Tíminn - 31.05.1961, Blaðsíða 6
6
TÍMINN, miðvikudagum 31. maí 196L
Sjötug:
Frú Ragnheiöur Eiríksdðttir
á Sólbakka
Þegar ég varð þess var að frú
Ragnheiður Eiríksdóttir á Sól-
bakka hefði náð hinum ofanskráða
aldri rak mig í rogastanz og þótti
ótrúlegt. Svo stutt fannst mér síð
an er ég sá hana fyrst rúmlega
tvítuga. Og aldrei finnur maður
það betur en á gamals aldri hversu
hraðfleygur tíminn er. Þannig
finnst mér sumt af því sem ég
„upplifði" á Flateyrarárum mín-
um hafa skeð í gær. Og þó eru
það áratugir, sem mörgu hafa
bylt og breytt í lífi mínu og ann-
arra. En það er líklega að því
leyti gott að eiga þessa tilfinn
ingu, að maður fjarlægist síður
gamla vini. Og þó fer það svo að
þeir fjarlægjast og hverfa, einn
og einn. En blessaðir séu þeir all
ir, þessir vinir mínir í Önundar-
firði, bæði rfs og liðnir.
Og nú langar mig til að minn-
ast frú Ragnheiðar með örfáum
orðum, —og að senda jafnframt
Eirikshúsinu á Flateyri kveðju i
mína.
Frú Ragnheiður hefur alla sína|
tíð búið búi sínu á Sólbakka. Hún
var gift Ásgeiri Torfasyni skip-
stjóra og síðan verksmiðjustjóra,
syni Torfa Halldórssonar kaupm.
og frú Maríu Össurardóttur, sem
lengi bjuggu á Flateyri og gerðu,
þar garðinn frægan. Var Ásgeir
mikill atgerfismaður, eins og þau
systkin öll, hugvitssamur verk-1
maður og ágætur drengur, en er
nú látinn.
Frú Ragnheiði sá ég fyrst á
heimili hennar, unga og glæsilega,
er ég kom þangað með barnahóp
á Sumardaginn fyrsta 1913, til
þess að láta hann syngja nokkur
lög fyrir Mariu tengdamóður henn
ar, sem þá var rúmliggjandi. Er
mér þessi heimsókn að Sólbakka
minnisstæð, bæði vegna gömlu
konunnar, sem var sérstæður og
eftirtektarverður persónuleiki, og
ekki síður fyrir framkomu og
glæsibrag hinnar ungu húsfreyju.
Og þá er mér ekki síður minn-
isstæð önnur og dapurlegri heim-
sókn á heimili hennar, er við kom
um þangað til að syngja við lík-
börur ungs sonar þeirra hjóna,
er farizt hafði af slysförum og;
var mikið harmsefni. Þá dáðist j
ég að sálarþreki og stillingu hinn'
ar ungu móður og með hve mikl-,
um tíguleik hún bar þá djúp-|
stæðu sorg. Og öll kynni mín af
frú Ragnheiði síðar sönnuðu mér
það, að hún væri úrvalskona.
Frú Ragnheiður er fædd að
Hrauni á Ingjaldssandi 22. maí
1891. Þar bjuggu þá foreldrar
hennar, hjónin Eiríkur Sigmunds
son og Sigríður Jónsdóttir, en
fluttust þaðan til Flateyrar 1905
og dvöldu þar það sem eftir var
ævinnar.
Og „Eiríkshúsið" á Flateyri var
mikill „vinabær“ okkar Þöngla-
bakkahjónanna vestur á Kambin-
um. Þar var þá þríbýli. Fyrstan
má telja þann, sem húsið var
kennt við, Eirík Sigmundsson frá
Hrauni, og konu hans. Þau höfðu
búið góðu búi á Hrauni og verið
mikilsráðandi í sveitinni og vel
metin. Var Eirikur hinn mesti
myndarmaður, hár og þrekinn og
að öllu hinn vörpulegasti, tröll-
tryggur vinum sínum og bezti
maður. Og kona hans var mikil
fríðleikskona, prýðilega greind og
að öllu hin ágætasta kona til geðs
og gerðar.
Svipað má segja um hjónin í
norðurenda Eiríkshússins, þau
Guðjón Sigmundsson, bróður Ei-
ríks og konu hans Svanfríði Jóns
dóttur. Hafði Guðjón fyrr flutt að
heiman en bróðir hans, stundað
sjómennsku alllengi, verið neta-
maður og stýrimaður á skipum,
m.a. á togurum, en var nú er hér
var komið, verkstjóri við fiski-
mjölsverksmiðju, sem Þjóðverjar
höfðu þá nýlega reist á Sólbakka.
Guðjón var hinn mesti heiðurs-
maður, greindur og fjölhæfur og
einn hinn skemmtilegasti maður,
sem á vegi mínum varð. Hann var
virtur maður og vinsæll. Og kona
hans var líka mikil mannkosta
kona, hjálpsöm og gestrisin. Og
það orð fengu bæði þessi sæmd-
arhjón.
Og svo voru það ungu hjónin
í suðurendanum, þá nýreistum,
þau Jensína, dóttir Eiríks og Sig
ríðar, og jafnaldri niinn, Ásgeir
Guðnason, síðar útgerðarmaður og
kaupm. á Flateyri um fjölda ára,
hin mestu sæmdarhjón, og hefi
ég getið þeirra áður í blaðagrein.
