Tíminn - 04.06.1961, Blaðsíða 9

Tíminn - 04.06.1961, Blaðsíða 9
TfBIINN, ggmradaglnn 4. fftní 1961. Einna voldugustu þjóðsögur, sem ritaðar hafa verið, eru af tveim systkinum, sem hétu Bjarni og Þórdís. Þessar þjóðsagnaper- sónur hafa fengið nafn hvert af öðru og heita almennt í sögum Dísu-Bjarni og Bjarna-Dísa. Svo samtvinnuð er saga þessara syst- kina, svo óijúfandi sameiginleg forlög þeirra og minning, að hvort verður öðru að fylgja, svo full skil greining gefist á þeirra tilveru. Það þarf aldrei að taka það fram að þau séu Þorgeirsbörn, og það er eins og engum komi það við, hvar eða hvemig þau séu upp- j runnin. Til skamms tíma hefur heldur engan varðað um það j á hvaða tíma þau lifðu. Sögurnar virðast svo órjúfandi tengdafr ís- lenzkum örlögum, að tímaákvörð- un eða tímatakmark, skipta þar engu máli. Hin voldugu forlög, hinar voldugu sögur, virðast missa í við það, að farið sé að skýrgreina þessar hetjur þjóðsagnanna, ár- færa atburði, og gera fræðilega grein á þeim og fólki þeirra, jafn- vel að fara að skoða þessar sögur í Ijósi almennra viðburða í sögu hins íslenzka fólks á íslandi fyrr eða síðar. Það var fram á síðustu tíma aldrei skeytt neitt um það hvenær þessir atburðir gerðust, sem þessum voldugu sögum ollu. 5>að var þó á fyrra hluta nítjándu aldar, sem menn vissu að ýmsir af þeim mönnum lifðu, sem við söguna komu, en allt fyrir það gat atbuiðurinn skeð löngu fyrr. Þessar sögur voru þess eðlis að þær snertu ekki rás tímans frekar en verkast vildi. Þetta var eðli- legt. Þær voru ekki af þessum heimi nema öðrum þræði, og voru þannig sagðar, að þær urðu allar að öðrum heimi. Uppruni þeirra er þó allur einn — og samur. Tvö systkin ferðast yfir Fjarð- arheiði, milli Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðar, þar sem þau eiga heima, og eru á heimleið. Þau eru misþykk sín í milli, því Bjarni skilur, að veður getur farið versn- andi, svo ekki sé kvenna meðfæri, en Þórdís skeytir því engu og vill fá að fylgjast með Bjarna bróður sínum yfir heiðina, og eltir hann úr garði, þegar Bjarni setur þvert nei fyrir að hafa hana með sér. Þannig byrjar þessi saga og það virðist ekki von á góðu fyrst þetta er byrjunin. Það fer líka svo, að þau hreppa aftakaveður yfir heið- ina. Þetta er ekki löng leið, rétt um 10 km milli hábrúna, en að- dragandi beggja megin nokkru styttri eða alls um 17 km. Tilj Fjarðarheiðar er farið af fremstu • bæjum í Eiðaþinghá, en af yztu1 bæjum fara menn gjarnast Vest- dalsheiði til Seyðisfjarðar. Ekki, leggja þau út í svartan byl í byggð um niðri svo þau eru komin upp 1 á brún eða lengra, þegar veðrið, skellur á. Ekkert orðspor hefurj farið af veðurstöðunni, en þarna getur veðrið verið hart af flest- um áttum, og munar ferðamann- inn miklu, hvort hann hefur veður með sér eða móti. Þetta er síðast í nóv. og dagur orðinn stuttur. Um það leyti leggja Héraðsmenn venjulega á Fjarðarheiði um og fyrir birtingu, og ekki hægt að bíða birtu til að athuga veðurút- lit nægilega gaumgæfilega. Systkinin eru bæði ung, Bjami 23 ára, Þórdís 21 árs. Þau eru bæði sæmilega vel á sig komin, en of ung til þess að skilja til fulls við hvað getur verið að etja í hríð á háfjöllum. Það er ekki getið um það að þau villist á