Tíminn - 18.10.1961, Qupperneq 3
TÍMINN, miSvikudaginn 18. október 1961
Vesturlönd missa for-
ustuna, en við sigrum
sagði Krústjoff á flokksþingi
NTB—Moskva 17. okt. —
22. flokksþing Kommúnista-
flokks Ráðstjórnarríkjanna
hófst í Moskvu í dag. Krúst-
joff forsætisráðherra sagði í
ræðu sinni við opnun þings-
ins, að Sovétríkin mundu
halda áfram kjarnorkuvopna-
tilraunum sínum til loka þessa
mánaðar og síðasta sprengjan
yrði 50 megatonn að sprengi-
mætti. „Við eigum líka 100
megatonna sprengju, en hana
notum við ekki, því að þá
mundum við sprengja vorar
eigin gluggarúður", sagði
hann.
Hann gaf þessar upplýsingar í
mjög langri ræðu um innan- og
utanríkismál. Hann neitaði því, að
Sovétrfkin hefðu sett nokkra úr-
slitakosti í Berlínarmálinu, og
sagði, að ef Vesturveldin sýndu,
að þau væru fús til að leysa vanda
málm, mundi frestur á undirritun
friðarsamninga við Þýzkaland ekki
skipta svo miklu máli. Og ef svo
fer, munum við ekki krefjast þess,
ag hann verði undirritaður fyrir
áramót., en reynt verður þó að
leysa málið eins fljótt og hægt er,
bætti hann við.
Rusk og Kennedy
skilningsgóðir
Við höfum ástæðu til að ætla,
ag Kennedy Bandaríkjaforseti og
Dean Rusk utanríkisráðherra hafi
skilning á ástandinu og vilji reyna
að finna lausn, sem báðir aðilar
geti unað við, Hið sama er að
segja um brezka stjórnmálamenn
eftir viðræður Gromykos við þá,
sem hér eru nefndir. Krustjoff
gerði utanríkismáiln ag urnræðu-
efni í ræðu sinni fyrir hádegið.
Hann endurtók fyrri skoðun sína,
að framtíðin væri framtíð komm-
únismans og þag væri verkefni
Sovétríkjanna að taka, forystuna
á sem flestum sviðum. Hann sagði,
að Sovétríkin óskuðu ekki eftir
stríði. í ræðu sinni sagði forsætis
ráherrann m.a., að S.þ. hefðu ekki
notið sín eins og vera ætti vegna
kalda stríðsins og krafðist þess, ag
kínversnn alþýðulýðveldið fengi
aðild að samtökunum. Enn frem-
ur sagði hann, að tími væri til
kominn, að ríkissamsteypurnar
þrjár í heiminum, kommúnista-
ríkin, kapítalistísku ríkin og hin
hlutlausu skiptu á milli sín völd-
unum innan S.þ. í samræmi við
ástandið, eins oð það er nú.
Sex atriSi
Krustjoff benti á þessi sex at-
riði til dæmis um stefnu Sovét-
ríkjanna í utanríkismálum:
'1. Fylgja skal grundvallarregl-
um friðsamlegrar sambúðar.
2. Vinna skal að innbyrðis sam
heldni kommúnistaríkjanna.
3. í utanríkismálum skal fylgja
fast fram virkri utanríkippólitík
með það fyrir augum að leysa
heimsvandamálin með samninga-
viðræðum og berjast gegn stríðs-
æsingamönnum.
4. Hafa skal samvinnu við alla,
sem vinna að friði í heiminum.
5. Unnið skal ag aukinni sam-
heldni vinnandi fólks og að veita
þeim þjóðum, sem eiga í höggi
við heimsvaldasinna og nýlendu-
kúgara, siðferðiiegan og raunhæf-
an styrk eins fljótt og auðig er.
6. Haldið skal áfram að út-
breiða verzlun og auka hana við
öll lönd, sem því eru hlynnt.
Vesturlönd ekki forysturíki
lengur — sósíalisminn
mun sigra
Krustjoff gerði því næst grein
fyrir ástandinu á Vesturlöndum
frá sínum bæjardyrum, og sagði
ag Bandari'kin væru ekki lengur
sjálfsagt forysturíki annarra vest
rænna iðnaðaríanda .Staða Breta
og Frakka hefði einnig versnað.
Hann fullyrti, að valdabarátta
ætti sér stað milli Bretlands og
V-Þýzkalands, og Frakkland hefði
tekið sér stöðu með Þjóðverjum
í því stríði. ,,En það er ekki leng-
ur úlfapólitík kapítalismans, sem
er afdrifaríkur þáttur í heims-
stjórnmálunum, heldur er það
sósíalisminn," sagði Krustjoff, og
um leið heyrðist dynjandi lófatak
nærri 5000 fulltrúa, sem þi.ngið
sitja. Enn fremur sagði hann, að
vel gæti verið, að heimsvaldasinn
ar vildu fúsir brjóta upp á ein-
hverju hættulegu ævintýri, en þag
væri sama og sjálfsmorð. Banda-
ríkin yrðu framvegis árásaraðili,
og héimsvaldasinnar hefðu á síð-
ustu mánuðum skapag hættulegt
ástand í Mið-Evrópu. Hann endur-
tók fyrri yfirlýsingu þess efnis,
að S'ósíalisminn mundi sigra í bar-
áttunni við kapítalismann. Sam-
Aðalfundur Kennarafélags-
ins Hússtjórn var haldinn í
Húsmæðraskóla Reykjavíkur,
dagana 24.—28. ágúst s.l.
