Tíminn - 16.09.1961, Page 5

Tíminn - 16.09.1961, Page 5
TÍMINN, laogardaginn 16. september 196L 5 t-----------------------------------------------------------------------------------------------^ Otgetandl: FRAMSÖKNARFLOKKURINN Framirvæmdastjóri: Tómas Amason Rit stjórar ÞórarinD Þórarinsson (ábj, Andrés Kristjánsson Jón Hclgason Fulltrúi rit stjórnar: Tómas Karlsson Auglýsmga stjórl: Egiii Bjamason — Skrifstofui t Eddubúsmu — Simar: 18300—18305 Auglýslngaslmi: 19523 Afgreiðslusimi: 12323 — Prentsmiðjan Edda hi Langhundur ríkis- stjórnarinnar Það er rótgróið almenningsálit, stutt óyggjandi upp- lýsingum, að gengislækkunin í sumar var heiftarlegt frumhlaup og á sér engin efnahagsleg rök. Ríkisstjórnin er slegin ótta við afleiðingar þessa, sem enginn undrast, en má sjálfri sér og ofsa sínum um kenna, hvernig málum er komið. Af þessu tilefni hefur langhundur mikill verið birtur í stjórnarblöðunum og er hann kallaður skýrsla um efna- hagsmálin og „viðreisnina“. Úir þar allt og grúir af blekkingum, „hálfsannleika" og öðru verra. Mótsagnir verða herfilegar eins og alltaf, þegar reynt er að leyna því rétta. Helztu niðurstöður eru t. d. þessar: Framleiðsluverð- mæti hefur rýrnað í heild, en afkoma samt batnað útá við — því innflutningur hefur minnkað svo mikið vegna þess, að „viðreisnarráðstafanirnar“ drógu úr vörukaup- um fólks og björguðu hag landsins. Samt „varð alls ekki um neina skerðingu lífskjara að ræða á árinu 1960“, og raunar haldið fram, að þau hafi batnað. Þeir eru lagnir kreppumenn!! Uppá þessa botnlausu þvælu er mönnum boðið 1 stað raka. Með fylgja svo flóknir tíjlna „rebúsar11 og órök- studdar fullyrðingar í tölum. Er þar „reiknað“ að 400 kr. kauphækkun Dagsbrún- arverkamanns á mánuði hafi gert gengishækkun óhjá- kvæmilega, sem í fyrstu umferð hækkar verðlag í land- inu um 500—600 milljónir. í þessum reikningi, ef slíku nafni skyldi kalla svona ljótan leik með tölur, er á hinn bóginn alveg geng'ið fram hjá eftirfarandi staðreyndum, sem skipta höfuð- máli: 1. A3 meginhluti iðnaðarins gat borið kauphækk- un iðnverkafólksins, eins og nú er óumdeilanlega fram- komið — þar sem meira að segja Mbl. og Alþbl. játa, að verðhækkanir á iðnaðarvörum nú, stafi ekki af henni, heldur gengislækkuninni. 2. Að verð á saltsíld og bræðslusíld gat hækkað til útgerðarinnar, þrátt fyrir kauphækkunina. 3. Að kaupgjaldsbreytingin, umfram það, sem stjórnin vildi, nam sem svaraði 1% breytingu á verðlagi útflutningsvara frystihúsanna og hægt var að vega þann mismun upp með leiðréttingu vaxta. En þetta og fleira í sömu átt, sem sýnir hvílíkt skemmdarverk stjórnin vann með gengislækkuninni, fer ekki fram hjá athugulu fólki, þótt ríkisstjórnin taki það ekki með í langhundinn sinn. „Holl” fjárfesting í langhundi ríkisstjórnarinnar, sem getið er um hér að framan, er það m. a. fært fram; sem rökstuðningur fyrir frystingu sparifjárins í Seðlabankanum, að hún auð- veldi bankanum að hafa holl áhrif á fjárfestinguna. Kunnustu afskipti Seðlabankans af