heiðinni, enda veðurstaða senni- lega á eftir þeim og glögg, svo eftir henni má fara rétta leið. En það er getið um brennivín í ferð- inni, og ef til vill er ferð Bjarna gerð í því skyni að afla þess, því sagan segir, að hann hafi komið neðan af Eskifirði og lagt þannig leið sína, að fara upp á Hérað, sem er auðveldari leið milli þess- ara fjarða, þótt lengri kunni að reynast. Á þeim dögum trúðu menn því, að brennivín væri til hressingar, og yki mönnum þrótt. Fkkert er fjarstæðara. En hvort sem þau hafa neytt brennfvíns eða ekki, þá þraut Þórdísi göng- una og voru þau þá komin niður af efstu brún, Seyðisfjarðarmegin, og niður í dalhvilft, sem nefnist milli stafa á Seyðisfjarðarleið. Ætla má að norðarlega hafi þau komið i dalhvilft þessa, og er þá eigi löng leið að fara ofan að innsta bæ í Seyðisfirði, Fjarðar- seli. Bjarni tekur það ráð að búa um Þórdísi í snjóbyrgi og skilur eftir hjá henni brennivínskút og ef til vill eitthvað matarkyns. Eftir það heldur hann áfram og drjsl- ast að Fjarðarseli eða Firði. Er þá talið að komið sé fram á vöku. En sagan segir að Bjarni hafi verið mjög aðþrengdur og lítt mátt mæla, og grunar mann, ef það er rét't saga, að fyrst og fremst sé hann ósjálfbjarga af brennivíni. Hann kvað sofa af nótt, en ranka við sér daginn eítir og segja þá ferðasöguna, og hvar hann hafi skilið við Þórdísi. Segir sagan þá að veður hafi veiið ófært, karl- menn ekki treyst sér til að fara hvers sé von, þegar Dísa er á ferð- inni. Allar þessar sögur tilheyra áhuga manna á dulrænum efnum, gátuinni miklu, sem menn vilja svo gjarnan fá ráðna, hvað sé á bak við fortjald dauðans, sem reyndar virðist nokkuð augljóst mál, og mönnum er kennt að trúa í kristindóminum en allt fyrir það hvílir undir svo miklu fargi efans, að menn vilja sjá tákn og stór- merki um framhaldslífið, og sög- urnar um tilveru manna eftir dauð ann, þó það séu draugar, sem um er að ræða, taka á sig eins full- kominn raunveruleikablæ, og raun verulegur maður getur frekast borið vitnisburð um. Þar þarf ekki ævinlega stóra flugu til að gera úlfalda. Þessar sögur verða svo oft hreinn veruleiki, sem hefur bein áhrif á veruleikans líf, og ganga í lið með draugunum í þeirra afrekum. Svona er þjóð- trúin og hugarstefnan í raun og veru voldug. Hörmulegur atburð- ur á heiðum uppi, verður að fá stærri merkingu en það, að vera rökum reist, en aðeins benda á það sem hér var fyrr sagt að fólk- ið stækkar söguna, svona einföld saga, eins og kirkjubókin segir, virðist engan veginn nóg saga af svona stórfelldum atburði. En þetta veldur því, að það virðist j forvitnilegt, að vita fleiri stað- reyndir um þetta fólk til að láta verða samferða þjóðsögunni, því illt er það, að röng saga eða stíl- | færð er álitin með öllu sannleikur. j Má hér og gera ráð fyrir að að- : eins sé um venjulegt fólk að ræða, Isem staðið hefur í venjulegu lífs- stríði á íslandi, sem jafnan hefur ekki verið notalegt fyrir almúg- ann og eiga sögu í samræmi við það. Það er þó svo að hér er erf- itt viðfangs fyrir heimildarleysi, því aldrei hefur þetta fólk komizt inn í ættarskrár með uppruna sinn og lífsaðstöðu. Það verður því að leita og reyna að rekast á heimildir, ef þær eru á annað borð fyrir hendi. Og þótt