Aðalmál fundarins voru: Út-
gáfa fræðslurits á vegum félagsins.
Kjaramál. Stofnsetning fagbóka-
safns fyrir félagskonur. Vinnu-
bókagerð. Mikil óánægja ríkti á
fundinum um launakjör húsmæðra
kennara, sem starfa við húsmæðra-
skólana. Töldu fundarkonur það
nauðsynlegt réttindamál, að þær
fengju sömu iaun og kennarar
við gagnfræðaskólana. Óviðunandi
væri það launamisrétti, sem ríkj-
ar.di væri, enda mjög erfitt að
fá kennara að húsmæðraskólun-
um.
Stjórnina skipa nú: Halldóra
Eggertsdóttir, fórmaður, Bryndís
Steinþórsdóttir, ritari, Jakobína
Guðmundsdóttir, gjaldkeri. Helga
Sigurðardóttir, Katrín Helgadóttir,
Dagbjört Jónsdóttir og Jakobína
Pálmadóttir.
Þessi ermdi vorú flutt á fund-
inum: Vaneldi og ofeldi, próf.
Júlíus Sigurjónsson. Uppeldismál
Sigurjón Björnsson. . sálfræðingur.
Kvikmyndir sem kennslutæki,
Gestur Þorgrímsson, kennari. Nýju
gerfiefnin, Elsa Guðjónsson, mag-
ister, Námskeið í tilraunamat-
reiðslu, sem haldið var í júlímán-
kvæmt sjónarmiðum Sovétríkj-
anna verður ag hreinsa loftið 1 al-
þjóðapólitík. Semja þarf um belti
án kjarnorkuvopna í Evrópu og
hinum fjarlægari Austurlöndum,
og löndin í NATO og Varsjár-
bandalaginu verða að semja um
að ráðast ekki hver á önnur. Hann
sagði, nð Albanía hefði vikið af
þeirri braut, sem Kommúnista-
flokkur Ráðstjórnarríkjanna hefði
markað í sambandi við persónu-
dýrkun, en folkkur vor mun gera
allt, sem í hans valdi stendur til
þess, að Albanía dragist ekki aftur
úr öðrum sósíalistaríkjum.
uði s.l. í Uppsölum, Halldóra Egg-
ertsdóttir, námstjóri. Norrænn bú-
sýsluháskóli, Steinunn Ingimund-
ardóttir, skólastjóri. Kennsla í
vefnaði og fréttir frá utanför,
Guðrún Vigfúsdóttir. Kennsla í
heimilishagfræði, Sigríður Haralds
dóttir, húsmæðrakennari. Ferða-
þáttur frá Ameríku, Gerður Jó-
hannsdóttir, húsmæðrakennari.
Farnar voru kynnisferðir í Raf-
tækjaverksmiðju Hafnarfjarðar og
málningarverksmiðjuna Hörpu.
\
Næsti aðalfundur verður hald-
inn í húsmæðraskóla ísafjarðar í
júlimánuði 1962 í sambandi við
fundinn var ákveðið að halda viku
námskeið í fjölskyldufræði eða
híbýlafræðikennslu.
Einn bátiir í smátt
Grím.sey, 17. okt.
Hér var töluverður stormur
í gær en ekki aftaka veður.
Bátarnir liggja á legunni og
voiu ekki ha^tt komnir, nema
einn snurpunótarbát rak upp
í fjöru og brotnaði hann í
spón. í dag er hér hvasst og
kalt, en sólskin og bjart yfir.
Hauststörfin eru í fullum
gangi, og eru bændur sem óð-
ast að leggja inn sláturafurðir
sínar. S.
Mikil óánægja
vegna launamála
Grímur Gunnarsson, sonur
Gunnars Gunnarssönar rithöfund-
ar, er íþróttafréttastjóri hjá blað
inu Aktuelt í Kaupmannahöfn, og
er hann meðal kunningja þar
nefndur íslenzka tröllið, þótt hann
sé maður smár vexti.
Nú fyrir skömmu gerði Grímur
samning vig teiiknarann Franz
Fiichsel, er þegar hefur teiknað
hann til prófs í því skyni, að
hann verði föst persóna í mynda
sögu. Hér er ein af prófteikning-
unum. Grímur er þar á reið við
Heklu.
Rafmagnið komið
að Skógum
A-Eyjafjöllum, 17. okt. — Eins
og kunnugt er, brann smíðahúsið
við Skógaskóla í haust, og þar
með eyðilögðust rafalar skólans.
