Tíminn - 18.10.1961, Page 1

Tíminn - 18.10.1961, Page 1
Biðu björgunar okunum BjörgunarmaSnr beið í skafli um kílómeira frá þeim Fjórum sinnum styttra yfir heiðina en með ströndinni Lítill tilkostnabur aí gera íæran sumarveg, sagtSi Guðmundur Jónasson. Húsavík, 17. okt. — Eins og frá var skýrt í gær, urðu tveir menn veðurtepptir uppi á Reykjaheiði í Land Rover bíl. Lögreglan á Húsavík gerði út leiðangur eftir þeim, en festi bíl sinn norðan við Höskuldsstaðavatn. Annar lögreglumannanna sótti móti veðri og vindum tveggja og hálfs tíma gang til Húsavíkur og fékk í lið með sér Skarphéðinn Jónasson bifreiðastjóra á 10 hjóla trukk. Þeir fóru síðan og drógu lögreglubíiinn lausan og héldu á- fram til móts við félagana tvo í Land Rover bílnum, sem reyndust þá vera aðeins í eins kílómetra fjarlægð frá þeim stað, þar sem lögreglubíllinn festist! Komnir í pokana Mönnunum tveimur, William Frans Pálssyni og Höskuldi Jóns- syni, leið fremur vei í bílnum, þótt kalt væri úti fyrir. Þeir voru fremur illa fataðir, en höfðu svefn poka meðferðis, og í þeim héldu þeir á sér hita. Hins vegar mun þá hafa verið farið að svengja, því þeir höfðu lítinn eða engan mat meðferðis. Fór ekki í gang Var nú reynt að korna Land Rover bílnum í gang, en það tókst ekki. Var honum þá hnýtt aftan í annan björgunarleiðangursbíl- inn og dreginn til Húsavíkur. Þangað komust þeir um klukkan 11 í gærkvöldi, eða þremur tím- um eftir að þeir Skarphéðinn lögðu af stað á trukknum. Gullfaxi á mettíma til Glasgow Flaug á 2 klukkustundum og 4 mínútum Gullfaxi flaug á mettíma frá Reykjavík til Glasgow í gærmorg un. Vélin lagði af stag klukkan 8 og var lent í Glasgow eftir tvær klukkustundir og fjórar mínútur. Venjulegur flugtími á þessari leið er 2 stundir og 45 mín. Gullfaxi flaug í 23 þús. feta hæð. Meðvindurirm var rúmlega 100 hnútar. Flugstjóri á Gullfaxa var Skúli Magnússon. Meðalhraði Gullfaxa var 645 km. á tolst. AflögS leið Þessi leið yfir Reykjaheiði er mjög lítið notuð nú orðið og veg- inum lítt eða ekki haldið við. Síð- an vegurinn fyrir Tjörnes kom, (Framhald á 2. síðu.) Tíminn áífi í gær tal við Guðmund Jónasson, sem gerði tilraun til þess að fara á bíl yfir Trékyllisheiði um síðustu helgi.. eins og kunnugt er. Sagðist Guðmundur hafa gert þessa tilraun vegna sérleyfisins, sem hann hefur norður á Strandir i félagi við Guðjón Vigfússon. Sagði hann, að oft hefði verið tal- að utan að því, að eitthvað, yrði gert fyrir íbúa Árneshrepps, sem hafa ekki samgöngur nema eina bátsferð i viku, sem stendur í sambandi við áætlunarferðir að sunnan. Guðmundur fór við fjórða mann héðan að sunnan á bil með drifi á öllum hjólum og spili, og fyrir norðan slógust þrír aðrir í hópinn á rússneskum jeppa. En þeir voru of seint á ferð, heiðin var orðin blaut og illfær, auk þess sem veður spillti fyrir þeim, skúraveður og þoka skiptust á, en bjart á milli. Einnig munu þeir hafa lent vestar en heppilegt var. Fjórum sinnum styttri leið Taldi Guðmundur, að ekki myndi þurfa miklu til að kosta til þess að gera sumarfæran veg yfir heiðina að minnsta kosti, og taldi ekki tormerki á því að halda þá áætlunarferðum allt norður í Ár- nesshrepp, þar sem er talsverð byggð. Vegur yfir heiðina yrði auk þess um það bil fjórum sinn- um styttri en vegur með strönd- um fram, auk þess sem ekki eni nema örfáir bæir á þeirri leið, í kringum Kaldbak. Sá