Tíminn - 04.06.1961, Blaðsíða 3

Tíminn - 04.06.1961, Blaðsíða 3
MHINN, amumdaglnn 4. Jfinl 196L / ALLUR HDMURINN VÆNTIR MIKILS AF FUNDI K & K Undanvillt lömb borin í bæinn í Grímstungu var rúmlega þúsund fjár á fóftrum í vetur og margt af ám borií í hvítasunnuhretinu NTB—Vínarborg, 3. júní. Kennedy, Bandaríkjaforseti, og kona hans komu til Vínar- borgar í morgun, en hinni op- inberu heimsókn forcetans í Frakklandi lauk { gær. Á flug- vellinum í Vínarborg var Adolf Scharf, forseti Austur- ríkis, mættur ásamt ríkis- stjórn sinni, og var forseta- hjónunum vel fagnaS. Krúst- joff, forsætisráSherra Sovét- ríkjanna hafSi komiS meS lest til Vínarborgar í gærkveldi, og hófust viSræSur þessara tveggja stórmenna strax viS hádegisverSarborSiS I dag. ViðræSur þeirra Kennedys og Krústjoffs munu fara fram í bandaríska sendiráðinu í Vínar- boig í dag, en á morgun halda þeir aftur fund í sovézka sendiráð inu þar í borg. Dvaldi í Vín í æsku Við komuna sagði Kennedy, að hann vonaði, að þessi fundur þeirra Krústjoffs mætti verða til þess, að skilningur þjóða í milli ykist og friðarhorfur í heiminum almennt yrðu betri. Hann kvaðst hafa dvalizt í æsku sinni um mán- aðartíma í Austurríki í orlofi, og nú fagnaði hann því að vera kom- inn þangað aftur við svo mikil- vægt tækifæri. Scharf forseti flutti einnig stutta ræðu og sagðist vænta þess, að þessi fundur yrði árangursríkur og til þess fallinn að draga úr spennunni í alþjóða- málum. Blaðaummæli Moskvublaðið Pravda tekur und ir þau ummæli Krústjoffs, forsæt- isr'áðherra, að mikdð geti áunnizt á Vínarfundinum, ef góður vilji KENNEDY KRUSTJOFF Á þriðjudaginn eftir hvíta- sunnu gerði stórfellt hret um landið norðanvert, eins og kunnugt er. Sauðburður var þá hafinn og fé víða langt frá bæjum. Mun þá mörgu ný- bornu lambinu hafa orðið kalt, þótt reynt væri að bjarga þeim eftir beztu getu. Bændur smöl- uðu auðvitað fé sín]u í flýti, en margt lamba mun hafa villzt frá mæðrum sínum og eitt- hvað farizt úr kulda. Að sjálfsögðu reynast mörg fjárhús þröng, þegar hýsa þarf fjölda af lambfé, og er þá reynt að nota annað það húsnæði, sem tiltækt er, svo sem hlöður, geymsl ur og annað. Margur hálfkrókn- aður lambarpjinn mun líka hafa verið vermdur við eldavélina og hellt ofan í hann heitri mjólk eða jafnvel brennivíni. Á stórbúum norðanlands hafa vafalaust mörg lömb þurft á slíkri líkn að halda í þessu síðasta hreti. Blaðið hefur frétt að í Grímstungu í Austur-Húnavatns- sýslu hafi verið hlúð að 50—60 væri fyrix hendi af beggja hálfu. Blaðið segir, að allur heimurinn mundi fagna því, ef fundurinn leiddi til betri sambúðar Banda- ríkjanna og Sovétríkjanna. Segir blaðið ennfrenuu-, að ef jákvæður árangur náist í viðræðunum um bætt samskipti þessara þjóða, muni því ekki aðeins verða fagn- að í Bandaríkjunum og Rússlandi, heldur um gervallan hinn friðelsk- andi heim. f fréttum Moskvuút- varpsins á ensku í gærkveldi seg- ir, að allur heimurinn vænti þess, að þessar viðræður verði til þess að draga úr kalda stríðinu, og verða spor í áttina til að leysa hin margvíslegu vandamál á friðsam- legan hátt. Engum detti í hug, að öll vandamál verði leyst á þessum eina fundi, en viðræðurnar gætu orðið vísir að skjótum úrlausnum vandamálanna, sagði útvarpið að Iokum. lömbum inni í bæ, þegar annað húsaskjól þraut. í Grímstungu búa bændur þrír, Lárus Björnsson og synir hans, Eggert og Grímur. Höfðu þeir rúmlega þúsund fjár á fóðrum í vetur, og er það álit- legur hópur með lömbum. Hafði margt fé þar verið langt frá bæ og eitthvað af lömbum týndi mæðrum sínum í smöluninni, því að talsvert af ánum var borið. Fréttamaður blaðsins hafði tal af Lárusi bónda og bað hann að segja sér eitthvað frá þessu. Hann var heldur tregur til þess og kvað það engin tíðindi þar um slóðir, þótt nokkrum lömbum væri stungið inn í bæ í illviðri. Hann sagði, að margt hefði verið borið af ám, sumt hefði verið heima á tún, en annað lengra frá. Allt þetta fé hefði náðst heim, en eitt hvað hefði farizt af lömbum. Nokk uð af lömbum hefði verið sett inn í bæ. Lárus kvaðst vona, að ekki kæmu fleiri slík veður á þessu vori, og munu víst allir taka urai ir þá ósk, ekki sízt bændur norð- an og vestanlands, sem margir munu hafa svipaða sögu að segja og þeir í Grímstungu. Sjómannadagurinn í Vestmannaeyjum Red Crusader málið er orðið að milliríkjadeilu Vestmannaeyjum, 3. júní. Fjölbreytt hátíðahöld verða hér að vanda í tilefni sjómannadags- ins. Hefjast