Tíminn - 31.05.1961, Blaðsíða 11
miSvikudagiiin 31. maí 1961.
11
Hefur sex til sjö vin-
konur í takinu í einu
Hin 17 ára gamla franska kvikmyndaleikkona, Gillian Hills, sló i gegn
í kvikmyndinni Beat Giri, þar sem hún lék aðalhlutverkið á móti Adam
Faith. — Skæðar tungur segja, að þau hafí tekið sér tíma til æfinga í
einrúmi og utan dagskrár ....
11. síðan
MÖLAR
eru líka brauð
Það er sagt, að brennt barn
forðist eldinn, en þaS virSist
ekki alltaf koma heim. A. m. k.
ekki hvaS hjónabandi viSkemur.
Á- því sviSi eru margir, sem hafa
brennt sig pftar en einu sinni,
en hætta sér þó í eldlínuna á
ný. Þar má sem dæmi nefna
Hope Lang, sem fyrir stuttu
síSan fékk skilnaS frá Don
Glenn Ford og Hope Lang
Murray. Hún er nú tekin aS<
láta sjá sig meS Glenn Ford„
sem nýlega skildi viS Eleanor(
Powell eftir 15 ára hjónaband.
Eleanor hefur nú tekiS upp’
þráSinn þar sem hún lagSi liann'
niSur meS listdansinn.
ASspurS um samband þeirra(
Glenn Gords sagSi Hope Lang:
— Þótt eitt hjónaband hafi ekki’
lánast og endaS í skilnaSi, þarf<
maSur ekki aS lifa f cinsemd*
þaS sem eftir er ævinna. En ég
vildi gjarna fá tækifæri til þess^
aS strjúka svoIítiS um frjálst
höfuS, ógift og engum háS.
Glenn Ford svaraSi engu.
Hann gerir þaS vfst sjaldnast.
En þaS var greinilegt, aS hann
myndi óhikaS gera aSra tilraun,
ef Hope Lang væri fáanleg í
tuskiS! Svo ekki virSast þessi
brenndu börn vera bangin viS
eldinn!
Ólíkt hafast menn aS. Dóttir
Joan Crawfords, Chirstina, hef-
ur kosiS aS feta í fótspor móSur
sinnar og verSa kvikmyndaleik-
kona, og hún hefur þegar lokiS
sinni fyrstu mynd hjá Fox
kvikmyndafélaginu. En sonur
Joan, Christopher, strauk aS
heiman til þess aS vera viss
um aS heillast ekki til aS taka
þátt í kvikmyndalífinu, og hefur
nú gerzt strandvörSur í Florida.
Paul Anka á að leika Frakka
í næstu mynd sinni, Stúlkan
frá Montmartre. Það er álitið,
Það er svo með allar
stjörnur, að þær koma þjót-
andi upp á himininn af mik-
illi skyndingu en eru venju-
lega jafnfljótar að fölna og
jafnvel falla alveg á ný. Ekki
hvað sízt á þetta við um söng-
stjörnur unglinganna, þá sem
kallaðir eru rokkstjörnur eða
rokksöngvarar.
Þó eru þess dæmi, að
stjörnurnar séu ekki svo
ýkja fljótar upp á himininn,
og því til sönnunar má nefna
enska söngvarann Adam
Faith, sem fyrir þrem árum
reyndi að skjótast upp á
himininn. í tvö og hálft ár
vakti hann enga athygli, en
síðasta hálfa árið hefur hann
haft heppnina með sér, og
plötur hans seljast nú í
hundrað og þúsundatali.
Frægustu söngvar hans eni
„Hvað viltu, ef þú vilt ekki pen-
inga?“ sem hefur selzt í 900 þús.
eintökum, og „Vesalings ég,“
sem á örskotsstundu varð efst á
vinsældalistanum í Englandi
Öll heima ennþá
Adam er fæddur fyrir 19 áram,
í úthverfi London, Acton. Þótt
foreldrar hans hefðu aldrei mikla
að kanadíski hreimurinn í rödd
hans geti gengið sem franskur,
þótt hann nálgist hvorki Maur-
ice Chevalier eða Charles Boyer.
Skapgerðarleikarinn Sir Ced-
rick Hardwicke varð að troða
hrárri lifur í nasirnar á sér í
atriði, þar sem hundur átti að
sleikja hann i framan. Hundur-
inn vildi ekki sleikja hann fyrr!
Rithöfundurinn William
Faulkner heldur því fram, að
ennþá séu margir riddaralegir
menn til í heiminum. Hann
hafði þá nýlega heyrt um mann,
sem ekki hafði kysst konuna
sína í sex mánuði, en rauk til
og skaut annan mann undir eins,
þegar sá reyndi að kyssa hana!
Næsta kvikmynd Elvis Pres-
leys á að heita Tveir frá Tex^.s.
Og til tilbreytingar á að taka
myndina — í Texas!
peninga handa á milli, höfðu
þau lag á að' gera fyrirmyndar
heimili fyrir sig og fimm börn
sín, tvær stúlkur og tvo drengi.
Jafnvel ekki nú, þegar Adam
hefur peninga eins og sand, dett-
ur honum í hug að flytja að
heiman. Og það er eins með syst-
kini hans. Þau halda öll fast við
gamla heimilið, og fjölskyldan er
eins samheldin og hægt er að
hugsa sér.
Níðlatur
Þegar Adam lauk skólanámi,
vissi hann ekki hvað hann átti
að taka sér fyrir hendur. Sumir
kennaranna kölluðu hann latan,
sumir meira að segja níðlatan,
en það var ekki satt. Hann vildi
gjarnan hafa eitthvað að atast í.
