsakynnunum Kennaraskólanum í Reykja- vík var sagt upp í gær, og er það væntanlega í síðasta sinni, sem honum er sagt upp í Fimm samhljóða atkvæði - tveir sátu hjá Á bæjarstjórnarfundi á Húsavík í gærkvöldi var samþykkt með fimm samhljóða atkvæðum, að skora á deiluaðila í kjaradeilu verkamanna og atvinnurekenda, að semja á grundvelli tillögu þeirrar, sem atvinnurekendur lögðu fram á laugardaginn var, Tilboð það var þess efnis, að kaup verkamanna hækkað'i um 12% í öllum launaflokkum nema þeim lægsta, en hann félli alveg niður, og það myndi þýða um það bil 15% kauphækkun fyrir þá, sem þar voru. Gert var ráð fyrir, að tilboð þetta gilti til tveggja mánaða. — Tveir bæjarfulltrúa á Húsavík sátu hjá í atkvæðagreiðsl unni um þessa tillögu. Landsprófi flýtt vegna konungs- komu Síðasta prófið í landsprófinu, landafræðipróf, átti að hefjast klukkan níu í morgun, og skyldi því lokið um hádegi. En með því að Noregskonungur fer fram hjá landsprófsskólanum í Vonarstræti rétt fyrir hádegið, var það ráð tekið að færa prófið fram um einn klukkutíma og láta það hefj- ast klukkan átta. Síld og meiri síld á Akranesi Akranesi, 30. maí. Á Akranesi var í gær land- burður af síld, og er unnið dag og nótt við að frysta síldina. Síldin veiðist skammt undan landi, um 18 mílur út af Skaga og er alveg tiltakanlega falleg. Haraldur kom með 1743 tunnur, Höfrungur með 900, Heimaskagi með 700 og 315 tunnur var Skipa- skagi með. Bátarnir eru með ís með sér til þess að kæla síldina. G.B. gömlu húsakynnunum við Laufásveginn. Þótt ekki séu horfur á því, að hægt verði að hefja Kennslu í nýju bygging- unni í Hlíðunum þegar í haust, verður vafalaust flutt þangað einhvern tíma vetrarins. Verður þá hægt að veita meira en helmingi fleiri manns ínngöngu í skólann, og veitir ekki af, vegna hins mikla kennaraskorts, sem hér ríkir. Skólinn hefur starfað í núver- andi húsakynnum síðan 1908, er skólinn var stofnaður. Skólastjóri er Freymóður Gunnarsson, og fastakennarar eru rúmlega 20 talsins. Að þessu sinni luku prófi og stóðust 129 nemendur í öllum bekkjum, 22 í fyrsta bekk, í öðr- um 21 og 15 í þriðja bekk. Kenn- araprófi luku 70, þar af 20 í fjórða bekk, 25 í stúdentadeild og 25 í handavinnudeild. Koma Noregskonungs (Framhald af 1. síðu). unni. Á hádegi verður athöfn á Austurvelli. Leggur konungur þar blómsveig að styttu Jóns Sigurðs- sonar og heimsækir eftir það Al- þingishúsið. Karlakórar bæjarins munu syngja á Austurvelli. Klukk- 'an 15,40 síðdegis leggur konungur blómsveig að norska minnisvarð- anum í Fossvogskirkjugarði, og karlakórinn Fóstbræður syngur við þetta tækifæri. Að því loknu, kl. 5, verður stutt móttaka fyrir sendimenn erlendra ríkja í Reykja- vík í ráðherrabústaðnum, og um kvöldið verður snæddur kvöldverð- ur að Hótel Borg. Fjöldi norskra blaðamanna er kominn hingað til þess að fylgjast með ferð konungs. 15% hækkun (Framhald af 1. síðu). greiða sem svarar 1% af kaupi í sjúkrasj óð verkamannafélagsins. Samningur þessi gildir til 1. október í haust. Samningarnar fela í sér 15% kauphækkun frá því, sem verið hefur. E.D. Bifreiöasalan Borgartúiu 1 selur bílana. Símar 18085 — 19615 Flokksstarfið i bænum Fulltrúaráðsfundur Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna í Reykjavík er boðað til fundar í Framsóknarhúsinu í kvöld, mið- vikudaginn 31. maí, klukkan hálfníu. Til umræðu verða kjaramálin, og verða Óðinn Rögn- valdsson prentari og Sveinn Gamalíelsson, formaður Framherja, frummælendur. Varamenn og hverfisstjórar eru beðnir að koma á fundinn.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.