Tíminn - 23.09.1961, Síða 13
TÍMINN, laugardaginn 23. september 1961.
13
ALLTAF ER FARMALL FREMSTUR
Útvegum gerð B-275,
35 hestafla. Verð ca.
kr. 96.000,00; og not-
aSar, gerð B-250, 30
hestafla, ver5 ca. kr.
55—60.000,00.
Við Farmall B-250 og
B-275 má nota 611
aftanítengd verkfæri
mel 3-arma festingu,
t.d. frá Ferguson-
dráttarvélum.
Útvegum sláttuvélar
mel fínfingralri, 5 feta
greiðu, stalsettri milli
hjóla, einnig ámoksturs
tæki, sem af mörgum
eru talin þau beztu á
markalnum, og fjölda
af öðrum verkfærum.
Talið við bændur, sem
eiga B 250 ela B-275
diesel-dráttarvélar.
Aríóandi er að draga
ekki ákvörðun um
dráttarvélakaup til
vors. Vorkaupin hafa
ofi gengil verr en til
var ætlazt, m.a. af
verkföllum og öðrum
ófyrirsjáanlegum
ástælum. Ef um notala
vél er a8 ræla, er
betra al gefa okkur
meiri fyrirvara til
kaupanna.
Áreiðanlegar upplýsing
ar veittar um hæl í
næsta kaupfélagi ela
hjá okkur
Véladeild
Eftirtaldir aðilar hafa
fest kaup á B-250 og
diesel-dráttarvéluni á
þessu ári:
ÐIESEL TRACTOR >
ÁRNESSÝSLA:
Árni Ögmundsson, Galtaíelli, Hrun.
Kristófer Ingimundarson, Grafaibakka, Hrun.
Sigriður Haraldsdóttir, Hrafnkelsstöðum, Hrun.
Jóhann Einarsson, Efra-Langholti, Hrun.
Bjarni Matthíasson, Fossi, Hrun.
Magnús Gunnlaugsson, Miðfelli, Hrun.
Sigmundur Sigurðsson, Syðra-Langholti. Hruna-
mannahr.
Erlingur Loftsson, Sandlæk, Gnúpv
Sveinn Ágústsson, Móum, Gnúpv.
Gestur Jónsson, Skaftholti, Gnúpv.
Lýður og Steinar Pálssynir, Hlíð, Gnúpv.
Skúli Gunnlaugsson, Bræðratungu, Bisk.
Kristinn Brynjólfsson, Gelti, Grímsnesi
Sig. Gunnarsson, Bjarnastöðum, Grímsnesi.
Sigfús Þ. Öfjörð, Lækjamóti, Hraungerðishr.
Finnbogi Vikar, Hjalla, Ölfusi
Kjartan Hannesson, Ingólfshvoli, Ölfusi
Hjalti Þórðarson, Bjarnastöðum, Ölfusi
Sigurgeir Jóhannsson, Núpum, Ölfusi
RANGÁRVALLASÝSLA:
Þór Pálsson, Hvammi, Holtahr.
Marmundur 'Hristjánsson, Svanavatni, A.-Land.
Magnús Tómasson, Skarðshlíð, Eyjafjallahr. Rang.
VESTUR-SKAFTAFELLSSÝSLA:
Guðni Runólfsson, Bakkakoti, Meðallandi
Sigfús Vigfússon, Geirlandi, Síðu
Einar Kjartansson, Þórisholti, Mýrdal
MÚLASÝSLUR:
Karl Hrólfsson, Reynihaga, Skriðdalshr.
Jón Kr. Guðjónsson, Hólmum, Reyðarfirði
Guðm. Jónsson, Refsmýri, Fellum
Eyjólfur Þórarinsson, Áreyjum
Guðjón Hermannsson, Skuggahlíð, Norðfirði
Hermann Jónsson, Stóra-Sandfelli, Skriðdal
Einar Sigurbjörnsson, Múlastekk, Skriðdal
SUÐUR-ÞINGEYJARSÝSLA:
Laufey Hernitsdóttir, Mýlaugsstöð um, Aðaldal
Jón Hermannsson. Hlíðskógum Bárðardal
Þórólfur P Jónsson. Stóru-Tur’• B'-í'ardal
SIGLUFJÖRÐUR:
Skúii Jónasson, Siglufirði
SKAGAFJARÐARSÝSLA:
Arnljótur Helgason, Merkigarði, Lýtingsstaðahr.
Jón Sigurðsson. Reynistað. Staðarhr.
Jón Eiríksson, Fagranesi, Skarðshr.
Sigurður Jóhannsson. Úlfsstöðum. Akrahr.
Sigurður Ellertsson, Holtsmúla, Staðarhr. ‘
Sveinn Jóhannesson, Varmalæk, Lýtingsst.hr.
Jón Eiríksson, Djúpadal, Akrahr.
, HÚNAVATNSSÝSLA:
Ævar Klemenzson, Bólstaðarhlíð, Bólst.hl.hr.
Guðm. Sigfússon, Eiríksstöðum, Bólstaðarhl.hr.
STRANDASÝSLA:
Eiríkur Sigfússon, Hvalsá, Hrútafirði
Kaupfélag Strandamanna, Norðurfirði
Hákon Ormsson, Skriðnesenni. Óspakseyrarhr.
VESTUR-ÍSAFJARÐARSÝSLA:
, Gunnlaugur Sigurjónsson, Granda, Dýrafirði
BARÐASTRANDARSÝSLA:
Jón Hallfreðsson, Bakka, Geiradalshr.
, Hákon Magnússon, Bæ, Reykhólahr.
Egill Ólafsson, Hnjóti, Rauðasandi
DALASÝSLA:
Einar Ólafsson, Lambeyrum, Laxárdalshr.
