Tíminn - 27.09.1961, Síða 9
Skipadeild SIS hefur starfað í 15 ár. Þar hefur rætzt ein
höfuðósk samvinnumanna fyrr og síðar - draumur, sem
Einar í Nesi orðaði eins og fyrirsögnin til hliðar greinir
Hafið með ógnum sínum
og auði hafði mótað skap-
gerð hennar að hálfu. Að
vanta skip var aldagamalt
böl, að eiga skip var óska-
draumur.
Arnarfell, keypt 1949,
heimahöfn Húsavík
Jökulfell, keypt 1951,
heimahöfn ReySarfjörður
Dísarfell, keypt 1953,
skipum Sambandsins. Og nú
túlkar þetta ljóð afmælis-
óskir þjóðarinnar til sigl-
ingaflota Sambandsins og
áhafna þeirra, hvar sem þau
sigla um heimshöfin.
Þessi viðhorf komu vel í
ljós, þegar samvinnumenn
fögnuðu Hvassafelli í fyrsta
sinn. í mannfagnaði við það'
tækifæri sagði Vilhjálmur
Þór, þáverandi forstjóri SÍS:
„Með kaupum þessa skips
og komu þess hefur Sam-
bandið hafið nýja starfs-
grein. Starfsgrein, sem ætl
azt er til, að geti orðið einn
lið'ur enn í starfinu að því
markmiði samvinnunnar, að
skapa betri lífsskilyrði og
gera lífið ■ léttara og betra
fyrir fólkið í þessu landi.“ j
Og einnig sagði hann:,
„En ríkast er mér í huga að (
biðja þessu skipi guðs bless
unar. Megi máttur hans allt1
af vera með því og vernda
skipið og þá menn, sem nú
eru á því, eða á því verða
á komandi tímum og gefa
þeim styrk til þess að sigr-
ast á erfiðleikum og ógnum
hafsins og gefa gæfu til
þess að það megi alltaf heilt
í höfn koma.“
Við sama tækifæri sagði'
Einar Árnason á Eyrarlandi,'
formaður stjórnar Sam-j
bandsins:
„Með komu þessa skips.
eru að rætast margra áraj
óskir samvinnumanna lands
ins og vonir lifa um það, að
fleiri skip komi síðar á veg-,
um þess félagsskapar til að
fylla þær þarfir, sem þetta;
eina skip að sjálfsögðu get-|
ur ekki fúllnægt. Eg trúi
því, að félagslegt framtak
einstaklinganna, þar sem
allir njóta ávaxtanna jafnt,
verði þjóðinni farsælt í bráð
og lengd og í þeirri trú býð
ég Hvassafell velkomið til
starfa og bið þess að guð og
gæfan fylgi þvi og áhöfn(
þess, hvar sem það fer um
heimsins höf.“
Þessi orð samvinnuleið-
toganna við þetta tækifæri
fengu sterkan hljómgrunn í
brjósti allra samvinnu-
manna og undir þeirra góðu
óskir og fyrirbænir tók fólk
ið í landinu.
Hvassafell er fagurt skip.
Það var smíðað í Genua á
Ítalíu og er 2300 smál. að
stærð. Fyrsti skipstjóri sam;
vinnumanna var Gísli Ey-j
lands og 1. stýrimaður
Sverrir Þór.
Eins og koma Hvassafells
var sögulegur viðburður,
varð hún einnig upphaf ann
arra sams konar, sem á eft
ir fóru. I
Á næstu árum bættust í
siglingarflota SÍS hvert skip
ið af öðru. Voru þeim gefn-
ar heimahafnir á ýmsum
stöðum, eða sem hér segir:
heimahöfn Þorlákshöfn
Litlafell, keypt 1954, '
heimahöfn ísafjörður
Helgafell, keypt 1954,
heimahöfn Reykjavík
Hamrafell, keypt 1956,
heimahöfn HafnarfjörSur,
Þegar Hvassafell kom til
landsins, var það stærsta,
skip íslenzka siglingaflotans
og yngsta skip SÍS. Olíuskip
ið Hamrafell er nú lang-
stærst allra skipa þjóðarinn
ar, 16730 lestir.
Árið 1960 sigldu skip sam-
vinnumanna samtals 319477 i
sjómílur, fluttu samtals,
419.700 smálestir af vörumj
og komu 1283 sinnum á ís-,
lenzkar hafnir allt í kring,
um landið. Erlendis komu,
þau til hafna 243 sinnum. ,
Skipverjar á Sambands-|
skipunum eru 171.
Upphaflega þegar Skipa-
deild SÍS var stofnuð 1946,
heyrði hún beint undir for-
stjóra skrifstofu Sambands
ins, en 1952 var hún gerð
sjálfstæð og Hjörtur Hjartar
ráðinn framkvstjóri hennar.
Hefur hann verið það síðan.
Ef Einar í Nesi og aðrir
spámenn og frumherjar sam
vinnustefnunnar á íslandi
mættu lita upp úr gröfum
sínum, mundi þeim bregða
í brún og verða ríkt fagnað-
arefni að þvi, hve vel hefur
tekizt að ávaxta þann arf
hugsjóna og ráðdeildar, sem
þeir fengu þjóðinni í hend-
ur. Þótt Skipadeild Sam-
bandsins sé ung að árum,
hefur samvinnufólkið í land
inu og þjóð'in öll ástæðu til
að þakka þeim, sem hafa
veitt henni forstöðu og öll-
um þeim, sem unnið hafa að
eflingu hennar og fram-
gangi. Ekki sfzt skyldu menn
minnast með hlýhug og holl
um óskum áhafna skipanna,
sem svo farsællega hafa unn
ið störf sín.
Hinn fjölgáfaði og list-
fengi maður, Sveinn Bjar-
man á Akureyri, orti eftir-
farandi erindi í tilefnl af
komu Hvassafells 1946 og
sendi þáverandi forstjóra
SÍS:
íslands árguðir lýsi
alla tið Hvassafelli.
Hossi hamingja og blessi
happaskeið á sœ breiðum.
Mölvist bylgjur, þó bölvi
bólgin hrönn i rokólgu.
íslands árguðir lýsi
alla tið Hvassafelli.
Undir þessar óskir og
fögru fyrirheit tóku allir
landsmenn. Erincji Sveins
hefur orðið að áhrinsorðum.
Hamingja hefur verið með,
Helgafell