Tíminn - 18.08.1961, Síða 5

Tíminn - 18.08.1961, Síða 5
TÍMINN, föstudaginn 18. ágúst 1961. 5 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Tómas Amason Rit- stjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb.), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason Fulltrúi rit- stjómar: Tómas Karlsson Auglýsinga stjóri: Egil) Bjarnason — Skrifstofui í Edduliúsinu. — Simar: 18300—18305 Auglýsingasimi: 19523 AfgreiSslusími: 12323. — Prentsmiðjan Edda h.f. Kári skrií ar: ÚR BORG OG BYGGÐ Afmæli Reykjavíkur í dag eru liðin 175 ár síðan Reykjavík fékk kaup- staðarréttindi. Þess afmælis verður minnzt með vegleg- um hátíðahöldum næstu daga. Reykjavík í dag er sannarlega ólík því, sem var fyrir 175 árum. Hán er meira að segja um margt ólík því, sem hún var fyrir 20—30 árum. Reykjavík hefur stöð- ugt verið að vaxa og stækka og er nú stærsta höfuðborg í heiminum, ef miðað er við fólksfjölda, eins og margt er stærst á íslandi, ef þessi viðmiðun er notuð. Óhætt má segja, að tvennt sé jafn nauðsynlegt hverju sjálfstæðu ríki: Höfuðborg, sem hvílir á traustum efna- hagslegum og menningarlegum grunni, og blómleg lands- byggð. Hvorugt má án hins vera, ef vel á að fara. í dreif- býli verður aldrei haldið uppi ýmiss konar menningar- starfsemi, sem fjölbýlið gerir mögulega. í fjölbýlinu er hins vegar örðugra að verja og vernda ýmsa þjóðlega háttu og menningarerfðir, sem oft skapa beztu kjölfest- una. Þar hefur dreifbýið sitt verk að vinna. Á þeim 175 árum síðap Reykjavík fékk kaupstaðar- réttindi, hefur hún verið meginstaður ýmsrar helztu menningarstarfsemi þjóðarinnar. Hér hafa ekki aðeins setið Alþingi og ríkisstjórn, heldur forysta allra flokka og helztu félagssamtaka landsins. Hér hafa starfað margir helztu athafnamenn þjóðarinnar. Allt þetta hefur hjálpað til þess, að Reykjavík hefur lagt fram stærsta skerfinn í menningarlegri, félagslegri og efnahagslegri framsókn þjóðarinnar. Þegar á allt er litið, má óhætt segja, að Reykjavík hafi verið farsæl höfuðborg. Eins og þegar er vikið að, hefur Reykjavík gegnt miklu hlutverki 1 þjóðlífi íslendinga seinustu tvær ald- irnar. Þó CT hlutverkið, sem bíður Reykjavíkur enn meira framundan. ísland er ekki lengur einangrað, heldur komið í alfaraleið. Áhrifa þess mun gæta í sívax- andi mæli á komandi árum. Þessu mun fylgja bæði gott og illt. Þetta mun leggja þá kvöð á þjóðina, að hún standi aukin vörð um menningu sína og sjálfstæði. í þeim efnum mun reyna alveg sérstaklega á Reykjavík. Þar mun allra slíkra áhrifa gæta fyrst og gæta mest. Þetta hlutverk Reykjavíkur hefur aukizt við það, að landsbyggðin er ekki lengur eins sterk og hún var áður. Þetta hlutverk Reykjavíkur þurfa Reykvíkingar alveg sérstaklega að gera sér ljóst. Því verður ekki fullnægt með neinu sérstöku, heldur þarf að gera það á margan hátt. Það þarf að byggja upp sem traustast og margþætt- ast atvinnulíf í Reykjavík. Það þarf með starfi og sam- vinnu heimila, skóla, kirkju og félagssamtaka að treysta uppeldi reykvískrar æsku. Það þarf að styrkja og auka þær menningarstoðir, sem gera Reykjavík að traustri íslenzkri höfuðborg. Með þær óskir í huga, að þetta megi takast, munu landsmenn allir hylla höfuðborg sína á þessum merka afmælisdegi hennar. Stjórnarblöðín keppa í frjálslyndum bandarískum blöðum eykst nú stöðugt meira og