Tíminn - 23.09.1961, Page 7
7
,.WAW.V.V.,.lW.,AVV.VAV.WASWW^%%Wi%%Wl\
| Verðlagseftirlit jj
og álagning
Verðlagseftirlit og álagning
hefur nokkuð verið til umræðu
í sumar. Hefur það vakið undr-
un og jafnvel hneykslun, að
forsvarsmenn samvinnufélag-
anna hafa hiklaust látið það
álit í Ijós, að þeir vildu, fyrir
hönd kaupfélaganna, afnám
verðlagshafta. Þykir sumum
sem það muni stríða gegn eðli
og tUgangi kaupfélaganna áð
óska eftir slíku. Þeim beri að
kappkosta, að hafa vöruverðið
sem lægst og veita á þann hátt
sem ríkasta þjónustu. Þetta
þarf nokkurra skýringa.
Kaupfélögin hafa ævinlega
kappkostað að útvega sem
ódýrasta vöru, hvort sem verð-
lagsákvæðum hefur verið til
að dreifa eða ekki. En
rekstur eins kaupfélags kostar
nokkuð. Tekjustofna hafa þau
oft og tíðum litla sem enga
utan álagningar á vöruna og
umboðslauna af þeirri fram-
leiðslu, sem þau hafa til sölu-
með'ferðar. Nú eru ýmis félög-
in, sem eru næstum eingöngu,
eða að langmestu leyti neyt-
endafélög og þeirra einu tekjur
er álagningin. Það liggur í aug-
um uppi, að til þess að rekstur
félagsins beri sig, verður álagn-
ingin að vera sem svarar rekstr
arkostnaðinum. Verði halli á
rekstrinum, hefur kaupfélagið
engan tekjustofn upp á að
hlaupa til þess að mæta hon-
um. Sama gildir vitanlega um
einkaverzianir, hvað þetta
snertir.
Komi það fyrir, að kaupfélag
leggi meira á vöruna en það,
sem kostnaði nemur, gildir sú
regla, að kaupfélagið endur-
greiðir félagsmönnunum það
sem þelr hafa borgað meira
fyrir vöruna en nauðsynlegt
var. Það er því sannarlega eng-
in áhætta fyrir félagsmennina,
þótt svo færi, að reksturskostn-
aður félagsins hefði verið áætl-
aður óþarflega hár. Samkvæmt
þessum reglum hafa sum kaup-
félög landsins endurgreitt í
stofnsjóði og reikninga félags-
manna svo milljónum skiptir á
undanförnum árum. En hvers
vegna ekki öll félögin? í fyrsta
lagi vegna þess, að þau hafa
ekki gert ráð fyrir meiri álagn-
ingu en því, sem reksturskostn-
aði hefur numið, hafi álagn-
ingarreglur verið frjálsar. í
öð!ru lagi, að verðlagsákvæði
hafa hamlað nægilegri tekju-
öflun. f þriðja lagi, óhagstæð
skUyrði. í fjórða lagi óhöpp,
sem alltaf geta komið fyrir.
Það er því Ijóst, ef að er gáð,
að það er engin áhætta að leyfa
kaupfélagi þá álagningu, sem
forustumenn þess telja nauð-
synlega. Og heilbrigð sam-
keppni þess við kaupmanna-
verzlanir á staðnum skapar
eðlilegt vöruverð og kemur í
stað verðlagsákvæða.
PHJ
Auglýsið í TiMANUM
Haustmót í
Bjarkarlundi
Reykhólum, 17. sept. 1961.
S.l. laugardagskvöld hélt hótel
Bjarkalundur árlega kveðju-
veizlu fyrir starfsfólk sitt, sem
þýðir þó ekki að hótelið sé
hætt störfum, heldur verður
það opið gestum og gangandi
fram um miðjan októbermán-
uð eins og vanalega, en með
færra starfsliði, þvi aðalanna-
tíminn er nú liðinn hjá.
í þessari veizlu skeði það, að
Sigfús Halldórsson, tónskáld og
listmálari, sem dvalið hefur um
nokkurra daga skeið á Reykhólum,
í orlofi sínu, afhenti hótelinu mál-
verk eftir sig að gjöf, af Bjarka-
lundi og umhverfi með Vaðalfjöll
í baksýn. Er það hin fegursta
mynd og hangir nú uppi í við-
hafnarstofu hótelsins.
Úr Reykjavík hafði komið vestur
af þessu tilefni Vikar Davíðsson,
gjaldkeri Barðstrendingafélags-1
ins, sem á hótelið og rekur það,
og veitti hann málverkinu viðtöku
fyrir hönd stjórnar félagsins. Hélt
hann ræðu og þakkaði hina fögru
gjöf og las þakkarávarp frá for-
manni félagsins, Guðbjarti Egils-
syni, sem ekki gat komið því við
að fara vestur í Bjarkalund að
þessu sinni.
Sigfús Halldórsson hélt einnig
ræðu og gat þess, að tilefni gjaf-
arinnar væri það, að hann hefði
tekið ástfóstri við staðinn og Reyk
hólasveit. Þar hefði hann átt
margar ijúfar stundir og friðsælar
í fögru umhverfi og ætti hann
sveitinni þakkarskuld að gjalda
fyrir það og svo einnig hitt, sem
ekki væri minnst um vert að kona
sín væri þaðan upp runnin.
