Tíminn - 18.08.1961, Page 8

Tíminn - 18.08.1961, Page 8
8 T í M I.N.N, .föstudaginn 18. ágúst.l,^ Þorfinnur karlsefni heilsar nýjum degi í Reykjavík 1961. Svipmyndir í Reykjavík ★ Reykjavik er eina höfuffborgin í víðri veröld þar sem menn gætu vænst þess að hitta for- sætisráðherra út í fiskbúð. Jafnframt er hún eina smáþorp ið í veröldinni sem hefur stjórn arráð og sinfóníuhljómsveit. í Reykjavík eru listmálarar mun fjölmennari en götusóparar, í Reykjavík eru hundar bannað- ir með lögum en sauðfé jarm- ar sums staðar í húsportum. Svona er Reykjavík merkileg borg. A ndríkir stjórnmálamenn hafa oft í skálaræðum minnt á þá staðreynd, að höfuðborgin reis á þeim stað sem goðin vísuðu hinum fyrsta landnámsmanni á land. Og víst mætti Ingólfur gleðjast ef hann gægðist úr haugi sínum og sæi öll hring- torgin okkar, róluvellina, Miklu brautina, Bændahöllina og at- hafnalífið við höfnina. Hann gæti bent Karla þræli á öll þessi teikn sem svar við nöldri Karla: „Til ills höfum við far- ið um góð héruð, ef vér skul- um byggja útnes þetta.“ Og það er óhætt að fullyrða, að Ingólf- ur yrði harla feginn að líta höf uðborgina. TTtlendir skriffinnar sem heim- ^ sækja Reykjavík spreyta sig oft á að finna það sem mest einkennir bæinn og skilur hann frá öðrum höfuðborgum. Ýmis- legt hefur verið týnt til: am- erískir lúxusbílar, skemmtistað ir, dagblöð, fallegar stúlkur, ó- stundvísi, regnhlífaleysi karl- manna, bókabúðir og leikhús, hitaveita og partí. Sumt af þessu orkar tvímælis, til dæm is mætti finna í ýmsum Araba löndum bæi, sem auðgast hafa á olíulindum svo að þjónarnir aka um í kádiljákum sem jafn vel íslenzka ríkisstjórnin gæti ekki látið sig dreyma um. Fal- legar stúlkur eru víða til og leikhús eru sums staðar fleiri í jafnstórum borgum í Finn- landi. Aftur á móti munu óvíða jafnmargar bókabúðir í svo litl um bæ og óvíða jafn fáar regn hlífar í höndum svo margra karlmanna sem hér. ★ Ajorguninn rís yfir Reykjavík, ÍTl fyrstu strætisvagnarnir skrönglast um auðar götur, eyr arkarlar ganga til vinnu sinn- ar með nestsskrínu í hendi, kaupmaðurinn stingur lykli í skráargatið og opnar búðina, ár risular húsfreyjur standa í hnapp fyrir utan mjólkurbúð- ina og ein þeirra hefur haft tíma til að líta í blaðið, og fræð ir hinar á því hvemig skúrkn- um í framraldssögunni gengur að ná ástum greifafrúarinnar. Svo er farið að tala um vöru- hækkanir, almáttugur, við skul um ekki segja frá því hér. Ungl ingar með stírur í augum ráfa um götumar á leið til vinnu, það er engu líkara en ungu stúlkurnar gangi í svefni, kann ski er undanfarin nótt þeim rik ari í huga en dagurinn sem framundan er. Innan skamms fer að fjölga á götunum, fólk þyrpist niður í bæinn að reka sín margvíslegu erindi, þröng manna fyrir utan bankana, f lest ir eru það þunglyndislegir menn og lúta höfði. Lögregluþjónn spígsporar eftir Austurstræti og greiðir úr umferðarhnútum. Ritvélar taka að glamra á Verkamenn fá sér kaffisopa í Verkamannaskýlinu, áður en þeir hefja vinnu Þungbúnir menn bíða við dyr Landsbankans klukkan 10. Björn Sigfússon, háskólabókavörður, kaupir ýsu fyrir 6 krónur um ellefuleytið.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.