Egill Benediktsson, Sauðahúsum, Laxárd.hr.
MÝRASÝSLA:
Skúli Kristjónsson, Svignaskarði
BORGARFJARÐARSÝSLA:
Sigurður Geirsson, Vilmundarstöðum, Reykholtsd.
Ragnar Olgeirsson, Oddsstöðum, Lundarreykjadal
GULLBRINGU- OG KJÓSARSÝSLA
OG REÝKJAVÍK
Samson Samsonarson, Hvammsvík, Kjós
Björn Lútherssctn, Ingunnarstöðum, Kjós
Guðni Ólafsson. Flekkudal. Kjós
Ólafur Jónsson, Álfsnesi. Kjalarnesi
Guðmundur Þorgeirsson Þormóðsdal Mosfellshr
Ólafur Ingimundarson. Hrisbrú Mosfelishr
Lárus Lárusson Hálogalandi Reykiavík
Einar Ólafsson. Lækjarhvammi. Reykjavík
Einar Þórðarson. Stóru-Vatnsleysu, Vatnsleysustr.
(Framhaid af 11 síðut
inn í árnar, en áður fjarlægja alla
viðkvæmustu hluta vélarinnar, sem
ekki máttu blotna og smyrja sjálfa
vélina feiti. Síðan urðu þeir að afla
sér hesta og múldýra og þannig
koma vagninum yfir.
Nokkrum sinnum urðu þeir að
notast við járnbrautarbrýr, en það
var hreinasta neyðarúrræði. Braut-
arteinarnir voru að sjálfsögðu
lagðir fyrir eimreiðar en ekki bíla.
Þeir urðu því að smámjaka bílnum
yfir undirstöður þeirra fet fyrir
fet. Brýr þessar lágu oft yfir gín-
andi gljúfur, venjulega handriða-
lausar, svo að þetta var allglæfra-
legt, þar að auki gátu þeir átt von
á eimlest á hverri stundu.
Það urðu enn ýmsar ótaldar tor-
færur á leið þeirra.
Eitt sinn brotnaði eitt hjólið
undan bíl þeirra furstans. Þeir
höfðu ekkert varahjól og það ófá-
anlegt fyrr en í þúsund mílna fjar-
lægð. Þá sáu þeir ekki fram á ann-
að en algera uppgjöf. Þeir komust
samt í samband við trésmið í ná-
lægu þorpi sem tókst að smíða
fyrir þá allgott hjól, þótt verkfærin
væru frekar frumstæð.
Brennsluforði þeirra var oft ekki
á fyrirfram ákveðnum stöðum.
Þannig voru þeir eitt sinn staddir
í þorpi benzínlausir og ekkert fyrir
hendi þar á staðnum. Borghese
kom þá að máli við kaupmanninn,
en hann átti í fórum sínum talsvert
magn af benzol. Þeir fyUtu geym-
ana af þessu brennsluefni og Italia
lagði enn upp, reykspúandi eins
og kolakyntur ofn.
Hinn 20. júlí lyftist heldur betur
á þeim brúnin. Þejr voru þá stadd-
ir inn í miðjum Úralfjöllum. Þeir
komu þar auga á marmarasúlu
mikla, sem bar áletrunina Asia
annars vegar en Evrópa hins veg-
ar.
Viku seinna kom Italia til
Moskvu. Var tekið á móti þeim sem
sigurvegurum af hinni mestu hrifn-
ingu.
Vagnarnir þrír og félagar þeirra,
voru nú orðnir 17 dögum á eftir og
voru enn að brjótast áfram austur
á víðáttum Síberíu.
Það sem nú var framundan, var
frekar auðfarið. Þeir fengu hinar
beztu móttökur í St. Pétursborg
(nú Leningrad) og Berlín.
Síðasta áfangann til Parísar kom
fyrir broslegt smáatvik, er þeir óku
í gegnum belgískt þorp. Þeir voru
stöðvaðir af lögregluþjóni, þar sem
þeir höfðu farið yfir löglega leyfð-
an aksturshraða, 12 km. á klukku-
stund. Borghese fursti stóð þá upp
í vagninum, eins og hann kom fyr-
ir, óhreinn og fötin ekki allt of
ásjáleg og ávarpaði lögregluþjón-
inn:
— Ég er Borghese fursti, við
komum styztu leið frá Peking í
Kína!
Yfirvaldinu varð orðfall í bili, en
áttaði dg fljótt og segir:
— Ég bið yður herra minn að
haga orðum yðar kurteislega.
Er hann hafði athugað skjöl
þeirra gaumgæfilega og sannfærzt
um sannleiksgildi þeirra, leyfði
hann þeim að halda áfram.
Þann 10. ágúst 1907, klukkan 16
— 61 degi eftir brottferð þeirra
frá Peking, skilaði þessi litli Italia-
bíll þeim félögum til Parísar Þeir
höfðu þá farið vegalengd sem var
allt að því ýfir hálfan hnöttinn.
Þeim var að sjálfsögðu tekið með
kostum og kynjum í París
Aðrir þátttakendur í þessari ein-
stæðu ökuferð voru enn allfjarri.
Stjórnandi hollenzka vagnsins
veiktist og varð að enda ferð sína
í Berlín. Var það mikið áfall fyrir
hann, og sjá fram undan auðförn-
ustu leið í áfanga. Frönsku vagn-
arnir tveir komu aftur á móti til
Parísar 30 ágúst
Bílarnir höfðu lokið þessu hlut-
verki sínu og um leið sannað hver«
þeir voru megnugir!
ítalska tímaritið Quattroruote
skrifar 1957: — Ökuferð þessi er
og verður einhver ævintýra- og
athyglisverðasti árangur í sögu
bifreiðanna sepi um getur.