þau á laugardag með kappróðri, stakkasundi og björg- unaræfingum. Á sunnudag kl. 1 verður svo aðalhátíðin sett. Að því loknu fer skrúðganga að minn- ismerki hrapaðri og drukknaðra. Við guðsþjónustu í Landakoti mun séra Halldór Kolbeins prédika og kveðja sóknarböm sín, en hann lætur nú af störfum eftir 16 ára þjónustu. Við starfi hans tekur séra Þorsteinn L. Jónsson frá Söðulholti. Þeim hjónum^ Láru og Halldóri Kolbeins, var nýlega haldið veglegt kveðjusamsæti hér. Útiskemmtun verður á Stakka- gerðistúni og margt til skemmt- unar. Kvöldskemmtanir verða í samkomuhúsinu laugardags- og sunnudaeskvöld. Það má telja til tíðinda, að ó- venju litlar áfengisbirgðir munu nú vera hér í Eyjum, þar eð ekk- ert berst með pósti vegna verk- fallsins. Má því búast við ,að Bakkus konungur setji ekki jafn mikinn * ip á hátíðahöldin og oft vffl verða. Atvinnúlff er með miklum blóma hér um þessar mundir. Margir bátar eru á humarveiðum og afla vel. Skapar það mikla vinnu í landi. Einnig er mikil vinna við að búa bátana undir síldarvertíðina. Raddir hafa verið uppi um það hér undanfarið, að skipta núver- andi kirkjusókn í tvennt. Fyrr á öldum Voru sóknirnar tvær, Ofan- leitissókn og Kirkjubæjarsókn, og mundu þær þá verða teknar upp á ný. Allt er þetta þó óákveðið enn sem komið er. Danska freigátan Niels Ebbesen hefur fengið skipun um að hverfa frá Skotlands- ströndum til Færeyja og sigla síðan til Kaupmannahafnar. Danska flotamálastjórnin hef- ur lýst yfir samþykki sínu á framkomu skipherrans á Neils Ebbesen gagnvart brezka tog- aranum, Red Crusader, sem freigátan stóð að óiöglegum veiðum í landhelgi við Fær- eyjar á mánudagskvöld. Mál þetta er nú orðið milliríkjamál Bretlands og Danmerkur. Herskipið Bellona, sem í fyrra tók tvo skozka togara í landhelg- inni við Færeyjar, er nú komið á miðin við Færeyjar og hefur fyrir skipun um að taka hvern útlendan togara, sem gerir sig sekan um ólöglegar veiðar á miðunum þar og beita valdl, ef nauðsyn kréfur. Seldi aflann Eins og kunnugt er af fréttum, stóð danska eftirlitsskipið hinn brezka togara að ólöglegum veið- um innan sex mflna markanna, skammt fyrir norðan Vogey-í Fær eyjum á mánudagskvöldið. Skaut eftirlitsskipið á togarann nokkrum kúlum og laskaði hann mikið, en togarinn fékk aðstoð brezkra her- skipa til að komast undan til heimahafnar sinnar í Aberdeen. Þar seldi skipið aflann á fimmtu- dagskvöld og fór síðan til viðgerð- ar. Mótmæli Danski sendiherrann í London afhentj brezku stjóminni mótmæla Danir hóta því aS skjóta betur næst, ef brezk her- skip haldi áfram atS halda hlífiskildi yfir land- helgisbrjótum orðsendingu dönsku stjórnarinnar vegna aðgerða brezku herskipanna strax á þriðjudagskvöld. Á fimmtu dag var málið tekið fyrir í brezka þinginu, en ekki hefur danska stjórnin enn fengið neitt svár við orðsendingu sinni. Danska flotamálaráðuneytið hef- ur lýst því yfir, að það muní ekki láta undan í þessu máli, því að taka togarans hafi samkvæmt al- þjóðalögum verið réttmæt, og þeg ar togarinn sinnti ekki stöðvunar- skyldunni eftir ítrekaðar viðvaran- ir Niels Ebbesens, hefði freigátan mátt skjóta togarann í kaf. Ef Bret ar sjá sig ekki um hönd, verður betur skotið næst, segir í yfirlýs- ingu flotamálaráðuneytisins. 100 menn féllu í bardögum í Kongó NTB—Leopoldville, 1. júní. í dag kom til blóðugra bar- daga í héraðinu Kivu í Kongó, og voru yfir 100 menn drepnir og margir særðir, að því er talsmaður Sameinuðu þjóð- anna í Kongó skýrir frá. Hér- að þetta er undir stjórn Giz- enga, en laut áður Lúmúmba. Menn þessir féllu, er í bardaga sló milli heimamanna og kong- óskra hersveita með vafasama heimild til hernaðaraðgerða, að því er ségir í fréttum. Var gerð húsrannsókn í mörgum þorpum, og íbúarnir reknir út úr húsum sínum. | Kongóskar hersveitir á staðnum vinna nú að því, ásamt hersveitum Sameinuðu þjóðanna, að koma á , ró og spekt á nýjan leik. Samtimis berast þær fréttir, að margir meðlimir þingsins í Bakavú hafi verið teknir höndum, án saka, og vinna nú fulltrúar S.Þ. að þvl að fá þá látna lausa. í StanleyviIIe gekk þrálátur orð- rómur um það í dag, að fyrir dyr- um stæði innrás belgískra fall- hlífasveita, en nú hefur fréttamað- ur sovézku fréttastofunnar Tass verið handtekinn, ásamt þremur evrópskum læknum, sem sakaðir eru um að hafa komið orðrómi þessum á kreik. Þeir voru þó látnir I lausir skömmu síðar, að skipun I Gizenga.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.