Tíminn - 18.08.1961, Síða 6

Tíminn - 18.08.1961, Síða 6
6 TÍMINN, fostudaginn 18. ágúst 1961. M I N N I N Q: Ingibjörg ísaksdóttir f dag, þann 18. ágúst, verður jarðsungin frá kirkju Óháða safn aðarins í Reykjavík, sæmdarkon-| an Ingibjörg ísaksdóttir frá Lind- arbrekku á Vesturvallagötu, er andaðist þann 9. þ.m. Hún var fædd að Miðkoti í Vest, ur-Landeyjum 2. marz 1884. Voru foreldrar hennar Guðlín Guð- mundsdóttir og fsak Siguxðsson, bóndi, síðar vitavörður á Garðs- skaga. Ingibjörg sál. átti eina syst ur, Elínu fsaksdóttur, eiginkonu Jóns bónda Tómassonar, Hvíta- nesi Vestur-Landeyjum. Ingibjörg sál. fluttist til Reykja- víkur árið 1903, og giftist 20/5 1904 Jóni yfirfiskmatsmanni Magn ússyni. Jón var fæddur 26/6 1874. og andaðist 24/5 1948. Ingibjörg og Jón munu hafa stofnsett hekn- ili sitt á Bræðraborgarstígnum og búið þar um eins árs skeið. En að því liðnu byggðu þau sér hús á Vesturvallagötu 6, sem nefnt var Lindarbrekka, og þar átti Ingi björg sál. heima alla tíð. Þar reistu þau líka fénaðarhús, því aff þau ráku búskap langa tíð. Þau áttu sauðfé, hesta og naut- gripi. Þessi velgefnu og sámhentu hjón virtust hafa tíma til alls. Eigi naut Ingibjörg sál. skóla- menntunar utan þess að hún lærði fatasaum, og hannyrðakona var hún með ágætum. Hún var stjórn söm húsmóðir, enda veitti ekki af, þv íað á heimilinu var stund- um um 20 manns. Allir virtu hana og elskuðu. Ástrík og umhyggju- söm móðir var hún til hinztu stundar, og ekki síður barnabörn- unum, sem hún ték þátt í uppeldi á, enda öll .með henni frá fæð- ingu. Þá upnni hún heitt barna- barnabörnunum litlu, sem eru orð in sex, og 2 nöfnur hennar. Oft var gestkvæmt á heimili þeirra hjóna, og ungt fólk dvaldi þar lengri og skemri tíma, bæði skyldir og vandalausir, og nokkr- ir námsmenn dvöldu þar langdvöl- um, sem nú eru orðnir mætir menntamenn. Ingibjörg var fríð kona, talin stórglæsileg. Hjóna- band þeirra Jóns og Ingibjargar á yngri árum, var ástríkt, ánægju- legt og farsælt, þar var gestrisni í bezta lagi, glaðværð og hjálp- semi við fátæklinga. Þeir voru stundum nokkuð margir jólapakk arnir, sem Ingibjörg sál. útbjó og sendi frá sér. Þessi merku hjón, Jón og Ingi- björg, eignuðust tvær dætur, Margréti Ingiríði, f. 20/8 1909, gift Tómasi Hallgrímssyni, og Guð línu Ingiríð'i, f. 20/9 1911, gift Theódóri Skúlasyni lækni. Auk sinna eigin barna ólu þau upp työ systkin, Björgu og Guð- jón, bæði látin fyrir fáum árum. Þau voru tekin í fóstur eftir and- lát foreldra sinna 1919, sem dóu úr spönsku veikinni. Svo sem að líkum lætur um svo mikilhæfa konu, sem Ingibjörg sál. var, lét hún ekki undir höfuð leggjast að verða virkur þátttak- andi í ýmsum framfara og menn ingarfélagsskap. Hún var heiðurs- félagi í Stórstúku íslands, enda störfuðu þau hjón mikið fyrir regl una. Hún var í Thorvaldsensfélag- inu, Kvenfélagi Hvíta bandsins, I kvenfélagi Fríkirkjusafnaðarins, og gjaldkeri þess um langa tíð. Og nú síðustu 12 árin eftir að stofn- aður var Óháði söfnuðurinn, var hún í stjórn hans, og beitti sér af miklum áhuga fyrir velgengni hans, og kirkjubyggingarmálig lét hún sérstaklega til sín taka, bæði með gjöfum, hvatningarorðum til annarra og starfsemi sinni á allan hátt. Hér er horfin kona, kostum búin og miklum hæfileikum. Hún bar það með sér, að göfgi, stilling og aðrar manndyggðir voru ríkar í eðli hennar og öllu hátterni. Það er venjulega fagurt sélarlag að liðnum björtum degi, svo er og hér að æfikvöldi ástkærrar móð- ur. Æfidagurinn var langur, heils- an og kraftarnir á þrotum. Allt er þér að þakka, en margt að minn ast og sakna. Vinir og kunningj- ar samhryggjast fjölskyldunni við brottför þessarar góðu konu, og minnast hennar með þökkum fyrir gæfuríka starfsævi, ogmargvísleg- ar ánægjustundir. Börnin og vin- irnir blessa minningu þína. H. Siig. Við andlát frú Ingibjargar fsaksdóttur á Lindarbrekku, kýs ég að biðja Tímann fyrir nokkur hversdagsleg minningarorð. Það var á Hallgeirseyjarárun um, sem okkur