Tíminn - 23.09.1961, Side 1
ekki ymferðar-
reglurnar?
Lögreglustj «ri hefur nýlega
boðað, að samkvapmt fyiirmælum
nýju umferðarlaganna megi ekki 1
leggja bifreiðum hægra megin á
tvístefnuakstursgötum. Lögreglu- ’
'þjónar hafa að undanförnu sett
aðvörunarmiða á bifreiðar, sem er
þannig ranglega lagt. Ökumenn
liafa þó ekki verið kærðir fyiir
þessi brot, en fyrirmælin eru í
þann veginn að komast til fram-
kvæmda.
Það vakti því athygli, að um
tniðjan daginn í gær var einni af
bifreiðum lögreglunnar ranglega
lagt fyrir framan aðsetur rann-
sóknarlögreglunnar að Fríkirkju- i
veg 11. Bifreiðin sneri í norður ;
bg stóð þannig við eystri gang- j
stéttina um hálfa klukkustund.
í kvöld verSa úrslitin f feg-
urðarsamkeppninni Ungfrú NorS-
urlönd kynnt á dansleik á Hótel
Borg. Keppnin hefur verið mjög
tvísýn, þar sem líkamlegt at-
gerfi stúlknanna er ekki ólíkara
en svo, að margir hafa átt fullt
í fangi með að gera það upp við
sig, hver honum þaetti falleg-
ust, og þar sem tveir eru saman-
komnir, eru þeir sjaldnast sam
mála. Því miður verða úrslitin
ekki kynnt fyrr en sunnudags-
blaðið er langt til fullprentað, og
verða því úrslitin að biða til
blaðsins á þriðjudaginn.
Á myndinni eru, talið frá
vinstri: Inger Lundquist, S., Rig-
mor Trengereld, N„ María Guð-
mundsdóttir, í„ Margarethe
Schauman, F„ og Birgitte Hei-
berg, D.
Enn að
slá tún
Akureyri, 22. sept.
Nú er ágætur heyþurrkur norð-,
anlands, enda suðlteg átt og storm
ur. Það kemur sér vel, því að
vegna votviðra allan síðari hluta
sumarsins, er heyskap enn viða
ólokið. f sveitunum út með firð-
inum mun ástandið vera verra, og
þar er enn mjög víða verið að
heyja. Sumir bændur eiga jafnvel
enn eftir að slá talsvert af túnum
sinum, og notast þeim nú vel
þurrkurinn.
Skutu 15
hreindýr
• •
uppi á Oxi
Nokkrir menn úr Berufjarðar-
hreppi eystra fóru fyrir nokkru
upp á lieiði og skutu 15 hrein-
dýr, en það var einmitt sá fjöidi,
sem heimilaður var Berufjarðar-
mönnum til fangs.
Hreindýrin voru farin að ganga
úr hárum, er þau voru skotin, og
skinn þeirra því verðminni en
el-la.
Veiðimennixnir fóru upp á Öxi,
isem er fjallvegur úr Berufirði,
sem komast má á Suðurdal inn af
Fljótsdalshéraði. Komust þeir á
bifreið þangað upp, enda er þar
nú vegur, sem aðeins er eftir að
bera ofan í.
Ungmennafélagið Djörfung, sem
er annað af tveimur ungmenna-
félögum í byggðarlaginu undir
Öxi, hefur af mikilli bjartsýni og
myndarskap ráðizt í að gera veg
yfir Öxi og komið gerð hans þetta
áleiðis, en stuðningur hefur ekki
fengizt til þessa fyrirtækis af op-
inbeiu fé fyrr en lítils háttar eitt
eða tvö síðustu árin. Hefur ung-
mennafélagið meðal annars efnt
til happdrættis þessu þrifamáli
byggðarlagsins til framdráttar.
Frá fegurðarsamkeppnmni
Nei,
myndinni. Þessir menn skemmtu
á fegurðarsamkeppninn^ Guð-
mundur Jónsson meS söng léttra
klassískra laga, en Hjálmar Gisla
son með enn léttara hjali.
Hurðarlaus vél í
Grænlandsflugi
í gær hringdi vegfarandi til
blaðsins og sagði sögu, er hann
var sjálfur furðu lostinn yfir.
Hann hafði verið á gangi um
miðbæinn um þrjú-leytið og
heyrði þá yfir sér flugvélar-
dyn, sem oft verður. Eigi að
síður varð manninum litið upp
í loftið og sá þá þá sýn, er
vakti furðu hans. Hann sá inn í
flugvélina um opnar dyr.
Gerði hann sér þegar í hugar-
lund, að þarna hefði orðið slys í
flugvélinni. Hér var þó ekkert
óttalegt á ferðinni.
Varningi kastað útbyrðis
Hér var um að ræða Skymaster
flugvél Flugfélags íslands, sem
hefur fast aðsetur á Grænlandi
við ísleitarflug og flutninga til
einangraðra staða á vegum dönsku
Grænlandsverzlunarinnar. Kom
flugvélin hingað í gær beint úr
flutningaflugi innanlands í Græn
landi. Þar hagar víða svo til, að
einstök þorp eru einangruð allan
veturinn vegna íss. Ekki er um
akvegi að ræðji á landi, og þegar
brýna nauðsyn ber til, eru ýmsar
nauðsynjavörur fluttar til slíkra
staða með flugvélum og einfald-
lega kostað útbyrðis sem næst á-
kvörðunarstaðnum. Þannig stóð á
því, að Skymasterflugvélin flaug
að flugbrautinni yfir cniðbæ
Reykjavíkur með gat í hurðar
stað. Hurðin var vel geymd inni
i flugvélinni — og þar var reynd
ar einnig einn farþegi frá Græn-
landi auk áhafnarinnar, að því er
starfsmaður flugfélagsins tjáði
blaðinu.
Aðfaranótt sl. þriðjudags
var ekið á hest á Kleppsvegi
móts við bifreiðastæði Laugar-
ássbíós. Bifreiðin stórskemmd-
ist, en hesturinn hvarf út í
myrkrið.
Kusina þeir
Brak fauk af húsþaki
olli skemmdum á bilum
í fyrrinótt var ofsaveður Brakið fauk á bifreiðirnar
víða um sunnanvert landið, I Svo Óheppilega vildi til, að brak Leigubifreið var á leið vestur
rok og rigning. Ekki hafa þó í Framhald á 15. síðu. Kleppsveginn og vissi ökumaður-
borizt fréttir af stórfelldum
sköðum af völdum veðursins. í
!
I Reykjavík bar þó svo til, að
ýmislegt lauslegt fauk af þaki 11!
hæða háhýsis ag Sólheimum 27,
en hús þetta hefur félagið Fram-
tak í byggingu. Er smíðinni ekki
lokið og ógengið frá þaki hússins.
BIFREIÐIN SKÆIO
IST OG BROTNAOI
- en hesturinn hvarf út í myrkrið
inn ekki fyrr til, en tveir dökkir
hestar þustu út á veginn í veg fyrir
bifreiðina. Lausamöl var á götunni
og bar þetta svo brátt að, að öku-
manni tókst ekki að koma í veg
fyrir árekstur, þótt hann notaði
hemlana. Bifreiðin skall á hægri
síðu annars hestsins, en síðan
hurfu þeir í myrkrið.
Framhald á 15. síðu.