Tíminn - 11.10.1961, Blaðsíða 1
ALÞINGI SETT í GÆR
Alþingi, 82. löggjafarþing,
var sett í gær. Þingsetningar-
athöfnin hófst meö guðsþjón-
ustu í dómkirkjunni kl. 1.30.
Jón Auöuns, dómprófastur,
prédikaði.
Að lokinni messu gengu þing-
menn^ í Alþingishúsið og las for-
seti íslands upp bréf handhafa
forsetavalds um samkomudag
reglulegs Alþingis og sagði þingið
sett.
Gísli Jónsson, aldursforseti, tók
síðan við stjórn fundar. Minntist
hann fjögurra fyrrverandi þing-
manna, sem látizt höfðu frá slitum
síðasta þings, þeirra Jóhanns Þ.
Jósefssonar, Gunnars lafssonar,
Angantýs Guðjónssonar og Ásgeirs
Sigurðssonar.
Fjórir varaþingmenn tóku sæti
á þessu þingi. Þeir eru Jón Pálma-
son, er tekur sæti Gunnars Gísla-
sonar, Hjörtur Hjálmarsson í stað
Birgis Finnssonar, er situr á alls-
herjarþingi Sþ., Einar Sigurðsson
fyrir Jónas Pétursson, sem í önn-
um á heima, og Sveinn S. Einars-
son, er tekur sæti Ólafs Thors.
Rannsaka þurfti kjörbréf Sveins
r ■ a ■ r
a einu ari a
Patreksfirði
Patreksfirði, 10. október.
Hér ríkir bjartsýni og fram-
kvæmdahugur, enda er atvinna
meiri en nóg að venju. Meðal ann-
ars eru 18 íbúðarhús í smíðum, en
þau gera ekki betur en að taka við
hefur nefnilega fjölgað um meira
fjölguninni á staðnum. íbúunum
en hundrað á einu ári og eru þeir
nú orðnir 950. Verður varla langt
að bíða þess, að Patreksfjörður
losi þúsundið
Bátaútgerðin er vaxandi. Nýir
bátar bætast stöðugt við, enda hef-
ur gengið vel fiskiríið undanfarið.
(Framhald a z siðu.'
Einarssonar, og var þinginu skipt
í kjördeildir. Kjörbréf Sveins
reyndist lítils háttar gallað, en
kosning hans dæmd lögmæt og
kjörbréf hans samþykkt. Fleira
var ekki tekið fyrir á þessum
fundi, og var honum frestað.
í dag fer fram kosning forseta
og annarra embættismanna þings-
ins.
Akureyri,10. október.
Á laugardaginn bar svo við,
að tveir ungir sjómenn á
danska fisktökuskipinu Axel
Siff, sem lá við bryggju á Odd-
eyri, struku frá borði og lögðu
af stað fótgangandi inn Eyja-
f jörð.
Þeir héldu alla leið fram að
Núpufelli i Saurbæjarhreppi, sem
er lörig leið. Knúðu þeir þar dyra
fyrri hluta nætur. Þar býr Daníel
Pálmason og kona hans Ingibjörg.
Tóku þau á móti gestunum. Dan-
irnir vildu óðir og uppvægir ráða
sig í vinnu hjá þeim og hætta allri
sjómennsku.
Kornuppskeru
lýkur í vikunni
Egiil&stöðum, 10. október —
Kornuppskera er nú langt kom
in og aðeins er eftir að slá brot
af ökrunuim. Sennilega lýkur upp-
skeruinni í þessari viku, því að
veður er meg bezta móti, sólskin
og aldrei frost. E. St.
Skipstjórinn á Axel Siff saknaði
háseta sinna og fann þá hvergi.
Leitaði hann þá til lögreglunnar á
Akureyri. Hún fann þá á Núpu-
felli, þar sep þeir voru í bezta
yfirlæti. Voru þeir teknir og flutt-
ir til Akureyrar og afhentir skip-
stjóra.
Var þar með íslandsdvöl þeirra
lokið.
Skipið lagði frá bryggju á súnnu
dagskvöldið og fór út Eyjafjörð.
Strandaði það síðan laglega á Lauf-
ásgrunni. Morguninn eftir tókst
Laxá að draga það af grynningun-
um, enda var sandbotn á strand-
staðnum.
Má segja, að Dönunum hafi þótt
þetta söguleg sjóferð. E.D.
*
„A varamönnum
er vaxandi trú,,
Við þimgsetningu í gær kvaddi Skúli Guðmundsson sér hljðs
utan dagskrár og benti á, að lögum samkvæmt og að réttum
þingsköpum ætti elzti þingmaðurinn að gegna störfum aldurs-
forseta. Þá sat í forsetastóli Gísli Jónsson. Sagðist Skúli Guð-
mundsson ekki vita betur en að Jón Pálmason á Akri sem sæti
á þiniginu, væri maður eldri en Gísli Jónsson og væri því ald-
ursforseti þingsins og ætti að gegna störfum aldursforseta, ef
réttum lögum og þingsköpum væri fylgt.
Gísli Jónsson svaraði því til, að Jón hafi komið til þings sem
varamaður Gunnars Gíslasonar og hefði því formlega ekki tal-
izt þingmaður fyrr en bréfið um forföll Gunnars Gíslasonar
hefði verið lesið upp. — (Nokkuð var þá umliðið síðan bréf
þetta hafði verið lesið upp, en Gísli hafði gegnt forsetastörf-
um áfram og stjórnað skiptingu þingsins í kjördeildir og rann-
sókn kjörbréfs).
Gísli Jónsson sagðist gerla vita um aldur Jóns á Akri, en
ekki hefði verið talið rétt að skipta um forseta, og sat Gísli
sem fastast í forsetastól áfram, en Jón Pálmason kímdi í sæti
sínu skör lægra. Áður en fundi var frestað, gat Gísli þess, að
fyrir næsta fund myndi þetta aldursforsetamál hafa verið tek-
ið til rækilegrar athugunar.
—Flugu ýmsum í hug vísuorð Jóns Pálmasonar sem fram
sögumanns kjörbréfanefndar á síðasta þingi: „Á varamönnum
er vaxandi trú“. — f Ijós mun koma í dag, hvort telja megi
þessi orð Jóns Pálmasonar áhrínsorð.
Hásetarnir struku
og fóru í sveitina
— en skipið strandaði