meira fordæmingin á starfsemi John Birch-fé- lagsskaparins svonefnda, sem er fólginn í því að setja kommúnistastimpil á nær alla leiðtoga demókrata og marga af leiðtogum repúblikana. Stjórnarblöðin íslenzku keppast hins vegar um metið í slíkum starfsháttum hér á landi. Alþbl. átti það í fyrra- dag, en Mbl. náði því greinilega aftur í gær. En sama dóminn munu þessir starfshættir stjórnar- blaðanna fá hjá frjálslyndu fólki hérlendis og John Birch félagsskapurinn hefur hlotið hjá frjálslyndu fólki vestra. Gott árterði. Nú er fyrri sláttur búinn um mikinn hluta landsins. Heyfeng ur er yfirleitt mikill og góður á Suðurlandi og sums staðar á Vesturlandi. En votviðri og fremur lítil grasspretta víða á Norður- og Austurlandi hafa mjög dregið úr heyfeng manna þar. . Síldveiði hefur verið óvenju- lega mikil, svo að um það bil nálgast metveiði síðan íslend- ingar fyrst byrjuðu þær veiðar. Og fiskafli hefur einnig verið sæmilegur. Árferði víða á land inu má heita ágætt. En sorglegt er, að búhyggja landsmanna skuli ekki vera betri en það, að þeir sbuli sífellt vera að lækka okkar litlu krónu, þótt árgæzka sé. Ótraust og stopult gengi er plága hverri þjóð, þótt hún skapi sér hana sjálf. Forusta. Núverandi valdhafar byrjuðu stjórnarferil sinn með því að gera aðalforustumann dýrtíðar og gengisfellingar frá byrjun að merkisbera sínum. Til þess stofnuðu þeir nýtt, rándýrt og óþarft embætti, að mestu leyti án verkefna, nema ef helzt væri til þess að halda skrum- ræður fyrir aukinni dýrtíð og gengislækkun. Og hefur líka tekizt að auka dýrtíðina á rúm- lega ári meira en nokkru sinni áður, þegar frá er dreginn 3—4 mánaða tími einu sinni, er þessi dýrtíðarkóngur sat við stjóm og tókst þá að hækka vísitöluna um 90 stig. Allir muna herópið þá frá þessum jöfri dýrtíðar- innar: „Aukum dýrtíðina og dreifum með þvi stríðsgrúðan- um“. Aðstöðu sinnar vegna tókst ho'num og samherjum hans I þremur flokkum að eyði- leggja grundvöllinn undir heil- brigðum atvinnurekstri lands- manna, sem.aldrei hefur tekizt að lækna síðan. Hvað átti að gera? Stjórnarblöðin eru sífellt að skamma samvinnumenn fyrir að þeir hafi gengizt fyrir sáttum í vinnudeilunni stóru í sumar. En hvað átti að gera? Ríkis- stjórnin sat svipuðust reka- drumb á fjöru, aðgerðalaus. Komið var að sfldarvertíð: Og hvað gat kostað að nota hana ekki? Ef drengilegasti ritstjóri Mbl. (S. Bj.) tæki nú rögg á sig og léti blað sitt viðurkenna og þakka samvinnumönnum fyr ir að þeir komu á sáttum í vinnudeilunni með tiltölulega góðum kjörum eftir aðstæðum, þá myndi vaxa tilírú til stærsta dagblaðs landsins og minnka trú almennings á því, að það væri alltaf háð mesta gróða- og braskaralýðnum. Sparifé. Enga hefur verið farið eins illa með á landinu af hinu opin- bera, síðan verðbólgutímarnir hófust, eins og sparifjáreigend- ur. Ráðdeildarsamt og spar’samt fólk, sem dregið hafði saman með vinnu sinni talsverða fjár- muni í sparisjóðsbækur, hefur bókstaflega verið féflett með aukinni dýrtíð og sífelldri lækk un krónunnar. Nú hafa lepp- blöð stórbraskaranna sí og æ verið að syngja lofsöng um það, að ríkisstjórnin vær'i með háu vöxtunum að styðja sparifjár- eigendur. Hvílík hræsni! Þó að fáeinar krónur fleiri safnist í saprisjóðsbækur einstaklinga fyrir háu vextina, þá verkar það svipað og snuðtútta, þegar alltaf er verið