Var þá lagt kapp á ag leggja raf-
línu frá Soginu austur, og var
straum frá henni hleypt á fyrir
rúmri viku. Hinn 10. þ.m. komu
nemendur þriðja bekkjar, og seink
aði því setningu skólans ekki
nema um 10 daga. í dag eru nem
endur fyrsta og annars bekkjar að
koma. Smíði verður í vetur kennd
í handavinnustofu barnaskólans,
sem stendur hér vestur undir
Skógaá. Á.J.
Þeir komu
ekki fram
NTB—Eiísabethville 17. okt.
Samkvæmt yfirlýsingu frá full
trúa Sameinuðu þjóðanna í
Kongó, Connor 0,Brien, er
ekki allt eins og til var ætl-
azt að því er snertir samkomu
lag S.Þ. og Katanga um vopna-
hlé.
O’Brien kveðst verða að fá
tryggingu fyrir afhendingu S.Þ.-
fanganna^ ef vopnahléið eigi að
haldast. Ágreiningurinn milli Ka-
tangastjórnar og S.Þ. virtist úr
sögunni eftir vopnahléssáttmál-
ann, sem undirritaður var sl.
föstudag. En S.Þ.-hermennirnir
182, sem skipta átti á í gær, þ.á.
m. norskur liðsforíngi, komu ekki
á tiltekinn stað á réttum tíma.
Dvalarstaður þeirra er ekki kunn-
ur fulltrúum Sameinuðu þjóð-
anna, en takið er þó, að þeir haf-
ist við í herbúðum skammt frá
Elizabethville.
Beita öllum meðulum
Utanríkisráðherra miðstjórnar-
innar í Kongó, Justin Bomboko,
sagði á blaðamannafundi í New
York í dag, að ef S.Þ. færu ekki
eftir óskum Kongóstjórnar, mundi
hún grípa til allra meðala til að
binda endi á aðskilnað Kongó og
Katanga.
Krústjoff fékk mis-
jafnar undirtektir
NTB—London, 17. okt. —
Ræða Krústjoffs, forsætisráð-
herra, við opnun 22. flokks-
þings Kommúnistaflokks Ráð-
stjórnarríkjanna hefur fengið
misjafnar viðtökur í flestum
höfuðborgum. Ummæli hans
um, að Sovétríkin geti fallizt
á að fresta undirritun friðar-
samningsins við Austur-Þýzka
land, eru talin benda til meiri
sveigjanleika en áður, og gæti
þetta orðið til þess að upp
yrðu teknar árangursríkar við
ræður milli austurs og vest-
urs.
Aftur á móti hefur fullyrðingu
hans um, að Sovétríkin muni
halda áfram tilraunum með kjarn-
orkuvopn og þar á meðal 50 mega-
tonna sprengju í nóvemberlok
verið tekið með áhyggjum og ugg.
Opinberar heimildir í Bonn segja,
ag ákvörðun Krustjoffs um að
halda ekki fast við að undirrita
friðarsamninginn strax, muni gera
auðveldara að finna viðræðugrund
völl fyrir austur og vestur. Á
það er þó jafnframt bent, að þessi
tilslökun komi ekki alveg á óvart,
þar eð áður hafi verið, á hana
minnzt í viðræðum, sem átt hafi
sér stað milli fulltrúa Breta og
Bandaríkjamanna annars vegar og
sovézkra fulltrúa hins vegar. Enn
fremur er það álit manna í Bonn,
að hinar óformlegu viðræður, sem
fram hafa farið í New York milli
austurs og vesturs eftir að alls-
herjarþingið hófst, hafi greinilega
haft áhrif í rétta átt.
Bretar taka í sama streng
f lopinberum heimildum frá
Bretlandi kveður við svipaðan tón
og í Bonn. Bretar telja, að Krúst-
joff sé nú í senn sveiganlegur og
harður, og það er talið mjög já-
kvætt, að hann skuli vera fús til
að fresta því, að undirrita friðar-
samninginn við Austur-Þýzkaland.
Ákvörðun Rússa um að halda á-
fram kjarnorkuvopnatilraunum ei
aftur á rpóti hörmuð mjög. Um
mæli Krútsjoffs um nýlendupóli
tík Breta eru skoðuð sem gamlai
kerlingabækur, sem ekki eigi séi
neina stoð í veruleikahum, Krúst
joff hefði látið eins og hann viss
ekki, að allur fjöldinn af íbúun
nýlendnanna hefði nú öðlazt sjálf
stæði. Pierre Salinger, blaðafull
trúi Kennedys Bandai'íkjaforseta
sagði í dag, að bandaríska stjórn-
in vildi ekki alve.g strax láta í Ijós
álit sitt á ræðu Krústjoffs. Vitaf
er, að þau orð hafa verið látin
falla vestan hafs, að þó að Sovét-
ríkin hyggist gera tilraun með 5C
megatonna sprengju í nóvember-
lok, þurfi það ekki endilega að
þýða, að þau standa Bandaríkjun-
um framar um smíð kjamorku-
vopna.