að sak- ferlis- og tugthússkrár séu oft verð miklar heimildir, þá virðist ekki FRA ÞORGEIRS60RNUM á snoðir um Þórdísi og hafi svo verið, jafnvel fleiri daga. Þorvaldur Ögmundsson hét mað- ur, þá í Firði, mikill fyrir sér. Er upp birti fer hann að vitja um Þórdísi ásamt nægilegu fylgdar- liði og var Bjarni einn með í för- inni. Þeir finna bælið fljótt, enda lá Þórdís ekki kyrr. Hún er risin í byrginu, og rekur upp hljóð, skelfileg, svo ónáttúrlegt mátti kalla. Sjá þeir að hún gengur fram úr bælinu nokkur fet, en stekkur svo afturábak í bælið aftur. Sáu þeir að þetta gerði hún tvisvar meðan þeir voru á Ieiðinni og í sama mund og hún bjóst til að gera þetta í þriðja sinn, ber Þor- vald bónda að, og ræðst hann á Þórdísi og brýtur hana á bak aft- ur, þvi nú vissu þessir vitru menn að hún var með þessu að ganga aftur, og næði hún að gera þetta afturábakstökk í þriðja sinn, þá var hún orðin óyfirstíganlegur draugur. Allt fyrir það var hún nú orðin draugur og Þorvaldur bóndi gerir nauðsynlegar ráðstaf- anir til þess, að hún fylgi ekki sér og sínum ættmennum, hvað sagan segir að þó hafi ekki tekizt. Þannig segir þjóðsagan frá upp- hafi þessa draugs, Bjama-Dísu, sem svo margar sögur gengu af á Austurlandi langt fram á 19. öld —‘ skaðræðisdraugur, sem fyrir- kom mönnum og skepnum, og fylgdi fyrst og fremst Bjama bróð ur sínum, og svo Þorvaldi og niðj- um hans. Fastast fylgdi hún þó Bjarna og eyðilagði líf hans. Hann missir fyrri konuna með hörmulegum hætti, sem þjóðsagan greinir, því hún lætur sig hvergi, þótt staðreyndir kunni að sýna annað. Öll börn hans deyja og fyrst og fremst af hennar völd- um og Bjarai verður einrænings einstæðingur, unz hann kveður þetta líf. Hins vegar er hún með Bjarna, þegar hann á í útistöð- um við aðra menn, eða menn ger- ast svo djarfir að hvefsa Bjarna, og það er ekkert hálfverk á sliku. Hún er vís að leiða þá ramvillta fram af björgum og þar fram eftir götunum. Þeir, sem verða hennar varir, heyra að það skrjáfar í frosnum fötum, svo það lærist að þekkja það hver er á ferðinni, og einfaldlega hörmulegur atburður. Er það ekki sjálfgefið í siðferðis- vitund fólksins, margstaðfastri af lögmálum, að maður sem skilur við systur sína í nauðum, ekki all- fjarri mannabyggðum — kannske fullur og vitlaus — taki þess gjöld í forlögum sínum, þótt enginn hafi uppi neitt dómsorð um það, við einn eða neinn, á eina eða aðra grein. Þessi lögmálsbundna siðgæðis- vitund verður bara að sögum, blá raunverulegum sögum, voldugum sögum, sem að lokum skilja við Bjarna, einræning og einstæðing, og hafa náð sínu marki, jafnt eftir ytri og innri leiðum. Þannig verð- ur voldugur og hörmulegur dauð- dagi Þórdísar Þorgeirsdóttur, að voldugu afli í sálarlífi fólksins, sem nær sér niðri í sögum, sem ganga yfir skilvitlega greining og staðfestast í runalífi Bjama á fleiri en eina grein, þrátt fyrir það ber engan dóm að leggja á sálarlíf Þórdísar, lifandi og dauðr- ar, og samband þess við Bjarna, en það fer eftir öðrum lögum en sögum, enda á Bjarni sjálfur þar hálfan hlut að máli. En nú er að líta á fyrstu stað- reyndir þessa máls. í kirkjubók Dvergasteins fyrir árið 1797 stend- ur: „12. desember grafin Þórdís Þorgeirsdóttir, varð úti á Fjarðar- heiði h. 28. nóv., fannst með lífs- marki, en dó áður en til byggða næði.