En hann var fremur draumlynd-
ur. Hann dreymdi stóra drauma
um frægð á sviði kvikmynda, en
þá hafði hann ekki hugrekki til
þess að ráðast í framkvæmd á
því atriði. Hann lét sér nægja
dagdraumana.
Spilaði og söng
Svo fékk hann sér gítar og
byrjaði að spila á hann. Það var
þannig, sem Tommy Steel komst
fram á sjónarsviðið, og Adam
ætlaði að reyna að feta í fótspor
hans. Hann fór á milli kaffistof-
anna og hamraði á gítarinn sinn,
syngjandi Tommy Steel-lög með.
En allt kom fyrir ekki. Hæfileika-
veiðimennirnir létu ekki sjá sig,
þaðan af síður að þeir kæmu
hlaupandi, stórhrifnir, og byðu
Adam greifalaun og kvikmynda-
samning. Enda voru margir um
boðið, því þeir voru ekki svo
fáir, sem reyndu að feta í fótspor
Tommy Steel. Færri heppnaðist
að ná árangri. Einn þeirra, sem
náði í samning rétt við nefið á
. Adam var litli bróðir hans, annar
var Ross Conway. En allir vissu,
að „uppgötvun" þeirra var bara
sviðsetning, sem umboðsmenn
þeirra stóðu fyrir. Þeir létu þá
aðeins spOa á kaffistofunum til
þess að vekja athygli, þegar þeir
voru „uppgötvaðir."
Klappaði fyrir þeim
Adam hafði engan umboðs-
mann og þaðan af síður neinn,
sem slyngur væri að auglýsa
hann. En hann hafði annað. Vilja-
þrek og úthald. Næsta verk hans
var að stofna gítarhljómsveit.
Hljómsveitin gekk frá einni kaffi-
stofunni til annarrar og lék og
söng. Rétt og skylt er að geta
þess, að kvöld eitt var hinn frægi
hljómsveitarstjóri og tónskáld
John Barry áheyrandi, þar sem
gítarhljómsveit Adams Faiths
lék, og klappaði fyrir henni. Þar
með var líka árangurinn upptal-
inn.
Fór að klippa filmur
Þá fann Adam upp á því að
ráða sig sem sendisvein hjá Rank-
Film. Þar vann hann eitt ár, en
sá sem var, að það var engin
framtíð í því. Svo hann réði sig
hjá öðru kvikmyndafyrirtæki,
National. Þar var hann ráðinn
sem aðstoðarmaður við að klippa
og líma saman kvikmyndaræmur.
Á þessum tíma var gítarleikur-
inn og söngurinn svolítið farinn
að minnka, en nú vaknaði áhug-
inn á ný. Nú lét hann skrá sig á
hæfileikasamkeppni, og mætti
t>ar á tilsettum tíma með gítar-
inn sinn. Þar heyrði John Barry
hann og sá í annað sinn, og
minntist þess nú að hafa séð hann
áður. Og ekki nóg með það, held-
ur réð John Barry hann undir
eins til þess að skemmta með
sér í sjónvarpsþætti, sem hann
sá um í brezka útvarpinu.
Upp til stjarnanna
Og nú virtist framgangurinn
hafa snúið sér að Adam Faith.
Hann varð vinsæll í sjónvarpinu,
og fékk samning um að syngja
inn á plötur. Þær seldust eins og
heitt brauð, og hann söng inn á
fleiri plötur. Allt í einu var hann
á svo hraðri leið upp til stjarn-
anna, að hann fylgdist varla með
því sjálfur. Hann fékk sér um-
boðsmann, það er kona að nafni
Eva. Það er ekki svo illa til
fundið — Adam og Eva. Fyrir-
tæki þeirra blómgaðist í ákafa
með hverri plötupptöku og samn-
ingi hækkaði kaupið, og í dag fær
Adam hvorki meira né minna en
1000 pund á viku, sem mun
láta nærri að sé um 100 þús. kr.
íslenzkar!
f kvikmyndunum
Þegar sjónvarpið og grammo-
fónplöturnar höfðu gert Adam
að stjörnu, fengu kvikmyndimar
líka áhuga fyrir honum. Nú þeg-
ar hefur hann leikið í tveimur
myndum, The Spider og Beat
girl. Beat girl er sú mynd ensk,
sem hefur fengið einna flesta á-
horfendur til þessa. Þar leikur
hann „leðurjakka", sem á íslandi
eru þó líklega þekktari undir
nafninu „töffar“, og meðleikarar
hans eru, auk gítarsins, Noelle
Adam, Gillian Hills, Christopher
Lee og David Farrar. Gillian
Hills er ný, 17 ára, frönsk stjarna,
og sagan segir, að þau hafi e. t. v.
sézt oftar en við upptökumar.
En bæði hafa lýst því yfir, að
þau séu „aðeins góðir vinir, og
hafi ekkert sérstakt í hyggju.“
Þetta „sérstakt" mun þýða trú-
lofun eða giftingu.
Óbreyttur
Allir þeir, sem Adam þekkja,
segja að hann hafi ekkert breytzt
við framann. Hann hafi ekki stig-
ið honum til höfuðs. Hann hefur
ekki skilið við sína gömlu félaga,
þótt hann hafi nú kynnzt nýjum
og áhrifaríkum vinum. Og hann
hefur svarið við allt, sem honum
er heilagt, að heimili hans, fjöl-
skylda og allt þetta gamla góða
í hinni ósköp venjulegu götu í
Acton, skuli halda áfram að vera
hans heimili og nánasta fólk.
Fékk sér bíl
Hann fer vel með peningana
sína. Þegar hann hefur borgað öll
nauðsynleg útgjöld, fæði, klæði,
húsnæði, skatta o. s. frv., leggur
hann afganginn í banka. Hið eina,
sem hann hefur leyft sér í lúxus-
(Framhald á 15. síðu).