fjárfestingarmál- um síðan Sjálfstæðismenn hófust þar til yfirráða eftir lagasetninguna á síðastl. vetri (Jóhannes Nordal varð bankastjóri og Birgir Kjaran bankaráðsformaður) eru þau, að bankinn hefur ráðizt í dýrasta lóðabrask, sem um getur, og ætlar síðan að reisa á hinni nýkeyptu lóð mörgum sinnum dýrari höll yfir starfsemi sína! Á sama tíma stöðvar bankinn svo lánveitingar til nauð synlegustu og arðgæfustu framleiðsluframkvæmda. Þetta atferli heitir svo á máli ríkisstjórnarinnar „að hafa holl áhrif á fjárfestinguna“! t > > ? > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > i > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > / / > > > > / / > > / / / / / i' / / / / / > > > EINAR GERHARDSEN, foringi Verkamannafiokksins JOHN LYNG, foringi hægri flokksins ERLING WIKBORG, foringi krisfilega flokksins Kosningarnar í Noregi Atkvæðatölur floMranna í norsku kosningunum hafa nú verið birtar og eru þær á þessa leið: Verkiamannaflokkurinn fékk 847 þús. atkvæði eða 47.04 % af greiddum atkvæðum. í sein- ustu kosningum fékk hann 866 þús. atkv. og 48.33%. Hægri flokkurinn fékk 336 þús. atkv. og 18.66 % af at- kvæðamagninu. f seinustu kosn ingum féfck hann 286 þús. at- kvæði og 15.98 %. Kristilegi flokkurinn fékk 169 þús. atkvæði og 9.4 % at- kvæðamagnsins. í seinustu kosningum fékk hann 177 þús. atkv. og 9.9 %. Þótt flokkurinn tapaði atkvæðum, fékk hann samt þremur þingmönnum fleira nú og var það eingöngu heppni að þakka. Vinstri flokkurinn fékk 130 þús. atkv. og 7.19 % af atkvæða magninu. í seinustu kosningum fékk hann 137 þús. atkv. og 7.67 %. Óháðir vinstri menn, sem buðu fram nú, en ekki seinast, fengu 2356 atkv. Miðflokkurinn (bændaflokk- urinn) fékk 125 þús. atky. og 6.95 % greiddra atkvæða. í sein ustu kosningum fékfc hann 107 þús. atkv. og 6.0% af atkvæða- magninu. Sambræðslulistar borgara- legu flokkanna í ýmsum kjör- dæmum fengu nú 96 þús. atkv. og 5.32% af greiddum atkvæð- um. í seinustu kosningum fengu þeir 154 þús. atkv. og 8.58% af atkvæðamagninu. Hægri flokkurinn stóð nú að færri sambræðslulistum en áð- ur og er það ein skýringin á fylgisaukningu hans. * Kommúnistaflokkurinn fékk 53 þús. atkv. og 2.94 % af greiddum atkvæðum. Seinast fengu þeir 60 þús. atkv. og 3.36 %. Sósialiski þjóðarflokkurinn fékk 42 þús. atkv. og 2.34 % af greiddum atkvæðum. Hann bauð ekki fram í seinustu kosn- ingum. Enn er allt í óvissul með stjórnarmyndun í Noregi. Stjórn Verkamannaflokksins mun fara með völd, unz þing kemur saman. Þingmenn flokks ins og miðstjórn koma saman um mánaðamótin og verður þar ákveðin afstaða flokksins. Þangað til mun haldast sú óvissa, sem nú er rikjandi. Myndir af forustumönnum norsku stjórnmálaflokkanna fylgja hér með, en þær voru teknar í sjónvarpsumræðum, sem fóru fram þremur kvöld- um fyrir kosningarnar. BENT ROISELAND, foringi vinstri flokksins PER BORTEN, foringi Miöflokksins N.. V -S.. V - ' FINN GUSTAVSEN, sem veröur leiðtogi Sosialiska þjóðarflokksins í þinginu

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.