“ Ekki er frekari grein gerð á Þórdísi, sagt að hún sé 24 ára, en ekki í hvaða erindum hún hafi verið uppi á Fjarðarheiði, hvort hún hafi verið eiu á ferð eða fleiri hafi verið saman. Hér er það þó skýrt tekið fram að hún hafi náðst með lífsmarki, en dó síðan. Geng- ur það á snið við þjóðsöguna af Þorvaldi og harðræðum hans, og er þó ekki gott að vita, hvort prest urinn skilur, að hún hafi verið lifandi er Þorvaldur kom að henni, en láti þess ekki getið með hverju móti húm lét lífið. Samt er frá- sögn kirkjubókarinnar svo eðlileg og blátt áfiam og vel þekkt úr lífi fólksins, að það virðist engra athugasemda þurfa við um at- burðinn. Öll þessi mikla afreka- saga Þorvaldar er hann braut Þór- dísi á bak aftur, virðist á engum þurfa að leita að þessu fólki þar. Er það þó einmitt þingbók Norð- ur-Múlasýslu, sem geymir gleggst- ar upplýsingar um Þorgeir föður þessara systkina, en kirkjubækurn- ar aftur á móti um börn hans. Það er bezt að byrja á því sem þjóðsagan segir, því jöfnum hönd- um þarf að ógilda hana og upp- lýsa málið. Það eru þjóðsögumar, sem reynt hafa að láta það ekki gleymast, að þessi maður var til. Þar segir hjá Sigfúsi, að Þorgeir hafi komið langt að, helzt sunnan af landi, hafi komið við á Dalhús- um í Eiðaþinghá, og beðið um leyfi til að á hestum og spretta af þeim reiðfærum. Þorgeir hefur svo áð á Dalhúsum, þangað til að hann var kominn í kærleika við dóttur bóndans, og síðar hafi þau gifzt og orðið foreldrar þessara umræddu systkina. Síðan hafi það orðið að máltæki, „það var naum- ast að hann áði hann Þorgeir“ eða „það var naumast að hann spretti af hann Þorgeir“. Sjálfsagt hefur eitthvað þessu líkt skeð í lífi Þor- geirs, því ekki hefði þessi máls- háttur orðið til, án einhvers til- efnis. Og það eru kannske líkur til þess, að þetta hafi skeð á Dal- húsum, jafnvel þótt fátt sé til svo staðfastlegt af því, sem vitað er um Þorgeir, að fyrir það veiði með öllu synjað, og ekki geti skeð að Þorgeir hafi einmitt eitthvað komið við i Dalhúsum. Alltaf veit saga fólksins eitthvað, sem á ein- hvern hátt bendir á einhvern sann leika. Maður lítur fyrst í bænda- talið frá 1762, ef svo skyldi vilja til, að Þorgeir sé meðal þeirra, sem þar eru skráðir, og standa svo hátt í mannfélagsstiganum að vera þar á skrá. Maður leitar heldur eigi til einskis. Á Hrappsstöðum í Vopnafirði býr kona, sem heitir Sigríður Magnúsdóttir, og þar stendur reyndar að húsmaður sé þar, Þorgeir Erlendsson. Þar vill svo til að þetta nafn er næsta fá- gætt á Austurlandi á fyrirfarandi tíma, aðeins 1 maður með því nafni 1703, þrettán ára piltur, fóst ursonur Þórarins Einarssonar á Þverhamri í Breiðdal. Það er kannske von að menn haldi að Þorgeir sé þaðan upp- runninn og eigi sízt af þeim sök-i 1 um að í Breiðdal býr um og fyrir miðja 18. öld Þorgeir Snorrason á Geldingi, og var merkur maður. Af þessum sökum hafa menn ef til vill haldið að Þorgeir hafi komið sunnan á Hérað. Síðan er saga hans svo staðfastleg við Hér- að, að næsta ólíklegt er að hans sé að leita norður í Vopnafirði. Næstu heimildir sem eitthvað mætti kannske græða á, eru Þinga- bækur Norður-Múlasýslu, sem til eru frá 1752, og