Alþýðublaðið - 12.04.1920, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 12.04.1920, Qupperneq 1
Alþý ðublaðið Creíið út jxt Alþýðuflokknaui. 1920 Alþbl. kostar I kr. á mánuði. R&sslanð - fiuUni vopnahlé. K.höfn 7. apríl. Vopnahié er koœið á milli Rússa (bol^ivíka) og Finna 8. þ. m. AusturÉi op Italía semja. Khöfn 7. apríl, Renner, ríkiskansiari Austurríkis, er í Rómaborg að semja fyrir land sitt við ítali um ýms mál stjórn- arfarsleg og verzlunareðlis. /f* t cfra úg Æanéamönmim. K.höfn. 7. apríl. Frá Berlín er símað að rikis- varðliðið haldi áfram að nálgast Essen. Þýzka stjórnin he^ir mót- mælt því að Frakkar hafa sent herlið inn í Ruhr-hérað. Götuóeyrðir í Berlin eru hættar. Khöfn 8. apríl. Enska blaðið „Daily Chronicle" segir að samkomulag muni verða í Ruhr-héraðsmálinu og að bæði franska og þýzka herliðið verði ákaliað aftur. K.höfn 9 apríl. Frá Berlín er símað að Frakkar bæti stöðugt við herlið það er þeir hafa sent inn í Ruhr-hérað, og ier herliðið fram með mikilli hörku [gegn íbúunum], Fréttastofa Reuters segir að Frakkar hafi framið verknað þenn- ÞýzRalanéi Mánudaginn 12. apríl an gegn samþykki Bandamanna. Búist er við að Þjóðverjar skjóti málinu til þjóðasambandsins. Stórblaðið „Times" lastar mjög þá stefnu stjórnarinnar að vera á móti Frökkum í þessu, og segir að þetta verði örðugasti hjallinn í vináttu þessara tveggja þjóða. Belgir eru samþykkir gerðum Frakka. Khöfn 10. apríl. Parísarblöðin styðja stjórnina að ttiáium [f hinni nýju sókn gega Þjóðverjum] Khöfn xi. aprfl. „Times" segir að Bandamenn ætli að neyða Frakka til þess að láta uudan í Ruhr-málinu með því að neita að öðrum kosti að semja við þá um fullnægingu friðarsamn- inganna. Þrælauppreistin. [Eftirfylgjandi bréf frá Gorki hefir íslenzkur stúdent í Khöfn þýtt úr rússnesku blaði. Bréfið hefir^ einnig verið birt í L'Hu- manité, aðalblaði franskra jafnað- armanna. Það er hæfilegt. svar til allra þeirra lygara og hræsnara, sem tala um þjóðræði (demókratí), frið og sættir milli lægri og hærri stéttarinnar, milli þrælanna og þrælarekstrarmannanna]. „Eg hefi fengið allmikið af bréf- um frá ýmsum mönnum. Þau bera öll blæ örvæntingar og votta hina mestu skelfingu. Það er auð- fundið að þeir, sem hafa skrifað þau, hafa séð marga dapra daga og þjást af kveljandi hugsunum, er svifta þá svefni. „Hvernig er orðin hin góðlynda rússneska þjóð? Hvers vegna hefir hún skyndilega breyzt í vilt, blóð- þyrst rándýr?" Þannig skrifaði kona ein til mín á ilmstokkinn 80. tölubl. Það tilkynnist hér með, að elsku litla dóttir okkar, Guðný Salóme Hulda, andaðis að heimili okkar Laugaveg 44, þann 10. apríl 1920. Jarðarförin ákveðin síðar. Ragnhildur Þórðardóttir. Kristján Guðmundsson. pappír. — „Kristur er gleymdur, kenning hans að engu höfð“, skrif- aði mér F. greifi. — „Eruð þér ánægðir? Hyað er nú orðið af hinni miklu kenningu um kær- leika til náungans? Áhrifum skól- anna og kirkjunnar?" spyr Cr. Brenteim de Tambor mig. Sumir láta óánægjulega og ógna. Aðrir láta sér nægja að nöldra. Allir eru æstir og daprir. Allir eru full- ir skelfingar við þá tilhugsun, að lifa þenna sorglega og göfuga tíma. Þar sem eg get ekki svarað hverjum fyrir sig, svara eg ykkur öllum hér, öllum í senn. Þér konur og karlar! Þeir dagar eru komnir, að þér skuluð gjalda kæruleysis yðar um líf þjóðarinnar. Alt, sem þér hafið reynt, alt, sem þér þolið — það hafið þér verðskuldað. Og eg get aðeins sagt yður eitt. Óskið yður eins: að þér enn þá átakanlegar komist að raun um það líf, sem þér hafið fyrirbúið sjálfum yður. Að þér yrðuð enn þá kvíðafyllri í huga, að tárin stælu svefni yðar á nóttunni, að sá stormur grimdar og æÖis, sem nú fer yfir land vort, mætti brenna yður sem eldur! Þér hafið verð- skuldað það. Þér skuluð að engu verða; en það er einnig mögulegt að alt það, sem enn þá er eftir heilbrigt og heiðarlegt. í sálu yðar, verði hreinsað af öllu hinu óheið- arlega og lága, sem hún var sýkt af — sál yðar, sem þér hirtuð svo lítiö um, sál yðar, sem var fyld ágirni, lygi og valdafýsnar, í einu orði sagt öllum hinum lægstu hvötum.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.