Var veizla þessi hin ágætasta,1
mikill og góður matur á borðum
og glaðværð töluverð. Stjóiuaði
frú Ingigerður Guðjónsdóttir hót-
elstýra hófinu. Var mikið sungið
og lék Sigfús undir á píanó hót-
elsins og skemmti gestum með
söng og sögum, og skemmtu
menn sér lengi nætur.
Þ. Þór í
A víðavangg
Tvær leiðir
Það er hægt að aflétta inn-
flutningshöftum eftir tveimur
leiðum. Annars vegar með því
að auka framleiðsluna, hins veg
ar með því að skerða lífskjör
almennings, lama kaupgetuna og
draga saman á sem flestum svið
um.
Framsóknarflokkurinn vill af-
nám innfZutnings- og viðskipta-
hafta, en flokkurinn viíl fara þá
Icið að auka framleiðsluna sem
mest. Flokkurinn hefur aldrei
léð máls á því, að innflutnings-
höftum væri létt með því að
skerða lífskjör almennings og
lama kaupgetuna. Framsóknar-
fZokkurinn vilZ leita jafnvægis
eftir hinni jákvæðu leið, fram-
leiðsluauknimgarleiðinni, en hafn
ar algjörlega samdráttarleiðinni.
— Þar skiptir vötnum milZi
stjórnarflokkanna og Framsókn
arflokksins. Þetta er síður en svo
að vera andstæður sem frjáls-
ustum viðskiptaháttujn, heZdur
er flokkurinn andvígur þeirri
leið, sem núverandi ríkisstjórn
fer til að koma þeim á, þvi eftir
þeirri leið getur frelsið orðið
harla Iítils virði.
Svikafrelsi
Með því að binda menn á
höndum og fótum með skerðingu
kaupmáttar launa, lánsfjár-
kreppu og samdrætti í atvinnu-
Zífi, verður frelsið aðeins sýnd
veiði en ekki gefin. Það er svika
frelsi. Slíkt frelsi er aðeins
freZsi hinna ríku. f fjölmörgum
löndum þar sem kjör alþýðunn-
ar eru svo bág, að hún hefur
ekki einu sinni til hnífs og skeið
ar, ríkir algert viðskiptafrelsi,
a.m.k. að nafninu til. Þar er það
bundið við getuleysi almennings.
Þar hefur viðskiptafrelsi verið
komið á eftir neikvæðu leiðinni.
Það skiptir því höfuð máli fyrir
almenning með hvaða hætti unn
ið er að því að koma á frjálsum
viðskiptum. Framsóknarflokkur
inn vilZ koma á frjálsum inn-
flutningi eftir framlciðsluaukn-
imgarleiðinni, þannig að jafn-
framt innflutningsfrelsi verði
tryggð mannsæmandi Iífskjör al
mennings.
Notalegt á gjárbotninum?
Eins og kerlingin sagði, sem
hrapaði niður stigann, gat SjáZf
stæðisflokkurinn sagt: Ég ætlaði
niður hvort sem var. Það er að
minnsta kosti staðreynd, að frá
því, að búa við beztu almennu
lífskjör, komst þjóðin niður á
það stig, að búa við Zökust lífs-
kjör í Vestur-Evrópu. Á þessum
gjárbotni kunna verkalýðsleiðtog
ar Sjálfstæð’isflokksins vel við
sig. Þar minnir allt svo nota-
lega á hina gömlu góðu daga.
Þeir fórnuðu því upp höndum
í skeZfingu, þegar verkalýðsfé-
lögin vildu fara að klífa eitt-
hvað áleiðis upp úr gjánni aftur
í vor og sumar. Gat aZmenning-
ur ekki skilið það, að öruggast
væri að vera kyrr niðri? Ef farið
yrði uppá við aftur, mætti alltaf
búast við hrapi á ný og þá gæti
veZ svo farið, að einhver gæð-
ingurinn kæmi illa niður.
í'Framsóknarblaðið).
„Viðreisnarkýrin(f
Á fundinum við Brún í Bæjar
sveit 27. ágúst s.I. sagði Daníel
Ágústínusson sögu af kunnum
Sjálfstæðismanni í þorpi einu á
Vestfjörðum, sem keypti sér kú
í fyrra inni í sveitinni. Skömmu
eftir að kýrin var borin, spurði
kunningi hans, hvernig kýrin
hefði heppnazt. „Minnstu ekki
á það“ sagði Sjálfstæðismaður-
inn. „Hún étur þessi ósköp, er
grindhoruð og mjólkar sáralítið,
enda hef ég skýrt hana „við-
reisn“.
Þá varð einum fundarmanni
að Brún að orði:
„Étur beljan ókjör ein,
engin spenahreyta,
vöðvaZaus með visin bein,
„viðreisn“ skal hún heita.“
,-Msa
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
BÝÐUR ÓDÝRAN
SUMARAUKA
LENGIÐ SÓLSKINS-
DAGANA
Fijúgið mót sumri og sól með
Flugfélaginu á meðan skammdegi
vetrarmánaðanna ræður ríkjum
hér heima.
þÉR SPARIÐ PENINGA
FLUGFÉLAG ÍSLANDS lækkar
fargjöldin til muna á tímabilinu
frá 1. október til 31. maí.Verð-
skráin gefur til kynna, hversu
mikið Þér sparið með Því að
ferðast eftir 1. október.
Venjulegt verð Nýtt verð Afsláttur
Rivieraströnd Nizza 11.254 8.440 2.794
Spánn Barcelona 11.873 8.838 3.035
Palma (Mallorca) 12.339 9.254 3.085
Ítalía Róm 12.590 9.441 3.149