Tíminn - 31.05.1961, Síða 3
jl^MjUija^BiiSvilnidagiiui 31. maí 196L
s
Næsta sunnudag, 4. júní, efnir FerSaklúbbur F.U.F. til gönguferSar á Esju. Má vænta aS margir hafi hug á aS
taka þátt í ferS þessari, enda fjalliS viS bæjardyr Reykvikvinga, þótt fáir þeirra hafi gengiS á þaS. FjalliS er
ekki mjög erfttt uppgöngu, og þegar upp er komlS, ber margt fyrir sjónir. Vonandi verSa veSurguSirnlr göngu-
fólkinu hliShollir. Frekari upplýsingar verSa gefnar i Framsóknarhúsinu kl. 5—7 síSdegis í sima 12942, og þar
er einnig hægt aS láta skrá sig til þátttöku ( förlnni.
Danskt varðskip laskar
enskan landhelgisbrjdt
Bretinn hugföst foría sér til hafs, en Daninn sæzlunni. segtr, að réttarhöid í
sendi honum kaldar kveojurnar og hæföi svo fram innan tíðar.
togarann nokkrum föstum skotum -
Norsk bókasýning
hjá Eymundsson
Verftur opin á meían Noregskonungur dvelur hér
— bækurnar til sölu atS sýningunni lokinni
í dag opnar Bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar sýn-
ingu á norskum bókum í til-
efni af komu Ólafs Noregskon-
ungs. Bækurnar eru frá nokkr
um stærstu útgáfufyrirtækj-
um Noregs og voru sendar
hingað flugleiðis.
f viðtali í gær skýrði Baldvin
Tryggvason, forstjóri AB, blaða-
mönnum frá því, að AB hefði
lengi haft áhuga fyrir norskri
bókasýningu hér á meðan Ólafur
konungur stendur við.
Færri en til stóð
Baldvin dvaldist í Noregi fyrir
skemmstu og færði þá mál þetta
í tal við norska útgefendur, sem
höfðu mikinn áhuga á málinu þeg
ar frá upphafi. Verkfail flutninga
verkamanna í Danmörku kom þó
í veg fyrir, að hægt væri að koma
bókunum í Gullfoss og senda þær
þannig heim. Loks var það ráð
tekið að senda bækumar flug-
leiðis, en sý^ingarbækur urðu
færri en upphaflega var ráð fyrir
gert.
Á sýningunni eru á þriðja
hundrað bækur eftir á annað
hundrað norska höfunda. Eru
bækurnar nær einvörðungu fagur
fræðilegs efnis, en nokkrar fjalla
þó um sögu Noregs og einstaka
þætti norsks þjóðlífs.
Til sölu
Af höfundum má nefna Henrik
Ibsen, Björnstjerne Björnson, Olaf
Bull, /»!exander Kieland, Jonas
Lie, Johan Bojer, Sigrid Undset,
Arnulf Överland, Johan Falkberg-
et, Nordahl Grieg, Sigurd Hoel,
Johan Borgen, Thor Heyerdal o.fl.
Forlög þau, sem sent hafa bæk-
urnar, eru H. Aschehoug, H.W.
Cappelens Forlag, Gyldendal og
Uni, -rsitetsforlaget.
Að sýningunni lokinni verða
bækurn^t. allar til sölu. Sýningin
er opin «*aglega frá kl. 9—6 þá
daga, sem Ólafur Noregskonung-
ur dvelst hér.
NTB—Kaukmannahöfn og
London, 30. maí.
Sá atburður varð í morgun
á miðunum við Færeyjar, að
danskt f iskveiðief tir litsskip
skaut nokkrum föstum skotum
á brezkan togara, sem reyndi
að forða sér til hafs að afloknu
landhelgisbroti. Búið var að
taka togarann og flytja skip-
stjórann yfir í eftirlitsskipið,
er togarinn, sem heitir Red
64 menn
fórust í
flugslysi
NTB—Lissabon, 30. maí.
Mikið flugslys varð f Portú-
gal í dag, er hollenzk flugvél
af DC-8 gerð, steyptist til jarð-
ar skamt frá Lisabon, og fórust
með henni 64 menn, þar á með-
al 10 börn.
