Tíminn - 18.10.1961, Qupperneq 4

Tíminn - 18.10.1961, Qupperneq 4
4 T I M I N N , miSvikudagiim 18. október 1961 Dr. phil Haye-Walter Hansen sýnir oHumál verk og teikningar á Mokka. Haye-Walter Hansen heitir þýzlcur fornleifafræSingur, sem hefur lagt mikla stund á málaralist, tekið ástfóstri við ísland og gert héðan málverk og teikningar, sem sýndar hafa verið víða um 'Þýzka- land. Þe&sa dagana heldur prófessor Hansen málverkasýningu á Mokka, sýnir þar 15 olíumyndir og 20 teikningar. Arfleiddi ríkið Myndirnar eru margar frá ís- landi og sýna íslenzkt landslag, íslenzka þjóðhætti og fólk. Hann hefur lagt sérstakt kapp á að teikna gamla íslenzka torfbæi og íslenzka þjóðbúninga. Hann hef- ur gert erfðaskrá, þar sem hann arfleiðir íslenzka ríkið að þeim teikningum sínum. Eru þag ein 20 málverk og teikningar og hafa verið sýndar víða í Þýzkalandi og vakið mikla athygli í blöðum.1 Svartlist Haye-Walter Hansen er fæddur í Ilamborg og naut kennslu í myndlist hjá hinum kunna þýzka málara, próf Wohlers, við lista- háskólann í Hamborg. Lagði hann þar sérstaka stund á svartlist. Síð an ferðaðist hann sem fornleifa- fræðingur u.m Norðurlönd, Frakk land, England, Belgiu, Sviss og fta-líu og málaði jafnframt kynstr- in af myndum. Til íslands kom han-n fyrst árið 1949 og hefur dval ið hér langdvölum síðan, enda vel fær í íslenzku. Enn fremur hefur hann starfað í Færeyjum og sýnir þaðan nokkrar myndir á Mokka, ásamt myndum frá öðrum þjóðum. Próf. Hansen vinnur að undirbún- ingi bóka rum ísland, verður hún gefin út í Þýzkaiandi og verða í henni allmargiar myndir eftir hann. — Stutt athugasemd — Ríkisstjórnin hefur enn lagt fyrir Alþingi frumvarp um breyt- ingu á Áburðarverksmiðjulögunum, þar sem meginefnið er að leggja niður Áburðarsölu ríkisins, en ríkisstjóininni veitt heim- ild til að fela Áburðarverksmiðjunni h f., að flytja inn er- lendan áburð. Þetta. er í þriðja sinn, sem ríkisstjórnin flytur frv. um þetta efni á Alþirigi. Tvisvar er búið að lesa í útvarpið greinargerð fyrir fiv. Og enn mun það gert í þriðja sinn. Megintilgangur frv. er talinn vera að koma á hagkvæinara fyrirkomulagi en verið hefur við verzlun með tilbúinn áburð. Og að því tilefni er upplýst, að reksturskostnaður Áburðarsölu ríkisins árið 1959 hafi verið kr. 674.441.91. En við þetta er það að athuga, að reksturskostn- aðurinn 1959 var kr. 409.116.14, en ekki eins og greinir í aths. Mismunurinn eru vextir og bankakostnaður um kr. 260 þús., auk smáupphæðar í fyrningu. Þetta umrædda ár var innflutningur óvenju mikill °ða 23— 24 þús. smálestir, auk Kjarnans, sem Áburðarsa.'an hafði þá sölu á. 1960 var innflutt um 16 þús. smál af áburði og það ár annaðist Áburðarverksmiðjan um söluna á Kjarnanum Enda lækkaði þá reksturslcostnaður Áburðarsöhmrar niður í kr. 340 þús. En vextir og bankakostnaður, sem var kr 260 þús. árið 1959, hækkaði í kr. 588 þús. árið 1960. Er það kr 328 þús. hækkun þrátt fyrir stórum minni innflutning og verzlun. Á þessu má ljóst vera, að fleira hefur áhrif á áburðarverðið heldur en reksturskostnaður Áburðasölu íkisins. Og er varla viðeigandi, að telja hann annan eða meiri en hann í raun og veru hefur verið. Björn Guðmundsson. Við öil hreinlæfisverk er þessi sápa bezi Notið Sólskinssápu til þess að gera matarílát yðar tandurhrein aS nýju. Notið hina freyðandi Sólskinssápu við heimilisþvottinn, gólfþvott og á málaða veggi, I stuttu máli við öll þau störf, þar sem sápa og vatn koma til greina. Hin freyðandi Sóiskinssápa fjarlægir þrálátustu óhreinindi á svipstundu, án nokkurs nudds. Munið að Sólskinssápan fer einnig vei með hendur yðar. NotiS Sólskinssápu viS öll hreinlætis- i- verk heimilisins. \ Allt harðleikið nudd er hreln- astióþarfi. Haldið góifum og máluðum veggjum hreinum og björt- um með Sól- skinssápu. ; • Skagfirðingar í Reykjavík Fyrsta spilakvöld Skagfirðingafélagsins verður í Ti'arnarkaffi, fimmtudaginn 19. okt. kl. 20.30. Fjölmennið og mætið stundvíslega. Stjórnin. Húseigendur Tjarnarcafé Keimilishjáip 1 i lek gardmui og diika i strekk • tvzu IJpDlvsingar » sima 17045 V*-V*V*N.*,V»V*'V‘V*V*V*V»N.*V*,V Auglýsingasími TÍMANS er 1 95 23 Geri við og stilli oliukynd ineartæki Viðgerðtr á alls kunar tieimilistækium NV smiði Látið fagmann ann ast verkið Sími 24912 og 34449 eftir kl 5 síðd Tökum að okkur alls konar veizlur og fundarhöld. — Pantið með fyrirvara í síma 15533. 13552. Heimasími 19955. Kristján Gíslason

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.