végur er líka torlagður, um kletta og klif Á heiðinni eru að vísu grjót og urðir á köflum, en mun auðveld- ara að gera þar veg en niður við ströndilna. Þar við bætist, að heiðin er ekki nema rúmlega 400 metra yfir sjávarmáli. Aðdráttarafl fyrir ferðafólk Virðist ekki fjarstæða, að lagn- ing slíks sumarvegar yrði tekin til rækilegrar athugunar, því ekki er ólíldegt, að slíkur sumarvegur yrði til þess að flýta fyrir góðum vegi yfir heiðina. En hvort sá i vegur yrði lagður þarna, þar sem ! Guðmundur fór, eða einhvers staðar annars staðr/r, sagðist hann ekki vilja segja neitt um, ,því hann væri ókunnugur á þess- I um slóðum. En hins vegar hlyti j að vera mikil bót að vegi yfir i heiðina, því bæði er talsverð byggð í Reykjarfirðinum og svo hitt, að Strandirnar myndu hafa geysilegt aðdráttarafl fyrir ferða- jfólk, ef auðvelt væri að komast 'um þær. Að lokum rómaði Guðmundur mjög gestrisni Bjarnfirðinga, en þeir veittu honum og mönnum jhans húsaskjól og mat og alla j fyrirgreiðslu á mjög rausnarlegan ! hátt. Hætt við að frost spilli Hornafirði, 17. okt. — Hér er komig frost, og er hætt við að það skemmi í görðunum, ef það heldur áfram næstu nætur. Marg- ir eiga eftir óuppteknar kartöflur, því allt hefur hjálpast að til að tefja fyrir þvi, að þær næðust upp, göngur og réttir heimta sinn tíma og rigning var allan septem- bermánuð og mestan hluta þess, sem af er október. Vegna votviðris ins hefur ekki verið fært með vél- ar um garðana, og þeir eru svo mikil flæmi, að ekki er gerlegt að taka upp úr þeim öðru vísi en með vélum. Þetta er þó nokk- uð misjafnt, sumir garðar eru það þurrir, að fært er um þá eftir einn dag þurran, aðrir þurfa tvo eða þrjá daga. Sumir Hornfirð- ingar eru ekkert farnir ag taka upp ennþá, sumir eru hálfnaðir og nokkrir búnir. Er það mjög bagalegt, ef uppskeran skemmist í görðunum, því útlit var fyrir góðá uppskeru í ár. A.A. Ein sit ég og sauma “v ” í haust hafa verið stöðugar rigningar á Akureyri. Þá hafa komið nokkrir þurrlr dagar og svalir og grípa þá börnin gjarnan tækifærið til leikja útl. Sum þelrra eru nýbyrjuð í skólanum, þar sem þau hafa lært leiki og dansa, eins og til dæmis: „Ein sft ég og sauma". 9 þús. hestar af einu túni áSkógasandi f \' ' ’ j A.-Eyjafjöllum, 17. okt. Sjaldan eða aldrei hefur fengizt 'betri uppskera af nýræktinni á Skógasandi er í ár. Þar eru nú 220 hektarar túns, sem sagt eitt stræsta samfellda tún á íslandi. Af túni þessu fengust eitthvað um 9000 hest- burðir af heyi. 35 eða 36 bændur nytjuðu túnið, og hafði hver bóndi mest 20 ha.., sumir minna, en skikastærðin á sandinum fer eftir þörf- um þeirra, sem hann nytja. Á. J. „Káetan”, „Glaumbær” og „Nætur- klúbburinn” í síðasta eintaki Lögbirtinga- blaðsins gefur að líta eftirfar- andi tilkynningu: „Ég undirritaður, Ragnar Þórðarson, Öldugötu 2, Rvík, rek veitingastarfsemi hér í bæ með ótakmarkaðri ábyrgð und- ir nafninu Káetan.“ Önnur samhljóða tilkynning fer á eftir, en þar segir, að veitingastarfsemi sé rekin und- ir nafninu Giaumbær. í þriðju tilkynningunni ségir frá veit- ingastarfsemi, sem er rekin undir nafninu Næturklúbbur- inn. Þessir aðskildu veitingastað- ir Itagnars verða allir í Fram- sóknarhúsinu. Blaðið hefur fregnað að í húsinu verði tíu til fimmtán vistarverur, þar sem veitingar verða á boQstól- um.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.