Matthildi tók að berast afspurn af þeim Jóni Magnússyni yfirfiskimatsmanni og Ingibjörgu konu hans, en Vestur- Landeyjar voru hennar ættar- byggð. Áður en hraðinn kom inn í líf þjóðarinnar, fjöldi stórvatna enn óbrúaður, en höfuðstaðurinn að verða aðsóttur til viðskipta, tók meir til kynna og frændsemi milli sveitafólks og höfuðstaðarbúa, og þá einni.g með öðrum hætti en nú. — Er mér minnistætt hversu stórt hlutfall Vestur-Landeyjar til dæmis áttu athvarf hjá þeim Lind arbrekkuhjónum í Reykjavík, en gistivináttunni fylgdi þá einatt margs konar fyrirgreiðsla, og var þetta sveitaheimilunum á þessum tímum enn mikilsverðara, en nokk ur utanríkisþjónusta löndunum í dag. En í bæjarlífinu varð Lindar- brekka þá einnig eitt af höfuð- bólunum. Segja má að lengi hafi umsvifin þar verið til sjós og lands. Áttu þau Lindarbrekkuhjón m.a. með öðrum hjónum mikla og athafnasama fiskverkunarstöð, hlutdeild í útgerð og höfðu, með- an þurfti, nokkurn landbúnað, einkum kýr og hesta. Svo liðsterkt var Lindarbrekku- heimilið, að ekki þurfti frú Ingi- björg að dýfa hendi í kalt vatn, meðan enn naut við tengdamóður herinar En þar kom að frú Ingibjörg hlaut að taka alla bústjóm í eigin hendur, og var síður en svo að hið umsvifamikla heimili setti nið, ur við það, meðan bæði hjónin lifðu, heldur reis það f þá aðstöðu að verða eitt af stórheimilum höfuðborgarinnar. Þá tóku þau Lindarbrekkuhjón þátt í félagslífi höfuðstaðarins, einkum tóku þau mikinn þátt í safnaðarlífi Fríkirkjunnar og Góð templarareglunni, og hlut áttu þau að margs konar öðrum fé- lagsskap. Tvær dætur eignuðust þau Jón og Ingibjörg; Margréti konu Tóm- asar Hallgrímssonar bankafulltrúa, og Guðlínu konu Theódórs Skúla sonar læknis. Frú Ingibjörg var á allan hátt vel ag manni, fríð og fönguleg, góðlynd og glaðlynd og mikill vin ur vina sinna, enda höfðingi í lund, sem víða lagði lið, mönnum og málefnum. Guðbrandur Magnússon. Nauðungaruppboð það, sem auglýst var í 62., 63. og 65. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1961, á eignarhluta Fríðu Ágústsdóttur í Hlíðarvegi 36, fer fram á eigninni sjálfri, samkvæmt kröfu Ingólfs Isebarn, föstu- daginn 18. ágúst 1961 kl. 14. Bæjarfógetinn í KópavogskaupstaS Iðnskólinn í Reykjavík Innritun fyrir skólaárið 1961—1962 og námskeið í september, fer fram í skrifstofu skólans dagana 21. til 26. ágúst kl. 10—12 og 14—19, nema laug- ardaginn 26. ágúst kl. 10—1-2. Námskeið til undirbúnings inntökuprófum og öðr- um haustprófum hefjast 1. september næst kom- andi. — Við innritun skal greiða skólagjald kr. 400,00 og námskeiðsgjöld kr. 100,00 fyrir hverja námsgrein. Nýir umsækjendur um skólavist skulu einnig leggja fram prófvottorð frá fyrri skóla. Skólastjóri ÞAKKARÁVÖRP Innilegt þakklæti færi ég öllum vinum og vanda- mönnum fyrir heillaóskir og gjafir, er mér bár- ust á sextugsafmælinu. Ég þakka rausnarlegt vina- heimboð í Vatnsdalinn og öllum þeim, er gerðu okkúr þá stund ógleymanlega. Eg þakka ykkur hinir nýju vinir mínir á Selfossi, góðar gjafir og auðsýnda vináttu. Gæfan fylgi ykkur öllum. Skúli Jónsson og fjölskylda. SKILAR YÐUR ÞVOTTI I HEIMI Hugheilar þakkir sendi ég öllum þeim nær og fjær, er auðsýndu samúð og vinarhug vlð andlát og jarðarför móður minnar, Guðbjargar Guðnadóttur frá Brekkum. Björgvin Guðjónsson. Móðlr okkar, Ólafía Gróa Jónsdóttir sem andaðlst að helmlli sínu, Efri-Brúnavöllum, Skeiðum, 11. ágúst, verður jarðsungin 19. ágúst. Hefst með bæn helma kl. 1 eftir hádegl. Jarðsett verður að Ólafsvöllum. Kristbjörg Jóhannsdóttir, Jón Jóhannsson Bróðir okkar, Jón Kristinn Gunnarsson verður jarðsunginn laugardaginn 19. ágúst. Athöfnin hefst með húskveðju frá heimili hans, Gunnarshúsi, Eyrarbakka, kl. 1,30. Systkinin. Þökkum öllum nær og fjær auðsýnda samúð og vináttu við fráfall og jarðarför eiginmanns og föður okkar, Alfons Kristjánssonar, Ólafsvík. Áshildur Guðmundsdóttir og börn. rvvv'X* X' W'V>V*V*V*V

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.