— Og börn húsráðendanna þriggja
í Eiríkshúsinu hafa reynzt hið
mesta atgerfisfólk og orðið því
til sóma.
Börn Eiriks og Sigríðar, 2 af 3
eru nú látin, þau Jensína og
Halldór, kaupsýslumaður í Rvík,
og um árabil forstjóri mjólkur-
samsölunnar, mikill atgerfismað-
ur, glæsimenni og prúðmenni.
Eftir lifir afmælisbarnið sjö-
tuga, frú Ragnheiður á Sólbakka,
og býr. hún þar enn í húsi sínu
og í nábýli við elzta son sinn,
Torfa, ,og konu hans.
Frú Ragnheiður ber svipmót
móður sinnar, mikil fríðleiks- og
greindarkona og ágætlega skapi
farin, — skapgerðin mild og
traust, heil og hrein og Ijúf
mennsku, góðvild og hjartahlýju
á hún í ríkum mæli. Hún er sterk
í trú sinni á guð og góða og fagra
siði, hefur jafnan stutt fast mál-
efni góðtemplara og allt það sem
til heilla má horfa mannbótum
og menningu sveitar og þjóðar.
— Hún er mikil húsmóðir' og á-
gæt móðir. Á ég margar góðar
endurminningar um ágætt sam-
starf við heimili þeirra hjóna.
Báru börn þeirra þeim og æsku-
heimili sínu gott vitni. Þau reynd
ust hin ágætustu skólabörn, Og
það sagði mér Sigurður Guð-
mundsson skólameistari, hinn
mikli mannþekkjari og ágætismað
ur, að í hópi sinna allra beztu
nemenda og skólaþegna væru ýips
ir Vestfirðingar, og benti þá m.a.
á ungmennin frá Sólbakka og
Hvilft. — Þeim hefur lika farn-
ast vel.
Böm þeirra Ragnheiðar og Ás-
geirs eru: Torfi, bóndi á Sólbakka;
Ragnar, héraðslæknir á ísafirði;
Haraldur, verkfræðingur; Önund-
ur, lögfræðingur; Ásgeir, lyfja-
fræðingur, allir í Reykjavík, og
dætur tvær, María og Hamja, öll1
gift og eiga afkomendur.
Um leið og ég nú minnist hinn
ar mætu húsfreyju á Sólbakka
Sveitavinna
13 ára drengur óskar eftir
starfa 1 sveit.
Uppl. 1 síma 16513.
Ung ensk hjón
óska eftir vinnu á góðu
sveitaheimili í tvo mánuði
nú í sumar. Upplýsingar í
síma 10899 eða tilboð sem
sendist skrifstofu Tímans
merkt: „Ensk hjón“.
Drengur
á 11. ári óskar eftir sveita-
störfum. Sími 18487.
Bíla- & búvélasalan
Símar 2-31-36 & 15-0-14.
TIL SÖLU:
Hanomag djeseldráttarvél
með sláttuvél, árgerð 1955
í ágætu ástandi.
BÍLA & BÚVÉLASALAN
Ingólfsstræti 11. Reykjavík.
•V*VV **V •VV*V‘V*V*VV*V ‘V»V
17 ára piltur
vanur sveitastörfum óskar
eftir starfa í sveit.
Uppl. í 33762.
•V-VVX • VV •-V-V‘-V.»-V-«*V.»'V. 'V»-V
Dugleg stúlka
óskast til eldhússtarfa.
HÓTEL TRYGGVASKÁLI !
Selfossi.
ALLT Á SAMA STAÐ
Þakgrindur á flesta bíla.
SENDUM GEGN PÓSTKRÖFU.
EGlLL ViLHJÁLMSSUN HrF.
Laugaveg 118, sími 2-22-40.
íbúð til leigu
Tvö herbergi og eldhús til leigu nærri miðbænum.
Einhver fyrirframgreiðsla áskilin.
Tilboð sendist blaðinu fyrir fimmtudagskvöld
merkt: „Sanngirni“.
Málverkasýning
Eggerts Guðmundssonar
í Nemendasal Iðnskólans. Inngangur frá Vitastíg.
Síðasti dagurinn.
Opið frá kl. 1—10 e. h.
Til söBu
er 4 herbergja íbúð í Laugarneshverfi. Félagsmenn
sem óska að nota forkaupsrétt að íbúðum snúi sér
til skrifstofunnar Hafnarstræti 8 fyrir 6. júní.
B.S.S.R.
Sími 23873.
Bifreiðasalan
Frakkastig 6
Símar 19092 — 18966 og
19168. Höfum ávallt á boð-
stólum mikið úrval hvers
konar bifreiða.
Kynnið yður verðlistana hjá
okkur áður en þér kaupið
bifreið.
við þessi merku tímaskil í ævi
hennar, lít ég með viðkvæmnum
hug til gamla Eiríkshússins og
hinna horfnu vina mlnna þar og
minnist þeirra með virðingu og
þökk.
Og frú Ragnheiði Eiríksdóttur
sendi ég einlægaustu afmælis-
kveðjur og þakka henni af alhug
ágæta viðkynningu. Og ég óska
henni og fólki hennar heilla og
blessunar á ófarinni leið.
28/5 ’61, Snorri Sigfússon.
Sænsk sporjárn
Sænskir heflar
Klaufhamrar
með stálskafti
Skrúfjárn
Þvingur
Tréborar
Austurstræti