Flugvélin var á Ieið frá Lissa
bon til Azóreyja. Hún hreppti
vonzkuveðúr og féll í sjóinn
með fyrrgreindum afleiðingum.
Fólk, sem bbýr í Costa Da Cap-
arica, segir svo frá slysi þessu,
að flugvélin hafi lent í stomi-
sveip, byrjað að falla til jarð-
ar þegar í stað og splundrazt
algerlega, er liún kom niður í
hafið nokkurra mínútna flug
frá Lissabon.
Sjómenn hafa flutt til lands
brak úr flugvélinni og limlesta
líkami farþeganna, en hvort
hveggja hafðí tvístrazt um
stórt svæði. Tvær rannsóknar-
nefndir, önnur hollenzk, en hin
portúgölsk, liéldu á slysstaðinn
í dag, og mun rannsókn á or-
sökum slyssins fara fram þeg-
ar í stað.
Crusader og er frá Aberdeen,
var settur á fulla ferð til hafs
og hugðist komast undan.
Skaut eftirlitsskipið nokkrum
lausum skotum fyrst, en er
togarinn sinnti ekki stöðvun-
arskyldu, var skotið föstum
skotum, sem löskuðu togar-
ann töluvert, en ekki er vitað
um nein slys á mönnum.
Aðdragandi þessa atburðar var
sá, að seint á mánudagskvöldið tók
danska eftirlitsskipið Niels Ebbe-
sen brezkan landhelgisbijót, sem
var á veiðum innan sex mílna
markanna við Færeyjar. Varð-
menn og einn danskur liðsforingi
voru settir um borð í togarann,
en skipstjórinn á Red Crusader
hins vegar fluttur um borð í eftir-
litsskipið og síðan var stefnt til
Þórshafnar í Færeyjum.
Setti á fulla ferð
Fyrri part dags í gær, þegar
skipin voru komin góðan spöl á-
leiðis til Þórshafnar, breytti tog-
arinn skyndilega um stefnu og
setti á fulla ferð á haf út. Niels
Ebbesen skaut þá nokkrum viðvör-
unarskotum að togaranum, en þeg-
ar skipverjar létu sér ekki segjast,
hóf eftirlitsskipið að skjóta föstum
skotum, sem hæfðu togarann á
nokkrum stöðum og löskuðu hann.
Alvarlegustu skemmdirnar urðu
eftir skot, sem hæfði bóg skipsins
á bakborða, en þar kom stórt gat.
Togarinn hélt áfram siglingu
sinni til hafs, en eftirlitsákipið
fylgdi fast á eftir.
Bretar senda freigátu
Brezka flotamálaráðuneytið
skýrði svo frá í dag, að tvö brezk
eftirlitsskip hefðu verið send á-
leiðis til miðanna við Færeyjar.
Var það tundurspillirinn Wooton
og freigátan Troubridge, sem hafa
samband við danska eftirlitsskipið
Niels Ebbesen, og var búizt við, að
þau mættust seinni hluta dagsins
í dag. Vonast menn því til, að við-
ræður fari fram milli skipstjór-
anna á eftirlitsskipunum í kvöld,
og gerðar verði upp sakir togarans.
í fréttum frá dönsku landheleis-
Tíu þúsund manns munu
forsetahjónanna
Gesivíítækar varú'ðarráístafanir í París
vegna komu Kennedys og konu hans
NTB—París, 30. maí.
Geysivíðtækar varúðarráS-
stafanir eru nú gerðar í París,
vegna komu bandarísku for-
setahjónanna í opinbera heim-
sókn til Frakklands á morgun.
Næstum tíu þúsund manns,
einkennisklæddir lögreglu-
þjónar, borgaralega klæddir
leynilögreglumenn, vopnaður
Skepnumðingur
fundinn
Akureyri, 30. maí.
Það er nú upplýst, hver
valdur var að misþyrmingum
á kindum í fjárhúsi eða fjár-
húsum hér í bænum á útmán-
uðum í vetur. Reyndist þar
vera um aðkominn sjómann
að ræða, rúmlega fertugan að
aldri, og hefur hann játað á
sig verknaðinn.