að lækba krún- una miklu meira en fjölgun þeirra nemur. Ferðalög. Mikil ferðalög eru nú innan lands og til útlanda. Það er eðli- legt og sjálfsagt að nota hið stutta miðsumar til ferðalaga hér innanlands, en heldur óeðli legra að fara frá því til heitu- landanna og kveljast þar í hita- svælu og líða oft illa. Um verzl- unarmannahelgina fór sá, er þetta ritar, upp í Heiðmörk og eyddi þar tímanum í friðsælli náttúrunni, þegar margir aðrir þeyttust eitthvað langt í burtu og eyddu þar tíma og pening- um sínum of oft sjálfum sér til skaða og skammar við drykkju skap og ólæti. Mér fannst næst um einkennilega fáir Reykvík- ingar sjást í Heiðmöi’k, þeirra friðsæla og kyrrláta stað, sem er tilvalið að dvelja á og losna um stund við bæjarskröltið. ' J Dýrkun eiturlyfja. Ekki sjaldan sést dekrað við eiturlyfin í dagblöðum landsins. En oft er það gert í nokkurri feimni. Þó ráðast einstaka blað- skussar stundum opinberlega fram á ritvöllinn og syngja Bakkusi lof og dýrð. Kveða þeir m. a. ekki verandi á skemmti- samkomUm, nema þar sem Bakkus hafi aðal tignarsætið. Þar sem áfengi sé ekki um hönd haft, sé leiðinlegt og ekki ver- andi. Árangur af áróðri fyrir dýrkun áfengis sést svo víða á samkiomum, ekki sízt um verzl- unarmannahelgar, þar sem Mbl. tvítekur nú réttilega _ lýsingar sínar m. a. þannig: „Óskaplegt ölæði, aldrei sézt neitt þessu líkt“, „æpandi ungmenni æddu um skóginn þambandi brenni- vín“ o. s. frv. Vesalingarnir geta þarna glaðzt yfir árangri áróðurs síns, þótt hann hafi ver ið gerður í fáfræði og ofstæki. „Undarlegt að allt hið versta oftast hefur vængi bezta“. Að svíkja loforð. í gamla daga þótti ódrengi- legt og ljótt að svíkja loforð sín. Þegar íslendingar voru að brjóta sér braut í Vesturheimi, fengu þeir brátt orð á sig að vera óvenjulega traustir og áreiðanlegir og efna það, sem þeir lofuðu. Og hefur þetta álit jafnan fylgt þeim síðan. Það er talið, að þetta álit hafi hjálpað þeim flestu betur í Ameríku. Úr því að hann er íslendingur, þá er óhætt að reiða sig á orð hans“, hefur oft verið orðtak nágranna Íslendinga þar vestra. En hvernig er þetta hér heima? Hafa menn almennt tekið eftir því, að sjálf ríkisstjómin hefur brotið öll þau loforð, er mál- svarar flokka hennar gáfu þjóð inni fyrir síðustu kosningar? Ef þessu heldur áfram méðal æðstu ráðamanna landsins, verð ur þá ekki senn tízka og þykir fremd í að svíkja flest sín lof- orð? Karakúlfé og minkar. Rekinn er vaxandi áróður fyr ir því, hve ágætt væri að fá er- lenda auðkarla til þess að reka atvinnurekstur hér á landi. Jafnvel er talað um, að lækka sífellt krónuna og halda verka- mannakaupi niðri til þess að laða erlenda auðkónga að festa fjármagn sitt hér í atvinnu- rekstri, er þeir sjálfir réðu yfir. Og forðazt er að minnast á þá stórhættu, sem getur verið fal- in í því að láta erlenda auðkýf- inga stunda stóratvinnurekstur á landi voru. Einu sinni var geit glæsilegt með áróðri að flytja inn karakúlfé og minka. En nú eru menn búnir að kynn- ast afleiðingunum. / '/ '/ '/ '( ( / '/ '/ '/ '( ( / '/ '/ '/ / '/ '/ '/ '/ '/ '( ( / '/ / '/ '/ / '/ '/ '/ '/ ‘/ '/ '/ '/ '/ / '/ '/ '/ '/ '/ '/ • ■N. • 'V V ■ V. • "V. • V. ■ Niels Edwin vinnur við uppsetningu á Reykjavík 1786 á Reykjavíkurkynningunni, sem verður opnuð í kvöld.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.