í manntalinu 1816 er eitt af Þorgeirsbörnunum, Mar- grét, f. á Giljum 1759 eða um það bil, svo verið gæti að hún væri' óskilgetin og þá koma nú þinga- bækurnar við sögu. Það er næsta ár 1763 á mann- talsþingi á Ásbrandsstöðum, sem Þórður prestur Högnason kærir baraeign Þorgeirs Erlendssonar og Sigríðar Magnúsdóttur í lausa- leik, og segir að barnið hafi fæðzt fyrir jól, en á Mikaelsmessu hafi þau Sigríður og Þorgeir verið gef- ir. saman í Hofssókn, en Hrapps- staðir voru í Refsstaðakirkjusókn, sem séra Þórður þjónar. Segir síðan, að þau hafi á liðnu vori farið norður á Langanes í Norður- sýslu. Spyr sýslumaður, sem þá er Pétur Þorsteinsso’n á Ketils- stöðum, frekar eftir þessum per- sónum, eins og hann sé málum alls ókunnur, og segja Vopnfirð- ingar að þessi barneign muni vera harns fjórða, en Sigríðar þriðja frillulífsbrot. Nú virðist málið horfa undarlega við. Sigríður á Hrappsstöðum xxxxx54 ára 1762 og virðist eiga 5 böra, en allt er manntalið á Hrappsstöðum svo ó- greinilegt að auðséð er að prest- urinn hefur ekki komið í Hrapps- staði til að spyrja fólkið um aldur og tjáist Þorgeir 25 ára, og er nú búinn að eiga 4 lausaleiksbörn! Hvernig er þessu varið? Getur Þorgeir tekið alla þessa fjölskyldu og flogið með hana landshorna á milli, og hvaða líkur eru nú að verða fyrir því, að hér sé um þann Þorgeir að ræða, sem leitað er eftir? Þetta kemur ekki heim og saman. En fyrst að Þorgeir er bú- inn að eiga 4 láusaleiksbörn, þá hlýtur hans að vera getið víðar í þingabókinni, og mann grunar strax að barnið sem fæðist á Gilj- um, og er Þorgeirsbarn, sé eitt á meðal þessara barna, og eitthvað hafi Þorgeir komið við á Héraði. Og nú er það á þinginu við Tré- brúna 1761 sem Ólafur prestur Brynjólfsson á Kirkjubæ kærir það að Þorgeir Erlendsson og Sig- ríður Magnúsdóttir hafi átt barn saman, og nú séu þau tekin saman við búhokur á Hvammsseli, en það liggur út fr'á Giljum, snertu- spöl,-og tilheyrði lengstum Tungu- hreppi og Kirkjubæjarsókn, og finnst getið þess, að það sé 1% hdr. úr Stórabakka í Tungu, en milli lá Blöndugerði, sem einnig er frá Stórabakka 2 hdr. að dýr- leika úr Stórabakka. Sjálfstæð eign var Hvammssel lengi, en um langt skeið hefur það talizt til Gilja á Jökuldal, enda löngu aflagt býli og hefur aldrei verið utan hið mesta hormosakot. Þennan lifnað vill ekki Ólafur prestur í út- kjálka síns virðulega prestakalls. Segir hann ennfremur að þessi hjú séu aðkomin úr miðhluta Múlasýslu, en þá og lengi fyrr var Múlasýslum skipt í þrennt, og var miðhlutinn Valla-, Eiða- og Hjalta staðahreppar í Héraði og síðan fjarðahreppar að Reyðarfirði, Helgastaðahrep^ur syðstur. Af þessu svæði' eiga þessi hjú að vera, að vitund séra Ólafs og annarra þingmanna við Trébrú. Og þetta fólk vilja þeir ekki hafa í þing- laginu. Maður spyr: Hvers vegna giftast þau ekki? Það vill líklega enginn vera svaramaður þeirra og bera ábyrgð á dvöl þeirra og af- leiðingum hennar á þessum slóð- um. Nú er það Ijóst mál að hér er um allt aðra konu að ræða en Sigríði Magnúsdóttur á Hrapps- stöðum, sem þar býr 1759 við fá- tækt og skuldar eins og aðrir bú- endur, gamla Hörmangarafélaginu. Framhald næsta sunnudag.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.