Hann var þá þegar í stað send-
ur til Reykjavíkur til geðrannsókn
ar. Glæpur hans var með þeim
hætti, að hann fór inn í fjárhús
á næturþcli og lék skepnurnar
svo grátt á ýmsa lund, að_ lóga
varð þeim daginn eftir. Ýmsir
menn hafa komizt undir grund um
athæfi þetta, og er gott, að hið
sanna er nú komið fram. Maður
þessi vakti á sér athygli með dul-
arfullu og undarlegu háttalagi, og
hann sást á ferli kringum gripa-
hús á Akureyri. Var hann þá tek-
inn til yfirheyrslu og játaði á sig
athæfið. E.D.
öryggisvörður, hermenn og
eftirlitsmenn af öllu tagi
munu vaka yfir hverju fótmáli
Kennedys og konu hans í
Frakklandi og gera allt, sem
í þeirra valdi stendur, til þess
að forða þvi að nokkuð komi
fyrir hina tignu gesti.
Framundan eru nú erfiðir dag
ar fyrir Kennedy Bandáríkjafor-
seta, því að þegar hafa verig á-
kveðnir margir viðræðufundir
hans og de Gaulles, Frakklands-
forseta. En strax að hinni opin-
beru heimsókn lokinni mun
Kennedy halda til fundar við
Krustjoff, forsætisráðherra Sovét
ríkjanna, en fundur þeirra verður
í Vín í byrjun næsta mánaðar,
eins og kunnugt er.
Nauðsyn að kynnast
Krústjoff
Auk fundanna við de Gaulle,
mun Kennedy sitja fundi með
fastaráði Atlantshafsbandalagsins
í París.
Sagt er, að forsetarnir muni
taka fyrir öll helztu stórmál, sem
nú eru á döfinni í heiminum, og
stjómmálamenn beggj^ landa
hyggja gott til þessara funda, þar
sem niðurstöður þeirra verði
Kennedy gott veganesti fyrir
fundinn í Vínarborg.
Fréttir herma, að Kennedy hafi
spurt de Gaulle um álit hans á
væntanlegum viðræðum hans við
Krustjoff, og hafi de Gaulle svar-
að því til, að hver einasti vest-
rænn ráðamaður, sem enn hefði
ekki átt þess kost að kynnast
Krustjoff persónulega, skyldi
stefna að því að eiga við hann við
ræður.
Slökkvilið á húsþökum
Fundir þeirra Kennedy og de
Gaulle munu verða haldnir í sendi
ráði Bandaríkjanna í París. Farið
mun í skrautfylkingu um götur
borgarinnar, en hvarvetna á leið
inni munu verða menn á verði.
Undan iídkingunni mun fara sér-
stök eftirlitsnefnd til þess að
„ryðja veginn“, eins og það er
orðað, en óttazt er, að hægri sinn
aðir öfgamenn kunni að gera til-
raun til að valda forsetanum fjör-
tjóni. Slökkviliðsmenn munu
koma sér fyrir á húsþökum með-
fram aðalgötum og hafa slöng-
ur sínar reiðubúnar, ef út af
bregður. Þá mun og fara fram
gaumgæfileg leit í öllum húsa-
kynnum, þar sem forsetinn dvelst
ef ske kynni að tímasprengjum
hefði verið komið fyrir.
Ný gerS síldar-
nóta
Ingólfur Theódórsson neta-
gerðarmaður í Vestmannaeyj-
um, hefur fundið upp og gert
líkan af snurpinót til síldveiða,
sem hann vonar, að gefi miklu
betri árangur en þær, sem
hingað til hafa tíðkast.
Nótin er mun síðari í miðjunni
en til hliðanna, og þegar hún er
dregin, myndast botn i nótinni,
sem á að koma í veg fyrir, að síld-
in stingi sér niður úr henni.
Ingólfur hefur sótt um einka-
leyfi á nót þessari. Hann hefur
einnig sótt um styrk úr fiskimála-
sjóði til þess að láta gera tilrauna-
nætur af þessu tagi.
Ýmsir reyndir formenn í Vest-
mannaeyjum hafa séð þessa nót
Ingólfs og mæla með, að kostir
I hennar verði reyndir.
i