Tíminn - 27.07.1961, Page 11

Tíminn - 27.07.1961, Page 11
TÍMINN, fimmtudaginn 27. júli 1961. Ég skemmti mér STÓRKOSTLEGA 11 T AUGARDAGSKVÖLD. Ég geng hægum skrefum inni dauflýstan salinn. Þau eru byrjuð öll að drekka og dansa, einbeitt og harðfrosin á svipinn. Ég læt fallast í hægindastól og legg hversdagsleikann og leiðindin til hliðar við stólinn, einsog töskuna mína. Lifið er leiðinlegt, en í kvöld ætla ég að lifa Lifa. Undarlegar myndir svífa mér fyrir hugskotssjónum. Þar er tortímingin með vindling hangandi í munnvikinu, tortímingin drekkur viskí úr stóru glasi, tortímingin í svörtum nærklæðum að færa sig úr sokkunum; nú hnykkir hún höfðinu aftur á herðar og sperrir brjóstkassann og hlær stórum, rauðmáluðum vör- unum, og svo réttir hún fram varirnar. .. . Já, þetta er lífið. Ég fæ mér vindling, ákveðin, hvítan og mjög langan, kveiki í og nem snerpubragð fyrsta sogsins. Ég loka augunum og dreg reykinn að mér djúpt einsog hann eigi að komast niðurí tærnar. Þjónninn byrjar að hringsnúast og allur salurinn hverfur í ljósa móðu. Fölvinn kemur fram í andlitið og hæg- indastóllinn tekur vel við mér. Nú skal ég drekka. Nei, ekki viskí, mér dugar vermútt í ölglas. Ég tek um það báðum hönd- um og drekk mikið, svo fylli ég það aftur. Það er væmið bragð af því, en eitthvað verður að dreklka. Nú dansa ég, nú hr'ingsnýst ég, allt hringsnýst. Ég er víst full, segi ég. Svo hlæ ég. Við dönsum þétt saman og líkamar okkar fylgjast að. Við kyssumst meðan trompettinn snöktir. Trompettar snökta alltaf. 1/"IÐ förum út til að kyssast, við kyssumst mikið, og síðast ' kyssumst við einsog annað hvort okkar ætti strax að deyja og hitt aldrei að kyssa nokkra mannveru allt sitt líf. Það er alveg dimmt í kringum okkur og mjög sársaukafullt og dásamlegt. Við komum inn í salinn og brosum flírulega, og einhver segir við mig: — Nú, þú ert víst alveg komin í hann, ha? Ég þarf að skreppa út, og þegar ég kem aftur er hann með tennurnar í öxlunum á annarri, og ég flýti mér aftur fram og hugsa á meðan hvort axlirnar á mér séu ekkl nógu góðar og strýk þær af meðaumkun að hann skyldi móðga á mér axl- irnar. 1 En hjálpin er nær og hendur grípa mig í myrkrinu. Ég dansa aftur og kyssi andlit og hendur, sem láta vel að mér. Ég veit ekki hvaða andlit og hendur, en það má einu gilda, það er alveg eins hver sem það er, og ég er óhamingjusöm og allir eru vondir og tilfinningalausir að hrærast í fúlum pytti, allir, og ég vil fara heim. Úti i garðinum hafa runnar vaxið í nóttinni undarlegir með samanfléttaðar greinar, stofnar, sem hallast saman og stynja og muídra. En um morguninn aðskilja runnarnir þessar grein- ar og hverfa úr garðinum og breytast í mannverur, sem læðast upp stiga með skóna sína í höndunum. Ég, hin tortimda, reika heim í úthöerfið með svarta bauga kringum augun og háhælaða skóna í hendinni. Bragðið uppí mér minnir á veitingahús um lokunartímann. Ég borða epli, kalt og þvalt af dögg. Svo smíða ég bros á andlitið og hleyp heim. Við morgunverðarborðið segist ég hafa skemmt mér stórkiostlega. (Úr Weekend). ÚTBOD Tilboð óskast í gerð gangstéttar við Miklubraut. Útboðslýsingar og teikninga má vitja í skrifstofu vora, Tjarnargötu J2, III. hæð cfosn 200 kr. skila- tryggingu. Önnumst viðgerðir og sprautun á reiðhjólum, hjálparmótorhjólum, barna- vögnum o. fl. Uppgerð reiðhjól og barna- vagnar til sölu. Reiðhjólaverkstæðið Leiknir Innkaupastofnun Reykjavíkurbæjar. Melgerði 29, Sogamýri. Sími 35512. Á LAUGARDALSVELLINUM keppa í kvöld kl. 8.30 LYNGBY - Vi SÍÐASTI LEIKUR — ENGIR BOÐSMIÐAR Danski dómarinn Richard Sörensen dæmir. VALUR. ■•V»V»X«V*V»V' V* V.* V.* X. • V- V.- V V* V.* X* V’ V* V- V X. • X • v

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.